Vísir - 08.04.1954, Síða 7
Fimmtudaginn 8. apríl 1954.
VISIB
'/•V *»V.VAV V*V«V*V»V»W«**V*V»VA% i ••••*•«•%■*•«*.* •>•***•*.«.%'**•'.*/**«* •«•*
^ini £(*■>■■*'&* *■■■■*&] *■■■■'S *■*■*■*■ *■■■*■*ÍS.*■*■■■*»' *■■■■’» ’■■■■’««* .*
| CttýiHH fieit Áína |
■■■■
Eftir Fm van HVyeh HMtasnn*.
41
-.•■ ■:•:
:•:■ ;•:•
x gg ■■■■ ■ ■•■■ iii ■■■■ iiiii ■■■■ m ■■•■■ ••■■■■ ■ ■■■■ lii’i m ■■••*•’
Hvaða örlög skyldu hafa beðið hennar á St. Jan? Og undh- eins
og Stórtyrkinn kæmi til Coralhaven myndi hann spyrjast fyrir
um hana — með allri gætni þó.
St. Jan.
Hinn fyrsta dag maímánaðar lá Stórtyrkinn fyrir ákkeri. Við-
gerð var lokið. Skipið varhú heilt og ágætlega sjófært. Aðeins
eitt hafði skort til að fullkomna gott verk: Málningu. En um
það var ekki að fást.
Pétur hafði hvílst vel meðan viðgerð fór fram og það var
honum einkum gleðiefni, að hann var farinn að hafa betri not
meiddu handarinnar. Fingumir voru farnir að láta betur að
stjóm, en þó mundu þeir aldrei verða alveg jafngóðir. —•>Hann
var grennri, en léttari á sér, hafði endurheimt fulla líkamsorku,
og var orðinn brúnn sem kynblendingur. Og það var sem hið
koparrauða hár hans væri tekið að lýsast.
Seinasta stundin á Marigot-ey var rúnnin upp. Skipsmenn
höfðu unnið að því allan daginn að flytja vatnsámur um borð,
eldivið og sekki fulla af ávöxtum.
Eldad Greenleaf kallaði á Pétur og þeir tóku að ræðast við
á þilfari tottandi pípur sínar.
„Jæja, á morgun förum við aftur í víking“ sagði Greenleaf,
„en hamingjan gefi, að við hittum ekki fyrir fleiri brezk her-
skip.“
„Þið getið sannarlega verið hreyknir af viðgerðinni,“ sagði
Pétur blátt áfram. „Hefði Ashton skipstjóri lifað mundi hann
hafa lokið lofsorði á verk ykkar.“
„Hver veit, hver veit,“ sagði Greenleaf. „En við skulum ekki
tala um skipstjórann, — mér þótti svo vænt um hann, og það er
sárt að minnast. En við siglum skipi hans heim — það gerum
við.“
„Og hvað svo?“
„Ætli eg leggi ekki minn ágóðahlut á banka og bíði eftir að
þessi bannsetta styrjöld verði til lykta leidd. Eg er búinn að
fá meira en nóg. Kannske kaupi eg mér 50 lesta skútu til hrís-
grjónaflutninga frá Karolinu-eyjum, kannske eignast eg heilan
flota um það er lýkur. Það er hægt að græða á þessu, heyri eg.
En hvað hyggist þér fyrir, læknir?“
„Eg hefi hug á framhaldsnámi.“
„En þér eruð orðinn helvíti slyngur — og það segja allir hin-
ir og segjast geta bölvað sér upp á, að enginn sé yður snjallari.“
„Eg þakka lofið,“ sagði Pétur. „En mér hefir lærzt það í þess-
ari siglingu hvað eg á mikið ólært. Já, eg hefi hugsað mér að
nema hjá frægum læknum, í Hollandi, Frakklandi og á Ítalíu.“
Hann sneri sér skyndilega að Greenleaf:
„Hvað skyldi minn hlutur annars geta orðið mikill?“
„Það veit enginn nema lukkan og skiptarétturinn. Það ætti
alltaf að verða 1500 pund sterlings.‘“
Eftir stutta þögn bætti hann við:
„Jæja, það er víst bezt að fara í koju. Við drögum upp akkeri
í fyrramálið."
