Vísir - 02.09.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 02.09.1954, Blaðsíða 8
VÉSIK er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- fcreyítasta. — Hringið í síma 1660 eg gerist áskrifendur. '¥181». Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftís 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. Fimmtudaginn 2. september 1954 Glæpalýður þyrpist að kjötkötlunum. Leiíar til stærstu herbækistöðvar í Þýzkalandi. Fréttabréf frá AP. — Bern í ágúst. Amerískt blað, „Overseas Weekly’s’* hefur birt gíein um aðalbækistöðvarnar í Kaisers- lauterq, sem vakið hefur gífur- Sega athygli. Segir, að glæpatnenn af-ýmsu tagi hafi safnazt umlivérfis bækistöðina, og sé svo komið, að „skipuleg glæpastarfsemi hafi nú búið um sig í fyrsta skipti í Þýzkalandi eftir stríð- ið.“ Borgin Kaiserlautem sé „gullin Gyðingahverfi“ í franska hernámshlutanum, enda þótt Bándaríkjamenn hafi þar komið upp byggingum til íbúðar og birgðageymslu fyrir márgar miiljónir dollára. Blaðið Overseas Weekly seg- ir, að allskonar óþjóðalýður, sem.hafi safnazt til Frankfurt úr ýmsum áttum — og þar sé engan veginn um menn af ein- hverri einstakri þjóð að ræða, hafi leitað til Kaiserslautern frá Frankfurt, þar sem lög- gæzlan hafi verið orðin strang- ari, og hafi þeir komið með fríðu föruneyti, því að þeir hafi haft með sér stúlkufjölda, sem sé starfandi fyrir þá. Blaðið sagði, að tiltekinn maður, sem væri margdæmdur fyrir ýmis afbrot, væri aðal- maðurinn á þessum stað, og eigi hann veitingastofu í bænum, þar sem hægt sé að fá af- greiðslu á öllu milli himins og jarðar — allt frá bjór til gleðimeyja og eiturlyfja. Yfirvöld Bandaríkjamanna og Þjóðverja eru að rannsaka þessi mál, og er gert ráð fyrir, að ekki líði á löngu áður en rannsóknin verður komin á þann rekspöl, að unnt verður að leggja til atlögu við glæpa- lýðinn. 49 Mlsmíðaður. Skipasmíðastöð NjarBvíkur hefir nýlega lokið við smiði 49, rúmlesta báts og nefnist hann „Gunnar Hámundarson“. Skipasmíðastöð Njarðvíkur var stofnuð 1947 og hefir aðal- lega unnið að bátaviðgerðum fram að þessu, og er „Gunnar Hámundarson“ fyrsti báturinn, sem byggður er í stöðinni, en nú hefir verið lagður kjölur að öðrum stærri bát. „Gunnar Hámundarson“ er eign Halldórs Þorsteinssonar í Garði og tveggja sona hans, Þorvaldar og Þorsteins, og er ] Þorvaldur skipstjóri á bátnum. Báturinn er byggður úr eik og er hann með 180 ha. Lister-vél og gekk hann 10 mílur í reynslu för. Báturinn er mjög vandað- ur, vistarverur skipverja rúm- góðar, og er báturinn búinn fullkomnustu siglingatækjum. Attlee fer til Astralíu. Vilt að Rússar gefi gott fordæmi um afvopium. EinkaSkeyti frá AP. Hongkong í morgun. Sumir brezku verklýðsleiðtog- arnir eru lagðir af stað héðan til Tokyo og hyggjast þeir ferð- ast nokkuð um Japan. Clement Attlee fer hins vegar héðan til Singapore og Ástraliu. —. Attlee hefur gert grein fyrir viðræðum simnn við Mao tse Tung og getið þess við hann, að flokkur hans, jafnaðarmanna- flokkurinn, væri samþykkur af- vopnun, og teldi hánn rétt að Rússar tækju forystuna um al- menna afvopnun. Þeir hefðu vig- búist allra þjóða mest og ættu því að gefa öðrum þjóðum gott fordæmi. Attlee kvað Mao mundi koma þessari skoðun á framfæri við Malenkov. Tveir baritaskólar í sntíðum, verið að teikna þann þriðja. Skólarnir hefjast á laugardag. Armas hershöfðingi hefur nú að fullu tekið við forsetaem- bættinu í Guatemala. Kaup verkamanna í Bretlandi, sem