Vísir - 07.09.1954, Blaðsíða 1

Vísir - 07.09.1954, Blaðsíða 1
W1 44, érg. ** ‘! Þiiðjudag!nBi 7S sepiemTber 1954$ I 202. tbl. Stöðugt rætt um sjáifstæði og vígbúnaö Þjóðverja. Churchill, Eden og Wiley ræðast við í dag. Einkaskeyti frá AP. London í morgun. Brezka ríkisstjórnin kemur saman til fundar á morgun og verður þessi fundur aðallega til undirbúnings Lundúnafundinum im sjálfstæði Vestur-Þýzkalands og endurvígbúnað, en búist er við að hann komi saman þegar í raæstu viku. Stjórnmálafréttaritarar í Lon- don virðast leggja talsvert upp úr því, að þeir Sir Winston Churc hiil forsætisráðherra og Eden utanrikisráðherra, fái í dag tæki- færi til að ræða við Wiley, for- mann utanríkisnefndar þjóðþings Bandaríkjanna, en hann er ný- kominn til London að afstöðnu ferðalagi til ýmissa höfuðborga á meginlandinu, og ræddi hann m. a. við Adenauer kanzlara V.-Þ. eftir að fulltrúadeild franska þingsins felldi Evrópusáttmálann. Ekki er það talið neinum vafa undirorpið, að Bretar og Banda- ríkjamenn efni loforð sitt um fullt og óskorað sjálfstæði V.-Þ. til handa, og að jafnframt verði reynt að varðveita einingu álf- unnar og að V.-Þ. verði þátttak- andi í samvinnu vestrænu þjóð- anna jafnt á sviði landvarna sem öðrum sviðum. Allt bendir í þá átt, að Norður- Atlantshafsráðið fái málin næst til meðferðar, og Lundúnafund- urinn verði eins konar undir- búningsfimdur. Hitt er svo enn eigi á dagskrá hvað gert verður, ef ekki tekst að ráða fram úr varnamálinu af Nato-ráðinu, en þar gætu Frakkar beitt neitunar- valdi. Viðræðufundir í dag. Miklir viðræðufundir verða í dag i London og fleiri höfuð- borgun. M. a. er kunnugt, að Adenauer kanzlari Vestur-Þýzka- lands, ræðir enn i dag við stjórn arfulltrúa Breta, Sir Frederick Hoyer-Miller. Mynd bessa tók áhugaljós- myndari í Boston í vikunni sem leið, begar turninn á Old North-kirkjunni þar í borg hrumdi, en frá þessu var sagt í blaðinu í gær. Laxamerkmgar náHu hámarki Úlfarsá i i samar. llugisaiilegt, að laxínit leiti þaðan vegna vatn,%|inrrðar. Fyrirgreiösla Ægis við ót- gerðina er ómetanleg. Ægir fann stóra síldargöngu út af Geirfugladrang í nótt. I morgun bárust fregnir um það að varðskipið Ægir hefði fundið mikla síld suður af Geir- fuglsdrang Undanfarið hafa bátar ekki lagt þangað suður eftir, enda þótt síldin sé yfirleitt talin betri þar, og ástæðan fyrir þvi er sú að suður i hafi hafa hvassviðri geysað og hafa þau náð norður undir dranginn. Agæt veiði hefur verið í reknet undanfarna daga og liafa Faxa- flóabátarnir lagt þau djúpt i Mið- nessjó. Sandgerðisbátarnir fengu i morgun frá 50 og allt upp i 150 tunnur á bát, sem telst ágætt. Alþjóðantát: ísland sigraði Auslurríki. ísland sigraði Austurríki á skákmótinu í Amsterdam í gær komu 8 . leitirnar £ sumar sem með þrem vinnmgum gegn em- leig gga En metár í laxamerkingum Um þrjú síðastliðin ár het'ur veiði gönguseiða í Ulfarsá ver- ið einkar hagstæð og miklu meira veiðzt af ’þeim ea árin þar á undan. Þór Guðjónsson veiðimála- stjóri hefur tjáð Vísi að af 582 laxaseiðum, sem merkt vorU í Úlfarsá árið 1952 hafi endur- heimzt í fyrra 11 laxar eða 1.9 %. í sumar komu svo 8 laxar1 til viðbótar í leitirnar af laxa- merkingunum