Vísir - 17.03.1954, Síða 3

Vísir - 17.03.1954, Síða 3
v t s r r Miðvikudaginn 17. marz 1954 & Þér getið Brvegið þvottinn sjáBfir Þér getið fengið þvottinn þveginn samdægurs eða næsta dag. Þér gefið fengið þvottinn strokinn og frágenginn að fullu. j SNORRALAUG Sími 7005 Hrein trú og kenning. A vígsludegi lofum vér, sem hlotið höfum prestvígslu því hátíðlega að boða Guðs orð hreint og ómengað mönnunum til sáluhjálpar. í helgisiðabók íslenzku þjóð- kirkjunnar frá árinu 1934 (handbók presta), sem er í gildi, er þessi kafli nr. 8: Vígsluheiti og vísgla: Að lokinni vígsluræðu sinni ávarp- ar biskup kandidatinn (kandi- datana) á þessa leið: Nú brýni eg alvarlega fyrir þér (yður) að prédika Guðs orð hreint og ómengað, eins og það er að finna í hinum spámannlegu og post- ullegu ritum, og í anda vorrar evangelisku lúthersku kirkju. Fyrir kirkjunnar hönd spyr eg þig, hvort þú lofir því af einlægu hjarta, að gjöra þetta eftir því, sem Guð veitir þér náð til. Kandidatinn svarar:'Já. Þá segir biskupinn: Gef þú mér og þessum bræðrum hönd þína því til staðfestu. Þá réttir kandidatinn hönd sina fyrst biskupinum og síðan vígsluvottunum, því næst krýpur hann o. s. frv. I Tilefni þessa greinarkorns er það, að los og stefnuleysi virðist óneitanlega vera innan kirkju vorrar, hvaða boðskap | megi kenna og deilt er um, hvað sé rétt kenning. Söfnuðum víðast hvar á landi voru virðist liggja í léttu rúmi, hvort presturinn heldur þessa hátíðlegu vígslujátningu (fyrr- um vígsluéið) eða ekki. Af þeim sökum er losið og festuleysið innan kirkju vorrar í ýmsum efnum jafn mikið og raun ber vitni. Glundroðinn og stefnu- leysið er áberandi. Mest er nú miðað við trúmálaflokka. Það er leitt að verða að við- urkenna, að fólk virðist yfir- ' leitt alls ekki gera greinarmun á hreinum kristilegum boðskap og kenningu, sem er óskyld kristindómi. Grundvöllur kristindómsins er hinn krossfesti og upprisni Frelsari og Drottinn Jesús sem lof eða last. Sennilega hið síðastnefnda. Almennt mun fátt vera tekið alvarlega nú á dögum, jafnvel ekki boðskapur Orðsins sem flutt er. Þjóðlífið og líf vort sjálfra væri með öðrum blæ og Kristur oss syndugum mönnum til heilla og sálubóta. Þar birt- ist opinberun Guðs í Jesú Kristi. Feli prédikun þetta ekki í sér á hún ekkert erindi í kirkju og er ókirkjuleg. Þetta verða jafnt prestar og söfnuðir að skilja og hafa jafnan hugfast. Einnig á trú og breytni vitanlega að fylgjast að í lífi voru, þótt allir verði að játa - vanmátt sinn í þeim efnum. Hægar er að kenna heilræðin en halda þau. Ýmsir virðast ekki taka prestsstarfið alvarlega. Fyrir nokkurum dögum sagði maður einn við mig eitthvað á þessa leeið: Eg held að erfiðleikar þínir í prestsstarfinu hafi mest stafað af því, að þú hefir tekið prestsskapinn alvarlega. Þú átt að prédika það, sem fólkið vill hevra! — Ekki vissi eg í fyrstunni. hvort. eg ætti að taka ho<-"' er-ð af vörum mannsins heilsteyptara, ef boðskapur Jesú Kris-s næði að bera meiri sýnilega ávexti í lífi vor allra, því vitanlega er trúin dauð án verkanna. Trúin á að birtast í verki. Það segir Kristur sjálfur. Lúther kirkjufaðir vor, sem öðlaðist trúna eftir mikla bar- áttu, taldi að dæma bæri sér- hverja prédikun eftir því, hvort hún ræki erindi Krists eða ekki. Þungamiðjan væri Jesús Kristur. Lúther var hálærður guðfræðingur. Þurfa menn ekki að vera í neinum sérstök- um trúmálaflokki til þess að skilja þetta. Þetta munu frjáls- lyndir jafnt og íhaldssamir