Alþýðublaðið - 21.05.1920, Blaðsíða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
skipar honum. Hann hafði setið
3 ár í gæzluvarðhaldi, er málinu
lauk, og var það látið nægja sem
fangelsishegning og honum slept
úr fangelsinu.
Frá Japönum.
Japan hefir heitið 7000 sterlings-
punda verðlaunum þeim, sem
fyrstur flygi frá Róm til Tokio.
Samkv. skeyti, sem nýlega stóð í
Alþbl., hafa 2 ftalskir flugmenn
freistað þessa þegar, en fórust við
Persaflóa. Ókunnugt er, hvort
fleiri hafa reynt. Þetta mun ganga
Ástralíufluginu næst að lengd.
Ii dagiDÐ 09 veginn.
Yeðrið í dag.
Reykjavík .... NNA, hiti 5,1.
fsafjörður .... NA, hiti 0,7.
Akureyri .... N, hiti 3,0.
Seyðistjörður . . logn, hiti 2,1.
Grímsstaðir . . . SA, hiti 4.5.
Vestm.eyjar . . . SSA, hiti 6,1.
Þórsh., Færeyjar SSV, hiti 9,5.
Stóru stafirnir merkja áttina.
-í- þýðir frost.
Loftvog lægst fyrir suðvestan
land og stígandi nema á Austur-
landi; austlæg átt; úrkoma á
Norður- og Austurlandi.
ísland kom hingað frá Eng-
landi kl. 4 í gær. Farþegar voru
22. Meðal þeirra voru: Frank
Frederiksson flugmaður, Oben-
haupt stórkaupm., ungtrú Th.
Friðriksson, Gunnar Kvaran, Sig-
urbjörn Ármann.
Botnyörpungnrinn Geir kom
frá Englandi í gær fullfermdur
kolum.
Sumarbústaðnr Borgarstjóra.
Fasteignanefnd bæjarstjórnar (Sig.
jónsson, Þórður Bjarnason og borg-
arstjóri) hefir lagt til að borgar-
stjóra séu »heimiluð afnot efri
veiðimanna húsanna í sumar«. Út
af fyrirspurn Jóns Baldv. um það,
hvaða leigu borgarstjóra væri ætl-
að að greiða, svaraði Sig. Jóns-
son þvf, að meiri hluti fasteigna-
nefndar hefði ætlast til að afnotin
væri leigulaus, óg bætti við, að
nefndin vildi xgjarnan hafa borg-
arstjóra þar uppfrá í sumar*. En
ef einhver önnur nefnd vildi nú
hafa borgarstjóra hérna niður frá?
Lax veiddist í rauðmaganet í
Lauganesi núna í vikunni.
Dýrleif Árnadóttir biður þess
getið, að gefnu tilefni, að hún riti
ekki undir nafninu „Skúta".
SíIdVeiði. Mb. »Skjaldbreið«
kom f gær með 30—40 tn. af síld,
sem hún hafði veitt í reknet. Síld
in er heldur mögur, en væn og
er fryst til beitu Nokkur fleiri
skip stunda síldveiði, en ekki mun
aflmn verða saltaður að þessu sinni.
Bafmagnsnefnd hefir eftir til-
lögu A. B Christensens verkfr.
samþykt tilboð um trépípur til
rafveitunnar frá A,s. Tubus í
Kristianíu, og kosta þær 251 þús.
kr. Annað tilboð lá fyrir frá Con-
tinental Pipe Manufactury Co.
NewYork, er hljóðaði upp á 240
þús Var talið að verðmunurinn
mundi vinnast upp á ódýrara flutn-
ingsgjaldi, og norska tilboðið að
öðru leyti ítarlegra og aðgengilegra.
Bæjarverkfræðingurinn. Um-
sóknir um bæjarverkfræðingsstöð-
una höfðu koinið frá 2 mönnum,
þeim Hirti Þorsteinssyni fyrv.
bæjarverkfræðingi og G. V. Aade-
rup í Esbjerg. Veganefnd lagði
til, að Aaderup væri veitt staðan.
En bæjarstjórnin felst ekki á þá
veitingu, heldur samþykti till. frá
Jóni Þorlákssyni um að auglýsa
bæjarverkfræðingsstarfið í Danm.,
Noregi, Svíþjóð og Þýzkalandi,
og óska sérstaklega eftir mönn-
um, sem fengist hefðu við bæjar-
starfsemi, og láta þá jafnframt
gera sjálfa kröfur um kaup sitt.
Borgarstjórakosningin. For-
seti bæjarstjórnar skýrði frá á
fundi í gær úrslitum borgarstjóra-
kosningarinnar 8. þ. m. og árnaði
síðan hinum nýkosna borgarstjóra
allra heilla. Bæjarfulltrúarnir sumir
tóku undir með þvf að standa
upp, en borgarstjóri þakkaði.
Knnd Zimsen borgarstjóri hefir
ekki enn þá svarað fyrirspurnum
þeim, er »Borgari« lagði fyrir
hann hér í blaðinu 15. þ. m.
Hvað veldur?
Til götngerðar vantar bæinn
um 120 tunnur af tjöru, og hefir
veganefndin samþykt að leita til-
boða um tjöruna.
. Gnnnlangi Pétnrssyni- hefir
eins og að undanförnu verið falin
varzla Elliðaánna í sumar.
Yerðlann. Mjög er það. farið
að tíðkast, að sjá heitið háum
verðlaunum fyrir það, ef einhver
getur vísað á eða útvegað her-
bergi. í Danmörku er slíkt bann-
að með lögum.
Ari Jónsson frá Húsavík hefir
nýlokið efnafræðisprófi í læknis-
fræði með fyrstu einkunn.
Theodor N. Siggeirsson hefir
flutt veizlun sína á Bjargarstíg 2.
Alþýöubladid
er ódýrasta, fjölbreyttasta og
bezta dagblað Landsins.
Kanpið það og lesið, þá
getið þið aldrei án þess verið.
Föt eru hreinsuð og pressuð
í Grjótagötu io, uppi.
Prímnsviðgerðin á Lauga-
veg 12 er flutt í Bergstaðastræti
11. Þar er líka gert við barna-
vagna.
Verzlunin „Hlíf“ á Hverfisgötu
56 A selur: Hveiti, Haframjöl,
Sagogrjón, Bygggrjón, Kartöllu-
mjöl, Hænsnabygg, Mais heilan
og Baunir. Kæfu, Tólg, Steikar-
feiti og ís). Margarine. Rúsínur,
Sveskjur, Gráfíkjur og Kúrenur.
Sæta saft, innlenda og útlenda,
Soyju, Matarlit, Fisksósu og Edik.
Niðursoðna ávexti, Kjöt, Fiska-
bollur, Lax og Síld. Kaífi Export
og Sykur.
Suðuspíritus og síeinolíu o. m. fl.
Spyrjið nm verðið!
Beynið yörugæðinl
Ælliz- þeir sem vilja fá vel
og ódýrt gert við Prímusa koma
til Guðna Þorsteinssonar Miðstr.
3. Þar eru einnig lakkhúðaðir og
málaðir Barnavagnar og margt fl.