Vísir - 19.06.1954, Blaðsíða 1

Vísir - 19.06.1954, Blaðsíða 1
44. árg. Laugardaginn 19. júní 1954 134. tl»L '<W s Biskupsvígsla í dómkirkjunni kl. 10 á morgun. Vígslitbiskup síra Bjarni Jónsson vigir hérra Ásntund GuÓmundsson til biskups yfir íslandi. Loftið hremna í Frakklandi. Mendes-France hefur í dag unnið að stjórnarmyndun sinni. Hann hefur tilkynnt, að hann muni velja ráðherra án tillits til hvar þeir standa í flokkl Hinn óvænti sigur Mendesr France í fulltrúadeildinni er halinn hafa hreinsað hið póli- tíska andrúmsloft Sigurinn. virðist hafa létt fargi af morg- um, sem hafa haft sívaxandi-á- hyggjur af hinum tíðu stjóin- arskiptum síðari ára, og geia sér nú vonir um, að breytingin, sem allir hafaþráð, sé komin og landið geti framvegis haft rík- j isstjórnir sæmilega öruggar x íslendingafélagið í New York síðar í sumar er ráðgex’t, að sessi efndi í gærkveldi til fagnaðar efnt verði til skemmtiferðar út I úr borginni, þar sem menn eta j og skemmta sér undir berum himni. Myndin hér að ofan var tek- in á æfingu fyrir „Fósturjörð í fjarlægð“, og sjást á henni frá vinstri: Magnús Bl. Jóhanns- son, Gunnar Eyjólfsson, Guðrún Camp, Guðrún Tómasdóttir og Guðmunda Elíasdóttir. íslandskvöld í New York. Kvenréttindadaguriim. Kvenréttindafélag fslands mun halda 19. júní hátíðlegan eins og venja þess er. í kvöld kl. 18.30 verður full- trúaráðsfundur félagsins settur í, Tjarnarcafé og mun vestur- íslenzkum konum verða boðið á fundinn, en þær flytja kveðj- ur að vestari. Til skemmtunar verður auk sameiginlegrar kaffi drykkju, að frú Þóra Matthías- son syngur einsöng með aðstoð frú Jórunnar Viðar. Þá les frú Sigurlaug Ámadóttir upp en síðan verða frjáls ræðuhöld. Annar Laniel í vanda. Einkaskeyti frá AP. — Laniel, forsætisráðherra Frakklands, er ekki eini mað urinn af Laniel-ættinni, sem átt hefur í erfiðleikmn að undanförnu. A. m. k. annar til hefur átt í mesta basli — bróðir hans, René — og er því hvergi nærri lokið. René Laniel er gildvax- inn og glaðlyndur Nor- mandí-búi og er hann sak- aður um að hafa beitt óheið- arlegum aðferðum sér til framdráttar viðskiptalega. Ásakanirnar koma úr öllum áttum. Hans eigin flokkur, Óháði flokkurinn, hótaði að reka hann úr fIokknum, ef hann segði ekki af sér þing- mennsku í seinasta lagi í dag. René Laniel á sæti í efri deild þingsins._____ Nýr skrúðgarður opnaður í Hafnarfirði Sextan fyrirtæki fullgerðu skrúbgarðmn á 10 dögum. Biskupsvígsla fer fram í ■dómkirkjunni á morgun kl. 10 árdegis, er síra Bjarni Jónsson vígslubiskup vígir herra Ás- mund Guðmundsson til biskups yfir íslandi. Biskupsvígslan fer fram sam- kvæmt þeim hefðbundnu venj- um, sem hér hafa skapazt. :Sunginn verður latneski vígslu söngurinn, sem hvergi er not- aður nema hér á landi, en höf- undur lagsins er Pétur heitinn •Guðjohnsen dómkirkjuorgan- isti. Þessi yígslusöngur hefur frá hans tíma v.erið notaður hér við biskups- og prestsvígslur. Einnig verður sunginn sálmur- inn: „Lofið guð, ó lýðir, göfg- ið hann“, en lagið við þann sálm • er einnig eftir Pétur heitinn1 ■Guðjohnsen. Herra Þórhallur Bjarnarson var fyrstur bliskup vígður í Reykjavíkurdómkirkju, en þá hafði ekki farið fram biskups- vígsla á íslandi í 111 ár'frá því er herra Geir Vídalín var vígð- ur á Hólum 1797 af herra Sig- urði Stefánssyni, síðasta Hóla- hiskupi. Síðan hafa allir bisk- upar og vígslubiskupar Skál- holtsstiftis verið vígðir í Rvík- urkirkju. Kl. 10 árd., meðan samhringt er ganga vígðir menn .