Vísir - 28.06.1954, Síða 1
I “
■I í%
V
44. árg.
Mánadaginn 28. júní 1954.
141. tbl.
Arbenz forsefi ieggur niður
’öld — bardagar hætta brátt.
FÍB bauð gamla falkinu
í velheppna5a
skemmtiför.
í fyrradag bauð Félag ísl.
bifreiðaeigenda gamla fólkinu
á Grund og elliheimilinu í
Hveragerði, svo og nokkrum
fleiri gamalmennum, í skemmti
ferð austur á Þingvelli, er tókst
með ágætum.
Ekið var um Hveragerði til
Þingvalla, en þar var setzt að
kaffidrykkju í Valhbll. Félag
ísl. bifreiðaeigenda hafði séð
fyrir ágætum skemmtikröftum,
þeim Ólafi Magnússyni frá
Mosfelli, Hermanni Guðmunds-
syni og Karli Guðmundssyni,
en Niels Sveinson lék á har-
moníku. Formaður FÍB., Sveinn
Sveinsson verkfræðingur, bauð
gesti velkomna, en Gísli Sig-
urbjörnsson, forstjóri Elliheim-
ilisins, þakkaði rausnarlegt boð
félagsins. Er meðfylgjandi
mynd var tekin í Valhöll.
Um 200 manns tóku þátt í
förinni í um 50 einkabifreið-
um, og þótt ferðin takast mjög
vel, en gamla fólkið skemmti
sér prýðilega. Hefur það beðið
Vísi að koma þakklæti sínu a
framfæri við stjórn F.Í.B.
- --CTT«
Sofnaði frá
brennandi
vindlingi.
Slökkviliðið var kvatt * nótt
kl. rúmlega tvö að Hverfisgötu
59 hér í bænum.
Þar hafði kviknað eidur í
íbúðarherbergi í kjallara með
þeim hætti að maður sem býr
í því hafði sofnað út frá lif-
andi vindlingi. Kviknaði í út
frá vindlingnum og var slökkvi
liðinu gert aðvart strax og fólk
var áskynja um eldinn. Ekki
náði hann mikilli útbreiðslu
né olli miklu tjóni og var búið
að kæfa hann þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang.
í gærmorgun kviknaði í vöru-
bíl sem stóð í húsagarði við
Stálsmiðjuna. Slökkviliðið var
fengið til þess að slökkva í hon-
um. Blaðinu er ekki kunnugt
um skemmdir.
Friðrik varð
sjötti í Prag.
Mítjámlu og síðustu umferð
skákmótsins í Prag er nú lók-
ið.
Þá tefldi Friðrik Ólafsson við
sænska meistarann Stáhlberg
og gerði jafntefli. Úrslit urðu
þau, að efstur varð Pachmann
með 15 vinninga, annar Szaba
með 14% v„ þriðji Sliwa með
13 v., í 4. og 5. sæti eru Stáhl-
berg og Philip með 12%, en
Friðrik varð 6. með 11% v. —
Guðmundur Pálmason hlaut 7
vinninga. .
Kommúnistar
stórtöpuðu.
Einkaskeyíi frá AP. —
Bonn í morgun.
Kosningar fóru fram í Nord-
Rheim Westphalen, Vestur-
Þýzkalandi í gær.
Flokkur Adenauers kansiara
(kristil. lýðræðissinnar) er enn
stærsti flokkurinn, en þó var<
um dálítið fylgistap að ræða.
Jafnaðarmenn unnu á, en
kommúnistar sem höfðu 12
þingmenn, komu nú engum að.
Samkvæmt seinustu fregn-
um fá kristilegir lýðræðissinn-
ar 90 þingsæti, eða 3 færri en
áður og jafnaðarmenn 76 eða
8 fleiri en áður. Kommúnistar
komu engum að sem fyrr var
greint.
Mosaeldur við Þingvallavatn.
Jörð mjög þurr *■ varúðar þörf.
f gær kviknaði í mosa við
Þingvailavatnen ferðamenn er
áttu þar leið um gátu komð í
veg fyrir útbreiðslu hans með
snarrræði sínu og dugnaði.
