Vísir - 18.06.1954, Side 6
VÍSIR
Föstudaginn 18. júní 1954
Hátíðahöldin
Framh. af 1. síðu.
Beck flutti kveðjur Vestur-ís-
lendinga, og að lokum fluttu
Þjóðleikhúskórinn og Synfóníu
hljómsveitin Alþingishátíðar-
kantötu Emils Thoroddsens af
pallinum mikla, sem reistur
hafði verið framan við Lands-
símahúsið. Mikill mannfjöldi
hlýddi á hljómleika þesa.
Kvöldvaka.
Klukkan 8 um kvöldið hófst
svo kvöldvaka á Arnarhóli Þar
var fyrir geysilegur manngrúi,
eins og fyrr segir, og mikill
hátíðarbragur á öllum. Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri flutti
snjalla ræðu, en síðan voru
ýmis skemmtiatriði. Karlakór
Reykjavíkur og Fóstbræður
sungu, ennfremur þau Guðrún
Á. Símonar, Guðmundur Jóns-
son ag Magnús Jónsson, við
hinar ágætustu undirtektir.
Stúlkur úr Ármanni sýndu
fimleika við undirleik Carls
Billich, undir stjórn Guðrúnar
Nielsen. Tókust þeir sérlega
vel, og voru stúlkurnar fél'agi
sínu til sóma, en öllum áhorf-
endum til ánægju. Nýstárlegur
skemmtiþáttur var og fluttur
þarna, er Lárus Pálsson rabb-
aði við Ingólf Arnarson (Brynj-
ólf Jóhannesson) og Hallveigu
konu hans (Önnu Guðmunds-
dóttur). Var létt yfir þættin-
um (e. t. v. full-létt), og fynd-
inn á köflum, og höfðu menn
gaman af. Dr. Páll ísólfsson
stjórnaði stærsta þjóðkór lands-
ins til þessa, án þess þó, að menn
tækju nógu almennt undir,
en við því verður víst ekki
gert.
Síðan hófst dans, er dunaði
fram eftir nóttu, til kl. 2 á
Lækjartorgi, í Lækjargötu og
á Hótel íslands-lóðinni.
Er það málmanna, að hátíð-
in í gær hafi tekizt sérlega vel,
því að lítið bar á drykkjuskap,
raunar furðuleba lítið þegar
þess er gætt, hve mikill mann-
fjöldi var á ferðinni
•— Pylsubúðir og gosdrykkja-
sölur settu sinn svip á Lækj-
arvötuna í gær, og var á þessu
mikill hátíðarbragur og al-
þýðusnið, eins og vera ber á
slíkum degi. — Dagurinn í gær
verður þeim eftirminnilegur,
sem voru á ferli í miðbænum,
og emnn minnast 10 ára af-
mælis lýðveldisins með ánægju,
og er það nokkurs virði.
Eyrarbakki.
Fréttaritari blaðsins á Eyrar-
bakka símar um hátíðahöidin
þar: Hér var 10 ára afmælis
lýðveldisins minnzt með guðs-
þjónustu kl. 10, þar sem sokn-
arpresturinn síra Magnús Guð-
jónsson predikaði. Kl. 2 var
komið saman í samkomuliúsinu
og fluttu þar ræður Vigfús Jóns
son oddviti og Sigurður Kristj-
áns.
Sýndur var 2. þáttur úr sjón-
leiknum Lénharði fógeta eftir
Einar H. Kvaran og samtal
þeirra Þórarins NefjóFssonar,
Guðmundar ríka og Einars
Þveræings úr Héimskringlu.
Frú Elín Jónsdóttir las lipp
kvæðið Áshildarmýri eftir Tóm
as Guðmundsson. Þar að auki
voru skrautsýningar barna og
almennur söngur ættjarðar-
ljóða. Kl. 8% var dagskráin í
samkomuhúsinu endurtekin.
Veðrið var fremur slæmt. AIi
hvasst suðaustan og regnskúrir.
Gluggaskreytingar voru hjá
bræðrunum Kristjáns og Kaup-
félagi Árnesinga. Hátíðahöldin.
tókust mjög vel.
Frekar fregur afii
Patreksfjarðarbáta.
Á Patreksfirði hefir verið
fremur treg veiði hjá trillubát-
um í vor.
Togarinn Ólafur Jóhannesson
veiðir nú við Grænland og
hefir fiskað vel. Gylfi er á
karfaveiðum. og leggur aflann
upp á Akranesi, en frysti-
húsið á Patreksfirði getur ekki
te'kið á móti aflanum sökum
manneklu.