erfiðisvinnu stunda, hef- ur þrefaldast frá árinu 1948, að því er hermt er i nýbirtum skýrslum. Pollitf hressist i Rússíá. Einkaskeyti frá AP. — London í gær. Aðalritari enska kommún- istaflokksinS virtist sýnu hress- ari, er hann kom heim frá Rúss- landi í gær. Hann hafði verið þar sér.til hvíldar og heilsubótar í ellefu vikur, og kvaðst nú enn, sann- færðari en nokkru sinni um, að Rússar hugsuðu ekki um neitt nema að varðveita heimsfrið- inn. Ritarinn — Harry Pollitt — segist fullur af starfsgleði, og veitir ekki af, því að flokkur hans hefir rýrnað jafnt og þétt frá stríðslokum. Þrjár ferðir Ferðafélagsins. Ferðafélag íslands efnir til þriggja ferða ’ um næstu helgi. Tvær þeirra eru 2% dags ferðir og er önnur þeirra vest- ur að Hítardal á Mýrum og Hnappadal, hin á Kjöl, til Kerl- ingarfjalla og Hveravalla. — Þriðja ferðin er á Þórsmörk og er það iy2 dags ferð. Fjölmennt hefur verið í Þófsmerkurferðum Ferðafé- lagsins frá því að hið nýja sæluhús þess var tekið í notkun og má gera ráð fyrir að svo verði í framtíðinni. Berjalönd eru mikil á Þórsmörk og loks má geta þess að hún er jafnan fegurst á haustin þegar lauf trjánna fær á sig hina fjöl- breytilegu haustliti. Þýzkur búktaiari og töframaður skemmtir a& Rö&li. Taiar 12 þjóðtungur og ætfar að læra íslenzku. Á morgun kemur hingað jiýzknr biíktalari og töframaður og skemmtir á Röðli næstu þrjár vikur. Heitir hann Fred Colling og er mjög þekktur í Evrópu og hefur skemmt víða um lönd. Talar haiin tólf tungumál og lofar að taka að minnsta kosti helminginn af prógramminu á íslenzku eftir þrjá daga. Byrjar hann að skemmta á Röðli annað kvöld og skemmtir í báðum sölunum. Verður hann hér í þrjár vik- ur og skemmtir öll kvöldin nema á mánudagskvöldum. Verður breytt prógramm á hverju kvöldi. Með honum verða alltaf ís- lenzkii’ skerimtikraftar. Tyrklandsforseti heimsækir Tító. Einkaskeyti frá AP. Belgrad í morgun. Tyrklandsforseti, dr. Bayar er kominn í opinbera heimsókn til Júgóslavíu. Stendur hún yfir í 8 daga. Þegar forsetinn steig fæti sin- um á júgóslavneska grund var skotið af fallbyssum honum til heiðurs. — í dag fagnar Tito forseti honum í Belgrad, höfuð- borg landsins. Barnaskólarnir hefjast . næst- komandi laugardag. Samkvæmt manntali eiga að sækja barna- skólana í Reykjavík 7246 börn í vetur, en ekki er búizt við nema um 6550 börnum. Börn þessi skiptast þannig í aldursflokka: 7 ára 1394, 8 ára 1274, 9 ára 1213, 10 ára 1132, 11 ára 1114 og 12 ára 1061. Ekki er nægilegt húsnæði fyr- ir allan þennan hóp sem stendur og er þvi ljóst, að það þarf stöð- ugt að byggja nýja barnaskóla. Verið er nú að teikna nýjan barnaskóla i Bústaðahverfi. Auk þess er verið að byggja tvo smá- harnaskóla, annan við Eskihlíð og hinn við Háagerði. Hvor þeirra um sig tekur um 225 börn. Gert. er ráð fyrir, að þeir verði tilbúnir i október og vonandi fyrri hluta mánaðarins, í þessum skólum éiga að vera 7 og 8 ára börn. Eins og stóð i auglýsingu i Visi í fyrradag, hafa 7 og 8 ára börn á þessum svæðum ekki verið kölluð i skóla vegna þess,. að ekki þótti taka því að láta þau fara i ðra skóla fyrir svo stuttan tima. 1 dag eiga. börn, sem ekki hafa komið áður til innritunar að koma til skráningar i barnaskóí- ana, en kennsla hefst á laugar- dag. 1000 bestar af heyi brentia a5 Geldiitgalæk. í gærkvöldi kom upp eldur í hlöðu að Geldingalæk í Rang- árvallasýslu. Hlaðan gereyði- lagist og auk þess um þúsund hestar af heyi. Tvær súrheys- gryfjur voru í hlöðunni, fullar af heyi og má búast við að hey- ið í þeim sé meira og minna skemmt af vatni. Fjós var áfast við hlöðuna og tveir skúrar og tókst að verja hvorttveggja. Einnig tókst að verja íbúðar- húsið, sem stóð skammt frá. — Tjónið, sem bóndinn varð fyrir, er tilfinnanlegt. Nakin stúlka á sundi í höfninni. í morgun var lögreglunni til—; kynnt að stúlka hefði fallið . í höfnina og væri þar .