Vísir - 22.12.1954, Blaðsíða 9
3
Miðvikudaginn 22. desembe'r 1954
VtSIR
Sumardvöl í Meistaravik:
verkfræöingurinn hafði aidrei verið
við próL Guðmmid Tboroddsen, e/
iæknir í Mecstaravsk § siauw.
Þegrar sú fregn barst út í sumar að hinn aldni dugnaðaiv og
aíorkumaður Guðmundur Thoroddsen, prófessor hefði farið til
austurstrandar Grænlands, til að annast læknisstörf í dönskum
námubæ, létu margir í ljós undrun sína. Guðmuudur hafði þá
nýlega iekið sér hvíld frá erilsömum störfum sem yfirlæknir
Landsspítalans og prófessor við Háskólann og var sezíur í
helgan síein, eins og kallað er.
Þegar hann var spurður að
því hver. væri ástæðan fyrir
þessari för hans, sagði hann
einfaldlega, að þarna hafi verið
læknisþörf og engan lækni verið
hægt að fá í svipinn.
Af þessu einfalda svari má
sjá hvernig menn sem látið
hafa skylduna ganga fyrir öllu
og helgað öðrum allan tíma sinn
bregðast við þegar þeir heyra
um einhverja, sem eru hjálpar
þurfi.
Blaðið náði tali af lækninum
skömmu eftir að hann kom
heim og innti hann frétta af
förirmi.
Hvað getáð þér
sagt. mér um
Meistárayík?
Hún -er bið stóran fjörð á
Austu.r-Grænlandi, sem nefnist
Óskars-konungs fjörður. Meist-
aravík er beint í norðurátt af
Rey'kjavík á 72. breiddargráðu.
Sjálfur r.ámubærinn liggur í
dalverp. 272 m. yfir sjávarmáli
12 km. frá höfninni. íbúar hans
boru 60 karlmenn en engin
kona, þegar mest var, en
aðeins nokkrir eftirlitsmenn
eru þar yíir vetrarmánuðina,
því að v;::na liggur þá algerlega
niðri.
I-íyerskonar
námifgrpftujr, er
þarna stundaður?
Dani: ætla að vinna þarna
blý úr jciSu. Hingað til hefir
öil .vinr.a verið á undirbúnings-
stigi og. :nun námugröftur ekki
geta hbar fyrr en á árinu
1956. Taiið er að þarna megi
vinna bly úr jprðu fýrir um 100
millj. dar.skra króna.
Þegar 'naia verið grafin 800
m. iöng námugong, og hafa
verið hc ggnir í þau afhellar,
sem nota a-fyrir vélar. Þar fyr-
ir o.fan era svo tvenn göng, sem
málmgrýtið verður höggvið úr,
en á milli þessara þriggja
gangna er op, þannig að málm-
grýtið er flutt úr tveim efstu
göngunum niður í þau neðstu,
en þau opnast við fjallsræturn-
ar, og er þar unnið úr málm
grýtinu.
Hvað um íbúana?
Þai-na er mejrihluti íbúamia
Danir, en einnig eru þar sænsk-
ir menn, sem eru aðallega
tæknilegir ráðunautar við
námuna.
Menn þeir, sem þama vinna,
eru flestir búnir að virnia þar
í mörg ár, þrátt fyrir það, að á
hverju hausti, er þeir hverfa
heim, em þeir ákveðnir í því
að koma alls ekki aftur, en
undantekningarlítið eru þeir
allir komnúj aftur að vorinu, er
binna hefts þar að nýju.
Flestir eiga þessir menn fyrir
fjölskyldum að sjá og koma því
til Meistaravíkur í þeim eina
tilgangi, að vinna sér inn pen-
inga. Vinnutími er langur,
vinnan vel borguð og nær engu
er þarna hægt að eyða.
Hvernig er
viðurværið?
Mjög' gott. Aðalfæðutegundin
er danskt kjöt, svína- og nauta-
kjöt, en einstöku sinnum hrað-
frystur ísl. fiskur og íslenzkt
svínakjöt. Matur er því allur
aðfluttor.
Fæði. húsnæði og þjónusta
kostar 200 danskar kr. á mán-
uðí og má það teljast mjög ó-
dýrt.
Aðeins ein verzlun er á staðn-
um og er hún opin í eina klst.
: einu sinni í viku. í henni fást
i allar hugsanlegar nauðsyiija-
. vörur, svo sem fatnaður hvers-
konar, tóbak, sælgæti og vín.
Vín sem annað er mjög ódýrt
; og til gamans má geta þess, að
! whiskyflaskan kostar aðeins 12
: danskar krónur eða innan við
30 krónur íslenzkar. Gin 6 d.
kr. og hálf flaska af ákavíti
3 d. kr.
Mörgum mun þykja það afar
ótrúlegt, en drykkjuskapur er
mjög lítill þarna í fásinninu.
Mjög’ margir drekka þó öl með
matnum og einstaka drekka
eitthvað sterkara á kvöldin, en
ölæði sést ekki.
Hvernig nota menn
tómstundir sínar?
Aðallega til þess að hvíla
sig. Því eins og áður er sagt er
vinnutími mjög langur. Oft er
þó spilað og teflt á kvöldin og
á hverju laugardagskvöldi er
kvikmyndasýning. Annað er
ekki til skemmtunar í námu-
bænum við Meistaravík.