Um helgar fyllist fjörðurinn
og höfnin af færeyskum fiski-
skútum og á götum bæjarins
er stundum varla hægt að þver-
fóta fyrir færeyskum sjó-
mönnum, enda hafa þeir orðið
allt að 1500 talsins þegar mest
var.
Hekluferð Orlofs
á morgun.
Ferðaslcrifstofan Orlof efnir
til Hekluferðar, svo og ferðar í
Landmánnalaugar á morgun.
Lagt verður af stað í báðar
ferðirnar kl. 2 e. h. í Heklu-
ferðinni verður ekið í Sölva-
hraun og gist þar í tjöldum, og
gengið á Heklu á sunnudags-
morgun. I hinni ferðinni verð-
ur gist í Landmannalaugum og
e. t. v. farið eitthvað lengra inn-
í Landmannaafrétt. Úr báðum
ferðunum verður komið aftur
á sunnudagskvöld.
V.-íslendángar
gefa brjöstnynd.
Hinn 16. júní sl. var afhent á
Bessastöðum brjóstmynd af
Sveini Björnssyni, forseta. Lík-.
anið er steypt í eir eftir frum-
mynd Einars Jónssonar.
Er hér um að ræða gjöf til
Bessastaða frá mönnum af ís-
lenzkum stofni í Bandaríkjun-
um svo og frá öðrum vinum
Islands þar.
Prófessor Richard Beck, ræð-
ismaður Islands í Norður-Da-
kota afhenti gjöfina fyrir hönd
gefenda, en forseti íslands,
,herra Ásgeir Ásgeirsson, veitti
henni viðtöku.
Viðstaddir athöfnina voru
ýmsir Vestur-íslendingar, sem
staddir eru hér á landi, og
börn Sveins Björnssonar og
tengdabörn sem hér eru.
Reykjavík, 16. júní 1954.
Beztu úrin hjá Barfels
Lækjartorgi
Sími 641«
Auglýsendur athugið:
Auglýsingar, sem eiga aS birtast í iaugardags-
* ’ Y/:V-
blaðinu jiurfa að berast auglýsingaskrifstofunni fyrir
kí. 7 á föstudag.
ÆÞaffbtaðið VSSÍR
3, 4, 5 og 6 mm
þykktir.
MÆMHÆÐ
yler
margar teg.
Of»U.
gler
margir litir.
ÖRYGGIS-
yiev
Ennfremur úrval af
SGEGLUM í mörg-
um stærðum.
Cfleriiípim cU
-JaqerÉ
ípecjlacjerL
'UerzLmin ÍJr
'npija
MIG vantar herbergi, helzt
í miðbænum, þarf áð vera á
neðstu hæð með sérinngangi.
Fyrirframgreiðsla. Vinsam-
lega hringið í síma 81673
fyrir föstudagskvöld. (433
SUMARBUSTAÐUR ósk-
ast til leigu. — Björn Th.
Björnsson. Sími 7856. (441
FARFUGLAR —
FERÐAMENN!
Þingvallaferð um næstu
helgi. Ekið verður austur á
laugardag og gist í tjöldum.
Gengið verður á Botnssúlur
eða Hrafnabjörg á sunnudag.
Skrifstofan verður opin á
Amtmannsstíg 1, kl. 8.30—
10 í kvöld.
K.R. KNATT-
SPYRNUMENN!
Meistara- og 1. flokkur.
Æfing í kvöld kl. 6 á félags-
svæðinu.
K.R. — II. fl.
Æfing í kvöld kl. 7 á fé-
lagssvæðinu.
BOÐRADEILD
ÁRMANNS.
Æfing í kvöld kl. 8 í Naut-
hólsvík. — Stjórnin.
ÞROTTAEAR.
Meistara-, I. og II. fl. -
Æfing í kvöld kl. 10.
Einnig III. fl. 8—9.
Þjálfari.
maST- DRENGJAULPA
tapaðist á Landakotstúni. —
Finnandi vinsamlega Jiringi
í síma 2135. (000
í GÆR tapaðist karl-
mannsúr í miðbænum. Vin-
samlegast skilist á Lögreglu-
stöðina. (437
TAPAZT hefir handfang
af Silver Cross bamavagni.