á sundi. Lögreglan fór á staðinn og dró stúlkuna, sem var allsnakin, upp úr höfninni. Var henni hjúkrað unz hún hresstist og jafnaði sig. Slys. Snemma, í. gærmorgun varð slys í Pípuyerksmiðjunni. Vildí það til með þeim hæti að maður nokkur, sem var að taka grjót af bifreið varð fyrir steini. Féll steinninn í höfuð manrisins og hlaut maðurinn nokkúrn áverka af. Hann var fluttur í Lands- spitalann til athugunar og að- gerðar. Slökkvilið á ferð. Á fjórða timanum í nótt sá bílstjóri nokkur hvar reyk lagði upp úr húsagarði bák við Kex- verksmiðjuna Esju. Gerði hann slökkviliðinu aðvart, sem fór á staðinn og fann þá eld í sorp- tunnu. Ekki hlutust af þessu neinar skemmdir. „isólfi" vísað frá Akranesi vegna verkfailsins. Togarinn ísólfur kom til Akra- ness í fyrradag af Grænlands- miðum. Ætlaði togarinn að landa þar, en vegna vinnustöðvunárinnar var togarinn játinn fara aftur og mun hann hafa siglt austur á Fáskrúðsfjörð og landað þar. Kanada hefir leyft aukinrt útflutning til landanna austan tjalds. Þó er ekki leyfður útflutningur þang- að á stáli og öðrum málm- um, vélum, sem hernaðar- not gætu orðið af, né skip- um. Eru menn Onassis vei&iþjófar? Hvalveiðifloti hans verður rekinn af miðunum við Perú. Einkaskeyti frá AP. — Kaupmannahöfn í gær. Það geíur farið svo, að her- sklp frá Peru hrekji hvalveiði- flota Grikkjans Onassis frá hvalveiðimiðunum undan Peru- ströndum. Leiðangur þessi er nú á leið til vesturstrandar Ameríku, og hefur ekki heimild til að stunda hvalveiðar samkvæmt þeim al- þjóðareglum, sem nú eru í gildi. Stafar það af þvi, að leiðangur- inn telst þýzkur, og Þjóðverjar hafa engan „kvóta“ meðal hvalveiðiþjóða heimsins. Fulltrúi Peru í eftirlitsnefnd- inni með hvalveiðum hefur krafizt þess, að nefndin taki afstöðu í máli þessu, en þar, til það verði, muni floti Perus stökkva „veiðiþjófum“ á brott. Nefndin heldur einmitt fundi sína nú í Kaupmannahöfn. Omossis er fæddur Grikki, hefur argentínskan borgara- rétt, skrifstofur í Monaco og London og gerir hvalveiði- flota sinn át frá Kiel. Peru ætlar að hafa eftirlit með öllum „veiðiþjófum“ í allt að 200 mílna fjarlægð frá landi, en fulltrúar þess benda á, að ráðstafanir þessar sé engan veginn gerðar vegna Onassis. Fyrir Peru vaki aðeins að hval- stofninn við strendur landsins verði ekki upprættur með gegndarlausri veiði. Muni þess vegna verða haft eftirlit með öllum þeim leiðöngrum, sem hlíti ekki alþjóðareglum. Franskur leiðangur er einnig á leið til miðanna við Peru, og mun hann einnig vera „ólög- legur“ að dómi Perumánna, svo að honum mun einnig verða stökkt af miðunum þar. Minnst drukknaðra Frakka. Hér er um þessar mundir stödd frönsk hersnekkja, Ailette. Klukkan ellefu í morgun fór skipstjórinn með sveit manna suður í gamla kirkjugarðinn, þar sem hann lagði blómsveig að minnisvarða franskra manna, er drukknað hafa hér við land, en varðinn var afhjúpaðu í 'sumár. Viðstaddir voru sendiherra Frakka hér og utanrikisráðberra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.