Var eldur þessi í námunda
við Sogið þar sem það fellur úr
Þingvallavatni og má líklegt
teljast að einhver hafi fleygt
frá sér logandi eldspítu eða
vindlingsstubb. En menn sem
bar þarna að litlu síðar sáu
að ef eldurinn yrði ekki slökkt-
ur þegar í stað myndi hann geta
breiðzt út um stórt svæði og
valdið ófyrirsjáanlegu tjóni.
Tóku þeir sig því til og grófu
Fimm manns fórust með vélbáti
á Breiðafirði s.l. föstudag.
Vb. „Oddur“ á leið úr Flatey í
Múlasveit sökk með fimm manns.
Átakanlegt slys varð á Breiða
firði s.l. föstudag, er vélbátur
fórst með fimm manns, sem á
honum voru.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Vísir hefur aflað sér
um þenna válega atburð, í sím-
tali við Flatey á Breiðafirði,
en þaðan var báturinn, síra Lár
us Halldórsson sóknarprest, og
skrifstofu Slysavarnafélagsins,
lagði vélbáturinn Oddur, DA
12, af stað úr Flatey um kl. 11
f. h. s.l. föstudag, og var ferð-
inni heitið að Svínanesi í Múlá-
sveit í Barðastrandarsýslu.
Á bátnum voru fimm manns:
Tveir skipverjar, þeir Gestur
Gíslason, formaður, hálffimmt
ugur, og Lárus Jakobsson, um
þrítugt, báðir úr Flatey. Farþeg
ar voru þrír: Óskar Arinbjarn-
' arson hreppstjóri frá Eyri í
t Kollafirði í Gufudalssvéit, mað
ur um sextugt, sem verið hafði
til lækninga í Reykjavík, en var
nú á heimleið. Guðrún Einars-
dóttir, á fimtugsaldri og Hrefna
Guðmundsdóttir, dóttir hennar,
25—26 ára, frá Selskerjum í
Múlasveit.
Frá Flatey til Svínaness er
talin um tveggja stunda sigling,
en báturinn kom aldrei fram.
Síðast sást til hans úr Hvallátr-
um, um það bil klukkustund
eftir brottförina frá Flatey.
Stinningskaldi var á norðan,-
er báturinn lagði af stað úr
Flatey, og gekk á með hryðjum.
Þó var veður ekki talið háska-
samlegt. Síðan spurðist ekkert
til bátsins, og þegar hann kom
ekki aítur til Flateyjar, eins og
ráð hafði verið fyrir gert, var
farið að leita hans.
í Skáleyjum fannst ýmislegt
úr bátnum, svo sem vörur, er
hann hafði haft innaborðs, ár-
ar og fleira lauslegt, og þótti
því sýnt, hver afdrif hans höfðu
orðið.
„Oddur“ var yfirbyggður
trillubátur, um 4% lest að stærð
nýsmíðaður í Hvallátrum. Að
þessu sinni var hann að fara í
áætlunarferð í stað Flóabátsins.
Gestur Gíslason, formaður á
„Oddi“,var ekkjumaður, en
lætur eftir sig 3 börn ung. Lár-
us Jakobsson var ókvæntur, en
bjó hjá aldraðri móður sinni og
bróður á Flatey. Guðrún Ein-
arsdóttir lætur eftir sig mann
og dóttur. Um heimilisaðstæður
Óskars Arinbjarnarsonar er
Vísi ókunnugt.
Mikill mannskaði er að fólki
þessu, sem allt var vel látið, og
hefur atburður þessi að vonum
vakið söknuð og hryggð í
byggð'arlagi þess.
fyrir hann í þá átt sem hann
stefndi og gerðu að því búnu
bóndanum í Kaldárhöfði aðvart
um eldinn svo hann gæti litið
eftir að eldurinn næði ekki
frekari útbreiðslu.
Vegna þurrkanna sem verið
hafa að undanförnu er jörðin
orðin mjög þur og fyrir bragðið
er óvarlegt fyrir fólk að fleygja
frá sér lifandi eldi.
Norðanáttin
gengm niður.
