Vísir - 18.10.1954, Blaðsíða 4

Vísir - 18.10.1954, Blaðsíða 4
vfsra 4 Mánudaginn 18. október 1954 .WWV V». %IAU& ?W öii frá tfl Johaimesar S. Kjarval. Kœri vinur minn í fom- Sld og nútíð. Þökk fyrir þitt volduga bréf frá sumarmánuðunum, þegar sambandið var hið bezta. Eg les það oft. Því fylgdi þetta þrungna ísland og íslendings- eðli, sem lifað hefur á öræfa- lofti og fegurðarblæ fjallasala, þar sem kyrrðin hvílir í laut- um fjallahlíða, ótrufluð, og reynir að viðhalda óbreyttri sögu og sál íslands í andar- drætti eilifðarinnar. En hve lengi verður það? — Og mikið skulda skáldin kyrrðinni og hinni mælsku þögn, sem grúfði yfir íslandi áður fyrr og ríkti sem drottn- ing yfir hugum íslendinga — og gerði þá vinalega- og góða drengi meðan þeir dvöldu þar, Ertu búinn að fara til Eiríks- vatns? Við töluðum oft um það í fyrra. Það er útilegu- og há- heiða-vatn, þar sem eg dvaldi drengur við bakka þess á Vörðufelli.....Seinna hef eg alltaf fundið, að það er staður, sem eg vildi eiga sumarbústað á. —• í grískum hofstíl með snjóhvítum marmarasúlum. Maður hefði svo í baksýn vold- ugar Súlumar, svartbláar, marmarahöfuð við vatnið að aiorðan, og svo Vörðufell rétt hjá til að ganga á og njóta hinnar töfrandi fegurðar, og útsýnis er blasir við. Frá Vörðu- felli sést Skjaldbreiður, Uxa- hryggir og enn Hryndisfell, Hlöðufell, Þverfell og svo Súl- umar, töfrandi útilegumaður, er gnæfir yfir öllu. Einnig sást niður í Lundareykjadal og Skorradalinn frá Vörðufelli. Efstibær í Skorradal, sem var rnér sem mikið Palazzo — til að sjá, og svo Fitjará — sem kemur úr Eiríksvatni og rennur r.iður hæðimar til Skorradals vatns. — — Og í henni er Hvítserkur, foss töfrandi fagur <ng hvítur og breiðir sig út eins <og krinolinpils og minnir mann á ball hjá Napoleon við frönsku hirðina. Eg gef þér nú þetta allt i afmælisgjöf 16. október — til eð mála. — Þetta eru gersemi mín frá æskunni. — Þú mátt eiga það allt...... Þarna er ennþá enginn ótti né kvíði, — eða tortímingarhugur. Þarna býr föðurlandsástin, hrein, saklaus og djúp, tengd kyrrð- inni eilífu....Eigðu það bara allt — og til hamingju elskU' legi vinur! lega Ijós áhrif þessara afla og þekkir þau vel — þegar þú skapar þín snilldarverk. — Eg hef tekið eftir — og orðið þeirra var — er eg heimsótti þig á vinnustofu þinni......... Nú er eg dvel í raunverulegu heimalandi snilldarinnar, og kynnist betur öflum þeim, sem em bak við hana — sé eg meir og meir — hve mikil hátíð og alvara fylgir sköpunarverkum snillingsins. Það gerir lífið ríkt — bjart —• og dularfullt, og gerir hið breyzka líf einstak- lingsins hærra og verðmætara — meðan hversdagslífsins þrautastagl reynir að kæfa raddir hins guðdómlega í til- veru manna. --------Þjóðir sem1 ekki eiga listir eru dauða- dæmdar. Þjóðir sem vanrækja þær og anda sinn — eiga enga framtíð. — Héðan frá heima- landi lista og snilldar er óhætt að hrópa þetta út. — Hér sést bézt sigur þeirra og þýðing fyrir þjóðirnar. Það verður að varðveita list- irnar, sem bám upp að Lýð- veldisstofnun íslendinga 1944 — þetta merkilega og frjósama tímabil þeirra frá 1900 til 1944. Láta þær lifa lífi sínu með þjóðinni, láta æskuna og börn- in drekka í sig anda þeirra, sem er andi þeirra eigin þjóðar — það bezta — svo hún geti fund- ið að það lifir einnig í brjóst- um þeirra sjálfra.------- Af listinni lærir æskan að unna þjóð sinni, elska hana og hún opnar veg til skilnings á okkar dularfulla landi, sem okkur var gefið af örlögun' um. .... Farfuglar" frá beims sækja ýms .m fönchi ísiand heim. M.a. frá Afríku og S.-Evrópu. Hér í Venezia er margt sem minnir á þig sem málara. Lombardísku málararnir Tin- tóretto — og Veonesi — og fleiri minna mig oft á þig. — Það er einhver skyldleiki miili ykkar, einhver kraftur og stór- hugur sameiginlegur bæði í komposions og litadýrð. E.ins í þessari töfrandi geisládýrð hins yfirnáttúrlega —• er kemur oft.fram í myndum þeirra....... Þó hér sé ekki eins mikil þjá- trú og hjá okkur — og ekki eins þokukennt hugsanalíf — ef hugsað er — — þá finnst hér djúp trú á hin guðdómlegu öfl er búa í snillingnum, og er grundvöllur þess sem er fag- Urt. .... Þú gerir þér áreiðan- Mín ósk er enn sem fyrr, að fá að sjá „Galleria“ Kjarval standa hnarreist á fögrum