í skrúð- göngu frá alþingishúsinu til kirkju, ganga fyrstir fjórir prestar, er starfa að guðsþjón- ustunni, þá prófastar, þá presc- ar, þá vígsluvottar, þá biskups- sveinar, famuli, er síðar standa lieiðursvörð við altarið, og loks vígslubiskupar og vígsluþegi. Próf. dr. theol. Magnús Jóns son lýsir vígslu, og síðan ganga famuli, vígsluvottar og biskup- ar í fullum skrúða í kór og vígsl an hefst. En henni lýkur með því að vígslubiskup afhendir hinum nývígða biskupi bisk- upskrossinn, sem legið hefur á altari meðan athöfnin fór fram. Einkaskeyti frá AP. — Hanoi í gær. Nánari fregnir hafa nú bor- izt um mikinn bardaga um Vinh Mo, mikilvægt þorp, sem er um 30 km. frá Hanoi, í hér- aði, þar sem franskir trúboðar sneru þúsundum manna til kaþólskrar trúar fyrir seinustu aldamót. f þorpinu er 900 ára gamalt Bulcdha-misteri. Árás uppreistarmanna var gerð í kolamyrkri 1—2 stund- um fyrir dögun. Þeir voru vopn aðir handsprengjum, sprengju- vörpum, vélbyssum og öðrum léttum vopnum. Lið þetta hafði hafst við í neðanjarðarbyrgjum up og loks fer fram altaris- ganga biskupa og þeirra presta, er þjóna við vígsluna. Vígsluvottar eru fjórir pró- fastar, einn úr hverjum lands- fjórðungi, þeir Friðrik J. Rafn- ar vígslubiskup og prófastur á Akureyri, Jakob Einarsson próf. á Hofi í Vopnafirði, Jón Auð- uns, dómpróf. í Reykjavík, og Þorsteinn Jóhannesson, próf. í Vatnsfirði. Altarisþjónustu annast próf. Björn Magnússon og sr. Óslcar J. Þorláksson dómkirkjuprest- ur. Famuli, biskupssveinar verða sr. Birgir Snæbjarnarson á Æsustöðum og sr. Björn Jóns- son í Keflavík. Að lokum ganga allir vígðir menn í skrúðgöngu frá kirlcju og til alþingishússins. 1 Viðstaddir biskupsvígsluna' verða þessir erlendir fulltrúar: dr. Lundquist, forseti alheims- sambands lútherstrúarmanna, sr. Haraldur Sigmar, fulltrúi Kirkjufélagsins í Vesturheimi, og próf. Richard Beck, fulltrúi þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi og Sameinaða kirkjufélagsins. Þar sem búast má við miklu meira fjölmenni en kirkjan rúmar, verður komið fyrir há- talara á kirkjunni. Um kvöldið heldur kirkjumálaráðherra fjöl menna veizlu til heiðurs hinum nývígða biskupi. Enn neita Rússar. Rúsar hafa beitt neitunar- valdi í Öryggisráðinu í 60. sinn. Fulltrúi Sovét-Rússlands í Öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna hefur beitt neitunarvaldi, til þess að hafna tilmælum Thai lands um að send yrði þangað nefnd á vegum SÞ, til eftirlits, vegna aukinnar ófriðarhættu eftir fall Dienbienfu. á ey nokkurri í Rauðá, og fóru á flekum og bátum yfir á norð- urbakkann. Setuliðið í virki utan þorps- ins varðist vasklega, en þegar er kunnugt varð um árásina, söfnuðust saman þúsundir ka- þólskra heimavarnarliðsmanna, sem komu setuliðinu til aðstoð- ar. Tókst að hrinda árásinni. Uppreistarmenn sögðu í fregn- um sínum af árásinni að mann- tjón hefði verið mikið á báða bóga. Einnig sögðust þeir hafa tekið marga heimavarnarliðs- menn höndum. — Báðum aðil- um ber saman um, að bardag- inn hafi verið geisiharður. í tilefni af þjóðhátíðinni. Fór skemmtunin fram í Pic- cadilly-gistihúsinu, og var þar margt til skemmtunar. Formað ur félagsins, Gunnar Eyjólfs- son leikari, setti hófið með