Vísir - 15.07.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 15.07.1954, Blaðsíða 8
VlSIK er édýrasta blaíið eg þó það f}51- breyttaita. — Hrlngið í »fma 1180 eg gerist áskrifendur. irisiR Þefar sem gerast kaupendur VlSIS efttr 10. hvers mánaðar fá blaðið ákeypis tfi mánaðamóta. — Simi 1800. Fimmtudaginn 15. júlí 1954. Frakkar sýna herstyrk sinn í Hanoi. Mínnast Bastilfudagsins, er Ho Chi Minh ætiaði ad taka borgina. | Einkaskeyti frá AP. . Hanoi í morgun. í gær var Bastillu-dagurinn, þjóðhátíðardagur Frakka, — dagurinn sem uppreistarmenn í Xndókína ætluðu að taka þessa borg herskildi. Þess í stað fór hér fram stór- kostleg hersýning, sem Frakkar efndu til í því skyni, að hressa upp á borgarlýðinn, sem eins og vonlegt er hugsar undir niðri með skelfingu til þeirra átaka, sem framundan virðast vera um borgina. Tíu þúsund manna lið með hvers konar vopn fór fylktu liði um göturnar, allt úrvalalið, flokkar úr útlendingahersveit- inni, Senegalblökkumenh með rauðar kolíhúfur, rifflaskyttur frá Alsír o. s. frv. — Cogny hershöfðingi kannaði liðið að viðstöddum 100.000 íbúum Hanoi. Þetta var hersýning stríðandi hermanna — hermanna, sem komu beint af vígvöllunum og var því áhrifameiri en skraut- hersýningar á friðartímum. Nóttina áður börðust þessir hermenn í skotgryfjum og „grenjum“ fyrir utan Hanoi, og þegar að hersýningunni lokinni héldu þeir þangað aftur. Uppreistarmenn taka framvirki. Uppreistarmenn umkringdu í gær framvirkið Erulin, sem er 48 km. til norðausturs frá Han- oi. Setuliðið verst enn og fær birgðir loftleiðis. — Nálægt sem var yfirgefin í fyrra mán- eyjahólmaborginni Nam Dinh, uði, var nokkrum skipum sökkt fyrir uppreistarmönnum í sprengjuárás. Einnig var gerð sprengjuárás á stöðvar upp- reistarmanna við Hung Yen, sem er umkrind, og er það viiki um 40 km. suðaustur af Hanoi, en þar hafa uppreistarmenn 12 bataljónir reiðubúnar til árásar. Á Bastilludeginum í París var mikill viðbúnaður til að halda uppi reglu. 20.000 lög- reglumenn voru við skyldustörf og mikið varalið til taks. Du- bois lögreglustjóri sagði, að hvers konar tilraunir kommún ista til þess að stofna til óeirða í sambandi við komu Dullesar yrðu bældar niður harðri hendi. Kviknaði í palli Varð efstur sam- nemenda sinna. Björn Sigurbjörnsson, Þor- kelssonar, fyrrum kaupmanns í Vísi, hlaut við nýafstaðin vor- próf í Manitoba-háskóla beztu einkunn allra samnemenda sinna í landbúnaðarfræðum. Fyrir frammistöðu sína var Birni veittur sérstakur náms- styrkur. Björn hefir nú dvalið, ásamt konu sinni Helgu Pálsdóttur, um nær tveggja ára skeið vest- ur í Kanada og stundar nám í landbúnaðarfræðum við Mani- toba-háskóla. Þau hjónin eru bæið stúdentar frá Mennta- skólanum í Reykjavík, en Björn er auk þess búfræðikandídat frá Hvanneyrarskóla. Frú Helga, kona Björns, starfar við. bókasafn íslenzku deildarinnar við Manitoba-háskóla. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Um miðnæturbil kviknaði í palli, sem Elisabet drottning átti að standa á í dag, er hún tæki kveðju 10.000 lögreglu- manna, sem gengu fyrir hana fylktu liði. Blöðin töldu sig hafa komið í feitt. Birtu þau fregnir um það síðdegis, að ungir óróasegg- ir hefðu kveikt í pallinum, en Scotland Yard tilkynnti síðar, að neistar frá ljóskeri nætur- varðar hefði valdið íkviknun- inni. ■— Lögreglumaður slökkti eldinn með handslökkvitæki, áður en slökkviliðið kom á vettvang. Viðgerð var lokið rétt áður en Elisabet drottning kom. — Þetta var fyrsta konunglega lögreglusýningin í London frá árinu 1935. Bæjarráð Rvíkur í Finnlandsför. Bæjarráð Reykjavíkur var fyrir skömmu í Finnlandi í boði Helsinki-borgar. Þessir bæjarráðsmenn tóku þátt í förinni: Guðmundur H. Guðmundsson, Geir Hallgríms- son, Magnús