Vísir - 29.04.1954, Blaðsíða 1

Vísir - 29.04.1954, Blaðsíða 1
44. árg. Fiinmtudaginn 29. apríl 1954 94. tbl. €hou En Lai hefur i hótunum, Þetta er sagður vera stærsti og fullkomnasti eldingarvari lieims. Hann er á háspennulinu í Ohio, en Westinghouce- verksmiðjurnar frægu, sáu um smíði hans. Keflavík er bærinn, sem örast vex á íslandi. Íbúumum fjölguöi um þriðgunfj ú $.#. 7 úmiit. í Keflavik er nú einhver ör- asta þróun sem um getur í kaupstað á íslandi. Mun það að sjálfsögðu eiga rætur sínar að rekja til flug- vallarins en líka til þess að Keflavík er mikill útgerðar- etaður. Sem dæmi um hina öru þró- un kaupstaðarins má geta þess að á sex eða sjö síðastliðnum árum hefur íbúunum fjölgað um þriðjung, eða úr 2000 í 3000. Jafnhliða þessu eru miklar byggingaframkvæmdir á staðn- um og hafa nú á aðeins tveim- ur undangengnum árum verið hyggð þar um 150 hús, aðallega íbúðarhús. Af meiri háttar byggingaframkvæmdum þar á staðnum má geta þess að nýr stór barnaskóli var tekinn í notkun í fyrra, gamla skóla- húsinu er verið að breyta í gagnfræðaskóla, sjúkrahús er í þann veginn að komast í notk- un og loks er þar vönduð sund- höll og hið ágætasta kvik- myndahús — allt nýtt af nál- inni. Keflavík er, sem áður getur, <ein af stærstu verstöðvum landsins. Þaðan eru á vetrar- vertíðum gerðir út um 30 stórir vélbátar og auk þess togari, sem er eign bæjarfélagsins. í sambandi við þessa miklu út- gerð eru starfrækt 5 hraðfrysti- hús með nýtízku vélum og tækjum og ennfremur fiskiðju- ver til þess að vinna úr tilfall- andi fiskurgangi. Hafnarfram- kvæmdir hafa verið miklar í Keflavík og nú er svo komið að hin stærstu skip íslenzka kaup- skipaflotans geta lagst þar að bryggju. Samt sem áður er at- hafnalífið orðið svo mikið við Keflavíkurhöfn að hún er of lítil orðin. Telja Keflvíkingar brýna nauðsyn orðna á að stækka hana enn, m. a. með því að fá nýtt steinker til þess að bæta við hafnarmannvirki þau, sem fyrir eru. Telja þeir að með auknum hafnarmann- virlcjum og bættri löndunarað- stöðu muni bátum, sem veiða frá Keflavík, enn fjölga til rnuna,, enda fáir staðir á lar.d- inu hentugri til úigerðar en einmitt Keflavík. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs hafa nær 80 stór skip lagzt að bryggju í Keflavík og at hafnað sig þar, auk svo allra hinni smærri báta og skipa sem leggja þar upp afla sinn. Sem dæmi um stórborgar- braginn, sem færzt hefur yfir Keflavík í seinni tíð — einnig í lögreghuhálum — má geta þess að á fyrsta ársfjórðungi yfirstandandi árs varð lögregl- an að framkvæma yfir 240 fangelsanir, 14 innbrot voru framin og hefur tekizt að upp lýsa þau flest, og loks má geta þess að 2—3 þjófnaðartilkynn- ingar berast lögreglunni að meðaltali á degi hverjum. ■ Sýnir þetta allt að Keflavík er að fá á sig stórborgarbrag. Það er í kvöld kl. 8.30, sem fundur Heimdallar um hantl- ritamálið liefst í Sjálfstæðishús inu. Próf. Alexander Jóhannesson Háskólarektor flytur framsögu ræðu, en hann er eir.n mesti kunnáttumaður um þessa hlúti, sem völ er á, eins og alkunna ,er. Fólki úr öllum stjórnmá’a- flokkum er heimill aðgangur að fundinum, sem vafaiaust verður fjölmennur. Rétt er þó að skora á fólk að sækja fundinn, enda er umræðu efnið þess eðlis, að menn hljóta að vilja heyra, hvað próf. Alex ander hefur um það að segja, svo og aðrir, sem til máls taka á fundinum. Fundurinn hefst kl. 8.30, eins og fyrr greinir. ræle I Genf í gær. imkuisnares,5in getsð veri: ásía fyrir kemmúnista. Seltjamarnesveik- in er taugaveiki- bróðir. Það hefur nú komið í Ijós, að veikin, sem geysar á Seltjarnaj nesi er ekki blóðsótt, eins og uppháflega var álitið, heldur taugaveikibróðir. Eru einkenni veikinnár lík og blóðsóttareinkenni, en við sýklarannsókn hefur kómið í ljós að hér er um taugaveíki- bróður að ræða. Þessi veiki er þó engan veginn eins skæð eða hætuleg og venjuleg taugaveiki (Framh. á 8. síðu) Nauta- og svína- kjöt flott inn frá Danmörku. Ákveðið hefur veríð að flytja inn frá Danmörku 100 lestir af nautakjöti og svínakjöti, og mun kjötið koma hingað 7. maí. Sigurður Hlíðar yfirdýra- læknir og Þorvaldur Guðmunds son forstjóri eru ytra til þess að annast kaupin. Er kjötið fengið frá Sjálandi, þar sem gin- og klaufnaveiki hefur ekki orðið vart. Chou En-Iai utanríkisráðherra Pekingstjórnarinnar flutti ræðu á Geníarráðstefnuni í gær, sem New York Times segir um í morgun, að einkunnarorð ihenn- ar hefðu vel getað verið: Asía fyrir komnrúnista. Chou En-lai hefði talað sem hrokafullur sigurvegari, er set- ur