frá því í hitt. eð fyrra eða 1.4%. Þannig hafa 3.3% endurheimzt á þessu tveggja ára bili og er það mest- ur árangur sem fengizt hefur af merkingum í Úlfarsá að und- anteknum merkingunum frá 1947. Frá þeim árgangri endur- heimtust 9.5% á þrem næstu árum á eftir. f fyrra voru 593 laxaseiði merkt í Úlfarsá og af þeim Friðrik gerði jafntefli við Szit. Guðm. S. Guðmundsson vann Prameshuber. Guðm. Ágústsson tefldi flokkaskák við Lovena, stóð sig betur í lokin, en tók jafntefli. Ingi vann Kovacs. Rússar unnu Grikki í gær og fengu fjóra vinninga, Holland vann Finnland með þrem vinn- ingum. ísland á fri í næstu um- ferð. var í sumar því þá voru merkt 799 iaxaseiði í Úlfarsá og hef- ur þvílíkur fjöldi laxaseiða aldrei verið merktur þar á eínu ári áður. Veiðimálastjóri skýrði Vísi frá því að nú hefðu þrír þeirra laxa, sem merktir hafa verið í Úlfarsá í fyrra og hitt eð fyrra, komið fi'am í Elliðaánum og Grafarvogi og er ekki vitað til að slíkt hafi komið fyrir áður. Ekki kvað veiðimálastjóri það óhugsandi, að þetta fyrir- bæri stæði í sambandi við þverrandi vatnsmagn í Úlfarsá, því að nú er mikill hluti þess notaður til áburðarverksmiðj- unnar í Gufunesi, svo sem kunnugt er. Væri ekki óhugs- andi að laxinn leitaði til nýrra stöðva af þessum sökum en of snemmt kvað hann þó að full- yrða nokkuð um þetta. Hér væri aðeins um ágizkun að ræða, sem ekki fengizt úr skor- ið fyrr en síðar. Svalbakur seldi fyrir 81 þús. mörk. Svalbakur frá Akureyri seldi ísfiskafla í Cuxhaven í gær. Er það 2. ísfisksala íslenzkra togara í Þýzkalandi á sumrinu. Togarinn var með 235 lestir af ágætis fiski og seldist hann fyrir 81.063 mörk. Júlí frá Hafnarfirði selur í Þýzkalandi á morgun, en svo verða ekki fleiri sölur fyrr en í næstu viku. _ j.&i Kært fyrir Öryggbráiinu vegna amerísku fiugvélarinnar. Hún var skotín niður yfir alþjóða- Bandaríkjastjórn hefur farið fram á, að Öryggisráð Samein- uðu þjóðanna taki þegar fyrir ákæru hennar á Rússa fyrir árás þá, sem 2 MIG-orrustu- flugvélar frá bækistöðvum í Síberíu gerðu á bandaríska eftirlitsflugvél yfir Japanshafi s.l. laugardag. Flugvélin var skotin niður, sem fyrr hefur greint verið, og beið einn maður bana, en 9 var bjargað. — Henry Cabot Lodge, aðalfuiltrúi Banda.ríkja- stjórnar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, bar seint í gær- kvöldi fram kröfuna um, að Öryggisráðið fjallað.i um málið. Lodge endurtók, að staðhæf- ingar Rússa um að flugvélin hefði verið yfir Síbirisku landi hefðu ekki við neitt að styðj- ast. Hún hefði verið skojin nið- ur yfir alþjóðasiglingaleið, um 70 km. frá Síbiríuströndum, og árásin verið tilefnislaus með öllu. Bandarísk blöð ræða mikið árás orrustuflugvélanna á eftirlitsflugvélina og minna á hliðstæða atburði, er Rússar fyrr skutu niður flugvélar fyr- ir Bandaríkjamönnum, og geti' Bandaríkin ekki sætt sig við það til lengdar, að Rússar hafi slíkt-ofbeldi í frammi. Horfurn- Héraðslæfuiísembættr Eaus til umsóknar. Þrjú héraðslæknisembætti eru nú laus til umsóknar. Héraðslæknisembættið i Sel- fosshéraði er laust til umsókn- ar. Veitist það frá 1. okt. næst- komandi og er umsóknarfrestur til 25. sept. Þá er héraðslæknisembættið i Hofsóshéraði