Vísir - 13.11.1954, Síða 1

Vísir - 13.11.1954, Síða 1
 44. árg. Laugardaginn 13. nóvember 1954 260. tbl. Líkur tli a& ísfirðaugar leigi báta síua suður. Mikil atvinna vegna rækjuveiða, Frá fréttaritara Vísis. — ísafriði í gær. Gæftalítið hefur verið vestra am nokkurt skeið, en sæmileg veiði þá sjaldan að gefur. Undanfarið hafa tveir smærri ísafjarðarbátar stundað línu- veiðar, og aflað sæmilega þá sjaldan, sem hægt hefur verið að róa. Annars er búist við að Isfirðingar leigi báta sína til verstöðvanna hér sunnanlands meðan á vertíðinni stendur. Togaramir. ísafjarðartogararnir hafa verið á þorsk- og karfaveiðum, aðallega á Grænlandsmiðum, að undanförnu og aflað sæmi- lega. Afli þeirra er allur lagð- ur upp á ísafirði og er að því mikil atvinnubót. Bækjuveiðar. Það hefir mikil atvinnubót verið í sambandi við rækju- veiðar ísfirðinga. Þrír bátar hafa um langt skeið stundað rækjuveiðar í Djúpinu og eru þeir frá útgerð þeirra Guð- mimdar Karlssonar og Jóhanns Jóhannssonar. Hafa nú 50—60 manns, aðallega konur, haft at- vinnu af þessu í landi í haust, enda dágóð veiði þegar gæftir hafa verið. Binda ísfirðingar allmiklar vonir við þessa at- vinnugrein í framtíðinni Skólahús í Hnífsdal. Eftir að skólahúsið fauk í Hnífsdal í ofviðrinu mikla fyr- ir nokkrum árum var hafizt handa um byggingu nýs skóla- húss þar í kauptúninu. Bygg- ing þess er nú svo langt kom- in að kennsla er þegar hafin í því og er jafnvel ráðgert að húsið verði fullgert um n.k. áramót. Er þetta mikil bygg- ing og myndarleg. Ölvun ekki minnkað. Ekki virðist neitt hafa dregið úr ölvun á ísafirði þrátt fyrir lokun áfengisverzlunarinnar í kaupstaðnum. Virðist á stund- um sem ölvun sé jafnvel öllu meiri en áður var, en engin leið að fá á þessu nákvæman samanburð. Þjóðverjar gátu sigrað, segir Kesselring^ Einkaskeyti frá AP. — London í gær. Sjónvarpsþáttur, sem fluttur var í fyrrakvöld, kvöldið fyrir vopiiahlésdag- inn, hefir vakið mikla gremju hér í landi. Var þar um viðtal við Albert Kessel- ring, f. marskálk, að ræða, og sagði hann, að Þjóðverjar hefðu getað unnið .,orust- una um Bretland“, ef rétt hefði veitið á spilunum hald- ið. Kesselring var yfirmaður flughers 'þess, sem sótti að Bretlandi þá, og sagði hann, að yfirmenn hans hefðu sí- fellt látið hann skipta um árásarmörk, þegar hann hefði verið að því kominn að ná tilætluðum árangri, og þess vegna hefðu Bretar sigrað.---Segir ABC svo frá, að ekki hefði linnt hringingum frá reiðum sjónvarpsnote-ndum, sem fannst sendingin í meira lagi óviðeigandi. Helander biskup hefir verið settur af embætti. Fær engin eftirbun og hröldast ur biskupgarÖi Einkaskeyti til Vísis. — Stokkhólmi í gær. Dómurinn yfir Helander biskupi hefur verið staðfestur og biskupinn settur af embætti. Helander var ekki biskup nema í fimm mánuði, en bisk- upsdómur hans varð endaslepp- ur vegna níðbréfamálsins. Honum hefur nú verið skipað að flytja úr biskupsgarði, og fær hann engin eftirlaun. Hefur hann tilkynnt, að hann muni halda áfram að berjast fyrir því að hreinsa mannorð sitt, eins og hann orðar það. Brunnsjö. Almenningur í Svíþjóð hefur af áhuga fylgzt með Helander- málinu svonefnda, enda þótt það sé nú orðið hálf-þvælt í meðförum. Helander og verj- endur hans hafa beitt öllum ráðum til þess að fá Hæstarétt til þess að taka málið upp á nýjan leik, og hafa ýmsir sér- fræðingar í fingrafara-tækni og rithandasýnishornum o. fl. látið málið til sín taka. Allt kom þó fyrir ekki, og nú hefur Hæsuréttur lýst yfir því, að hann taki málið ekki fyrir, heldur staðfesti fyrri dóm. Mjög margir málsmetandi menn í Svíþjóð líta svo á, að Helander biskup geti naumast verið andlega heill, en allt hef- ur málið þótt leiðinlegt. Á myndinni sjást þau Mike Tsalickis og Trudy Jerkins, en þau hafa atvinnu sína af því að ala upp slöngur og önnur háskaleg hitabeltisdýr á búgarði sínum í Florida, áður en þau eru seld til dýragarða