Vísir - 24.06.1954, Blaðsíða 8
---?)*
Vísœ ei ódýrasta blaðið ®g þó það fjol-
fcreyftasta. — Hringið I s{ma 1660 mg
gerist áskrifendur.
'VÍSIR
Þefe sem gerast kaupendur VlSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypl* tH
mánaðamóta. — Sími 1660.
Fimmtudaginn 24. júní 1954
Flugherinn neitaði að
ráðast á innrásarmenn.
in forsetí Guatemaia nýtur nteira trausts
en ætlað er.
Daily Mail í London birti
fregn um það í fyrradag, að
flugherinn í Guatemaia hefði
neitað að fara til árása gegn
innrásarhernum.
f flughernum eru aðeins nokk
ur hundruð flugmenn og véla-
og viðgerðarmenn. Flugherinn
ræður yfir um 30 úreltum,
bandarískum flugvélum. — En
þótt flugherinn hefði ekki neit-
að að ráðast á innrásarher Cast
illo Armes, fyrrverandi yfír-
manns síns, er vafasamt að hann
hefði getað aðhafzt neitt, vegna
skorts á flugvélabenzíni, en sagt
er að innrásarmenn hafi eyði-
lagt benzíngeyma flughersins
nálægt San Jose, í sprengjuá-
rás.
í her Armas eru sagðir vera
um 5000 menn, — Armas var
í fyrradag í smábæ, Zacapa,
skammt innan Iandamæra Gua-
temala. Sagt er, að hann hafi
rætt við Carlos Sartri, yfir-
mann herforingjaráðs Guatem-
ala, en hann var talinn hafa
söðlað um og snúizt á sveif með
Armas.
Aðalherstjórnarstöð innrásar
manna var sögð vera í smá-
bænum Copan í Honduras.
Kifflar frá 1898.
Stjórnin í Guatemala hefur
lagt hald á allar bifreiðir og
Játið herlög koma til fram-
kvæmda.
í her stjórnarinnar eru 6000
menn. Hann er lagður af ‘stað
M.-Francé leggur fram
ráðfierralistann.
1 * Einkaskeyti frá AP.
París £ morgun.
Mendes-France leggur í dag
ráðherralista sinn fyrir fulltrúa
deild þjóðþingsins til sam-
þykktar. Að því búnu heldur
hann af stað áleiðis til Nýju
Behli til viðræðna við Nehru
forsætisráðherra Indlands.
Almennt búast menn við að
Mendes-France haldi velli rneð
viðunanlegum meirihluta.
Hann átti í gær fund með
Chou En-lai í Bern og stóð sá
fundur 2% klst. Mendes-France
sagði við komuna, að þeir hefðu
rætt málin sín á milli af fullri.
hreinskilni og einurð, og væri
hann bjartsýnn um árangur af
frekari samkomulagsumleitun-
um. — Chou En-lai viðhafði
svipuð ummæli að loknum fund
inum.
Ekkert bónorð
Baudouins enn.
Einkaskeyti frá AP. —
Cannes í fyrradag.
Baudouin, konungur Belga,
hefur ekki borið upp bónorð
sitt við dóttur hertogans af
Aosta.
Hefur móðir hennar — her-
toginn dó af berklum í brezk-
um fangabúðum á stríðsárun-
um —- borið til baka fregn um
þetta, en það hefur gengið stað
laust, að Baudouin hafi hug á
að gera hana að drottningu
úr herbúðum til móts við inn-
rásarherinn, en lögregluher-
menn vopnaðir rifflum, sem
notaðir voru í spænskr-banda-
rísku styrjöldinni 1898, eru á
verði í Guatemala-borg og
grennd.
Beitiskipið Sheffield,
flaggskip brezka flotans í V.-
Indium, sigldi í fyrradag í átt-
ina til stranda Guatemala, til
þess að vera nálægt, ef hættan
færðist nær Brezka Honduras.
Ilefur Arbenz
traust fylgi?
Wilson Broadbent, fréttarit-
ari Dáily Mail, telur, sam-
kvæmt frásögn fólks í Guatem-
ala, að Arbenz forseti kunni að
njóta traustara fylgis meðal
þjóðarinnar en almennt hefur
verið talið.
Akurnesingar
sigruðu Þrótt 7:0.
Akurnesingar sigruðu Þrótt
með miklum yfirburðum í knatt
spyrnulandskeppninni i gær-
kveldi og skoruðu 7 mórk gegn
engu.
