Vísir - 20.11.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 20.11.1954, Blaðsíða 8
|i VÍSIR er ódýrasta blaðið og J)ó það fjöl- breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist áskrifendur. VI8I Laugardaginn 20. nóvember 1954. Þeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. M&ndes-Fvance segiw*: Títiögur Rússa um Evröpuráðstefnu eru barnalegar og hættulegar. Lofar fuESglidlngu Parasar samninga fyrlr áraméf. Erlendis er það algengt, að konur hafi á hendi benzínsölia. Þessar á myndinni starfa í Deidesheim í Pfalz í Þýzkalandi. Þær eru á hjólaskautum til að vera snarari í snúningum. Nýtt hneykslismál í Röm. Það er siðferðilegs eðlis og kommún- istar við það riðnir. > Einkaskeyti frá AP. Washington í morgun. Mendes-France forsætisráð- herrai Frakklands sagði hér í gær, að tillögur ráðstjórnarinn- ar rússnesku um ráðstefnu 25 þjóða um Evrópumálin, væru barnalegar, óraunhæfar og jafn- vel hættulegar. Hann lcvað slíka ráðstefnu «kki mundu geta leyst nein jþau Vandamál, semekki hefði telc- ist að leysa á undangengnum ár- um. Hann kvaðst eltki vera mót- fallinn þvi, að rætt væri við Jtáðstjórnarríkin, því færi fjarri, það bæri að gera að vel undir- liúnu máli og með þeim hætti, að árangurs mætti vænta. Mendes-France kvað fulltrúa- •deild franska þingsins mundu staðfesta Parísarsamningana fyr- ir áramót og efrideild þingsins eftir það án tafar. London: Fréttaritari Times i 'Wasliington segir, að með þess- Jim ummælum hafi Mendes- France í reyndinni lofað full- gildingu fyrir áramót. í Glasgovv. Herald er um þetta rætt og sagt að Mendes-Fránce liafi verið ó- spar á loforð, en á hitt megi jafnframt minna, að hann hafi staðið við það, sem hann hafi lofað til þessa, og vonandi verði hið sama uppi á teningnum nú. — í mörgum brezkum blöðum er rætt um það, að andúð hafi kom- ið til sögunnar í Bandaríkjunum gegn Frökkum, eftir að þeir felldu Evrópusáttmálann, og eitt verkefni M.-Fr. í ferðinni sé að uppræta þessa andúð, og vonandi takist honum það. Efnahagur Frakka. — Norður-Afríka. Mendes-France kvaðst lita á það sem eitt sitt höfuðhlutverk, Tveir þingmenn, Sigurður Ó. Ólafsson og Páll Zophoniasson, bera fram till. til þál. um rann- sókn á Geysi. Tillagan er á þessa leið: „Alþingi ályktar að fela rík- isstjórninni að láta fara fram ýtarlegar rannsóknir á Geysi, svo að ljósara liggi fyrir, hvort hafa megi áhrif á það, hvenær hann gýs, og með hvaða að- ferðum það verði gert, og einn- ig á hvern hátt hann verði bezt varðveittur. — Kostnaður við rannsóknirnar greiðist úr rík- issjóði." Greinarferð er á þessa leið: L Aliir vjta, að Geysi var hætt- að lífga efnahags- og atvinnulíf landsins. Um Norður-Afríku sagði hann, að Frakkar stefndu að sjálfsforræði þjóðanna þar og framlialds tengslum þeirra við Frákkland. Hann kvað æsinga- áróðri haldið uppi gegn Frökk- um frá útvarpsstöðvum i Rairo og Budapest, og frá sömu aðilum kænm vopnin. Vöruskiptajöfnuður hagstæður í okt. Vöruskiptajöfnuðurinn var hagstæður í októbermánuði síðastliðnum um 20 milljónir og 833 þúsund krónur. Alls nam útflutningur í okt. sl. 116 milljónum og 719 þús- undum, en innflutningur 95 millj. 