og f jölleikahúsa. Á myndinni eru þau með 5 metra langa Anacondaslöngu frá Suður-Ameríku. Snjór er í kvið á hestum í LaugardaV. Horfur ad ófært verði í uppsveitum ef hvessir. — Hnéhár snjór á lág- lendi. Fara handarísk herskip til Svartahafshafna Tyrkja? Komið hefur til orða, að bandaríslc flotadeild fari í kurteisisheimsókn til tyrk- neskra hafna við Svartahaf. Fregn frá Napoli hermir, að viðræður eigi sér stað um þessa fyrirhuguðu heimsókn, milli yfirflotaforingja Banda- ríkjanna á Miðjarðarhafi og tyrkneskra stjórnarvalda. — Verði af flotaheimsókn þessari verður það í fyrsta sinn, sem bandarísk- herskip sigla um Da: danellasund. Kona plæginga- meistari Ireta. Einkaskeyti frá AP. — London í gær. Kona hefir nú í fyrsta skipti orðið sigurVegari í plægingarkeppni í Bret- landi. Var það ungfrú Jean Bums, grannvaxin og lag- leg bóndadóttir frá Manar- ey, 29 ára gömul, sem vann þetta afrek. Var hún meðal 24 þátttakenda, sem tóku þátt í plægingu, þaþ sem plægingamaðurinn stjórnar jafnpFramt dráttarvélinni. Ungfrú Bums var eina kon- an, er þátt tók í keppninni. Selfossi í morgun. , Samgönguhorfur austan fjalLs eru versnandi því að enn hefur snióað- og er nú kominn, allt að hnéhár snjór á lálendi, en uppi í Laugardal er snjór í kvið á hestum. Allar skepnur eru komnar ó gjöf, en það hefur jafnan þótt snemmt, ef allt vai’ tekið á gjöf í byrjun jólaföstu. — Mjög erfið- lega horfir með samgöngur um Skeið, I-Ireppa, Biskupstungur og Laugardal, ef hvessir, því að þá mun fljótt draga í skafla og verða ófært. Mjólkurbílarair hafa þó komizt leiðar sinnar enn, en ó- frétt af þeim sem fóru í upp- sveitir í morgun. — Bilstjórar gera sér miklar vonir um, að Hénzchelbílamir komi að góðum notum, þegar snjór hefur dregið í skafla. Slíkur bíll fór í gær að Gýjarhóli ofarlega í Tungum, og kveðst bifreiðarstjórinn alls ekki mundu hrafa komizt þá leið í gær. eftir aurunum, á venjuleg- um bíl, en á HensciieJbílnum komst hann þetta sem ekkert væri. Önnur reynsla um þessa bíla í ófærð er ekki enn fyrir hendi, en bílstjórarnir em sann- færðir um, að þeir muni roynast -hið bezta. Krýsivíkurleiðih er vel fær síð- an í byrjun vikunnar. Bílamir fara. hana nú á 2%—3 klst. (104 km. leið). Vegur er fremur mjór og klakalaust undir eins og öll jörð nú og þegar blinda er getur verið nokkur hætta á, að bílar fari útaf, og kom það fyrir einn mjólkui'bíl i gær (tankbíl). Bif- Pontecorvo or í Tíbet. Fregn frá Nýju Dehli hermir, að Bruno Ponjtecorvo kjarn- orkusérfræðingur, sé nú í Tibet, til rannsókna í úranium- námum. Pontecorvo er fæddur á ít- alíu. Hann laumaðist frá Bret- landi til Rússlands 1950, en fjölskylda hans dvelst urn þessar mundir á baðstað á Krímskaga. reiðarstjórinn rifbrotnaði, en mun ekki hafa lilotið önnur meiðslsi. Míkð réttarhöH í A.-Þýzka- landi yfír „njésnttnmi". BéHarhöldin inÍBin,a á vel isndir- búinn sfónleik. Einlcaskeyti frá AP. — Berlín í gær. Hafin eru réttarhöld Siéii yfir 22 Austur-Þjóðverjum. sem sakaðir eru inn njósnir á her- námssvæði Rússa fyrir Banda- ríkin og Vestur-Þýzkaland. Tíu sakbominga eru bornir þeim sökum, að hafa starfað beint fyrir bandarísku leyni- þjónustuna, en svo nefna kom- múnistar upplýsingastarfsemi Bandaríkjanna í V.Þ. — Hinir 12 eru taldir hafa starfað fyrir VJ>. leyniþjónustuna. — í opinberri tilkynningu var sagt, að mikill ifjöldi verkamanna hefði verið viðstaddur, er rétt- arhöldin hófust. — Réttarhöld þessi eru í framhaldi af hand- tökum kommúnista, eftir að Otto Jahn yfirmaður öryggis- þjónustu V.Þ. gekk þeim á hönd, en þá hófust handtökur miklar, sem stóðu vikum saman. —■ Réttarhöldin, sem nú standa yfir, hófust degi á eftir að 8 aðrir fengu sinn dóm, 2 til líf- láts. 2 í lífstíðarfangelsi, en hinir í allt að 15 ára fangelsi. — öll minna réttarhöldin á vel undirbúna sýningu, frekar en venjulegt réttarhald.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.