Ástmarsson og Guðmundur Vigfússon, svo og Sigurður Sigurðsson, 1. vara- forseti bæjarstjórnar og Tómas Jónsson borgarritari. Frá skákþinginu. Gísli Marmósson sigraði í 1. ílokki Gsiðiíi. S. Guðmundsson og Jón Einarsson líklegastir til sigurs i landsliðs- og meistaraflokki. Nú er farið að draga að lok- j og Gunnar Ólafsson vann Jórt um Skákþings íslendinga og! Einarsson. má orðið leiða ákveðnar getur að því hver úrslitin verði í lands Iiðsfiokki og meistaraflokki, en í 1. flokki eru úrslit þegar kunn. í gærkveldi voru tefldar bið- skákir í landsliðsflokki og fóru þær þannig að Guðm. S. Guð- mundsson vann Ólaf Sigurðs- son, Jón Pálsson vann Óla Valdimarsson og gerði jafntefli við Birgi Sigurðsson og loks gerði Eggert Gilfer jafntefli við Inga R. Jóhannsson og Ólaf Sig urðsson. Staðan er þá þannig í lands- liðsflokki að Guðmundur S. er nú efstur með 3 vinninga og 2 biðskákir (við Gilfer og Inga), sem talið er að hann muni vinna báðar, og með því yrði hann langefstur í mótinu. Þeir Jón, Óli, Birgir og Ingi R. hafa 2 vinninga hver en Gil- fer og Ólafur 1 vinning hvor. Sjötta og næstsíðasta umferð í landsliðsflokki verður tefld annað kvöld. í meistaraflokki fóru leikar í gærkveldi þannig að Kári Sólmundarson vann Ingimund Guðmundsson, Ágúst Ingi- mundarson vann Ólaf Einarsson Keppni er nú lokið í meist- araflokki nema eítir er að tei'la eina biðskák. Staða efstu manna er þannig, að Kári Sólmundar- son hefur 3)4 vinning, Jón Einarsson 3 vinnmga og bið- skák og Ingimundur Guðir.unas. son 3 vinninga. Talið er að Jón eigi auðunna biðskák sína og beri þar með sigur úr býtum. Keppni 1. flokks er lokið, en þar varð Gísli Marínósson efst- ur með 3)4 vinning í 4 skák- um. Einkaskeyti frá AP. New York í morgun. Stjórn Guatemala hefur far- ið fram á, að Öryggisráð SÞ. taki af dagskrá kæru fyrrver- andi stjórnar landsins. Tekið er fram, að friður sé kominn á í landinu og ástæðu- laust að halda áfram deilum um þessi mál í ráðinu. Fundi veðurstofustjóra NorSur- landa lauk hér í gær. Gerdar vorsi 15 samþykktir. Aðstaða Mendes-France er nú sterkari í Genf. En tíminn er orðien naumur. Einkaskeyti frá AP. Genf í morgun. Fyrsta verk Mendes-France eftir komuna til Genfar var að ganga á fund Molotovs, sem er annar forseti ráðstefnunnar, og tjá honum, að á Parísarfundin- umhefði ekkert gferzt, sem ætti aðhindra störf Genfarráðstefn- unnar. Almennt er litið svo á, að Parísarfundurinn hafi orðið til þess að treysta samvinnu Vest- urveldanna, og er það talinn mikill sigur fyrir Eden og Mendes-France að Dulles féll frá fyrri ákvörðun varðandi þátttöku Bandaríkjanna í Genf arráðstefnunni, með því að fall ast á. að Bedell-Smith færi þangað og yrði aðalfulltrúi Bandurl • janna þar á nýjan leik. Bedeii-Smith leggur af stað J>angaý. í dag, en síðdegis í dag kemur Dulles heim af Parísar- fundinum og gengur þegar á fund Eisenhowers og gerir hon- um grein fyrir störfum hans. Styttist óðum. Fréttaritarar hér eru á einu máli um það, að sú spurning sé nú á allra vörum hvort Mendes-France hafi nægan tíma til að ná því marki, er hann hefur sett sér, að koma því til leiðar að samkomulag umvopna hlé náist fyrir 20. þ. m. Hann hefur boðað, að hann biðjist lausnar, ef honum tekst það ekki. Og nú spyrja menn í Genf, hver verði afstaðaf kommúnista. Vilja þeir stuðla að því, að hann nái markinu — með þvi að bjóða upp á aðgengilega samn- inga — eða telja þeir ný stjórn arskipti í Frakklandi og, áfrám- haldandi öngþveiti þa - vatn á sína mylnu? Ráðstefnu norrænna veður- stofustjóra lauk í gær. Þessi ráðstefna var sú 8. í röðinni og sú fyrsta sem haldin var á íslandi. Mættir voru allir veðurstofustjórar nema hinn danski, sem gat ekki komið vegna veikindaforfalla. Auk forstjóranna tóku þátt