Vísir - 23.08.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 23.08.1954, Blaðsíða 8
Vlsm cr ódýrmU blaðiS »g þé þ*8 fJ8I- ir^ttaita. — HrlagiS f afmc 1818 ag gerist áakrifendnr. WlSlIt Þ*ir aem gerast kaupendur VtSIS eftír 18. kvera mánaSar fá blaðið ókeypia tí* naánaðamóta. — Simi 18M. Mánudaginn 23. ágúst 1954. Ný atvinnugrein tekin upp á Eyrarbakka. Um 60 manns hefur unnið að humar- veiðum og vinnslu. Á Eyrarbakka hefur skapzt ný atvinnugrein, sem þar var ó- 1 þekkt áður, en veitt hefur ] fjölda atvinnu og fært einstakl- ángum sem að henei vinna, björg í bú. Þarna er um humarveiðar að ræða, en þær hafa ekki verið stundaðar hér sunnanlands þar til í fyrrá að Hafnamenn á Suð- urnesjum gerðu út báta til þeirra og með ágætum árangri. Frumkvæðið að þessari nýju atvinnugrein þeirra Eyrbekk- inga átti forstjóri Hraðfrysti- stöðvar Eyrartaakka, Vigfús Nýr söngmaður kemur fram á sjónarsviöiö. Listahjón, íslenzkur söngvari og kona hans, sem er amerísk að uppruna og ágætur píanó- leikarf, efna hér til söng- og hljómleikaskemmtunar á næst unni. Söngvari sá, sem hér um ræð ir, er Sverrir Runólfsson. Hann er lítt þekktur sem söngvari néma í kunningjahóp, en hann hefur að undanförnu vérið við söngnám vestur í Ameríku. — Hann hefur, að sögn kunnugra, góða tenórrödd. Kona hans, frú Janet Rimólfsson, mun annast undirleikinn. Hún mun einnig leika sálfstæð verk á hljóm- leikunum. LM. í göngu fyrir bréfbera. Frá fréítaritarta Vísis. - Stokkhblmi 14. ágúst. —j Það er mikið um göngur nú v. Svíþjóð. ÞaS er ekki nóg, að hungur- göngumennirnir hafi sett þjóð- ina á annan endann, heldur hefur farið fram Evrópumeist- arakeppni í göngu fyrir bréf- bera. Fimmtíu og sex bréfberar frá 11 þjóðum tóku þátt í keppn- inni og imnu tvíburar frá Stokkhólmi. Þá er það ekki lítið afrek, að áttræð veitingastúlka hefur borið' bakka í 60 ár í ýmsum veitingahúsum og kaffistofum. Hún heldur ennþá áfram starfi sínu og hefur aldrei orðið veik í fótunum, utan hvað hún lær- brotnaði á öðru læri 1949 og á hinu 1952. Á þessum 6ð átum hefur hún aðeins slitið 6 pörum af skóm, og gengur á þeim sjöundu núna. Jónsson, og hefur Hraðfrysti- stöðin keypt allan afla sem á land hefur borizt, látið vinna hann óg síðan hraðfryst. Samkvæmt upplýsingum sem Guðmundur Daníelsson rithöf- undur lét blaðinu í té hafa þrír bátar frá Eyrarbakka stundað humarveiðar frá því snemma í júnímánuði. Hafa veiðarnar frá öndverðu verið , stundaðar af hinu mesta kappi og hefur afl- ast allt upp í 4 lestir á bát í róðri. Fjórir menn eru á hverj- um báti og varir hver veiðiferð þrjú dægur. Eins og áður getur er það Hraðfrystistöð Eyrarbakka sem kaupir aflann og lætur vinna hann til útflutnings, en síðan er hann seldur fyrir milligöngu Söiumiðstöðvar hraðfrystihús- anna til Bandríkjanna og virð- ist markaður vera nægur. Allur úrgangur er malaður í beina- mj ölsverksmiðj unni á Eyrar- bakka, en hún er sameign Eyr- bekkinga og Stokkseyringa. Um 50 manns hafa haft stöð- uga atvinnu í landi við verkun aflans frá því er veiðarnar hóf- ust, mest er það kvenfólk og unglingar allt frá 10 ára aldri. Hefur með þessu myndast ný og áður óþekkt atvinnugrein á Eyrarbakka, en til þessa hefur verið lítið um atvinnu þar á staðnum fyrir kvenfólk og ung- linga yfir sumarmánuðina, nema lítilsháttar við fisk- breiðslu þegar svo bar undir. í júnímánuði einum greiddi Hrað frystistöðin um 80 þús. krón- ur í vinnulaun í landi við hum- arvinnsluna, en þarna var um fundið fé að ræða fyrir