laust til umsóknar. Veitist það frá 15. okt. næstk. og er umsóknarfrestur til 1. okt. Loks er héraðslæknisembættið í Árneshéraði laust til umsókn- ar. Umsóknarfrestur er til 1. okt. næstkomandi. Reynéi að setja nýtt hraðamet — em léi lífíð. Einkaskeyti frá AP.' — New York í gær. Kunnur bandarískur flug- maður, Armstrong að nafni, beið bana í gær, er han var að reyna að hrinda eigin meti Það setti hann fyrir 2 dögum, er hann flaug 1044 km. á klst. í svonefndri F-88-H flugvél. Setti hann það í Dayton, Ohio, og þar reyndi hann að hrinda því, með þeim afleiðingum, er að ofan greindi. Hann var ný- búinn að fá viðurkenningu á metinu, er hann gerði tilraun- ina til að gera enn betur. Ga£ Tito arabistka gæðbtga. Einkaskevti frá AP. — Belgrad í gær. Bayar Tyrklandsforseti er í opitiberri heimsókn hér í landi. Mikil hersýning hefir verið hald: í honum til heiðurs. — Bayar hefir fært Tito að gjöf arabiska gæðinga. Mest harst þar á lánd á sunnu- doginn eða 2500 tunnúr samtals. Er aflinn bæði saltaður og fryst- ur og svo mikil atvinna að all- ir eru í sildinni sem vetllingi geta valdið.- l:já Akranesbátum var heldur tregari afli heldur en undan- farna daga, og einstöku bátar urðu ekki varir, en aðrir fengu allt upp í 100 tunnur. í gær og fyrradag öfluðu bátarnir yfirleitt frá 40 og upp í 200 tunnur á bát. í viðtali við Sturlaug Böðvars- son útgerðarmann á Akranesi í morgun kvaðst hann þakka varð- skipinu Ægi þessa veiði undan- farna daga. Hann kvaðst telja að- stoð Ægis við flotann ómetan- lega. Ægir hefði fundið síldina með asdic-tækjum sínum og mjög tvísýnt að hún hefði fundizt að öðrurn kosti. Með tækjum sínuni getur Ægir fylgzt með ferðum síldarinnar og fundið nýjar göng ur, en hjá bátunum er slíkt allt tilviljunum og heppni háð og kostar oftast bæði mikla fyrir- höfn, tíma og fé. Taldi Sturlaug- ur að þjóðarbúskapnum væri ó- metanlegur gróði ger með fyrir- greiðslu Ægis og henni yrði aS halda áfram hvað sem tautaði. Var það „vængtank- ur" þrýstllofts- flugvélar? Dularfullrar „sendingar“ varð nýlega vart í Fljótsdal austur og hefur valdið miklu umtáli óg hugarróti austur þar. Var það líkast „manns- handlegg á flugi*, sást fyrst bera við fellsöxl, fór því næst með gný miklum yfir bæ einn, féll niður á sandeyri fyrir botni Lagarins með gusugangi og hefur ekki sést síðan. Eru miklar getgátur uppi um það, hvort hér hafi verið á ferð vígahnöttur, atómsprengja eða geimfar, en til eru þeir, sem álíta, að þetta hafi verið benz- ínhylki af vængbroddi á þrýstiloftsflugvél, og frá téðri flugvél hafi stafað gnýr sá hinn mikli, er að ofan barst. ar verði því alvarlegri, því oft- ar sem slíkir atburðir endur- taki sig. ;J|í Ekið út al rétt hja Sandskeiði. S.l. laugardagskvöíd kl. 8 var Iögreglunni tilkynnt um bifreið, Sem ekið hafði vgrið út af veg- inum skammt frá Sandskeiði. Þetta var fólksbifreiðin G-691 og í henni \tqi;u .4. menn. Þá sak- aði ekki, neipa. bifreiðarstjórinn. fékk taugaáfall. Bifreiðiu skemmd. ist allmikið, Um helgina tók lögreglan þrjá menn i sína vörzlu vegna ölvun- ar við akstur og tvo ölvaða mena, sem gerðu tilraun til þess að stela bil. j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.