stað í höfuðborg íslands. Það þarf að flýta þessu verki. Mér skilst, að Alþingi hafi veitt fé til þess. Og það er nauðsynlegt að listamanns- höndin sjálf fari um listaverk- in, sjái um upphengingu og alla tilhögun og að allur frá- gangur sé gerður eftir ósk hans og að ráðum hans. Þú, sem hefur þúsundir mynda dreifðar út um allt, get- ur gefið þjóð þinnj þessi verð- mæti, ómælandi á heimsvísu, og þú skalt hafa hönd í bagga með, hvernig þú vilt lifa á meðal okkar í myndum þínum um aldir. En við viljum hafa þig allan, vinir þínir, á einum stað, geta gengið um sali þína, og séð og lesið út úr þessum risavaxna — dularfulla töfraheimi, Is- landi, serri þú hefur gefið okk- ur í myndum þínum. Það veitir ek.ki af, að við sjáum ísland okkar1, í Ijósi þeirar snilldar, sem hönd og heili íslenzkra hafa skapað. f safni reistu verkum þín- um, mun hjarta manns alltaf slá — heitara og sterkara fyrir fslandi og öllu því sem þar er — og verður — okkur .... Þökk fyrir vinarbréfið og heillaóskir. ftalíu, 1954, þinn Eggerit Stefánsson. - í sumar er leið sóttu all- margir útlendir Farfuglar ís- land heim og nutu hér fyrir- greiðslu íslenzkra félaga sinna. Meðal annars komu hingað Farfuglar frá Englandi og Skotlandi, Danmörku, Svíþjóð, Frakklandi, Þýzkalandi, Sviss og Ítalíu. En í fyrra sóttu far- fuglar frá Algier, Englandi og Finnlandi ísland heim. íslenzku Farfuglarnir hafa veitt þessum erlendu gestum fyrirgreiðslu eftir föngum m. a. með því að lána þeim afnot af gistiheimilum sínum hér í Reykjavík og nágrenni. Far- fugladeild Reykjavíkur fékk fyrir atbeina og góða fyrir- greiðslu þeirra Jónasar B. Jónssonar fræðslufulltrúa og Jóns Gissurarsonar skólastjóra afnot af kennslustofu í Gagn- fræðaskólanum við Lindargötu, sem síðan var búin rúmum og hýstir þar þeir erlendu Far- fuglar sem ísland gistu. En nú virðist hinum erlendu gestum fjölga svo ört að 1 stofa nægir ekki lengur og verða Farfugl- arnir því að reyna að fá stærra húsnæði að sumri. Deild í Alþjóðabandalagi. Farfugladeild Reykjavíkur gekk fyrir tveimur árum í Al~ þjóðabandalag Farfugla, og nýtur fyrir bragðið þeirra hlunninda að mega gista gegn vægu gjaldi í farfuglaheimil- um hvaða þjóðar sem er. Þetta hafa íslenzkir Farfuglar þegar hagnýtt sér á ferðum sínum erlendis og í sumar sem leið gistu þeir meðal annars í far- fuglaheimilum í Austurríki, Þýzkalandi, Hollandi, Noregi, Saar, Skotlandi og Svíþjóð. Er þetta einkar hagkvæmt fyrir efnalitla ferðalanga því gisting á venjulegum gistihúsum er yfirleitt dýr, en í farfugla- heimilum kostar hún svo til ekki neitt. í skýrslum sem hingað hefur borizt um gistingar í farfugla- heimilum víðsvegai’ um heim segir að alls hafi gistingar numið tæpum 11 milljónum á árinu sem leið. Skógrækt í Þóiismörk. í sumar hefur FarMgladéild Reykjavíkur efnt til íjölmargra ferða að venju og voru þátttak- endur í þeim um 400 .talsins. Meðal þessara ferða voru tvær sumarleyfisferðir, önnur sem var vikuferð og dvöl á Þórs- mörk, en hin var hálfsmánaðar óbyggðaferð yfir þvert ísland norður um Sprengisand og síð- án, Ódáðahraun í Öskju Og Herðubreiðariindir, pg víðar. Farfuglar starfa árlega að skógrækt á Þórsmörik og í sum- ar gróðursettu þeir;: þar um 3000 trjáþlöntuiyáúk þess sem þeir grisjuðu ákveðið svæði þar í Mörkinni. Við Valaból hjá Kaldárseli hafa Farfuglar einn- ig gróðursett ripkkúð af plönt- um og virðast þær dafna vel. f sumar höfðu Farfuglar opna skrifstofu ákveðin kvöld í hverri viku, en Jiún er lokuð yfir vetrarmánúðina. Vetrarstarfið er aðallega íólgið í skemm! if undum og dííðaférðum og fyrir dyrum stendur vetrarfagnaður í Heiðarbóli. Hefur hann að jafnaði verið haldinn fyrsta vetrardag að viðstöddu fjöl- menni og við ’ 'zlukost mik- inn og góðan. Félagar eru nú á 4. hundrað- inu og er Guðmundur Erlends- son Ijósmyndari formaður fé- lagsins. Beztu úrin hjá Bartels Lækjartorgi. Símj 8418. IViiðstöðvarefni PÍPUR — FiniNGS KRANAR — STOPPHANAR Helgi Magnússon & Co. Hafnarstræti 19 —- Sími 3184. Hefi opnað tannlækningastofu að Sóleyjargötu 5. — Viðtalstími kl. 9—12 og 2—6, laugardaga kl. 9—12. Sími 3693. Kristján Gunnlaugsson* tannlæknir. Fátt er gestum betra boðið en €0€A €0€A Ijúffengt og kalt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.