Vísir - 19.06.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 19.06.1954, Blaðsíða 8
VtSIK er ódýrasta blaðifi og þó það fjöl- breyttasta. — Hringið i s'tna 1860 eg gerist áskrifendur. Þebr sem gerast kaupendur VÍSIS eför 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypU 04 mánaðamóta. — Sími 1660. Laugardaginn 19. júní 1954 Miklar umbætur á kirkju höfuðstaðarins. Sömuleiðis á orgeli kirkjunnar, sem aldreí hefir verið betra en nú. Undanarið hefur verið unn- ið að miklum endurbótum á JDómkirkjunni, þessu gamla og virðulega Guðshúsi Reykvík- ánga. Kirkjan, sem nú hefur verið sóknarkirkja bæjarbúa í 150 ár, liefur aldrei verið fegurri, enda hafa margir lagt þar hönd á plóginn. Skal hér getið hins helzta í þessu sambandi. Öll kirkjan hefur verið mál- nð að innan og hafa Hörður og Kjartan h.f. leyst það verk prýðilega af hendi. Þá var allur kórinn, innkirkj an, skrúðhús, stúkur biskups og ráðherra, söngloft og allur gangurinn lagður vönduðum gólfteppum, sem Vefarinn h.f. liefur ofið en Gólfteppagerðin h.f. annast alla aðra vinnu við. ■Öll eru gólfteppin hin vönduð- vistu, rauð og sum með bláum :mynstrum, sem tekin eru eftir gamalli ábreiðu í þjóðminja- safninu. Teppin eru öll ofin úr íslenzkri ull. Vandaðir hvítir og gylltir ■stólar með rauðu íslenzku á- klæði hafa verið smíðaðir, í stað .gömlu þverbekkjanna brúnu, •og hefur Snæbjörn Jónsson gert stólana Þá hefur farið fram mikil endurbót á skrúðhúsi kirkjunn- ar. Allt gólfið er klætt rauðri •og blárri ábreiðu. Fögur ljósa- króna sett í loftið, ein af fjór- um sem voru í dómkirkjunni á kertaöldinni áður en olíuljós voru sett í kirkjuna 1901. Yfir ■útgöngudyr hefur verið sett gömul altaristafla, sem var í Reykjavíkurkirkju fram til 1860, en síðan hékk tafla þessi í Bessastaðakirkju, unz kirkj- unni þar var breytt að innan og .gamlir gripir hennar gerðir út- lægir þaðan. Við inngöngudyr skrúðhúss til kirkju hangir nú .málverk af kvöldmátíðinni, vængjatafla frá 1720. Á kirkjulofti hefur verið út- búið vandað herbergi fyrir all- an skrúða kirkjunnar, rykki- lín, kórkápur og hökla, en kirkjunefnd kvenna hefur unn :ið að því með miklum dugnaði að endurnýja skrúðann. Enn verða þarna geymdir 100 ferm- ingarkyrtlar, sem kirkjunefnd 'kvenna er að láta gera og gefur •dómkirkjunni. Alla trésmíði liefur unnið smiður dómkirkj- unnar, Sigurður Skagfjörð. Síðast, en ekki sízt skal þess .getið, að mikil viðgerð hefur farið fram á orgeli kirkj unnar, Tvær ferðir Ferðaskrif- stofimnar. 1 Ferðaskrifstofa ríkisins efn- ir tii Geysis- og Gullfossferðar á morgun kl. 9 árdegis. Ekið verður um Hellisheiði, Hveragerði, Grímsnes og stað- næmzt þar við Kerið. Síðan verður ekið til Geysis og stuðl- að að gosi þar. Þaðan verður •ekið til Gullfoss, niður Hreppa íim Selfoss til Reykjavíkur. Kl. 13:30 verður hringferð nm Krýsuvík, Selvog (Stranda Jkirkja), Hveragerði um Ljósa- ioss, Þingvelli til Reykjavíkur. og komu hingað tveir menn frá hinni dönsku verksmiðju, sem* smíðaði orgelið, til þess að inna verkið af höndum. Var orgelið hreinsað upp, „petalar“ endur- nýjaðir, og fleira gert til lag- færingar. Hefur dr. Páll ísólfs- son fullyrt við.fréttamann Vís- is, að dómkirkjuorgelið hafi aídrei verið betra en nú. Egill rau5f bjargar áhöfn brennandi skips. Bv. Egill rauði frá Neskaup- stað er meðal togara þeirra, sem eru á Grænlandsmiðum. Á miðvikudag kom hann til hjálpar færeysku skipi, sem eldur hafði komið upp í. Bjarg- aði hann