886 þús. Alls’hefur verið flutt út á árinu sem nemur 691 millj. 076 þús., en inn sem nemur 894 millj. og 600 þús. Utflutningur í október í fyrra nam 66 millj. og 666 þús., en innflutningur í sama mánuði 119 milj. og 660 þús- unum. Á tímabilinu jan.-okt. í fyrra nam útflutningur alls 529 millj. og 613 þús., en inn- flutningur á sama tíma 813 millj. og 172 þús. Vöruskiptajöfnuður það, sem af er þessa árs er óhagstæður um 203 millj. og 524 þús., en var á sama tíma í fyrra ó- hagstæður um 283 millj. og 559 þús. kr. Útflutningurinn í okt. í ár er sá mesti, sem um getur. Næstmestur hefur hann orðið í nóv. 1953, en þá nam. hann 97 millj. og 192 þús. kr. og þar næst í nóv. 1952, en þá nam hann 92 millj. og 803 þús. kr. ur að gjósa, þegar Trau^ti Ein- arsson prófessor vakti hann til lífsins aftur. Geysir er þekkt- asta náttúrufyrirbrigði þessa lands og jafnframt eitt hið merkilegasta. Margir óttast um framtið Geysis og halda jafn- vel, að svo geti farið, að hann leggist aftur til hvíldar. En um það ættu allir íslendingar að geta verið sammála, að það væri illa farið og sjálfsagt að reyna að sporna við því eftir föngum. Tillagan er flutt í því skyni, að sem beztar upplýsingar fáist um þessa dýrmætu þjóðareign, svo að vitað verði, á hvern hátt hún verði bezt varðveitt. Panamaskurð- ur breikkaður og dýpkaður. Einkaskeyti frá AP. — Yfirstjórn Panamaskurðar- ins hefir nú til athugunar á- ætlun, sem gerð hefir verið um breikkun og dýpkun skurðsins. Gert er ráð fyrir, að breikka skurðinn nægilega til þess að skipalestir geti mætst þar, og einnig að dýpka hann svo stærri skip en nú geti siglt um hann. Framkvæmd verksins mun taka eigi skemmri tíma en 5—6 ár. Tvímenningskeppni í bridge lokiö. Bridgekeppni bridgedeildar Breiðfirðingafélagsins er nú lok- ið og urðu þeir ívar og Gissur sem lengstaf héldu forystu í keppninni, efstir. Úrslit urðu annars þessi: ívar — Gissur 442 stig, Einar — Ingi 423%, Dagbjört — Kristj- án 420, Einar — Arnór 417, Bald vin — Lilja 414, Olgeir — Bene- dikt 408%, Magnús — Þórarinn 408, Thorberg — Bjarni 405%, Guðrún — Óskar 404, Magnús — Ragnar 402%, Elin — Ásmund ur 400, Þórarinn — Þorsteinn 395%, Daníel — Kristín 3951/2, Andrés — Halldór 390 stig. Sveitarkeppni hefst á þriðju- daginn kl. 7% í Breiðfirðinga- búð. Kjaritorkuspreitgingar bolaBar í US. Einkaskeyti frá AP. Washington í morgun. Kjarnorkunefnd Bandaríkjanna hefur tilkynnt, að næsta vor fari fram prófanir á kjarnorku- vopnura í Nevada-auðninni. — Þar hafa kjarnorkusprengjur oft áður verið sprengdar við slíkar tilraunir. Það hefur verið mikið um það rætt í Bandaríkjunum, Japan og fleiri löndum hvar í heiminum skyldi leyfa slíkt. M. a. kom til orða, að Bandaríkin létu slíkar sprengingar fara fram á suður- skautssvæðinu, þar sem þeir gera tilkall til landa, en vitað er, að það mundi sæta hörðum mót- inælum. Mikil andúð ríkir í Jap- an gegn frekari kjarnorluivopna- prófunum á Kyrrahafi eða Si- beríu. í Bandaríkjunum sjálfum hafa heyrzt raddir um, að Banda ríkin ætti ekki að vekja andúð á sér með slikum prófunnm ut- an Bandaríkjanna. 