Vísir - 30.08.1954, Qupperneq 8
ÍVfSIR er ódýrasta blaðiS og bó bað fjöl-
breyttasta. — Hríngið í síma 1660 og
I gerist áskrifendur.
Mánudaginn 30. ágúst 1954
Þeir sem gerast kaupendur VfSlS eftúr
18. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1680.
Norska myndlistarsýningtn opnui
í Listasafni ríkisins í gær.
Um 22(1 lisfaverk á svninguniii,
sem verðitr oraiat lil 19. sepfemlier.
Norska myndlistarsýningin var
opnuð með hátíðlegri athöfn í
jListasafni ríkisins klukkan 2 í
gær. Pjölmargir gestir voru við-
staddir sýninguna, þeirra á með-
al forsetahjónin.
Yaltýr Stefánsson formaður
Menntamálaráðs bauð gesti vel-
komna, en því næst flutti Hai-
vard Lange utanrikisráðherra
’Norðmanna ávarp, en Bjarni
Bénediktsson menntamálaráð-
lierra opnaði sýninguna með
ræðu.
Halvard Lange drap í ræðu
Æinni á forn og ný menningar-
tengsl íslands og Noregs. Þá
minntist hann á sýningu íslend-
inga i Noregi fyrir rúmum þrem-
■ui*' árum sem gefið hefði Norð-
mönnum glögga hugmynd um
myndlist íslendinga. Þá þakkaði
Ihann ríkisstjórninni fyrir að
Jbjóða hinni norsku myndlistar-
sýningu og listamönnum heim,
og gat þess að þetta væri fyrst
norska opinbera listsýningin, sem
hér væri haldin. Kvaðst hann
vona, að sýning þessi gæfi góða
lieildarmynd af nútímalist Norð-
manna, en á sýninugunni væru
aðeins verk eftir núlifandi lista-
menn. Að lokum afhenti Lange
menntamálaráðherra að gjöf bók
um norska skreytingarlist í 1000
•ár, til minningar um sýninguna.
Bjarni Benediktsson hóf ræðu
sína á þvi að bjóða utanrikisráð-
herra Norðmanna, norsku lista-
mennina og aðra Norðmenn, sem
þarna voru staddir velkomna, en
siðan ræddi hann um samband
Norðmanna og íslendinga gegn-
um aldirnar allt frá Landnáms-
tíð fram á vora daga, og gat þess
að þótt samband landanna væri
minna nú en á fyrstu árunum
eftir byggð íslands, hefðu ís-
lendingar þó jafnan fylgzt með
örlögum Noregs af meiri áhuga
en flestra eða allra annarra þjóða.
Þá gat hann um þá vakningu og
áhrif er norsk skáld hefðu haft
á sjálfstæðisbaráttu íslendinga
um síðutsu aldamót, en nú væri
það myndlist þeirra, sem íslend-
ipgar fengju tækifæri til þess að.
kynnast með opnun þessarar sýn
ingar. — Að ræðu sinni lokinni
lýsti ráðherrann yfir þvi að sýn-
ingin væri opin.
Eftir þessa athöfn gengu gest-
ir um listasafnið og skoðuðu sýn-
inguna. Eru þarna um 220 lista-
verk, málverk, vatnslitamyndir,
ieikningar, svartlistarmyndir og
myndhöggvaraverk.
Mikill mannfjöldi sótti sýn-
ingu þessa í gærdag, en aðgangur
et’ ókeypis. Sýningin verðúr op-
in til 19. september.
Hafskip klýfur
suitdur dráttar-
bát.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Hafskipið Atlantic, eign Pan-
american Line, og franskur
dráttarbátur, rákust á í morgun
á Ermarsurndi.
Dráttarbáturinn klofnaði í
tvo hluta, 9 af 30 manna áhöfn
er saknað og talið, að þeir hafi
drukknað.
Verkalýðsfélög komm-
únista ófrjáls.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Miðstjóm brezka verkalýðs-
félagasambandsins hefur hafn-
aði tillögu um aðild sambands-
ins að Alþjóða verklýðsfélaga-
sambandinu, sem kommúnistar
stjórna.