áhöfninni, en skipið brann og sökk. Var áhöfnin flutt til Færeyingahafnar. Komu yið á leið til Grænlands. Fjárhagsnefnd danska þings- ins og fjármálaráðherra Dana komu við hér á landi í gær á leið til Grænlands. Kom flugvél þeirra til Kefla- víkur síðdegis og var ekið það- an til Reykjavíkur með við- stöðu í Hafnarfirði. Dr. Krist- inn Guðmundsson hafði boð inni fyrir þá hér í bænum. Haldið var áfram til Græn- lands í gærkveldi. Beztí veðidagur í EHðaam þ. 17. Laxveiði hefur verið frekar treg það sem af er veiðitímans, en ýmislegt bendir þó til þess að hún sé frekar að glæðast. Fréttir úr Borgarfirði herma að lítil laxveiði hafi verið þar í vor, en fari þó heldur batn- andi síðustu dagna. Af stangaveiðiánum eru Elliðaárnar fremstar hvað fjölda veiddra laxa snertir. Þar eru komnir á land 34 laxar. í fyrradag var bezti veiðidagur- inn í þeim, en þá fengust þar 6 laxar, þar af 5 fyrir hádegi og 1 einni hluta dags. Þyngsti laxinn vó 13 pund. Búið er að flytja á efra svæðið um 20 laxa og eru veiðimenn þegar byrjaðir að renna þar. Tvær ferðir F.í. á morgufi. Ferðafélag íslands efnir til tveggja ferða um helgína og verður lagt af stað í þær báðar kl. 2 e.h. á morgun. Önnur ferðin er um Borgar- fjörð og upp á Eiríksjokul, en hin er að Hagavatni, gist í skála Ferðafélagsins þar en gengið á Langajökul á sunnu- daginn. Mynd þessi var tekin við komu Joseph- ine Baker hingað t fyrra dag. — Með. henni á mynd inni er Har- aldur Á. Sig- urðsson, sem verður kynnir á skemmtun- um þeim, er hún heldur hér í kvöld og næstu daga. Ljóst: Vignir. „Hví heitir það ísland?“ Josephine Baker vill ættleiða íslenzkt barn. Á suðurbökkum Thames í London hefir verið opnuð fyrsta flugstöðin fyrir kopta. Hin heimsfræga söng- og dansmær Josephine Baker er nýlega komin til landsins og mun halda hér 6 opinbera hljómleika, í dag, á morgun og mánudag. Einnig hefúr hún mælst eindregið tii þess, að fá að syngja fyrir sjúklinga, en það er óráðið ennþá hvaða sjúkrahús hún heimsækir. Með söngkonunni komu tveir hljómlistarmenn, sem verða henni til aðstoðar. Það er Bar- tek, píanóleikari,. en hann er tékkneskur að ætt en nú búsett - ur í Frakklandi og Dobat, sem er svertingi og spilar á Bongo, en það eru nokkurs konar trommur. Þeim til aðstoðar er svo fimm manna hljómsveit með íslenzkum hljómsveitar- mönnum, en Carl Bilieh hefur annast allar samæfingar. Frú Josephine Baker er fædd í litlum blökkumannakofa í St. Louis í Bandaríkjunum. Hún hafði frá fyrstu tíð afar sterka löngun til að leika. í fyrstu gekk það afar erfiðlega ög má það þakka einstæðum kjark og þreki þessarar litlu stúlku að hún gafst ekki upp við að troða hinn þyrnum stráða veg. Þegar hún var fjórtán ára kom hún fyrst opinberlega fram í leíkhúsi í fæðingarborg sinni. Það urðu henni sár vonbrigði, en hún gafst ekki upp og hélt til New York og þar vann hún sinn fyrsta leiksigur, er hún dansaði sóló-dans í blökkumannaleik- húsi, klædd nokkrum banönum. Síðan vann hún glæsilega sigra um víða veröld og hefur eignast fjölda aðdáenda, hvar sem hún hefur komið. Þrátt fyr ir alla hrifningu er mönnum það vel jóst, að hún kann ekki að dansa. Hún dansar án þess að hirða nokkuð um dansreglur en dansar eins og ótamið barn náttúrunnar, villt og stjórn- laust, en heillandi og hefur sjaldgæfan yndisþokka til þess að bera. Söngur hennar er full- ur af lífsgleði og glaðværð. Frú Jósephine Baker er mik- til fósturs 5 drengi af mismun- til fósturs sex drengi af