27 menn hafa beSið bana í námu í Belgiska Kongó, þar sem uranium er unnið úr jörðu. Einkaskeyti frá AP. — Rómaborg í gær. Samkvæmt réttarúrskurði uppkveðnum í gær hefur aðal- sakborningum í Montesimálinu, þeim Piero Piccioni og Ugo Montana, verið sleppt úr lialdi, gegn tryggingu fyrir, að þeir komi fyrir rétt, er þeir verða til þess kvaddir. Þeir voru handteknir 21. sept. Piccioni er 32 ára gamall píanisti, sonur Piccioni fyrr- verandi utanríkisráðherra, sem baðst lausnar vegna hneykslisins. Ugo Montagna, sem kallar sig markgreifa, er sakaður um hlutdeild og yfir- hilmingu. En nýtt hneykslismál er komið til sögunnar í Róm. Kommúnistalögfræðingur, Giu- seppe Sotgiu og kona hans eru við bendluð. Eru þau sök- uð um að leiða unglinga á glapstigu. Hafi þau gert. sér tíðar ferðir í vændishús, þar sem miðaldra menn og ungling- ar af báðum kynjum venja komur sínar. Kommúnistalögfræðingur- „Viitstri öfiin..." Framh. af 1. síðu. og greiddi Skúli Benediktsson, sem er framsóknarstúdent og form. ráðsins, atkvæði gegn til- lögunni um Steingrím Steinþórs- son. Virðist samkomulag liið ákjós- aiilegasta meðal þessara „vinstri afla“ Háskólans, og sambúðin ágæt með koinmúnistum, frjáls- þýðingum, krötum og frainsókn- armönnum. Þess skal að lokum getið, að síðar var ákveðið, að Jakob Bene diktsson skyldi ekki tala í há- tíðasalnum, heldur próf. Sigur- björn. Mun „vinstri öflunum“ hafa þótt of rönun kommúnista- lyktin, ef Jákob væri þarna lika, og var hann þvi látinn þoka. inn og kona hans hurfu, ejr kunnugt varð um ásakait- irnar gegn þeim, en mnboðs- maður þeirra segir þó, að þau muni mæta í rétti, þeg- ar þeim verði stefnt þangað. Kabafrettsýning í Aust- urbæjarbfól. í kvöld kl. 7,15 og 11,15 verður efnt til Kabarettsýningar í Aust- urbæjarbíói og munu þýzku har- moníku-meyjarnar, sem skemmt hafa í Sjálfstæðishúsinu undan- farið, koma þar fram ásamt þýzku söngkonunni Eleanora Skorupa. Þá mun Alfreð Andrésson koma þar fram að nýju eftir langvinn. veikindi og munu það verða gleði tiðindi fyrir liina fjölmörgu að- dáendur hans. Alfreð mun flytja gamanþátt. Haraldur Á Sigurðs- son mun einnig flytja gaman- þátt og verður jafnframt kynnir Hljómsveit Björns R. Einars- sonar og Gunnars Egilssonar leikur þar ýms lög. Skattalækkyn í VÞ. Einkaskeyti frá AP. Bonn í morgun. Vestur-þýzka sambandsþingið hefur samþykkt skattalækkun, sem nemur allt að 25 af hundr- aði. M. a. er ákveðin mikil lækkun á tekjuskatti. Þetta er liér talin vera mesta skattalækkun síðari ára í nokkru landi, og séu þó skattar í V.-Þ. enn liærri en i flestum löndum. • Vestur-þýzka sambandsstjóm in hefur samþykkt fullgild- ingarfrumvörpin, sem lög® verða fyrir sambandsþingið. Kaiser, sem á sæti í stjórn Adenauers, og 4 ráðherrar ún þýzka flokknum voru því mót fallnir að frv. um Saar yrði Vilja láta fram fara ýtar- legar rannsóknir á Geysi. Tillaga borin fram um þetta á Alþingi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.