stuttri ræðu, en síðan mælti Thor Thors sendiherra fyrir minni íslands. Þá sungu þær Guðmunda Elíasdóttir og Guð- rún Tómasdóttir tvísöng með undirleik Magnúsar Bl. Jó- hannssonar. Að því búnu fór fram helzta skemmtiatriði kvöldsins, seiö var hylling ís- lands í tónum, ljóðum og söng. Eru það ljóð frá ýmsum tímúm, sem eru sungin eða sögð fram. Komu þar fram Guðrún Camp, Guðmunda Elíasdóttir, Guðrún Tómasdóttir og Gunnar Eyjólfs son, en undirleik annast Magn- ús Bl. Jóhannsson, sem einhig hefur samið tónlistina. Talsvert fjör hefur verið í starfsemi íslendingafélagsins að undanförnu, og. var meðal annars efnt til sumarfagnaðar við mikið f jölmenni í apríl, og Slakaði hann til? Einkaskeyti frá AP. Genf í gærkveldi. Lokaður fundur um Indókína hófst síðdegis. Vestrænu fulltrúarnir gerðu sér vonir um, fyrir fundinn, að Chou Enllai myndi gera ná- kvæmari grein fyrir afstöðu sinni til Laos og Cambodia, en í seinustu ræðu hans tlaaði hann sem hann vildi slaka veru lega til. Bretar og Frakkar bygja nokkrar vonir á seinustu ræðu hans, en fulltrúar Banda- ríkjanna eru ekki eins bjarts- sýnir. Bretar leyfa ekki leit. Brezka stjórnin mun geta allt sem í hennar valdi stend- ur til að hindra vopnasendingar til Guatemala. Þó mun hún ekki leyfa banda rískum herskipum að stöðva brezk skip til skoðunar. Brezk herskip munu framkvæma slíka skoðun, ef ástæða þykir til, en annars hafa Bretar lagt bann við útflutningi vopna til Guate mmala og hefur það verið í gildi í 6 ár. Hafnfirðingar lyftu miklu Grettistaki með því að gera hinn fegursta skrúðgarð á 10 dögum, þar sem áður var ein- göngu möl og grjót og örlaði ekki á gróðri. Skrúðgarður þesi er á lóð Einars Þorgilsonar & Co. við Strandgötuna, sunnan Apóteks- ins. Það voru Fegrunarfélag Hafn arfjarðar og Rotaryklúbbur Hafnarfjarðar, sem áttu frum- kvæðið að þessu, en síðan var leitað til 16 fyrirtækja í Hafn- arfirði um að sjá um fram- kvæmdimar og bera kostnaðinn af þeim. Var skipulag garðsins og framkvæmdir allar gerðar í samráði við bæjaryfirvödin í Firðinum. Fyrirtækin lánuðu menn til starfa, sömuleiðis bifreiðir eftir þörfum og loks greiddu þau efni sem til þurfti. Auk þessa munu félagar í Rotaryklúbb Hafnarfjarðar allmikið í sjálf- boðavinnu, aðallega á kvöldin. Framkvæmdum var að fullu lokið á 10 dögum og garðurinn. tilbúinn og opnaður fyrir al- menning fýrir 17. júní. í garð- inum eru grasfletir með blóm-=> um, bekkjum og gangstígum og öllu í senn haganlega og smekk- lega fyrirkomið. í miðjum garð- inum er þriggja metra langt líkan af gámla kútternum „Sur prise“ sem Einar Þorgillsson átti, en fiskurinn úr Surprise var jafnan þurfkaður á mölinni þar sem skrúðgarðurinn er nú. Talið er að heildarkostnaður við garðinn hafi numið 40—50 þús. krónum, og báru eftirtalin 16 fyrirtæki allan kostnað við hann: Olíustöðin í Hafnarfirði h.f., Lýsi og mjöl h.f., íshus Hafnarfjarðar h.f., Dröfn h.f., Vélsmiðja Hafnarfjarðar h.f., Ásmundur Jónsson bakara- meistari, Dvergur h.f., Einar Þorgilsson & Co., Kaupfélag Hafnarfjarðar, Rafveita Hafn- arfjarðar, Hafnarfjarðar apó- tek, Venus h.f., Bæjarútgerð h.f. Vélsmiðjan Klettur, Fiskur h.f, og Frost h.f. j Þá prédikar hinn nývígði bisk- Harður bardagi hjá Rauðá. Kaþólskir heimavarnarliðsmenn hrundu árásinni með setuliði Frakka.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.