í ráð- stefnunni 4 fulltrúar frá Dan- mörku, 1 frá Svíþjóð, 1 frá Noregi og 10 frá íslandi. Þar að auki hafa fulltrúar frá Póst- og Símamálastjórninni og Rann- sóknarráði ríkisins mætt á sumum fundum. Ráðstefnuna sátu tvær konur, þær frú The- resía Guðmundsson veðurstofu- stjóri og Adda Bára Sigfúsdótt- ir, veðurfræðingur. — Til um- ræðu voru tekin 13 mál. Gerðar voru 15 samþykktir á fundin- um. Frú Theresía Guðmundsson skýrði blaðamönnum frá því að veðurstofan hefði nýlega fengið að gjöf frá Det Ðanske Meteorologiske Institut skýrsl- ur íslenzkra veðurathugunar- manna, gerðar á tímabilinu 1845—1920. Hér er um dýrmæta gjöf að ræða. Skjöl þessi eru mikil- vægar heimildir við veðurfars- rannsóknir, og hafa nú íslenzk- ir fræðimenn auðveldan aðgang að þeim. Erlendu veðurstofustjórarnir lofuðu íslenzku veðurþjónust- una hér sem þeir kváðu mjög mikilvæga fyrir Norður-At- lantshafið vegna legu landsins. Fyrir Skandinaviu væri ís- lenzká veðurþjónustan mikil- væg vegna þess að allflestar lægðir leituðu frá vestri til aust urs og kæmu því fyrst yfir ís- land á leið sinni til Skandinavíu og fyrir Danmörku vegna Grænlandsflugsins. Veðurfræðingarnir þökkuðu fyrir þær ágætu móttökur, sem þeir hefðu hvarvetna hlotið hér, hjá forsetahjónunum að Bessa stöðum, bæjarstjórnum Rvíkur og Hafnarfjarðar og öllum, sem greitt hefðu götu þeirra hér lendis. Átta sóttu um vínveitingaleyfí. Átta veitingahús í bæniim sóttu um vinveitingaleyfi, en. þar af hefur eitt, Hótel Borg, íengió það, enn sem komiS er a. m. k. Veitingahúsin voru þessi, auk Hótel Borgar: Sjálfstæðishúsið, þjóðleikhúskjallarinn,.. Röðull, Breiðfirðingabúð, Tjarnarcafé, þórscafé, og Vetrargarðurinn. .. Nefnd þriggja manna sker úi um það, hver veitingahús skuli teljast fyrsta flokks, en síðan ákveður ráðuneytið, hver fái leyfið. í nefnd þessari eru þeir dr. Jón Sigurðsson borgarlæknir, Eiríkur Pálsson lögfræðingur, og Halldór Gröndal veitingamað- ur. — Nefnd þessi mun hafa skilað því áliti, að Sjálfstæðishúsið og þjóðleikhúskjallarinn skuli telj- ast 1. flokks, að uppfylltum viss- um skilyrðum, og að því er Vísir bezt veit, mun hafa verið unnið að þeim breytingum, sem nauð- synlegar voru til þess að skil- yrðunum yrði fullnægt. þá munu ýmsar breytingar hafa verið gerðar á Röðli, og hefur það veif- ingahús nú endurnýjað umsókn sína um vínveitingaleyfi. V.-Þýzkaland fái fullt og óskorað sjálfstæði. Brefar og Bandaríkjamenn taka ákvörðun í því efni og vilfa fá Frakka með sér. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Bretland og Bandaríkin hafa lagt til, að Vestur-Þýzkaland fái fullt og óskorað sjálfstæði bráðlega, þótt Frakkland hafi þá ekki staðfest Evrópusátt- málann. Er búist við, að frekari skref verði stigin til þessarar full- veldisveitingar þegar í næsta mánuði. Farið er fram á, að Frakk- land gerist aðili að þessari á- kvörðun Bretlands og Banda- ríkjanna, og jafnframt heitið, að endurhervæðingu V.Þ. verði frestað í bili Gerði Churchill grein fyrir þessum málum í neðri málslofúnni í gær, en Dulles hafði sent þjóðþingi Bandaríkjanna bréf um þetta efni. í brezkum blöðum í morgun er tekið fram, að hér sé fylgt eftir samkomulaginu á Was- hingtonfundinum, hér sé um að ræða einskonar staðfestingu á samkomulagi í grundvallarat- riðum, en eftir sé það, sem mestu máli skiptir, að leysa spurninguna um endurhervæð- ingu V.Þ. Og það mál leysist af sjálfu sér, ef Frakkland stað- festi varnarsáttmálann. Geri Frakkland það hinsveg- ar ekki sé fyrirsjáanlegt, að málum verði hraðað, án tillits til þess hvernig fer um sáttmál- ann. Nokkurs uggs gætir um það í einu blaðinu (Daily Mail) hvað ofan á verði í V.Þ., er dr.. Adenuers missi við.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.