Vísir - 26.04.1954, Síða 8
VlSIB er ódýrasta btsSiS og þó þa3 f jðl-
krcyttasta. — HringiS f síma 16*0 ®g
gerist áskrifendur.
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS efttr
10. hvers mánaðar fá blaðið ákeypU tlf
mánaðamóta. — Súni 1660.
Mánudaginn 26. apríl 1854
Yfir 20 000 iax- og
silungsseiðum sleppt
í Bessastaðatiörn.
Athygliiverð (ifrauu. seiaa er
hér á landi.
í fyrravor var gerð tilraum
til þess að sleppa lax- og~siI-
nngsseiffum í Bessastaðatjörn
og að því er Veiðimálastjórinn,
Þór Guðjónsson 'hefur tjáS Vísi,
virðist tilraun þessi hafa tekizt.;
Svo sem kuhnúgt er, yar;
Besstastaðátjörn vík úr Skerja-1
firði sunnanverðum, sem lokað
var með garði í fyrravor. Er þar j
því aftur um tjörn að ræða svo
sem vaíalaust hefur verið fyrr
á tímum. - Bessastaðatjörn er j
sem næst hálfur ferkílómetri.
að stærð. Hún er grunn, mestaj
Öýpi er rúmir 2 metrar. Viðj
tjörnina er lítið undirlendi ogj
er afrennslissvæði hennar lítiðj
stærra en yfirborð hennar
sjálfrar. írennsli í tjörnina er
því lítið og óstöðugt og sama
gildir um frárennslið.
f fyrravor og sumar voru
gerðar ýmsar rannsóknir í
sambandi við tjörnina, seltu-
magnið var kannað og reyndist
það vera 26—29%0, en seltu-
magn í úthafssjó er 35%0. Enn-
fremur voru framkvæmdar
hitamælingar og loks voru tek-
in sýnishorn af botndýrum og
svifi og dýralífið á þangi at-
hugað. Reyndist mikið af dýr-
um í sýnishornunum og bendir
það til þess að æti fyrir fisk sé
mikið í Bessastaðatjörn.
Seiði af laxi, sjóbirtingi og
bleikju voru flutt í Besstaða-
tjörn dagana 4. og 20. júní í
fyrra. Alls var sleppt 179 stór-
um seiðum, þar af 66 laxaseið-
um, 111 sjóbirtingsseiðum', 1
bleikjuseiði og 1 seiði, sem ekki
var greint til tegundar. Enn-
fremur var sleppt 20 þúsund
sjóbirtingsseiðum, sem nýlega
voru laus orðin við kviðpokann.
Nokkur hinna stærri seiða voru
merkt með fiskmerkjum.
Áður en seiðunum var sleppt
í tjörnina var tjarnarvatni
smám saman blandað í ferska
vatnið, sem seiðin voru flutt í,
til þess að venja þau við salt
vatn. Síðan var þeim sleppt í
tjörnina og virtist þeim ekki
bregða við það. Þau syntu eins
og þau eiga að sér í fyrsta *
fylgsni, sem þau fundu. Um
fcviðpokaseiðin gegndi öðru
máli. Þau virtust lömuð og
náðu ekki að synda niður í
vatnið í tjörninni til að leita
fylgsna eins og þau gera, þegar
þeim er sleppt í ferskt vatn.
Að því er veiðimálastjóri
telur hefur tilraun þessi til þess |
að koma laxi og silungi í Bessa-
staðatjörn borið árangur, þó sé
líklegt að enn betur muni til
takast ef önnur tilraun yrði
gerð með því að sleppa lax- og
silungsseiðum í tjörnina, því að
nú er þegar fengin nokkur
reynzla, þó í smáum stíl sé, af
hinni fyrstu tilraun. Veiði-
málastjóri segir að aðstæður í
Bessastaðatjörn séu óvenjuleg-
ar og þessvegna væri skemmti-
legt að gera íleiri tilraunir með
að sleppa laxi og silungi í
tjörnina og fylgjast síðan með
vexti þeirra, svo og breyting-
um í dýralífi tjarnarinnar við
umskiptin frá saltara vatni í
ferskara vatn.
Haile Selassie
til Svíþjóðar.
Líklegt þykir, að Haile Se-
lassie Abessiníukeisari komi í
opinbera heimsókn til Svfþjóð-
ar í haust.
Hefii', hann látið í ljós óskir
um að fara til Evrópulanda í
haust, og þá þykir sennilegt, að
hann komi til Svíþjóðar. Þann-
ig er mál með vexti, að hann
hefir um árabil haft marga
Svía í þjónustu sinni, svo sem
lækna, kennara, liðsforingja og
lögreglumenn. Svíar vænta
mikils af þessari heimsókn, ef
af henni verður.