Finnandi vinsamlega hringi
í síma 80798 eða 7884. (439
TELPAN, sem fann dömu-
armbandsúrið hjá Austur-
velli 17. júní er vinsamlega
beinn að skila því á Tún-
götu 42. Sími 6239. (444
STÚLKA óskast. Mötu-
neytið, Kamp Knox. — Sími
81110.
(432
STÚLKA óskast í kon-
fektgerð stuttan tíma. Uppl.
á Suðurgötu 15, I. hæð. Sími
7694 eftir kl. 6 í dag. (448
STÚLKA, með 7 ára barn,
óskar eftir vist eða ráðs-
konustöðu. — Uppl. í síma
2141. (440
UN GLIN GSSTÚLK A
óskast til heimilisstarfa. —
Dvalið verður í sumarbú-
stað við Þingvallavatn. —•
Uppl. í síma 6024. (436
Viðgerðir á tækjum og raf-
lögnum. Fluorlampar fyrir
rerzlartir, fiuorstengur og
IjóSaperur.
Raftækjavenclunin
UÓS & HITI h.f.
Laugavesri 79 — Sfmi: 5184.
VIÐGERÐIR á heimilis-
vélum og mótorum. Raflagn-
ir og breytingar raflagna.
Véla- eg raftækjaverzlanin,
Bankastræti 10. Sími 2852,
Tryggvagata 23, sími 81279.
Verkstæðið Bræðraborgar-
stig 13. (467
RAFTÆKJAEIGENDUR.
Tryggjum yður lang ódýr-
asta viðhaldskostnaðinn,
varanlegt viðhald og tor-
fengna varahluti. Raftækja-
tryggingar h..f. Sími 7601.
DJÚPUR hægindastóll, yf-
irdekktur með plussi, til
sölu. Einnig rafmagnskanna.
Hvorttveggja notað, en mjög
ódýrt. — Uppl. í síma 4295.
(431
KAUPUM gamlar bækur
og tímarit hæsta verði. —
Bókaverzlunin Ingólfsstræti
7. — Sími 80062. (446
KAUPUM gamla muni. —
Ingólfsstræti 7. Sími 80062.
(447
KVENSTÁLÚR tapaðist í
■gærkveldi í miðbænum. —
Vinsamlegast hringið í síma
1275 frá kl. 9—5. (445
LAXVEIÐIMENN. Stórir,
nýtíndir ánamaðkar til sölu.
Miðstræti 10. Sími 81779.
(443
VEIÐIMENN! Úrvals ána-
maðkar til sölu. Flókagötu
54, efri bjalla. (442
TIL SÖLU karlmanns-
reiðhjól, vandað. Melhaga 5.
Sími 7869. (434
VEIÐIMENN, — Agætur
ánamaðkur til sölu á
Skeggjagötu 14. Sími 1888.
(435
TVEIR stórir, og sporléttir
vagnhestar óskast til kaups.
Uppl. í síma 2577. Geir G.
Gunnlaugsson, Eskihlíð.(277
BOLTAlt, Skrufur, Rær,
V-reimar, Reimaskífur
Allskonar verkfæri o. fl
Verz. Vald. Poulsen Ef
Klapparst. 29. Sími 3024.
kerti í alla bíla.
TÆKIF ÆRISG J AFIR:
Málverk, Ijósmyndir, mynda
rammar. Innrömmum mynd-
ir, málverk og saumaðar
myndir. — Setjum upp vegg-
teppi. Ásbrú, Grettisgötu 54.
KAUPUM vel með farin
karlmannaföt, útvarpstæki,
eaumavélar, húsgögn o. fl. —
Fornsalan Grettisgötu 31. —
Sími 3562. (179
NÝR rabarbari kemur’
daglega frá Gunnarshólma.
Verð 3 kr. kg. Nú er hann
beztur til niðursuðu og
vinnslu. Von. Sími 4448.(420
KARTOFLUR 1. fl. til
sölu Kr. 70.00 pokinn. Sent
heim. Sími 81730. (537
HÚSGAGNASKÁLINN,
Njálsgötu 112, kaupir og sel-
ur notuð húsgögn, herra-
fatna, gólfteppi, útvafps-
tæki o. fl. Sími 81570. (215
PLÖTUR á grafreiti. Úf-
vegum áletraðar plötur á
grafreiti með stuttum fyrir-
▼ara. Uppl. á Rauðarárstíg
2« (kjallara). — Sími 6128,
5.;
IIÚii ÍOíi- % Oi SÁÍ
iha
(tm'k- ær..