Vísir - 15.07.1954, Síða 1

Vísir - 15.07.1954, Síða 1
«4. érg. Fimmtudagiim 15. júlí 1S54. 157. tbl* HeEstaramótið í frjáisum fþróttum í byrjun ágóst. ASalhluti Meistaramóts ís- laeds í fijálsum íþróttum fer fram hér í Reykjavík í byrjun næsta mánaðar. Fer mótið fram dagana 7., 8. og 9. ágúst. Verður þá keppt í venjulegum einstaklings- keppnigreinum frjálsra íþrótta ásamt 4X100 og 4X400 m. boðhlaupi og fimmtarþraut. Þó verður ekki keppt í 10 km. hlaupi, tugþraut og 4X1500 m. boðhlaupi fyrr en 4. og 5. sept- ember í haust, en þá lýkur mót- inu. Um þessar mundir standa yfir í Haag viðræður 15 Hollendinga ogj 22 Indónesa um framtíð Indónesíu. Senn er á enda 5 ára bráffa- hirgðasambúð Hollands og Indónesíu, og nú kreijast Indómesar þess að verða sjálfstæðir með öllu, en fara auk þess Iram á Nýju-Guineu. Efdur í verzlunarhúsí Martems Einarssonar í gær. Reykur svo míkill, aft nota varð grímur. í gær varð mikið tjón aðal- lega af völdum réyks í verzlun Marteins Einarssonar á Lauga- veginum. Þar kom eldur upp í kjallara hússins kl. langt gengin 8 ígær- kveldi. Þegar slökkviliðið kom á vettvang, var eldur í rusli í kjallaranum, m. a. í stórum kössum sín hvoru megin við stigaganginn upp á hæðina fyr- ir ofan. Þar höfðu innviðir líka sviðnað töluvert. Ekki taldi slökkviliðið að eldtjón hafi orð- ið mikið, en hins vegar mjög miklar skemmdir af reyk á vörum og vorubirgðum, hæði í kjallaranum og báðum verzl- unarhæðunum. Var reykurinn svo mikill í húsinu að þegar slökkviliðs- mennirnir komu fyrst inn í verzlunina í gærkveldi var ekki líft þar inni nema með reyk- grímum. Lögreglan taldi sig í morgun ekki geta séð með hvaða hætti kviknað hefði í, en skemmdir væru fyrirsjáanlega miklar, þó það væri ekki enn kannað til fulls. Offast um á flatbytnu. í gærkveldi var óttast um þrjá unglingspilta sem lögðu úr Keflavíkurhöfn á lítilli flat- bytnu með utanborðsmótor. Þegar frétzt hafði að piltar þessir hefðu lagt úr höfn á bátskríli þessu var símað til Reykjavíkur og lögreglan hér beðin að fylgjast með ferðum þeirra ef þeir kæmu hingað. í gærkveldi barst svo til- kynning frá Keflavík um það að báturinn væri kominn þang- að aftur heilu og höldnu. Höfðu piltarnir farið til Hafnarfjarðar og snúið þar við. Fleiri konur reyna sjálfsmorð. Glasgow (AP). — Fleiri konur reyna að ráða sér bana en karl- ar, en færri tekst það. Dr. E. Stengel, sálfræðingur, hefur skýrt frá þessu í erindi, sem liann flutti á fundi í Lækna- félaginu brezka. En þótt fleiri konur reyndu þetta, væru karl- mennirnir miklu fleiri, sem tæk- ist að framkvæma slík áfonn. Átvinnulreitið skal í símaskrána. Hinn 22. júní sl. var á bæj- ariþingi Reykjavíkur kveðinn upp fremur óvenjulegur dóm- uur. — Félag útvarpsvirkjameistara i Reykjavík hafði höfðað mál á hendur póst- og símamála- stjóninni vegna þess, að sú stofn'un hefir stympazt gegn gegn því að viðurkenna út- varpsvirkjameistara og neitað að láta prenta það heiti aftan við nöfn þeirra í símaskránni. Samkvæmt dómi þeim, sem upp var kveðinn í fyrra mán- uði, ber póst- og símamála- stjórninni skylda til að bæta orðinu „útvarpsvirkjameistari" í símaskrárviðbæti fyrir 1954 við nöfn þessara manna: Frið- riks A. Jónssonar, Georgs Ás- mundssonar, Ólafs Jónssonar og Jóhanns V. Sigurjónssonar, að viðlögðum 100 króna dag- sektum að 60 dögum liðnum frá birtingu dómsins, og greiði 1000 krónur í málskostnað. Samið fyrirfram um sölu á míklu síldarmagni. Svíar, Flnnir og Rússar mesfu viðsklpfaþjóðirnar. Samkvæmt upplýsingum, sem Visix fékk hjá síldarút- vegsnefnd í morgun, er þegar búið að selja fyrir fram all- mikið magn af Norðurlandssíld, svo og Suðurlandssild. Svíar og Finnar mumi kaupa samtals 12—15 þúsund lestir eða 120.000—159;000 tunnur af Norðuriandssíld. pá standa vonir til, að Rússa: kaupi af okkur a. m. k. 70.000 tunnur aí Norðurlandssíld. I athugun era möguleikar á sölu Norðurlandssíldar til Banslaríkjanna. Rétt er að geta þess, að sítóin, sem nú veiðist er mjög blönduð, eins og það er neínt, eða misjöfn, »g því teýn nauðsyn að vanda vel verkun. í sa.mbandi vift SuSurlandssíidina má geta þess, að búizt er viö, að Rússar kaupi af okkur um 