Skíðamótimi lauk
um helgina.
Skíðamóti íslands lauk um
heigina, en keppni fór fram í
Jósefsdal í gær bg í fyrradag.
Jakobína Jakobsdóttir frá
ísafirði sýndi mikla ýfirburði íi
keppni við stalísystur sínar
annars staðar að. Varð hún ís-
landsmeistari í stórsvigi (64.8
sek.), svigi (82.4 sek.), bruni
(60 sek.) og alpatvíkeppni (97.1
sek.
íslandsmeistari í svigi karla j
varð Ásgeir Eyjólfsson, Rvík,1
á 95.7 sek. í 3ja manna sveita-
keppni sigruðu Reykvíkingar.
í brurii karla varð hiutskarp-
astur Haukur Ó. Sigui’ðss., ísa-
firði, á 85.7 sek., en í 3ja manna
sveitakeppni sigruðu Rej^kvík-
ingar. í alpatvíkeppninni sigr-
aði Ásgeir Eyjóifsson á 144 1
sek.
Mótinu var slitið í samkomu-
sal Mjólkurstöðvarinnar í gær,
og voru vei'ðlaun þá afhent.
KK-hlfómsveitin fékk
ágæta dóma í Osló.
er rálin tll þess al leíka í fleirunt
bergum Noregs.
Engin áritun fyrir
V.-Þýzkalaná.
Stokkhómi, í april.
Framvegis verður Vestur-
Þjóðverjum gert auðvaldara að
ferðast á Norðuvlöndum en ver-
ið hefir.
Áður höfðu Noregur og Dan-
mörk látið niður falla vega-
bréfsáritun Vestur-Þjóðverja,
og nú hafa samningaumieitanir
Sví við þá leitt til þess, að þar
verður áritunar heldur ekki
krafizt. Svíar hafa getað ferð-
azt viðstöðulaust til Vestur-
Þýzkalands siðan 1. júlí í fyrra.
KK-sextettinn, hin vinsæla
danshljómsveit Kristjáns Krist-
jáns Krisíjánssonar, er nu
stödd í Noregi, og er ekki annað
að sjá af blöðum, en að Norð-
jnenn hafi tekið þeim félögum
með kostum og kynjum.
Sextettinn lék á hinum kunna
skemmtistað Chat Noir í Osló,
og fekk mjög góða dóma í
Oslóai'blöðunum. Segir í einu
blaðinu, að leikur hljómsveit-
ai'innar hafi komið mjög á ó-
vai't, flutt hafi verið „kultivert
og god jazzmusikk", en eink-
um er þeim hrósað Gunnari
Sveinssyni, sem leikur á vibra-
fón, Eyþóri Þorlákssyni, gítar-
leikara, og Ki'istjáni hljóm-
sveitarstjóra.
Siðan hefir frétzt, að Norð-
menn hafi, eftir fyrstu hljóm-
leikana á Chat Noir, orðið svo
hrifnir, að þeir félagar hafi nú
verið ráðnir til þess að leika
víða í Noregi.
Þetta ei’ í fyrsta skipti að ís-
lenzk jazz-hljómsveit leikur
utan landsteinanna, og vix'ðist
hafa verið farið myndarlega af
stað.
Vá heíir Vísir frétt, að frá
Noregi fari hljómsveit KK til
Bretlands og leiki þar.
Við þetta skal því bætt, að ís-
lenzku blaðamennirnir, sem
fyirr skemmstu voru staddir í
Osló, áttu þess kost að hlusta
á þessa landa okkar leika á
Chat Noir, og geta þeir borið
xxm það, að viðtökur voru geysi-
góðar, og frammistaða KK-
hljóirxsveitarinnar íslenzkura
tónlistannönnuin til hins mesta
sóma. Framkoma sveitarinnar
var látlaxis og geðþekk, og allir
luku upp einum mimni um, að
hér væri á ferðinni afbragðs
hljómsveit. Má þetta vera okk-
ur, sem heima sitjum, ánægju-
efni.
Helander samdi
níðbréfin.
Yfirréttur (Svea Sxovrátt)
hefir staðfest dóm undirréttar
í hinu margumtalaða máli He-
Ianders faiskups.
Var undii'réttardómui’inn
staðfestur og þótti sannað, að
biskupinn hefði samið níðbréf-
in, og meira að segja annazt
sendingu þeirra. Dómurinn var
einróma. Verið getur, að He-
lander biskup áfrýi dóminum
til hæstai'éttar, en þó er ekki
víst, að rétturinn vilji fjalla
um málið.
Arásln á lögregluþidnæia.
*
Bfarleg rannsókn.- Samkomu-
saS BokaH.
Ágætisr afli í v&rstölvm
siítsiianígfíds unt belgiita.