Pétur hélt kyrru fyrir á þilfari. Og enn fór hann að hugsa
um barónessuna.
Nú hlýtur hún að vera búin að koma sér fyrir á sínu nýja
heimili á St. Jan. Kannske allt hafi farið vel og Frydendhal
þessi komi vel fram við hana og fagni barninu. Danir líta kann-
ske allt öðru vísi á svona hluti en við.
Pétur vissi raunar lítið sem ekkert um Dani. Hann hafði bara
óljóst hugboð um, að Danir og Svíar væru skyldar þjóðir.
Og úm Danmörku vissi hann ekkert nema að hún var lítið
konungsríki og að Danir voru allkunnir sæfarendur, en hann
vissi líka að þeir gátu drukkið eins og svampar og meðferð þeirra
á þrælum var til engrar fyrirmyndar.
Það var síðasta dag maímánaðar. Við og við gat að líta grænar
greinar og kókoshnetur fljótandi á sjónum og það var orðið svo
algengt að sjá flugfiska, að menn voru hættir að virða þá sér-
staklega fyrir sér.
Þar sem veður var gott og maturinn hollur og ljúffengur og
nægur fór líðan manna dagbatnandi og menn höfðu aldrei verið
í jafngóðu skapi síðan orustan var háð við Albany. Menn sungu
Duglegan mann
vanan fatapressun vantar strax.
Klæðaverzlnn
Andrésar Andréssonar
Athugasemd um
landhelgismál
b.v. Úranusar.
Útgerðarfélagið Júpiter h.f.
hefur beðið Vísi fyrir eftir-
fartidi athugasemd.
Vegna missagna í dagblöð-
um bæjarins og ríkisútvarpinu
um það, að b/v. Úranus hafi
verið tekinn að veiðum í land-
helgi út af Snæfellsnesi og þá
sérstaklega vegna frásagna
Morgunblaðsins og Vísis um
það, að togarinn hafi óhlýðnazt
varðskipinu Sæbjörgu, þykir
stjórn h.f. Júpiters rétt að taka
fram eftirfarandi:
Skipstjórinn á b.v. Úraniusi
liggur nú undir kæru fyrir að
hafa verið á veiðum innan fisk-
veiðitakmarkananna. Kæran er
byggð áá því, að s.l. mánudag
gerðu tveir starfsmenn land-
helgisgæzlunnar tvær mælingar
á stöðu skipsins úr flugvél.
Samkvæmt annarri mæling-
unni á skipið að hafa verið 0.4
sjómílur fyrir innan fiskveiði-
takmörkin, en samkvæmt hinni
um fiskveiðitakmörkin. Þegar
þessar mælingar voru gerðar,
var vindur 6—7 vindstig. Það
er vitað mál, að mælingar úr
flugvélum, sérstaklega í vindi,
eru næsta ónákvæmar, enda
telur skipstjórinn á b.v. Úran-
usi sig hafa verið næst landi
0.2 sjómílur fyrir utan fisk-
veiðitakmörkin samkvæmt rat-
sjármælingum og miðunum við
kennileiti á landi. Þetta er stað-
fest af stýrimanni skipsins og
loftskeytamanni með eiði. Jafn-
framt hafa skipstjórar þriggja
annarra togara og loftskeyta-
maður eins þeirra, en öll voru
þessi skip á sömu slóðum og b.v.
Úranus, unnið eið að því, að
b.v. Úranus hafi verið fyrir ut-
j an fiskveiðitakmörkin sam-
kvæmt ratsjármælingum þeirra.