Að undanförnu hefur verið
svalviðri norðanlands, sem byrj
aði fyrir nokkrum dögum með
því að snjóaði í fjöll, og niður
í byggð. Lá þá við að Siglu-
fjarðarskarð tepptist.
Snjókoma þessi og svalviðri
kom með norðanáttinni. Frest-
uðu bændur í Skagafirði og
víðar smölun og rúningi og
þeir, sem byrjaðir voru að slá,
fóru sér hægt.
Nú er norðanáttin gengin nið
ur um land allt og hefur hlýnað
nokkuð l veðri og mun þó
hlýna betur í dag. Sunnan og
suðvestanátt er um land aUt,
Byrjað er að rigna á Vest-
fjörðum og skýjað víðast hvar
annars staðar.
Sennilega fer að rigna hér
með kvöldinu eða í nótt.
• Mendes-France hefur hafn-
að boði um þátttöku í fundi
í Brússel um Evrópusátt-
málann. — Schumann, fyrr-
verandi utanríkisráðherra
sejir, að Beneluxlöndin og
V.-Þýzkaland, sem hafa
staðfest Evrópusáttmálann,
muni ekki biða lengur eftir
því hvað Frakkland og
Italía geri, og fara sínar göt
ur í málinu.
Diaz hershöfðingí
tók við embætti
Arbenz.
U ppreista rmc n aa
voru 60 km. frá
köfuðborgiiini.
Einkaskeyti frá AP. —*
New York í morgun.
Um kl. 3 í nótt talaði Jacobw
Arbenz forseti Guatemala í út—
varp og tilkynnti, að hann hefðii
Iagt niður völd og fengið þau £
hendur Diaz hershöfðingja, yf-
irmanni hersins.
Arbenz kvað svo að orði. að»
hann teldi sig tilneyddan aði
fara frá, vegna þess, aðhanni
hefði ekki ráð á því, er tili
þyrfti, til þess að halda barátt—
unni áfram gegn hinum öfl—
ugu fjandmönnum Guatemala,
en innrásarmenn nytu stuðn—
ings þeirra. Diaz hershöfðingii
kom einnig að hljóðnemanumn
og kvaðst mundu halda barátt-
unni áfram.
Síðar var tilkyrmt að sl.jórn-
arskráin hefði verið felld úrr
gildi.
Áður og um það leyti, semt
þetta var að gerast, var her
innrásarmanna sagður vera £
um það bil 60 km. fjarlægð frái
höfuðborginni, Guatemalaborg..
Castillo Armes, hersnöfðingit
og leiðtogi innrásarmanna, birti1.
ávarp til stjórnarhersins og;
hvatti hann til þess að gera'.
byltingu og snúast á sveif með>
innrásarhernum, og steypai
stjórninni.
Kl. rúmega 7 í morgun bár—
ust svo fregnir um, að Diaz:
hershöfðingi hefði gera ráðstaf
anir til þess að stöðva vopna—
viðskipti.
Rannsóknarnefnd
til vígstöðvanna.
í gærkvöld höfðu borizt fregra
ir um, að rannsóknarnefnd ái
vegum Alamerisku öryggis—
nefndarinnar, yrði send til víg-
stöðvanna í Guatemala og til.
Honduras og Nicaragua. Hafði.
stjórnin í Guatemala þá fallizt:
á, að sík nefnd tæki til starfa,,
en áður hafði hún neitað að»
fallast á það.
Gagnrýni.
Allmikil gagnrýni á stefnui
Bandaríkjanna varðandi Guate—
mala Stemur fram í brezkum.
blöðum. — Er því m. a. haldið'
fram, að fulltrúi þeirra í Ör--
yggisráðinu, Henry Cabot'.
Lodge, hafi tekið allt aðra af—
stöðu varðandi rétt smáríkis—
ins Guatemala, en annara smá-
ríkja, og muni það vera hags-
munir hins volduga bandarískæ
félags United Fruit Company,„
sem miklu ráði um afstöðua
Bandaríkjanna. — Þá er þv£
haldið fram, að út um heim
yrði ekki talin fullnægjandt
nein rannsókn nema sú, serra
fram færi á vegum Samein-
uðu þjóðanna.