Lögreglustjórinn á Kefla-
víkurflugvelli hefir tjáð ráðu-
neytinu, að árás hafi verið gerð
á íslenzka lögregluþjóna, þegar
þeir voru að gegna því skyldu-
starfi sínu, að fjarlægja þrjár
stúlkur úr samkomusal flug-
hersins 18. apríl sl.
Beiðni mn að fjarlægja stúlk-
urnar kom frá starfsmanni
samkomuhússins, enda hafa
stúlkur þessar ekki heimild til
að korna á flugvallarsvæðið.
Mál þetta hefir nú verið tek-
ið til mjög ítai'legrar rannsókxr-
ar af hálfu íslenzkra og banda-
rískra lögregluyfirvalda. Á
meðan ransókn málsins fer fram
hefir samkomusalnmxx vei’ið
lokað um óákveðinn tíma.
(Tilkynning frá utanríkis-
ráðuneytinu 23. apríl).
Aflabrögð voru yfirleitt góð
í verstöðvum sunnanlands í gær
þar sem róið var á annað borð.
Fréttamaður Vísis í Vest-
mannaeyjum tjáði blaðinu í
morgun, að margir bátar hefðu
aflað vel, en flestir sæmiieg'a.
Hæsti báturinn mun hafa verið
með um 2800 fiska, eða 29 lest- j
ir upp úr sjó. Annars voru margi
ir með 1000—2000 fiska. Veður
var ágætt í morgun, og allir
bátar á sjó. Athafnalíf er geysi-
mikið í Eyjum, og unnið alla
daga. Nokkuð hefur borið á því,
að aðkomumenn séu farnir að
hverfa á brott, og getur það
valdi erfiðleikum, ef afli verð ;
ur ; ' :'i næstu daga.
Netjabátar í Grindavík öfl-
uðu ágætlega í gær, voru með
12 Vá—20 lestir, flestir með un>
15 lestir. Línubátar fengu dá-
góðan afla, 7—10 lestir Netja-
bátar róa langt, eða austur fyr- j
ir Þjórsárósa. . !
Sandgerðisbátar reru ekki í
gær, en á laugardag aflaðist
vel, eða 8—16 estir á bát, flest-
ir höfðu 10—12 lestir. í da,
var ágætt veður. en nokku>-
sti'ekkingur. Allir bátar eru á
sjó.
Keflavíkurbátar reru ekki í
gær (línubátar), en netjabátax
höfðu sæmilegan afla. Þaðan
reru allir bátar í gær.
Þetta 'er sxæsta óvexijuíeg nxynd >.f Aridrei Vishinský,- áðalfjill-
tn<H Bússa hjá Sameinaðu þjófe'ununx. Hún var íekin meðan'-á
umræðúm
áo um yæntanlega Genfac-ráSstefáU.
I stittbi ntáli.
• Emx er barist við Dienbien-
fu.Talsmaður frönsku her-
stjórnarinnar í Indókína
sagði í morgun, að horfurn-
ar fyrir varnarliðið væru
ískyggiiegar, en þó ekki enn
ástæða til að örvænta.
• Ástralíustjórn hefur hafnað
kröfu ráðstjórnarinnar um
að framselja Petrov og konu
hans. — Neitað er öllum á-
sökunum ráðstjórnarinnar
um ólöglegar aðferðir og of-
beldi gagnvart diplomatisk-
um starfsmönnum. Rétt-
nxætt hafi verið að afvopna
verði frú Petrov, þar sem
óheimilt sé fyrir farþega í
flugvélum að bera á sér
skotvopn. — Sendifulltrúi
Ásíralíu í Moskvu var ófar-
inn þaðan í morgun, þar
sem hann hafði ekki fengið
vegabréfsáritun, en henni
mun hafa seinkað vegna
þess, að sendiherra Rússa
var ekki farinn frá Moskvu
og hans lið, en staðið muu
hafa á farkosti.
• Lokið er miklum húsrann-
sóknum og yfirheyrslum á
blökkumönnum í Nairobi.
8000 verða fluttir burt úr
borginni.
Drottningarskipið Gothic
nálgast Aden. Þaðan fljúga
þau hjón, Elisabet drottning
og maður hennar um Afríku
lönd, og fara svo sjóleiðis
frá Tobruk. Börn þeirra eru
komin til eyjarinnar Möltu
á konungsskipinu Britannia.
Samningar hafa verið gerð-
ir milli Bandaríkjanna og
íraq um hernaðarlega að-
- stoð, sem verður 29. landið
sem fær hernaðarlega að-
stoð frá Bandaríkjunum
(Pakistan var 28.) — Fyrir
2 snánuðum slitnaði upp úr
samkoniulagsumleitunum
við Saudi Arabiu um slíka
aðstoð.