Þeir gátu þess einnig, að tog-
ararnir, sem þarna voru, þ. e.
7 eða 8 skip, hafi allir verið á
sama togi og b.v. Úranus. Sömu
leiðis hefur skipstjórinn á
flutningaskipi, sem statt var
málægt togurunum og nær landi,
fullyrt og staðfest með eiði,
að ekkert skipa þeirra, sem
þarna voru, hafi getað verið
innan fiskveiðitakmarkananna.
Varðskipið Sæbjörg var þenn
an dag í námunda við skipin
og skipti sér ekkert af þeim.
Það er rangt með öllu, að
skipstjórinn á b/v Úranusi hafi
óhlýðnazt fyrirmælum frá
Sæbjörgu, þar eð hann fékk
þaðan engin fyrirmæli, enda
hafði flugvélin eða landhelgis-
gæzlan í Reykjavík ekkert
samband við Sæbjörgu út af
þessu máli, Ekkert hefur komið
fram í réttinum er bendi til
þess, að Sæbjörg hafi mælt
skipið innan fiskveiðitákmarka.
Samkvæmt skýrslu skip-
stjórans á varðskipinu Þór, sem
lögð var fram í réttinum, var
ekkert athugavert við fram-
komu skipstjórans á b/v. Úran-
usi, enda var skipið á leið til
Reykjavíkur, er varðskipið kom
að því. — Mælingaflugvélin
hafði aldrei neitt samband við
b/v. Úranus.
Stjórn h.f. Júpiters.
IWWWWV^VWWWWVWWW
SKIPAUTGCKÐ
R1KISINS
Esja"
austur um land til Akureyrar
hinn 13. þ.m. — Tekið á móti
flutningi til
Fáskrúðsf j arðar,
Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar,
Norðfjarðar,
Seyðisfjarðar,
Þórshafnar,
Raufarhafnar,
Kópaskers og
Húsavíkur
i dag og á morgun. — Far-
seðlar seldir árdegis á mánu-
dag.
M.s. ODDUR
fer til Vestmannaeyja annað
kvöld. Tekið á móti flutningi
daglega. —
*WVWWftftlWWWWWWWWWVtfWWIftftJVIVV>i
Flugumferðarstjórn
Fyrirhugað er að efna til námskeiðs í flugumferðar-
stjórn á næstunni. Þeir, sem hafa áhuga á þátttöku í
slíku námskeiði sendi skriflegar umsóknir, þar sem getið
er um menntun og fyrri störf til skrifstofu minnar á
Reykjavíkurflugvelli fyrir 20. þ. m.
Reykjavík, 8. apríl 1954.
FlugmáEastjórinn
Agnar K.©f©esS-&Eansea
VOOiR
Vér útvegum allskonar vógir frá
BIZERBA- Waagen Verkaufsgesellschaft K.G.
BALINGEN.
BIZERBA-vogir eru: Ódýrar, sterkar, nákvæmar.
Sjáið gluggasýninguna hjá Haraldarbúð.
EINKAUMBOÐSMENN:
HANNES ÞOBSTEINSSON & CO.
Símar: 2812 og 82640. — Laugavegi 15.
Sófasett
(útskorin)
Hríngsófaborð
Armstólasett §
Armstólar
Stakir stólar
Svefnsófasett
(2 gerðir)
Innskotsborð
Coctailborð
Reykborð
Lampaborð
Saumaborð
SélMutfertiH k.tf.
Brautarholfi 22.
Sími 80388.
wwwwwwwwv^íwwwr,
Nýlon-sokkar
Sternin...... kr. 35.90
Hollywood .... — 41.00
Mido .......... — 48.30
Saumlausir .... — 45.40
Perlon ........ — 35.00
H. Toft
Skólavörðustíg 8. Sími 1035.
Þúsundir vita að gæfan fylgir
hringunum frá
SIGURÞÓR, Hafnarstræti 4.