Vísir - 23.08.1954, Blaðsíða 2
TlSlB
Mánudaginn 23. ágúst 1954..
ww%%y%#yv%ffi#wvvff#wvwvvwwvi#wvw%iws#W!WWBíi#yww*#i#w!wv|W!|y|ii#wwy||wiwi*
É#wwww%rfwviwwvivy\#yvfwwwvpywyvivff#wyvvw#yvjv#ywwvfwvftrfyvvfvwvM
tftfwwwwwwwtfwwwywp^^
flWwift vwwwww
jVi/ww __ ___ __’ iftftfvvrwyvwvw
#ywwu TTfe 70 T 4 Tfe wwwwvww
#wwww fir% ZJH. 1 £s Bc » ^ wwwtfww
wwwvfl A# JlælJ W Jlm. JL% ft fwwvvwww
■ywyvWÉ jj/ r*i f • ftfWWWVtfW
wwwvrt V.MÁrr* wtfvtftfifvtfw
rfwwww jrG'l/lsVw wwwtfvywv
iAfywtfvwtfvvtfWtfvwtfWtftfwwtfWtftfwytfWtfwyvtftftfw
tfvwwwtfwvtftftfvwvwrfwwvwwtfWwy iftftwwwvj1^ yww
Útvarpið í kvöld:
20.20 Erindi: Nokkur orð um
myndlist (Frú Kristín Jóns-
dóttir listmálari). 20.45 Út-
varpshljómsveitin; Þórarinn
Guðmundsson stjórnar. 21.05
IJm daginn og veginn (Helgi
Þorláksson kennari). — 21.25
Einsöngur: Isobel Baillie syng-
ur (plötur). 21.45 Búnaðarþátt-
ur: Vélanámskeið (Haraldur
Árnason verkfræðingur). 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.10
„Hún og hann“, saga eftir Jean
Dyché; I. (Gestur Þorgrímsson
les). 22.30 Létt lög (plötur) til
kl. 23.00.
Hekla,
millilandaflugvél Loftleiða,
er væntanleg til Reykjavíkur
kl. 19.30 í kvöld frá Hamborg,
Kaupmannahöfn, Oslo og Staf-
angri. Flugvélin fer áleiðis til
New York kl. 21.30.
Veiðimenn í Vesturvegi
heitir mynd, sem Gamla Bíó
sýnir þessa dagana. Efni mynd-
arinnar er ekki stórbrotið, en
þeim mun fegurrla er lands-
lagið, sem myndin gerist í,
hrikaleg fjöll, þéttir skógar,
grösug beitilönd, og gefur það
myndinni gildi. Þá mun mörg-
um leika forvitni á að sjá Clark
Gable, sem þarna leikur aðal-
hlutverkið, og virðist hann
hafa svipað aðdráttarafl og
fyrr. Ljómandi falleg stúlka
leikuý á móti honum, Maria
Elena Marques.
iimwiwwwwwwwr*
Minnisblað
almanninijs.
Mánudaginn
23. ágúst — 235. dagur ársins.
Flóð
verður næst í Reykjavík kl.
114.07.
Ljósatími
bifreiða og annarra ökutækja
«r frá kl. 22.00—5.00.
Nætuijlæknir
er í Læknavarðstofunni. —
Sími 5030.
Næturvörður
er í Ingólfs Apóteki. Sími
1330. Ennfremur eru Holtsapó-
tek og Apótek Austurbæjar op-
in alla vlrka daga til kl. 8 e. h.
nema laugardaga frá kl. 1—4.
Lögregluvarðstofan
I hefiri síma 1166.
Slökkvistöðin
hefir síma 1100.
K. F. U. M.
Biblíulestrarefni: I: Kon. 21,
1—20 Hugrekki Elia.
Gengisskráning.
(Söluverð) Kr.
1 bandarískur dollar . 16.32
1 kanadiskur dollar .. 16.90
100 r.mark V.-Þýzkal. 390.65
3 enskt pund ........... 45.70
100 danskar kr........ 236.30
100 norskar kr........ 228.