mismun andi þjóðemum, frá Japan, og Frakklandi og elur þá upp á heimili sínu í Bordaux í Frakk- landi, en hún er gift frönskurn hljómsveitarstjóra, Joe Bouill- on. Tilgangur hennar með þessu er sá, að sýna fram á, að menn geta hæglega lifað saman í sátt og samlyndi þrátt fyrir mis- munandi þjóðerni, trúarskoð- anir og hörundslit. Hún hefur farið þess á leit að fá íslenzkan dreng til þess að ala upp, en Barnaverndarnefnd hefur það í athugun. í stríðslok var hún gerð að riddara heiðursfylkingarinnar fyrir óeigingjarnt starf í þágu franska hersins. Josephine Baker er mjög að- laðandi kona og býður of sér góðan þokka. Henni finnstmjög bjart og fagurt hér, en er undr- andi yfir því, að landið skuli heita ísland. Sex guftbæiágar vigiír á mámtdag. Á mánudag verða 6 guðfræði- kandidatar vígðir við synodus- - guðsþjónustu í dómkirkjunni. Þenna dag, hinn 21. júní, hefst prestastefna íslenzku þjóðkirkjunnar með guðsþjón- Þar framkvæmir herra Ásmund ustu í dómkirkjunni kl.: 1.15. ur Guðmundsson fyrstu prests- vígslu sína og vígir þessa guð- fræðinga: Bjarna Sigurðsson til Mosfelsprestakalls, Grím Gríms son til Sauðlauksdalspresta- kalls, Kára Valsson, Óskar Finnbogason til Staðarhrauns- prestakalls, Þóri Stept^nsen til Staðarhólsþinga og Örn Frið- riksson til Skútustaðapresta- kalls. Síra Friðrik A. Friðriksson prófastur í Húsavík lýsir vígslu, en sonur hans Örn Frið riksson, prédikar. Vígsluvottar verða síra Frið- rik A. Friðriksson prófastur, Sigurjón Guðjónsson prófastur, prófessor Magnús Már Lárus- son og síra Jón Thorarensen, sem einnig þjónar fyrir altari. . Almenn altarisganga allra presta fer fram í lok guðsþjón- ustunnar. Viðræður um landvarnir em hafnar milli Tyrklands og Pakistan á grundvelli samn- ings þess, sem fyrir nokkm var gerður milli landanna. Fulltrúar oliufélaga, sem eiga í samningum við full- trúa Persíustjórnar um olíu- deiluna, leggja af stað til Teheran á morgun. Ætlar að skrífa bók um ís- land og birta á Spáni. Spænsfcur blaðatnaður í heimsókn hór. Hér er staddur um þessar mundir spænskur blaðamaður, sem er að safna efni í bók um Island. Kom blaðamaður þessi, Luis Carandell, til landsins með Gull fossi síðast, og hyggst dvelja hér enn um hríð. Hefur hann haft tækifæri til að ferðast nokk uð um landið, fór til dæmis í gær upp í Hvalfjörð, til þess að skoða hvalveiðistöðina, en síðar ætlar hann norður í land, til Akureyrar. Siglufj. og víðar. Vísir átti sem snöggvast tal við Luis Carandell í gær, og kvaðst hann hafa í hyggju að skrifa bók um för sína hingað, því að Spánverjar þekktu lít- ið til íslands. íslenzka saltfisk- inn þekktu menn — og hann er sá bezti, sem fæst, skaut Caran- Suður-Afríku, Indlandi, ísrael! dell inn í — en meira vita menn ekki. „Þótt Carandell sé ekki aldr- aður maður, aðeins hálf-þrítug ur, er hann víðförull í meira lagi, því að hann hefur heim- sótt að heita má öll lönd um- hverfis Miðjarðarhaf, og er fs- land 15. landið, sem hann kem- ur. til á aðeins einu ári. Er hann fréttaritari fyrir frétta- stofuna „Mirospa", sem hefur sambönd við öll helztu blöð Spánar og Portúgals, er munu birta greinar hans, auk þess sem þær munu koma á prenti í blöðum í Suður-Ameríku. Carandell lætur vel af dvöi sinni hér, þykir landið fagurt, og landsmenn hjálplegir. Hefur hann notið fyrirgreiðslu ýmissa manna, en fyrst og fremst ræð- ismanns Spánar, Magnúsar Víglundssonar stórkaupmanns.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.