Segir í greinargerð um þetta,
að verklýðsfélög kommúnista;
séu ekki frjáls, heldur verk-
færi í höndum kommúnista-
flokksins og valdhafanna í
löndum, þar sem kommúnista
ráða.
Vildi Gústaf V. hernaðar-
bandalag við Þjóðverja?
Frá fréttaritara Vísis.
Stokkhólmi í fyrradag.
Sænskur prófessor hefir kom-
izt að niðurstöðum í sögurann-
sóknum, sem vakið hafa gífur-
Iega athygli í landinu.
Hann fullyrðir, að Gustav V.
og Victoría drottning hafi á ár-
unum 1913 og 1914 reynt að
steypa frjálslyndum sænskum
stjórnum, til þess að geta gert
hernaðarbandalag við Þjóð-
verja. Skilyrðið fyrir slíkri
hernaðarsamvinnu Svía og
Þjóðverja var það, að Rússar
settu Svíum úrslitakosti, ef
styrjöld skylli á. Þá áttu Svíar
að vísa því á bug, en senda
fjórar herdeildir til Uleáborg í
Finnlandi.
Þjóðverjar áttu að vernda
Jhinar sænsku hersveitir með
flota sínum, en um leið átti
þýzkur her að sækja að Péturs-
borg (sem nú heitir Lenin-
grad). Konungshjónin ætluðu
að koma á stjórnarkreppu til
þess að geta gert hernaðar-
bandalag við Þjóðverja. Þá ert
fullyrt, að konungur hafi haft
óbeit á forsætisráðherranum
vegna hlutleysisstefnu hans
og vegna þess, að hann var
hlynntur því, að konur fengju
atkvæðisrétt.
Nýyrði, orðabók, II. hefti, sem
sagt var frá í blöðunum um dag-
inn, er nú komin út og fjallar
um sjómennsku og landbúnað.
Dr. Halldór Halidórsson tók
saman, en útgefandi er H.f. Leift-
ur.
Það var kalt í London, þegar þessi mynd var tekin og mör-
gæsin í dýragarðiinum virðist hugsa sig um, áður en hún
stingur sér í vatnið. Hún ætti þó að vera vön við kuldann.
Heimsmet í 5000 m. hlaupi í
Bern, einnig í sleggjukasti.
Rússar unnu í 16 greinum af 35.
Einkaskeyti frá AP.
Bern í gær.
Frjálsíþróttamótinu, sem hér
hefur verið haldið, er nú lokið.
Mörg frækileg íþróttaafrek voru
unnin á mótinu og tvö heimsmet
sett á seinasta degi mótsins.
f 1500 metra hlaupi varð Bann-
ister frá Bretlandi sigurvegari á
3 mín. 43.8 sek., Nielsen, Dan-
mörkíi, annar á 3 mín. 44.4 sek.
og Jungwirt, Tékkóslóvakíu,
þriðji á 3 min. 45.4 sek.
í 5000 metra hlaupi varð Kutz,
Ráðstjórnarr., fyrstur á 13 mín.
56.4 sek. og er það heimsmet.
Annar varð Chataway, Bretlandi,
á 14 mín. 8.8 sek., þriðji Zatopek,
Tékkóslóvakíu, á 14 mín. 10. sek.
í 100 metra hlaupi sigraði Þjóð
verjinn Futterer á 20.9 sek.
í hástökki vann Bengt Nilsson,
Svíþjóð, stökk 2.02 rnetra.
Ungverjar unnu 4X100 m. boð-
hlaup og Frakkar 4X400 m. boð-
hlaup.
1 sleggjukasti setti Krovonoss-
ov heimsmet. Kastaði hann sleggj
unni 63.34 m., Strandli, Noregi,
varð annar, kastaði 61.7 og þriðji
ungverski Ólympíumeistarinn
Csermak, 59.72.
Tíu „sketfinöðrur77
skemmast af eldf.
Um miðnætti á sunnuúagsnótt
var slökkviliðið kvatt að Fischer-
sundi 3 og haíði kviknað þar í
bíiaviðgerðarverkstæði.
Illutafélagið „Vagninn" er þar
til húsa og skemmdust þar 10
„skelfinöðrur". Ilúsið, sem er
timburhús, sviðnaði innan. Búizt
er við, að kviknað hafi út frá
rafleiðslu.