75.000 tunnur, en Pól- verjar hafa þegar gert við okkur samning um kaup á 10.000 tunnum. Sf. sólarfíring var ágætur aflí - hagstæð skifyrði tif veiði ' morgun. Síldin er austan tíl á miðuniim, Frá fréttaritara Vísis. Siglufirði í morgun. Búsældarlegt verður um að litast á Siglufirði í dag, því að búizt er við miklum f jölda skipa með síld til söltunar, en söltun var leyfð frá miðnætti í nótt. Fjölmörg skip öfluðu ágæt- lega í gær og í nótt, og veiðiút- lit er mjög gott í morgun, hvita- logn en nokkur dumbungur. Líta sjómenn mjög björtum augum á veiðarnar, eins og er, að minnsta kosti, og sumum finnst Siglufjörður vera sem óð- ast að taka á sig hinn forna at- hafna- og glæsibrag. í gær losuðu fjölmörg skip síld á Siglufirði, sem tekin var í bræðslu, og hjá síldarverk- smiðjum ríkisins einum voru skipin 50—60. Var í nógu að snúast og geysilegt athafnalíf. Skipin voru flest farin út aft- ur fyrir miðnætti og fengu á- gætan afla í nótt. Berjatínsla hafín í Eyjafirði, Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Fyrstu krækiberin hafa nú verið tínd í Eyjafirðinum og var þar um stór og þroskuð ber að ræða. Virðist - sem berjaspretta ætti að verða með ágætasta móti Norðanlands í sumar. Um síðustu helgi fóru börn úr Eyjafirði og Akur- eyri til berjatínslu og fengu þau flest mikið af berjum, l þroskuðum og stórum. Sögðu J börnin að víða væri krökt af berjum og berjalandið orðið svart yfir að líta.__ Floðin rénandi, en þó enn ntikil. Einkaskeyti frá AP. Múnchen í morgun. Nokkuð hefur dregið úr flóða hættunni í Austurríki og Bæj- aralandi, en mikill viðbúnaður er í Tékkóslóvakíu, Júgóslavíu og Ungverjalandi, þar sem enn hækkar í ánum þar. í Budapest er þó ekki talin stórhætta á ferðum nema vatns- yfirborðið hækki um 2 metra frá því sem nú er. í Austur-Þýzkalandi hefur ekki orðið eins mikið tjón af vatnavöxtum síðan 1945, að því er segir í kommúnistablaðinu Berlíner Zeitung. Egyptar ætla framvegis að kjósa „blómullardrotnmgu“ ár- lega. Verðlaun hennar verða vatnauxi! Síldin hefur fengizt á stórii svæði, austur af Grímsey, við Mánáreyjar, út af Sléttu og allt austur á Digranesflak við Lrnganes. Meðal skipa, sem komu til: Siglufjarðar í nótt, eru þessi, og er aflinn alls staðar talinn £ tunnum: Helga 200, Sigurður 300, íslendingur 450, Ársæll Sigurðsson 300, Haukur I 400, Gerða-Trausti 350, Björg, Sigluf. 120, Bjarni Jóhannesson,, Akranesi, 300, Súlan 700—800, Muninn II 400. ? í dag verður saltað á ölluni söltunarstöðvum á Siglufirði. Þá eru hér fréttir frá nokkr-< um fleiri verstöðvum nyrðra: Dalvík. Á leið til hafnar voru þess skip í morgun: Njörður 6—700, Auður 3—400, Sigríður 3—400, og Baldur 600. Þórshöfn. Þangað eru á leiðinni Fagri- klettur með 300 tunnur og Muninn með 400. Raufarhöfn. Þar er byrjað að salta í dag, en hörgull hefur verið á stúlk- um, en menn vona að úr þv£ rætist, þareð stúlkur munu vera: á leiðinni frá Akureyri. Þang- að komu mörg skip í gær, og varð að vísa nokkrum frá. — Skipin, sem leggja upp á Rauf- arhöfn hafa fengið afla sinn á. Skjálfanda, út af Sléttu og á Digranesflaki. Vitað er um. þessi skip, sem inn hafa komið; Hannes Hafstein 300, Björn; Jónsson 300, Vaðgeir með góð- an afla o. fl. Skip strandar. í morgun strandaði v.b. Bjarm arey frá Hafnarfirði við inn- siglinguna til Raufarhafnar, en menn gera sér vonir um, að skipið losni á flóðinu. Frá Eyjafirði. Til síldarverksmiðjanna ái Hjalteyri og Krossanesi hafa. nú samtals borizt yfir 10 þús- mál síldar frá því veiði hófst- Til Hjalteyrar bárust 2618: mál síldar í gær. Þar landaði Sigríður 370 málum, Rifsnes 374, Egill Skallagrímsson 941, Einar Ólafsson 469, Njörður 57, Sæfinnur 119 og Akraborg 228 málum. í gærkveldi höfðu alls borizt 4587 mál ti Hjalteyrar frá þv£ er síldveiði hófst. Fitumagn. síladarinnar nær nú orðið 20%. að meðaltali. Til Krossanesverksmiðjunn- ar höfðu borizt 5749 mál frá byrjun og þar til í gærkveldi. Til Dagverðareyrar kom Súl- an í gær með 468 mál og Þor- steinn með 93 mál. Þangað hafa frá vertíðarbyrjun borizt 889 mál síldar. Saltað í öllum söltnnar- stöðvnm í Siglulirði í dag.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.