Vísir


Vísir - 11.06.1954, Qupperneq 1

Vísir - 11.06.1954, Qupperneq 1
41. árg. Föstudaginn 11. júní 1954 128. tbl, Úran-geislar gegn bjöllum. Einkaskeyti frá AP. London í gær. Bretar eru í stökustu vand ræðum vegna þess, að marg- ar fornar kirkjur í landinu — og aðrar byggingar —eru að eyðileggjast vegna ágangs bjöllutegundar, sem etur viði þeirra, en ógerlegt er að útrýma bjöllum þessum með þeim meðulum, sem til liafa verið hingað til. Nú verð- ur ný aðferð reynd, urani- um-geislar, sem fyrirtæki nokkurt hefur gert tilraunir með undanfarið, og býðst það til að eyða bjöllum í öll- um kirkjum landsins fyrir aðeins 20 pund á kirkju. Eden skýrir Aialfundur Verzl- unarráis bafinn. Aðalfundur Verzlunarráðs íslands er hafinn hér í bæ. Eggert Kristjánsson, sem er formaður ráðsins, minntist lát- inna kaupsýslumanna, en fund- armenn vottuðu þeim virðingu sína, en síðan voru kjörnir fundarstjórar þeir Egill Gutt- ormsson og Þorsteinn Bern- harðsson. Jón Á. Árnason og Ragnar Thorarensen voru til- nefndir fundarritarar. Síðan voru kosnar nefndir til þess að athuga ýmis mál varðandi verzlun og viðskipti og breyt- ingar á lögum Verzlunarráðs- ins. Fundinum verður haldið áfram í dag, og mun IngóKur Jónsson viðskiptamálaráðherra flytja ræðu á þeim fundi. Sundmól á Akureyrí, Keykvíkingar og Akurnes- ingar efna til sundmóts á Akur- eyri á mánudaginn. Er þar um að ræða þátttak- endur héðan úr Rvík og frá Akranesi í Sundmeistaramóti íslands, sem efna til sundmóts- ins. Munu þeir hafa farið í morg- un norður, keppa í Ólafsfirði á Sundmeistaramóti íslands á morgun og sunnudaginn, en fara á mánudaginn áfram til Akureyrar og keppa þá um kvöldið þar á staðnum. 'rá þvi9 að þoiin- srátt á þrotum. SÍS bætist inýtt skip. í gær hljóp af stokkunum nýtt skip Sambands ísl. sam- vinnumanna, Helgafell, 3800 þungalestir að stærð. Vilhjálmur Þór forstjóri ■SÍS, og Rannveig kona hans, voru viðstödd athöfnina, og ’gáf frúin skipinu nafn. Gert er ráð fyrir, að Helgafell verði fullsmíðað og afhent í haust. Það er Oscarshamn Varv, sem smíðar skipið, en þar var og Jökulfell smíðað á sínum tíma. Myndin sýnir trjónuna á „víkingaskipinu“, sem verður með í hópgöngunnni á sjómannadaginn á sunnudag. Nú er verið að leggja síðustu hönd á verkið. Maðurinn á hvíta sloppnum undir drekahöfðinu að aftan, er Eggert Guðmundsson listmálari, en hann teiknaði skipið og málaði, eins og Vísir sagði frá. — Ljósm.: P. Thomsen. , sem «ga teoor á hafi Éti, ávarpa þá í útvarpi. Skemmtilegt nýmæli í barnatíma. “Hitlers-æskan,, heldur mót. Einkaskeyti frá AP. — Kassel í gær. Lögreglustjóri borgarinnar hefir leyft uppgjafahermönnum úr SS-deildinni „Hitlers-æsk- an“ að efna til móts hér í borg á næstunni. Verkalýðsfélög borgarinnar höfðu mótmælt því, að mót þetta væri leyft, en lögreglu- stjórinn, Otto Schöny, svaraði, að hér væri um algengt möt uppgjafahermanna að ræða, og ástæðulaust að banna það. Það fer fram 19.—20. þ. m. 600 hús brenna í Rangoon. Rangoon. (A.P.). — Eldur kom í gær upp í Kemmendine- hverfi borgarinnar og olíi miklu tjcni. Sex hundruv hús brunnu til ösku. og er tjónið metið á 5 1 milj. kr. Fjórir menn hafa ver- ið handteknir, grunaðir um að hafa valdið brunanum með Bamatími sjómannadagsins i útvarpinu á sunnudag verður með óvenju skemmtilegum hætti. Þá gefst börnum, sem eiga feður sína á sjónum þann dag, tækifæri til þess að ávarpa þá nokkrum orðum í hljöðnemann. Jón Oddgeir Jónsson, sem sér um þenna bamatíma, mun leið- beina bömunum. Ætlazt er til, að börnin, sem þannig vilja rabba við pabba sinn á sjónum, korai niður í út- varpssal til æfingar á morgun, laugardag, kl. 2 e. h. Skulu þau hafa með sér skrifað á blað það sem þau ætla að segja, hvort heldur það em fréttir af sjálfum þeim, eða hverju því, sem þeim dettur í hug. Síðan munu þau aftur koma í barna- tímann á sunnudagskvöldið og rabba við pabba sinn „beint“ um hljóðnemaxm, þ. e. rabb þeirra verður ekM tekið á plötu eða segulband. Er þetta óvenju skemmtileg hugmynd, og má fara nærri um, að fjar- staddir feður hafi gaman af að heyra í börnum sínum, þar sem þeir eru staddir á