Vísir - 19.03.1954, Blaðsíða 1
44. árg.
Föstirdaginn 19. marz 1954
64. (61.
BarcdarikjðmeKii elgs á 2. fsiísniid | íbúðarbraggi
kjamorkiisprengjiir, — Riíssar I brennur í nótt.
Kokkur
A læsta ssx árin
hafa fífaSdal kl
snunu
c>% R f'
sina.
Stokkhólmi í marz.
í nýíitkomnu tölublaði a£
tímaritinu „Kontakt med
krigsmakten", sem sænska yf-
irherstjórnin gefur út, eru
heldur óskemmtilegar upplýs-
ingar að finna í sambandi við
styrjöld, sem yfir heiminn
kynni að dynja.
Þar er m. a. löng grein og
ítarleg um vopn þau, sem stór-
veldin eiga þegar í fórum sín-
um, eða munu eignast á næstu
árum. Þar er langur kafli um
kjarnorkustyrjaldir og segir
þar á þessa leið:
Sennilegt er, að Banda-
ríkjamenn eigi í fórum sín-
um talsvert á 2. þúsund
kjarnorkusprengja, en Rúss-
ar nokkur hundruð. Líklegt
er, að Bandaríkjamenn geti
framleitt mörg hundruð
slíkar sprengjur á ári, en
Rússar að líkindum um eitt
hundrað.
Unnið er kappsamlega að því
að stækka og bæta kjarnorku-
vopnaverksmiðjur, og um 1960
munu Bandaríkjamenn hafa
fimm- eða tífaldað afköst sín á
þessu sviði, en Rússar sennilega
meira en tífaldað sín. Hin
smærri ríki 'munu einnig geta
framleitt kjarnorkuvopn, a. m.
k. er það ekki útilokað af tækni-
legum ástæðum. Vetnissprengj-
um er sennilega engin takmörk
sett um orku, fræðilega séð, en
það er hins vegar undir þyngd
írans-þing
sett í gær.
Hersveitir gráar fyrir járnum
voru staðsettar meðfram öllum
gangstéttum í gær, meðan keis-
arinn ók til þinghússins til að
flytja þingsetningarræðuna, en
þingið kom nú saman í fyrsta
skipti eftir fall Mossadeghs í
ágúst s.l. sumar.
Meðan keisarinn flutti ræð-
una voru léttir skriðdrekaflokk
ar á torginu fyrir framan þing-
húsið. Leynilögreglumenn voru
víða. Keisarinn sagði í ræðu
sinni, að vonir stæðu nú til, að
samkomulag næðist í olíudeil-
unni. Hann kvað utanríkis-
stefnu Iran byggjast á sáttmála
Sameinuðu þjóðanna.
Franskar sprengjuflugvélar
gerð harðar árásir á lið og
stöðvar uppreistarmanna við
Dienbienfu í gær. Eru þetta
mestu sprengjuárásir, sem
franskar flugvélar hafa gert á
einum degi í Indókínastyrjöld-
inni.
Frakkar tilkynna, að varn-
irnar við Dienbienfu hafi verið
endurskipulagðar.
þeirra komið, hver orka þeirra
er. Áhrif þeirra ná yfir fimm
sinnum stærra svæði en hinar
fyrstu kjarnorkusprengjur.
Kjarnorkufallbyssukúlur og
sjálfstýrð kjarnorkuskeyti eru
þegar framleidd í Bandaríkjun-
um, en sé svo, að Rússar séu
ekki nú þegar farnir að smíða
þess konar vopn, geta þeir það
vafalaust innan skamms tíma.
Gera verður ráð fyrir, að
sjálfstýrð skeyti verði skæð-
ustu varnarvopnin innan
skamms. Þá verða bráðlega
framleidd dufl, sem erfiðara
verður að slæða en þau, sem til
þessa hafa tíðkazt. Benzín-
hlaupssprengjur verða mjög
notaðar, og vel getur verið, að
ýmsar gastegundir verði til
taks hjá stórveldunum, sem
menn hafa engin skil kunnað
á til þessa.
í nótt brann íbúðarbraggi að
Laugarneskampi 18, og skemmd
, ist hann það mikið, að hann er
óíbúðarhæfur.
Eigandi braggans er Guðni
Guðmundsson og bjó hann þar
ásamt fjölskyldu sinni.
Slökkviliðið var kvatt á stað-
inn klukkan rúmlega tvö í
nótt, og var mikill eldur í bragg
anum, er að var komið, en fólk-
ið komið út. Varð að rífa mikið
innan úr bragganum, í eldhúsi,
stofu og svefnherbergi, til þess
að komast fyrir eldinn, en
bragginn brann mikið að xnnan.
Einhverju af húsmunum varð
bjargað en mikið af þeim
skemmdist af vatni, reyk og
eldi.
Talið er að kviknað hafi í
út frá kolaeldavél í eldhúsi
braggans.
Nýr yfirmaður
varnarliisins.
Svohljóðandi tilkynning hef-
ir Vísi borizt frá utanríkisráðu-
neytinu:
Ralph O. Brownfield hers-
höfðingi, sem verið hefur yfir-
maður varnarliðsins frá því í
júní 1952 lætur af því starfi í
byrjun næsta mánaðar.
Við starfi hans sem yfirmað-
ur varnarliðsins tekur Donald
R. Hutchinson, hershöfðingi.
Úfriðarblika
yfir ðsra’el.
Brezku blöðin í morgun ræða
aukna cfriðarbættu vegna árás-
arinnar, sem gerð var í Israel.