þorps- búa. Gera má ráð fyrir, sagði Guð- mundur, að humarveiðunum verði haldið áfram eins lengi í haust og tíð leyfir, en hins veg- ar má gera ráð fyrir að vinna í landi endist nokkuru lengur því að mannafli er ekki næg- ur til þess að vinna úr afla bát anna jafnharðan. Hefur þessi atvinnugrein gef- ið svo góða raun í sumar að búast má við að framhald verði á henni á komandi árum. Lonrlon (AP). — Brezka stjórn- in iicíur Enötmælt „einkaleyía- stuldl" Japana viS japöissku stjörniiia. Hafa jápanskir írarnleiðendur hágnýtt s6r brczk einkalevfi við ýmsa framiciðslu, og eklci greitt fyrir. He.fnr Bretastjóm krafizt grciðsli cðn fv: m1ciðshtstö8vun- ar. Komnir heim af Norðurlandaráðs- fundinum. Þingmennirnir fimm, sem sátu fund Norðurlandaráðsins í Osló, komu heim með Gulifaxa í gær. Það voru þeir Sigurður Bjarnason, Bernharð Stefáns- son, Gísli Jónsson, Hannibal Valdimarsson og Jörundur Brynjólfsson, svo og ritari þess ara fulltrúa Alþingis, Jón Sig- urðsson skrifstofustjóri. Vísir átti sem snöggvast tal við Sigurð Bjarnason í morgun og innti hann fregna af förinni. Sagði hann móttökur Norð- manna hafa verið einstaklega al úðlegar, og myndu seint gleym ast. Norsku blöðin túlkuðu mál stað íslending af miklum skiln ingi, og öll var dvölin með Norðmönnum hin ánægjuleg- asta. Ólafur Thors, forsætisráð- herra, fór frá Osló til London og Parísar, en er væntanlegur heim innan skamms. Steingrím ur Steinþórsson félagsmálaráð- herra er enn ytra, en væntan- legur heim síðar í vikunni. Sæluhús Ferðafélags Islands á Þórsmörk opnað til almenningsnota. Þetta er stærsta og vanda&asta sæluhús félagsins og rúmar um 50 manns til gistingar. Kýpur og Grikkland Kröfuganga í London. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Nokkur hundruð menn, ætt- aðir frá Kýpur og Grikklandi, fylktu liði um götur Lundúna í gær tneð fána og spjöld og kröfð ust sameiningar Grikklands og Kýpur. Mikill mannfjöldi safnaðist saman til þess að horfa á fylk- inguna, en hún lagði leið sína til nýlendumálaráðuneýtisins t ii þess að bera fram kröfur sínar. Umferð stöðvaðist og lögreglan varð ð senda aukalið á vettvang til þess að halda uppi reglu. Menxares forsætisráðhérra Grikklands hefur hvátt Grikki til þess að fara sér hægt í mál- inu. Fólk bjargaðist út um glugga er útgangurinn tepptist. Aðíaranótt laugardagsins kom upp eldur í geymsluskúr við Grjótargötu 12, og einnig sviðn- aði útidyrahurð íbúðarhússins, sem skúrinn er áfastur við, for- stofan fylltist af reyk, og björg- uðust ibúar hússins út um glugga. það var laust fyrir klukkan hálf fjögur um nóttina, að slökkviliðínu var tilkynnt um eldinn, og var mikill eldur í skúrnum þegar að var komið og ennfremur hafði hann læst sig í útidyrahurð íbúðarhússins. Eng- inn annar útgangur er úr hús- inu og urðu íbúar þess að skríða út um glugga. ‘Siökkviliðinu tókst eftir skamma viðureign að ráða niðurlögum eldsins, en skúrinn skemmdist mikið. Var mildi að ekki skyldi hljótast meira tjón af, en þama í kring er mikið af timburhúsum eins og kunnugt er, og má þekka það snarræði og ötulleik slökkviliðsins, að eld- urinri skyldi ekki breiðast frekar út. Á laugardaginn var slökkvi- liðið kvatt að Sölfhóisgötu, en þar var eldur í rusii utanhúss. Var eldurinn slökktur, og skemmdir urðu engar. Ferðafélag íslands opnaði hið nýja sæluhús sitt í Þórsmörk til afnota fyrir almenning nú um helgina og með viðhöfn. nokkurri þar á staðnum. Þetta er 8. hús Ferðafélags( ins og um leið hið stærsta þeirra