í fyrri hálfleik sýndu Þrótt-
árar allmikið viðnám og stóð
hálfleikur 1:0. En í seinni hálf-
leik var úthald Þróttaranna um
garð gengið og skoruðu Akur-
nesingar þá 6 mörk og höfðu al-
gera yfirburði. Þeir sem skor-
uðu voru Halldór tvisvar, Þórð-
ur þrisvar og Pétur tvisvar.
Sá Þróttarinn sem stóð sig
bezt var markvörðurinn, Jón
Ásgeirsson sem stóð sig með
mikilli prýði.
í kvöld heldur mótið áfram
og keppa þá Fram og Valur kl.
8.30.
smm.
Neðri málstofan
afgreiðir sjdnvarpslög.
Einkaskeyti frá AP. —
London í gær.
Neðri málstofan samþykkti í
gærkvöldi í lok 3. umræðu
sjónvarpsfrumvarpið og af-
greiddi það þar með til lávarða
deildarinnar.
Frumvarpið gerir ráð fyrir,
að auk sjónvarps BBC, megi
með sérstöku leyfi ef vissum
skilyrðum er fullnægt, veita
einstaklingum eða fyrirtækjum
rétt til að starfrækja sjónvarp
og afla sér tekna til þess með
auglýsingum.
Verklýðsflokkurinn er and-
vígur frumvarpinu og hefur
verið lýst yfir, að ef flokkur-
inn komist til valda aftur muni
hann breyta lögunum eða fella
þau alveg úr gildi.
Blaðið Newsweek skýrði frá
því nýlega, að ef til vill yrðu
3.300 bandarískir liðsforingj
ar og undirforingjar sendir
til Indókína,til þess að þjálfa
Vietnam-herinn. John O’-
Daniel hershöfðingi, yfir-
maður bandarísku hernað-
arnefndarinnar í Indókína,
hefur kröftugega mælt með
þessu.
Heggurinn er eitt fegursta tré sem vex hér á landi. Hann
blómstrar skamma stund ár hvert, en þá fáu daga sem hann
blómstrar klæðist hann óvenju fögru skrúði. í vor blómstraði
heggurinn fyrr en ella sem mun hafa stafað af hlýviðrunum
í vetur og vor. Mynd sú sem birtist af heggnum hér að ofan
er tekin á Grundarstíg 15, við hús Ríkharðar Jónssonar mynd-
höggvara.
fara of geyst,
Eden fór sér of hægt.
Brezk blöð ræða Genfarfundinn.
Einkaskeyti frá AP.
London í.morgun, 1
Brezku blöðin í morgun ræSa
mikið ræðu Edens í gær og eru
yfirleitt þeirrar skoðunar, áðj
hann hafi fært gild rök fyrir
íétmæti stefnu þeirrar, er hann
fylgdi í Genf.
Eitt blaðanna, Manchester
Guardian, telur þó að reyndin
hafi sýnt, að „Dulles kunni að
háfa viljað fara of geyst. en
Eden hafi farið sér óþarfega
hægt“. — Daily Telegrapli ræð-
ir einkum hversu mikilvægur
sé Washingtonfundurinn, sem
framundan er.
Nokkur meginatriði
ræðunnar.
Eden taldi í ræðu sinni, að
með því að vera þolinmóðir og
leitast við að ná samkomuiagi
kynni markinu að verða náð að
lokum. Hann varaði við hætt-
unni sem af því stafaði, að
til mikilla hernaðaraðgerða
meðan samkomulagsumleitan-
ir færu fram. Hann stakk upp
á eins konar Locarno-sáttmáia
í öryggisskyni, sáttmála, sem
allir aðilar stæðu að. Hann
lagði áherzlu á, að tilgangs-
laust væri að gera nokkurn ör-
yggissáttmála, . nema með
frjálsu samþykki Suðaustur-
Asíuþjóðanna.
Eden sagði varðandi ágrein-
ingsatriði Breta og Bandaríkja-
manna, að í hvert skipti og á
þá væri minnst, væri reynt að
láta það líta svo út sem þeir
væru miklu meiri en þeir væru
í raun og veru, en hitt gléymd-
ist mönnum, að milli leiðtoga
kommúnistaríkjanna væri líka
ágreiningur um ýmis mál.
Eftir ræðuna.
gerðist það, sem sjaldan skeð
ur, að stjórnarandstæðingar all
margir gengu til Edens og þökk
uðu honum ræðuna og frammi-
stöðuna í Genf með handabandi.
Varð fyrir bifreið,
en mefddist lítið.