Daily Telegraph, sem er eitt
af blöðum íhaldsflokksins, tel-
ur þessa hættu mikla, og brýna
nauðsyn beri til, að jafna allan
ágreining milli ísrael og ná-
grannalandanna. Blaðið segir,
að þeirri staðreynd verði ekki
haggað, að Ísraelsríki sé komið
á laggirnar, og nú verði að koma
á löglegri og varanlega tryggri
sambúð þjóðanna á þessum
hjara.
Áfengislagafrumvarpið er
nú komið úr nefnd.
Talsverðar breytlngar á frumvcirpmu.
Allsherjai-nefnd neðri deildar Alþingis skilaði í dag
nefndaráliti um frumvarp til áfengislaga, sem komið var
frá efri deild. Frumvarp stjórnarinnar tók þar talsverðum
breytingum, svo sem heimild til að brugga sæmilega sterkan
bjór.
Allsherjarnefnd neðri deildar gerði þessar breytingar á
frumvarpinu eins og það kom frá efri deild.
1. Heimild til að brugga áfengan bjór ér felld niður,
nema til útflutnings.
2. Áfengi má ekki senda gegn póstkröfu.
3. Sérstök nefnd dæmi um hvaða veitingastaðir
teljist fyrsta flokks.
4. Hert á ákvæðunum um vínveitingaleyfi til félaga.
5. Bætt inn ákvæðunum um áfengisvarnarráð og
skal ríkissjóður bera kostnað af því.
Nokkrar aíirar smærri breytingar eru einnig gerðar og
yfirleitt má segja að nefndin hafi meira haliast að sjónar-
miðum bindindismanna en efri deild. Þó hefur hún ekki tekið
upp ákvæðið er bannaði þjórfé á vínveitingar og ekki heldur
ákvæðin um sérstök fjárframlög til áfengisvarna, sem var
í frumvarpinu upphaflega.
Frumvarpið mun koma til umræðu í deildinni á mánudag.
Eftir því sem nær dregur páskum, fer skfðafólkið að láta sig
dreyma um hjarðbreiður og sólskin. Mynd bessi er frá Alpa-
fjöllum, og myndi margan íslenzkan skíðamanninn fýsa að
komast í svona landslag.
Egyptar vilja ekki fara
í stríð vegna Tyrklands.
Naguib rseðir við biaðamenn.
Naguib forseti Egyptalands
kveðst ekki leggja kapp á sam-
komulag við Breta um Suez-
eiði, eins og sakir standa.
Hannátti fund með frétta-
mönnum í gær og kvað það ó-
frávíkjanlegt skilyrði, að ekki
yrðu hafnar opinberar viðræð-
ur af nýju, fyrr en tryggt væri,
að gengið yrði að kröfum E-
gypta í meginatriðum. Kröfur
Egyptalands væru, að Bretar
yrðu á brott með herlið sitt, og
að sérfræðingar og vélamenn,
sem yrðu þar áfram, ef svo yrði
um samið, bæru ekki einkenn-
isbúninga, o. s. frv. Naguib
kvað Egyptaland geta fallist á,
að erlent herlið yrði flutt aft-
ur til Suezeiðis, en því aðeins
að eitthvert ríkjanna í Araba-
bandalaginu yrði fyrir ofbeldis
árás. Egyptaland gæti hins veg-
ar ekki fallist á, að herlið yrði
flutt þangað, veg'na styrjaldar,
sem Tyrkir lentu í. Tyrkland
væri í Norður-Atlantshafs-
bandalaginu, en Egyptaland
vildi ekki flækjast inn í styrj-
öld vegna Tyrklands.
Talið er, að með þessum um-
mælum miði Naguib jafnframt
að því að treysta aðstöðu sína
sem leiðtogi þjóðanna í Araba-
bandalaginu.
Atkm viðskipti
vesturs.
Norrænir sjómonn
gegn McCarraniögunum.
Fulltrúar samtaka sjómanna
á Norðurlöndum áttu nýlega
fund saman í Stokkhólmi til
þess að ræða McCarran-lögin
bandarísku, en þau snerta sjó-
menn á erlendum skipum, er
sigla til Bandaríkjanna.
Gefin var út sameiginleg
yfirlýsing þessara samtaka, þar
sem lýst er yfir ugg í sambandi
við þær ráðstafanir að krefja
sjómenn um sérstakar áritanir
á vegabréf þeirra. Var þess
vænzt, að bandarísk yfirvöld
tækju lög þessi til endurskoð-
unar og féllu frá áritunum þess-
um.
Efnahagsnefnd Sameinuðu
þjóðanna fyrir Evrópu sam-
þykkti í gær einróma ályktun
um aukin viðskipti Austur- og
Vestur-Evrópu.
Fulltrúar Breta og Rússa
höfðu samvinnu um að ganga
frá uppkastinu, sem var bræð-
ingur úr tillögum Breta og
Rússa. Fulltrúi Rússa kvað það
góðs vita um viðskiptasam-
vinnu á komandi tíma, hve góð
samvinna Breta og Rússa hefði
verið um uppkastið. —- Full-
trúi Breta, Reading lávarð-
ur, ræddi einnig góða samvinnu,
en gat þess, að ályktunin fjall-
aði ekki um hráefni eða annað,
sem nota mætti til hernaðar-
legrar framleiðslu.
• Dag Hammersköld, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna hefur verið kjör-
inn í sænsku akademíuna.
Er hann yngstur þeirra, sem
þar eiga sæti.