100 sænskar kr.........315.50
100 finnsk mörk....... 7.09
100 belg. frankar .... 32.67
1000 franskir frankar .. 46.63
100 svissn. frankar .... 374.50
100 gyllini........ . 430.35
1000 lírur ............. 26.12
Gullgildi krónunnar:
100 gullkrónur = 738.95
(pappírskrónur).
Minningar sp j öl d
Krabbameinsfélags íslands
fást hjá öllum póstafgreiðslum
landsins, öllum lyfjabúðum í
Reykjavík og Hafnarfirði
(nema Laugavegs og Reykja-
víkur apóteki), Remedia, verzl-
uninni Háteigsvegi 52, Elli-
heimilinu Grund og skrifstofu
Krabbameinsfélaganna í Blóð-
bankanum Barónsstíg, sími
6947. Kortin eru afgreidd gegn-
um síma.
Berjaferð
Sjálfsæðisfélaganna í Hafnar-
firði verður að forfallalausu
farin sunnudaginn 29. þ. m.
Samvinnan,
júlíheftið er komið út, og flyt-
ur m. a. þetta efni: Höslum
okkur völl, frásögn af aðalfundi
SÍS, frásögn af starfsemi Sam-
vinnutrygginga. Stúlkan frá
Oude-Kraal, saga frá Suður-
Afríku. Grein er um land-
skjálfta, grein er nefnist ,Burt
með tolla og haftamúra, grein
um þróun Sambandsins s.l. átta
ár, og fleira.
Menntamálaráðuneytið
hefur ákveðið að halda áfram
námsstjórastarfi því, sem
Ármann heitinn Halldórsson
hafði með höndum með svipuðu
samstarfi milli ríkis og bæjar.
Til starfsins hyggst ráðuneytið
ráða Magnús Gíslason sem
verið hefur skólastjóri Skóga-
skóla, og hefur fræðsluráð
Reykjavíkurbæjar verið til-
kynnt þetta.
Norska skipið „Jan“
sem strandaði við Gróttu á
dögunum, er nú komið til hafn-
ar í Reykjavík. Eins og Vísi
hefur áður skýrt frá var fyrst
farið með sipið inn á Eiðisvík,
þar sem sement það sem eyði-
lagst hafði var losað úr því og
bráðabirgðaviðgerð framkvæmd
á botni skipsins. Á laugardag-
inn var þessu lokið og kom
skipið þá inn í Reykjavíkur-
höfn.
Hvar eru skipin?
Skip SÍS: Hvassafell er á
leið frá Keflavík til Þorláks-
hafnar. Arnarfell fór frá Rauf-
arhöfn 19. þ. m. áleiðis til Kaup
mannahafnar. Jökulfell er í
Reykjavík. Dísarfell er í Brem-
en. Bláfell er í flutningum milli
Þýzkalands og Danmerkur.
Litlafell er á Akureyri. Jan
er í Reykjavík. Nico fór frá
Álaborg í fyrradag áleiðis til
Keflavíkur. Tovelil fór frá
Nörresundby í fyrradag álei§is
til Keflavíkur.
Eimskip: Brúarfoss fór frá
Hamborg í fyrradag til Rotter-
dam. Dettifoss fór frá Reykja-
vík á föstudag til Hamborgar
og Leningrad. Fjallfoss fór 19.
þ. m. til Vestmannaeyja, Aðal-
víkur, Siglufjarðar, Akureyr-
ar og Húsavíkur. Goðafoss er í
Reykjavík. Gullfoss fór frá
Reykjavík á laugardag til Leith
og Kaupmannahafnar. Lagar-
foss kom til New York á föstu-
daginn. Reýkjafóss fór frá
Reykjavík á föstudag til HuJi,
Rotterdam og Hamborgar. Sel-
foss fór frá Grimsby á föstu-
dag til Antwerpen, Hamborgar
og Bremen, Tröllafoss kom til
Flekkefjord á fimmtudag. Fer
þaðan til Hamborgar. Tungu-
foss fór frá Antwerpen á
fimmtudag til Reykjavíkur.