og fullkomnasta. Það er rúm- lega 60 fermetrar að stærð, ein hæð með háu risi og er svefn- rými bæði uppi og niðri í hús- inu. Rúm eru þar fyrir 27 manns, en auk þess gólfpláss það stórt, að hæglega munu 50 manns geta gist þar í einu. Hús ið er bæði uppi og niðri hólf- að sundur í smærri og stærri herbergi. Þar er og eldhús með eldavél og öðrum eldhúsbúnaði og enn fremur rúmgóð forstofa. Húsið stendur í mynni svo- kallaðs Langadals á Þórsmörk, er útsýn þaðan hin fegursta sem á verður kosið og má vafasamt telja að nokkur bygging önnur á þessu landi standi á fegurri stað. Það hefur verið áhugamál Ferðafélagsins um mörg ár að byggja sæluhús á Þórsmörk, en fjárfestingarleyfi ekki fengizt þar til í fyrra, en þá var strax hafizt handa og efni flutt til skólans inn á mörkina. Jón Víðis landmælingamaður teiknaði húsið, en Sigurjón Magnússon smiður og bóndi að Hvammi undir Eyjafjöllum annaðist smíðina, en flutningar á efni hvíldi á Eysteini verk- stjóra Einarssyni. Jón Eyþórsson veðurfræðing ur opnaði húsið til almennings- nota fyrir hönd Ferðafélagsins og bauð hina fyrstu gesti vel- komna í fyrrakvöld. í ræðu er hann hélt við það tækifæri gat hann þess, að Ferðafélagið hefði reist þetta hús í minningu um Kristján Ó. Skagf jörð stór- kaupmann og fyrrverandi fram kvæmdastjóra félagsins. Hann gat þess jafnframt, að ýmsir góðir menn og velunnarar fé- lagsins hefðu veitt félaginu ýms an stuðning við byggingu skál- ans, sumir með því að veita félaginu hagkvæm kaup á bygg Bleik net era fiskin. Fishing News, blað enskra útgerðarmanna, skýrir frá því, að japanskir fiskimenn hafi nýlega gert tilraunir með bleik net, og hafi afli þeirra orðið þrefalt meiri en neta. úr sama efni e með venjulegum lit. Blaðið bætir því við, að Japaniif ælli að reyna rauð net til að vciða. sovétfisk norðan til í Japa.ns hafi. ingarefni, en aðrir með gjöfum- Þannig má t. d. nefna það, að Friðrik Þorsteinsson húsgagna- meistari hefur lofað að gefa borð og bekki í húsið, Þorsteinn Kjarval færði félaginu 10 þús. kr. gjöf til húsbyggingarinnar, Ferðafélagsdeildin í Vestmanna eyjum gaf 5 þús. kr. og nokkr- ir ferðafélagar Kr. Ó. Skag- fjörðs færðu félaginu einnig minningargjöf um hann látinn' Ekkja Kr. Ó. Skagfjörðs, frú. Emilía Skagfjörð, gaf forkunn- arfagra gestabók i húsið og var hún jafnframt tekin í notkun nú um helgina. í minningu um Kristján Ó- Skagfjörð, en húsið ber nafm hans, var héngd upp lituð ljós- mynd af honum en seinna mun Guðmundur Einarsson frá Mið dal gera vangamynd af hon- um í eir, og hún fest upp í hús- ið. Að erindi Jóns Eyþórssonar loknu, töluðu og framkvæmda- stjóri Ferðafélagsins, Lárus Ottesen, enn fremur Guðmund ur Einarsson frá Miðdal og fyr— ir hönd fréttamanna, er boðnir voru, talaði Högni Torfason. — Að því loknu voru bornar fram. veitingar. Um 50 manns tóku þátt í þess ari fyrstu gistiför til sæluhúss- ins í Þórsmörk og var mörkin. skoðuð í gær i hinu fegursta veðri og útsýni. Tvær orðsendmgar frá Portúgafstjórn. Lissabon í morgun. Portúgalska stjórnin hefur sent Indlandsstjórn tvær orS- sendingar. í hinni fyi’ri. er kvartað yfir áróðri þeim, sem haldið er uppi í útvarpi og blöðum Indlands gegn Partúgal vegna nýlendu- málsins. í hinni síðari er" stung- ið upp á fundi í einhverju öðru landi en Indlandi og Portúgal,. svo fremi að indverska stjórnin. vilji ekki senda fulltrúa til Lissabon til þess að ræða lausn. málsins. Sæluhúsið nýja á Þórsmór .

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.