sigruðum þjóðum skilyrði. Fréttarifárar í Genf segja, að eftir ræðuna hafi menn ekki getað varlzt því að hugsa, að þunglega horfði um samkomu- lag. í ræðu sinni studai Chou En- lai; sem vænta mátti, tilögur Norður-Kóreu, um kosningar og sameiningu landsins, er hann hafði talað um Asíumálin almennt og krafizt afnáms allra erlendra herstöðva, brottflutn- ings alls erlends hers úr Asíu- löndum og að hætt yrði við endurhervæðingu Japan. Asíu- þjóðirnar ættu að hafa samtök um landvarnir sínar. Hann sagði, að Formósa væri hernum in af Bandaríkjamönnum og .yrði það eigi þolað. Daily Mail í London segir, að hann hafi talað í ögrandi tón til Vesturveldanna og reynt að' sannfæra menn um, að hið kommúnistiska Kíha væri stór- véldi á bórð við Fjórveldin. Daily Telegraph segir, að hann hafi í rauninni skipað Banda- ríkjunum burt úr Asíu. í öðrum. blöðum kemur fram, að ræðan munihafá truflandi áhrif á ráð- stefunni, en einnig heyrasfc raddir um, að það sé tilgangs- laust fyrir vestrænu þjóðirnar lengur að miða við það, að þær geti sagt Asíuþjóðunum fyrir verkum. Ræða Dullesar. John Foster Dulles utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna hafði sagt í ræðu sinni, að ekki væri annars þörf til lausnar Kóreu- deilunni en að kommúnistar hyrfu burt þaðan með herafia sinn. Sameinuðu þjóðirnar hefðu samþykkt einingu lands- ins og eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna gæti og ætti að taka þar við umsjá kosninga, en skil- yrði fyrir því væri, að komm- únistar hyrfu burt þaðan. Frakkland og Vietnam. Samkömulag var undirritað í gær í París af fulltrúum rík- isstjórna Frakklands og Viet- nam þess efnis, að þær séu reiðubúnar að ganga frá samn- ingum um fullt sjálfstæði Viet- nam og um samstarf Frakklands og Vietnam innan vébanda franska ríkjasambandsins, á j af nræðisgrundvelli. Maður slasast i híivdtu. ft r* . __ Ohuþór ilýt* undan lögiregiunni. Dagsferún og far- menn segja upp samiiingimi. Stjórn Dagsbrúnar og trún- aðarráð hafa ákveðið að segja upp samsiingum. f Er það gert í því augnamiði að koma fram þeirri breytingu að uppsagnarfrestur verði að- eins einn mánuður. Samning- arnir eru útrunnir 1. júní. Þá hafa farmenn á kaupskipa flotanum s amþykkt að segja up samningum frá 1. maí og eru samningarnir útrunnir 1. júní. Loks hafa bókbindarar sam- þykkt að segja upp samning- um frá sama txma. Lausí eftír hádegið í gær valt bíll á Reykjanesbraut sunnan í Kópavogshálsi og far- þegi sem í bílnum var meidd- ist á fæti. Þarna var um jeppabíl að ræða og hafði hann ætlað að beygja af Reykjanesbrautinni inn á Hlíðarveg, en valt í beygj unni. Tveir menn voru í bíln- um og slapp bifreiðarstjórinn ó- meiddur, en farþegi meiddist illa á fæti. Var í fyrstu haldið að hann hefði fótbrotnað en læknisrannsókn leiddi í ljós að einungis var um mar að ræða. Maðurinn var fluttur á Lands- spítalann. Annað slys varð hér í bæn- um í gær, er ölvaður maður féll á götu í miðbænum og hlaut við það mikið höfuðhögg. Maður- inn var flutur í sjúkrabíl á Landsspítalann, en meiðsli hans ekki talin alvarleg. Umferðarmál. í fyrradag voru tveir menn kærðir fyrir ógætilegan akstur hér í bænum. Annar þeii'ra var utanbæjarmaður og óhlýðnað- ist hann stöðvunarmerkjum lögreglumanna, en reyndi í þess stað að koma sér undan á flótta. Hófst þá eltingaleikur, sem lyktaði með því að flóttamað urinn yfirgaf bílinn og náði lög reglan ekki í hann þá þegar en mun hafa vitað hver maðurinn var og er mál þetta nú í rann- sókn. Þá voru einnig sama dag tveir menn teknir ölvaðir við akst- ur. Hafði annar þeirra ekið á mannlausa bifreið og var þá teldnn fastur. í hinu tilfellinu var um ölvaða stúlku að ræða sem ók bíl og var auk þess réttindalaus. Hins vegar var bíleigandinn sjálfur farþegi í bílnum. Bílþjófnaðir. í fyrradag var tveim bifreið- um stolið hér í bænurn en þær fundust báðar aftur. Var ann- arri stolið frá Skaftahlíð í fyrra morgun, en hún fannst síðdegis sama dag uppi á Vatnsgeymis- hæð og var þá mannlaus. í fyrrinótt var bifreið stolið, sem stóð fyrir utan Þórscafé, en hún fannst skömmu síðar mannlaus, en óskemmd að því er virtist, inni í Húsagarði ein- um hér í bænum. Kært yfir sprengju. í fyrradag var kært til lög- reglunnar út af sprengingu er piltur einn hér í bænum hafði orsakað. Við eftirgrennslan kom í ljós að um 15 ára gaml- an pilt var að ræða sem orsakað hafði þessa sprengingu, en óljóst var með hvaða hætti það hafði I verið gert. Mál þetta er í rann- I sókn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.