HreMgátahr. 22%i
Lárétt: 2 einkasala, 5 sölufé-
lag, 7 lagarmál, 8 í vísum, 9
ending, 10 óð, 11 olíufélag, 13
á ánum, 15 lygi, 16 drykk.
Lóðrétt: 1 togaranafn, 3 veiði-
tími, 4 rífa, 6 í nefi, 7 lík, 11
góður smiður (kvk.), 12 bjarg-
ferð, 13 athugaði þunga, 14
frumefni.
Lausn á krossgátu nr.2282.
Lárétt: 2 áma, 5 00, 7 fá, 8
styrkurí, 9 AA, 10 MN, 11 und,
13 króum, 15 sag, 16 lás.
Lóðrétt: 1 rosar, 3 Merino, 4
káma, 6 ota, 7 fum, 11 urg, 12
dul, 13 KA, 14 má.
Katla
er í Reykjavík.
Veðrið í morgun:
Reykjavík ANA 2, hiti 12
stig. Stykkishólmur A 3, 9.
Galtarviti logn, 10. Blönduós V
1, 8. Akureyri logn, 10. Gríms-
staðir ANA 2, 11. Raufarhöfn
A 4, 9. Dalatangi logn, 9. Horn
í Homafirði A 1, 10. Stórhöfðí
A 3, 10. Þingveílir logn, 11.
Keflavíkurflugvöllur ANA 2,
12. — Veðurhorfur: Hæg aust-
læg átt, skýjað, en víðast úr-
komulaust.
Hafnarbíó
sýnir þessi kvöldin fræga kvik-
mynd, „Manninn með jám-
•grímuna", sem byggist á skáld-
sögu Alexanders Dumas, sem
heimsfrægur varð fyrir margar
áhrifamiklar og vel ritaðar
skáldsögur, svo sem Greifann
af Monte Christo o. fl. Sagan
styðst við gamlar sagnir um,
að manni af tignum ættum hafi
verið haldið lengi í Bastillunni,
og hafi sérstök jámgríma verið
smíðuð á fangann. Hefst sagan
á dögum Lúðvíks XII. * Er
drottning hans talin hafa alið
honum tvíbura, og var annar
alinn upp með leynd, og varð
hinn ágætasti maður og vask-
ur vel, en konungurinn bróðir
hans munaðarseggur og harð-
stjóri, er að lokum lætur lífið
við litla sæmd, en bróðir hans
tekur við og fær hina fögru
Spánarprinsessu Mariu There-
seu fyrir drottningu. Viðburða-
rásin er hröð og myndin vel
leikin. Þarna koma við sögu
hinir frægu fóstbræður
D’Artagnan og félagar hans.
Loujs fHayward leikur tvöbur-
ana og Joan Bennett' Mariu
Tlunese.Öllum, hlutverkum
eru gerð góð skií. — 1.
"'mAGNÍOS " THORLACÍUS
h -Estaréítarlögmaötir
álflutnmgsskrif stof a
A ístræti 9. — Sími 1875,
E 1AÐ AUGLÝ SA i VISl
ffifgeir Signrjóonoii
•josstaréttarlögmaSm
fstofutíml 10—12 og 1—»
istr. 8. Síml 1043 og SOölt
------------"v.7' ■
útlendir nýkomnir.
Poplfgi-frakkar
Með belti og
án beitis
(Hiítaóala
Bíll óskast
Er kaupandi að góðri 6
manna fólksbifreið módel
1940—42. Á sama stað er til
sölu Juno miðstöðvarelda-
vél. Sími 3917 frá kl. 5—7.
gaberdine, safin, perlon.
MARGT A SAMA STAÖ
LAUGAVEG 10 - SIMI 338?
Kristján Guðlaugsson,
hæstaréttarlögmaður.
Slirifstofutiml 10—12 mg
1—5. Austurstræti 1,
Síml 3400.
Vanur
verzlunarmaður
óskar eftir starfi, margra
ára reynsla. Sínú 7639.
THRICHLOK-HREINSUM
BÍ0RG
Inniiegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andiát og útför bróður okkar
Hjartar Pálssonar.
Valgerður Páisdóttir,
■ Jón Pálsson.