2 drengjamet
sett.
Tvö met voru sett í drengja-
meistaramótinu um helgina.
Annað setti Pétur Rögnvalds-
son, KR.i 110 m. grindahlaupi —
15,2 sek. — og liitt Svavar Mark-
ússon, KR, er hl.jóp 3000 m. á
9:10,2 mín.
Nánar verður sagt frá mótinu
í blaðiriu á morgun.
I Kína er mesta flóöa-
hættan liðin hjá.
Einkaskeyti frá AP. —
Peking í morgun.
Opinber tilkynning hefur
verið birt um, að mesta flóða-
hættan í Kína sé nú úr sögunni.
Er farið að sjatna í fljótun-
um. í tilkynningunni er lokið
miklu lofsorði á alla þá, sem
sameinast hafi til að afstýra
hættunni, og haf'i sigur unnist
í fyrstu lotu þeirrar baráttu,
eins og að orði er komist.
Maður slasast
á Siendi.
Um hádegið í gær varð slys á
Vatnsstíg 3. Fór maður meS
hendina í hefil og var fluttur á
Landsspítalann.
Maðurinn heitir Eyvindur Eyi
þórsson. Var hann að vinna í
trésmíðaverkstæði og lenti með
hendina í hefii eða „afréttaralli
og varð að flytja hann á Lands-i
spítalann.
Fyrsta áætlunarferð til Patreks-
fjarðar og Bífdudals á morgunn.
Kviknar í bifhjóli.
í morgun var slökkviliðið
kvatt að Blönduhlið 22 og hafði
kviknað þar í mótorhjóli.
Var maður þar að setja mót-
orhjól í gnng og kviknaði í hjól-
inu og fékk hann við ekkeri ráð-
ið. Kallaði hann á slökkviliðið
til hjálpar og réði það niðurlög-
mn eldsins. Mótorhjólið skémmd
ist ekki mikið.
Akurnesing&r
töpuðu.
Þýzkalandsfararnir frá Akra-
nesi háðu fyrsta leik sinn þar
í landi í gær.
Kepptu þeir í Hamborg við
úrvalslið borgarinnar, og fóru
svo leikar, að heimamenn höfðu
sigur, settu tvö mörk gegn
engu. Ekki hafa bqrizt nánari
fregnir af leiknum.
Lengsta sérleyfisleið á íslandi,
er um 500 km.
Eins og mönnum mun vera
kunnugt hefur í, sumar verið
unnið að því að gera veginn í
Kollafirði um Kiettháls og Barða
strönd akfæran, en með því opn-
ast bifreiðavegur til Patreksfjarð
ar og Bíldudals.
í Kollafirði vérður þó enn að
sæta sjávarföllum, en fljótlega
verður væntanlega úr því bætt.
Á.morgun (þriðjudag) verður
fyrjn fyrsta áætlunarferð héðan
úr Reykjavík til Patreksfjarðar
og Bíldudals. Og er áætlað að
fara þá á leiðarenda og til baka
I á miðvikudag. Guðbrandur Jör-
undssori ér sérleyfishafi á þess-
ari leið og liyggst hann að nota
til þessara ferða fyrst um sinn
26 manna Ford-bifreið.
Með starfrækslu þessarar sér-
leyfisleiðar verður bætt rnjög úr
samgönguþörfum Austur- og
vestur-Barðastrandarsýslu og
þesi héruð tengd akvegakerfi
landsins.
Þess skal getið að sérleyfis-
leiðin Reykjavík—Patreksfjörð-
ur—Bíldudalur er lengsta sér-
leyfisleið á landinu, þar sem
vegalengdin frá Reykjavík til
Bíldudals er nálægt 500 km.
Vínveitingar í
Þjóðleikhúsinu ?
Ekki er ósennilegt, að vín-
veitingar verði leyfðar í Þjóð-
leikhúsinu á næstunni.
Hefur verið sótt um leyfi til
slíkra veitinga, og nú hefur
þjóðleikhúsráð lýst yfir því við
bæjarráð, að það hafi mælt með
því, að Þorvaldur Guðmunds-
son, sem hefur kjallarann á
eigu, fái vínveitingaleyfi þar.