Um kl. 5 síðdegis í gær varð
sex ára drengur fyrir bifreið á
Suðurlandsbraut skamrat frá
Múla.
Drengurinn var fluttur í
Landsspítalann, en reyndist
lítið meiddur, sem betur fór..
Við rannsókn kom í ljós, að
hemlaútbúnaður, bifreiðarinnar,.
sem ók á drenginn, var ekki í
viðunandi lagi.
Stúlka var tekin við bifreið-
arakstur í nótt. Hún var of ung.
til þess að mega hafa ökuskír-
teini og því réttindalaus. Ekki
var um ölvun að ræða.
Kl. 4.15 í nótt var hringt til
lögreglunnar úr húsi einu í
bænum, og hún beðin að hand-
sama þjóf, sem stolið hefði pen-
ingum úr veski þar í húsinu, en
laumazt síðan út um bakdyrn-
ar. Lögreglumenn komu strax
á vettvangog hófu leit, og
fannst maður í grenndinni eft-
ir skamma stund. Neitaði hann.
að hafa stolið nokkrum hlut, en
á honum fundust peningar og.
skilríki, er sönnuðu sekt hans.
Lögreglan tók mann þenna í
vörzlu sína.
í gærdag, um kl. 1.15, varð
slys á Reykj avíkurf lug vei li.
Þar var verið að vinna við nýja
flugbraut, og hafði maður að
nafni Sigurður Kristjánsson,.
Gunnarsbraut 28, orðið mili
kranabíls og mokstursskóflu.
Meiðsl hans voru töluverð, og.
var hann fluttur í sjúkrahús.
0 Allar líkur benda til, að
hveitiuppskeran í Bandaríkj
ununi á þessu sumri verði
stórkostleg og a. m. k. 75
millj. skeppa meiri en í
fyrra, enda óttast Banda-
ríkjastjórn verðfall á hveiti
og fylgistap í landbúnaðar-
fylkjunum. — Hún hefur
fyrirskipað að draga úr
hveitiframleiðslunni
neinur 12%.
svo
Tvær Ferðafélagsferðir.
Ferðafélag fslands efnir til
tve&gja ferða um næstu helgi.
Lagt verður af stað í þær-
báðar n.k. laugardag kl. 2 e.h.
Önnur ferðin er í Þjórsárdal
og verður gist að Ásólfsstöðum,.
en daginn eftir skoðaður daí-
urinn, Hjálp, rústirnar við:
Stöng, Gjáin og Háifoss.
Hin ferðin er í Landmanna-
laugar. Verður gist í sæluhúsi
félagsins í Laugum, en daginn
eftir gengið á nærliggjandi.
fjöll.
• Konungurinn £ Jordaníu hef
ur rofið þing, að því er til-
kynnt er vegna samblásturs
innan þingsins gegn stjórn-
inni. — Nýjar kosningar
eiga fram að fara innan 4
mánaða.
Heimsfrægir íþróttamenn
sækja ísland heim.
I kvöld er væntanleg-
ur til íslands heimsfrægur
finnskur fimleikaflokkur, er
halda mun hér sýningar á a-
haldaleikfimi.
Flokkurinn kemur hingað í
boði Glímufélagsins Ármanns
og sýningar hans eru einn liður
í afmælishátíðarhöldum Ár-
manns nú í ár.
í flokknum eru sumir snjöll-
ustu fimleikamenn Finna, m.
a .hefur einn eirra, Tanner, átta
sinnum tekið þátt í landskeppni
yfrir heimaland sitt, auk þess
sem hann er Ólympíusigurveg-
ari. Sýnendur eru 8 talsins, en
auk þess verða í hópnum, far-
arstjóri, þjálfari og undirleik-
ari. Fararstjórinn, K. E. Leva—
lahti, er einn af brautryðjend-
um og fyrirmönnum finnskrai
íþrótta. Hann hefur margsinn-
is verið fararstjóri Finna á Ól-
ympíuleiki og önnur meirk
háttar iþróttamót á erlendrL
grund. Leválahti er nú á átt-
ræðisaldri en er síungur í anda.
Undirleikarinn, frú Elsa Aro,.
er í hópi snjöllustu píanóleik—
ara Finna og auk þess sem hún
leikur undir með fimleika-
flokknum mun hún einnig loika:
finnsk tónverk í ríkisútvarpið»
á meðan hún dvelur hér.
Flokkurinn verður hér til’.
3ja júlí n. k. og fyrsta sýning:
hans verður að Hálogalandi. á.
föstudagskvöldið kernur