Samkomulagið er mjög gott
meðal námumanna og sem
dæmi um það má geta þess, að
enskur jarðfræðingur, sem
dvalið hafði þarna talsvert á
annað ár, sagði í kveðjusam-
sæti, að hann hefði aldrei kom-
ið í námubæ, þar sem slagsmál
hefðu ekki átt sér stað, en síðan
bætti hann við, að hann hefði
heldur aldrei verið í námubæ,
þar sem Skandinavar einir
hafi verið búsettir.
Hvernig yar
heilsufar almennt?
Mjög gott. Allir þeir, sem
vinna ætia við námuna eru
láfnir ganga undh’ lspknisskoð-
un áður en þeirra leggja af stað.
Farsóttir koma ekki þarna,
nema einstöku sinnum í sam-
bandi bið flugvélakomur. Al-
varleg slys komu ekki fyrir í
námunni þetta árið.
Aftur kemur yfir menn
hin svonefnda heimsskauta
depression eða leiði og tauga-
veiklun og ber talsvert á því
ef langt líður milli ferða.
SaingÖngur?
Yfir sumartímann kemur
þangað ein flugvél á mánuði.
Þai- að auki kemur birgðaskip
með matvöru og byggingar-
vöru frá Danmörku einu sinni
á ári. I sumar kom einnig
norskur selfangari, sem útbúinn
var eins og tankskip og flutti
liann brennsluolíu. Auk þess
komu þarna nokkrar dansk-
ar flugvélar, sem áttu leið um
í sambandi við landmælingar
o. fl. Að öðru leyti er bærinn
algerlega einangraður frá ann-
ari byggð.
Veðurfar
og gróðui'.
í sumar var yfirleitt alltaf
þurrt veður, logn og heiðríkja
þama I dalnum allan sólar-
hringinn. Hiti var 8—12 stig á
daginn er sólin skín, en oft frost
um nætur. Fyrsti snjórinn kom
20. ágúst í sumar, en haim tók
aftur upp, en um miðjan sept-
ember fór svo að snjóa fyrir al-
vöru. Að vetrinum,, þegar ekltí
snjóar, er nær alltaf talsvert
frost og er það frá 8—20 stig,
en fór sjaldan niður í -b25 stig
nema niður við sjávarmál, þá
fer það niður í h-40 stig.
Gróður er þama eingöngu
heiðagróður. Mest ber á lág-
vöxnum víði, talsvert er þarna
af blómum, en gras er bæði
lítið. og gisið og því ekki viðlit
að hafa þar skepnur. Þama er
töluyert iyng, en ber ná ekki
að þroskast á því.
Eru ekki fleiri
byggðir þarna nálægt?
Ellaey er byggð eyja í sama
firði og Meiistaravík, en 100 km.
innar. Þar hefir Lauge Koch að-
setur á sumrin ásamt 40—-50
mönnum, en 7—8 menn eru
þar yfir vetrarmánuðina.
í Skoresbysundi, sem er
næsti stórfjörður fyrir sunnan
Meistai-avík, er grænlenzk ný-
lenda, er Danir stofnuðu árið
1924—’25 og búa þar um 400
Grænlendingar. Einnig er þar
dönsk hjúkrunarkona. Þetta er
eini staðurinn á ; allri austur-
ströndinni, þar sem konur búa.
Danaborg og eru þar búsettir!
10—12 Danir. Á 81. breiddar-
gráðu hafa Danir byggt flug-
völl og stendur hann við Inde-
pendence-fjörð.
Fleiri byggðir eru ekki á
austurströndinni.
Fóruð þér ekki
að skoða yður
eitthvað um?
Meistarayík er syo einangr-
uð, eins og aðrar byggðir á
austurströndinni og landið svo
illt yfirferðar, að ekki er hægt
um vik. Eg gekk þó talsvert
mikið upp um fjöllin í kring
um Meistaravík og skoðaði mig
þar um.
Hvað um
veiðiskap?
Norðmenn koma talsvert
mikið til Grænlands, til þess að
veiða refi og hvítabirni. Þeir
hafast við í veiðimannakofum
hingað og þangað, 1—2 í hverj-
um, árlangt. Þessi veiði er yf-
irleitt erfið og borgar sig ekki,
Danskur veiðimannaleiðang-
ur kom þarna í sumar á vegum.
danska ríkisins og dvaldi hann
við sauðnautaveiðir í IV2 mán-
uð og var ætlunin að flytja 20
kálfa til vesturstandarinnai
Sauðnaut eru alls staðar út-
dauð nema þarna. Lítið varð úr
veiðinni, enda lítið um kálfa,
þar sem þeir höfðu ekki getað
lifað af kuldana í vor.
Silungur er þar enginn í árn
eða lækjum, en hálfs punds sil-
ungur finnst í sumuir, vötnum,
Uti fyrir strönainni er eitt-
hvað af pólþoi’ski, én hann erí
bæði smár og ínagur.
Frá námubænum voru engar
veiðar stundaðar.
Hvað viljið þér
að lokum segja um
dvöl yðar í
Meistaravík?
Við þetta er litlu áð bæta,
aðeins það, að dvöl mín var í
alla staði hin ánægjulegasta.
Við þökkum lækninum fyrir
greinagóð svör og árnum hon-
um heilla í framtíðinni,
Er. J.
I =
Þannig cr umhorfs í Meistaravík — gæti alveg eins verið
AKRAFJALL Afgreiðsla Nýlendugötu 14. — Sími 7737.
íslenzkur fjörður.
11 Ittliili111■11111ii11111n111111 ■ 1 ■ ■ ■ 1
niiniiiu»"iiiuiiiiimini«»Miiiiiiii»uiiM*iiiii«iiii»iiiiiiiiiiMmni»iuinininiiniin,