trú- menn skilja, ef þannig má kom- ast að orði. Og sama gildir þá um aðrar trúmálastefnur. Boð- skapur vor kirkjunnar manna á að mótast af meiri festu. Hér þarf fastlyndi, ákveðinn krist- inn boðskap innan kirkju vorr- ar. Það er því ekki sama hvaða kenning er boðuð. Stundum heyrist t. d. sagt: Það er enginn munur á Búdda og Kristi. Báðir miklir trúar- bragðahöfundar. Þessu eiga kristnir menn ekki að láta ómótmælt. Jesús Kristur er Frelsari mannanna. Engin kenning er æðri kristin- dóminum, ef hann er tekinn al- varlega. Hitt er svo annað mál, hve grátlega lítt vér menn er- um kristnir í raun og sannleika og veröldin skammt á veg kom- in í andlegu tilliti þrátt fyrir allar prédikanir og kristin- dómsboðskap. Eru ekki sjálfselskan og eigin girnin því miður ríkasti þátt- urinn í fari voru? Hver er sá vor á meðal, að hann breyti eftir þessu boði Krists, að elska náungánn eins og sjálfan sig. Gera stjórnmálamennirnir það? Ekki sýna blöðin það fyrir kosningar eða stjórnmálaræð- urnar. Gerum vér það, sem berum kristið heiti? Ekki ber mannfélag vort þess almennt vottinn. Þannig má lengi spyrja og freista að svara. Nei, mannheimur væri ekki eins á vegi staddur andlega og efnislega, ef kærleikur Krists sæti. í fyrirrúmi. Og vitanlega væru allar prédikanir óþarfar, ef vér breyttum eftir boðum Krists um að elska hvert annað óeigingjarnri elsku. Þá sýnd- um vér kristna prédikun bezt i verki. Því í raun og veru er- um vér allir prestar. Hygg eg óþarfi að hafa þetta mál lengra. Lesendur geta hug- leitt þessi orð mín og spurt prestinn sinn, ef þeir eru í vafa, hvort þetta séu öfgar hjá mér um hreina trú og kenning. Raunar er bezta og sannasta prédikunin sú, að sýna trú sína í verkunum og uppíylla þannig boðorð Krists. Slíkt gerir prestsstárfið léttbærara. Ragnar Benediktsson. Stálvaskur í stálbörði með rennihurðum hentugur fyrir verzlanir eða vinnustaði. Til sýms og sölu Kvisthaga 12 kl. 8—6 e. h. > þéttigúmmí fyrir alla bíla, litla og stóra. Einnig til- heyrandi lím. Pedalgúmmí fyrir flesta bíla. Gúmmímottur, sniðnar og ósniðnar, fyrir flesta \ bíla. ORKA H.F Laugavegi 166. amP€R Raflagnir -r ViðgerSir Raftcikningar Þingholtsstræti 21. Simi 81 556. EGGERT CLAESSEN GÚSTAF A. SVEINSSON hœstaréttarlögmenn AHskonar lögfræðistörf. Fasteignasala. Templarasundi 1 (Þórshamar) Pappírspokagerðin h.f. i Vitastig 3 AllsJc.pappirspokarl Þúsundir vita að gæfan fylgir hringunum frá SIGURÞÓR, Hafnarstræti 4. Margar gerðir fyrirliggjandi. Vogabóar Munið, ef þér þurfið að auglýsa, að tekið er á móti smáauglýsingum í Vísi í i > Verzlun ArmaJ. Sigurðssonar, Langholtsvegi 174 Smáauglýsingar Vísis eru ódýrastar og fljótvirkastar. M.s. Dronning Alexandrine fer frá Kaupmannahöfn 18. marz til Færeyja og Reykja- víkur. Flutningur óskast til- kynntur sem fyrst til skrif- stofu Sameinaða í Kaupmanna- höfn. Skipaafgreiðsla Jes Zimsen - Erlendur Pétursson - Stulka óskast til eldhússtarfa strax. Wegu- Skólavörðustíg 3, Uppl. í síma 2423. Bólstruð húsgögn Nýkomin sófasett, armstólar, svefnsófar. Fjölbreytt úrval. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. J Húsgagnaverzlun Guðmundar Guðmundssonar • Laugavegi 166. l'ÝÝ J| ' . 'MiPBRj Unrfanfarið, heíur Pí-r< þáfi 12. varið ir.jög veikur og vart hugað Iíf. Fjöldi manns hefur beðið fyrii- Jtonum, eg hév á myndinni færir rómversk kona kirkju sinni þakkarkerti vegna páfa, sem sagður ’cr á batavegi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.