hafinu. íkveikju, og er slökkviliðsmaður. einn þeirra Horfur liafa verznað í Genf síðustu daga. Mórea veí’ður iil iiniræðu í dag. Einkaskeyti frá AP. Genf og London í morgun. Það liefur orðið að ráði, að Anthony Eden og Molotov ræð- ist við í dag um Indókína, og framtíð Genfarráðstefnunnar, og er af mörgum litið á það sem seinustu iilraun til að fá úr því skorið hvort halda skuli áfram samkomulagsumleitun um, eða þcim hætt þegar. Stefna Edens hefur verið að þrauka í lengstu lög við að finna samkomulagsleið, en í ræðu hans í gær kom það skýrt fram, sem mjög hefur verið farið að bóla á undangengna daga, einkum eftir ræður þeirra Chou En-lai og Molotovs, að þolinmæði vestrænu þjóðanna væri á þrotum. Eden lagði á- herzlu á eftirfarandi: Taka verði ákvörðun þegar um, hvort eigi beri að játa hreinskilningsiega, að sam- komulagsumleitanir hefðu farið út um þúfur, ef sam- komulag næðist ekki mjög bráðlega. Það mundi leiða til öng- þveitis, ef eftirlit í Indókína yrði með því fyrirkomulagi, sem Molotov hefur stungið upp á, þ. e. að það yrði í höndum Indlands, Pakistans, Póllands og Tékkóslóvakíu, og yrði hann að halda fast við tillögur sínar um, að SA-Asíuþjóðirnar hefðu þetta eftirlit með höndum, þ. e. Indland, Pakistan, Ceylon, Burma og Indónesía. Eden taldi horfurnar hafa versnað eftir að farið var að ræða um Imdókína fyrir opn- um tjöldum, Undirtektir blaða. Brezku blöðin telja hina nýju afstöðu Edens fyllilega réttmæta vegna hins breytta viðhorfs. Birmingham Post seg- ir, að eins og komið sé verði að telja heiðarlegra að játa, að ráð stefnan hafi misheppnast, held ur en halda áfram vitandi, að allt muni hjakka í sama farinu. Þetta blað og fleiri segja, að það hafi verið rétt af Eden að athuga allar mögulegar leiðir, en nú verðl að hætta þófinu. Times segir, að kommúnistum hljóti nú að vera orðið ljóst, að ef mark þeirra í raun og veru sé friður, verði því ekki náð, nema þeir leggi eitthvað í söl- urnar til þess að því verð'i náð. Eisenhower um Indókína. Eisenhower sagði í gær við blaðamenn, að Bandaríkja- stjórn hefði ekki neina áætlun tilbúna, ef ráðstefnan færi út um þúfur, til þess að leggja fyr , (Framh. á 8« síðu) Fl heíir flutt 250.000 far- þega. í morgun átti Flugfélag ís- lands „merkisafmæli“, þar eð þá flutti félagið 250.009. farþegann í sögu sinni. Svo vildi til, að farþegi þessi var að fara til Vest- mannaeyja, roskin kona, Helga Magnúsdóttir, frá Litla-Landi í Mosfellssveit. ViS þetta tækifæri fór fram svolítil athöfn á flugvellin- um. Flugfreyja afhenti Helgu blómvönd, en fulltrúi félags ins tilkynnti henni, að innan skámms yrði henni afhentur minjagripur, sem verið væri að ganga frá. Óþarft er að geta þess, að Helga þurfti ekki að greiða fargjaldið. Miklu hert á rainua þ. ári. Samkvæmt upplýsingum, er blaðið hefur fengið frá Fiski- félagi íslands, hefur mun minna af fiski farið í herzlu en í fyrra, eða 27.400 lestum minna en þá. Hinn 31. maí s.l. höfðu 41.550 lestir farið til herzlu frá ára- mótum að telja, en á sama tíma fyrra 68.950 lestir. Eins og kunnugt er færðust menn mjög í aukana með fram- kvæmdir til aukinnar herzlu, eftir að ísfiskmarkaðurinn í Bretlandi lokaðist, er eðlilegt að nokkuð hafi dregið úr aftur, m. a. sökum þess hve mikið af fiski hefur verið fryst fyrir Rússa. Dvalarheimilinu gef in mynd af Oddi sferka. Dvalarheimili aldraðra sjó- manna hefir nýlega borizt flos- uð mynd af Oddi Sigurgeirs- syni, sem Inga Edvaldsdóttir hefur gert. Gjöfin er til minningar um látinn föður hennar, Edvald Jónsson. Myndin, sem er í fullri líkamsstærð, verður hengd upp í herbergi sem tileinkað er Oddi, en sem kunnugt er ánafn- aði hann dvalarheimilinu all- ríflega peningagjöf gegn því að herbergi bæri nafn hans og aðra peningagjöf gaf hann heimilinu einnig, sem skyldi verða styrkur til væntanlegra íbúa herbergisins. 28 hvalir skotnir. Hvalveiðarnar hafa gengið fremur treglega í vor. Fjögur skip eru að veiðum fyrir h.f. Hval og Hafa þau samtals fengið 28 hvali til þessa. Eru það aðallega, dimmviðrin að undanförnu, .sem hamlt.ð hafa veiðum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.