Vísir - 28.01.1955, Page 1
12
bls.
12
bls.
45. arg.
Fösímdaginn 28. janúai* 1955.
22. tbJ,
Sfiíkraflisg tli Dppawngs
vlð slæm skllyrði,
Innanlandsflug liggur að mestu niðri
yegna óhagstæðs veðurs.
jargað af 34 ski
wrjiuia á lav. Aglí
Um hádegisleytið í fyrradag
barst Flugfélagi íslands beiðni;
um að send yrði ílugvél til
Djúpavogs til þess að sækja
konu í barnsnauð.
Félagið brá þegar við og
sendi þ egar í stað Grumman-
flugbátinn austur undir stjórn j
Aðalbjarnar Kristbjarnarson-;
ar. Á leiðinni kom olíuleki að j
vélinni og varð flugvélin að
lenda á Egilsstöðum í báðum
leiðum til þess að gera við
lekann. Var ákveðið að senda
þangað austur varaflugvél ef
erfiðleikum væri bundið að gera
við lekann. Sem betur fór
heppnaðist viðgerðin ágætlega
og komst flugvélin heilu og
höldnu leiðar sinnar.
Þegar flugvélin kom austur
yfir Djúpavog voru lendingar-
skilyrði hin erfiðustu, bæði
gekk á með hríðaréljum og auk
þess það mikil alda á sjónum
að á Djúpavogi sjálfum var alls
ekki lendandi. Flaug flugmað-
urinn þá innar éftir Berufirði
og var þar heldur lyggnara svo
hann freistaði lendingar, sem
tókst ágætlega.
Var konan flutt á báti inn
fjörðinn og komst flugvélin af
stað rétt fyrir myrkur. Eins og
áður getur varð vélin að lenda
á Egilsstöðum á heimleið. en
hingað kom hún rétt fyrir kl.
8 í fyrrakvöld. Má fullyrða að
flugvélin myndi ekki hafa lent
á Berufirði við þau skilyrði
sem fyrir hendi voru þá, ef
ekki hefði verið um brýna
nauðsyn að ræða.
Mjög er erfitt um allt flug
hér innanlands þessa dagana
vegna hvassviðris og dimm-
viðris. Catalína-flugbáturinn
sem hefur verið tepptur á fsa-
firði frá því fyrir helgi er þar
enn en líklegt að hann komist
suður í dag. Var í gær-
morgun hvassviðri og hríðar-
veður vestra, en ekkert hefur
enn orðið að flugvélinni þrátt
fyrir veðurhæðina.
Undanfarna daga hefur ekki
verið flugfært til Vestmánna-
eyja sökum hvassviðris, og bíða
margir flugferðar bæði þangað
og þaðan. í fyrradag læ'gði
snöggvast veðrið og voi’u þá 2
flugvélar sendar til Eyja. en
þegar komið var þangað hafði
hvesst að nýju svo ekki var
€ Stjórnin á Kúbu hefir bann-
að síarfsemi lcommúnista-
flokksins.
B.v. Egill rauði.
Fremur tregur afli á
Faxaflóa í gær,
Afli var yfirleitt tregur í ver-
stöðvunum við Faxaflóa í gær,
enda réru ekki allir bátar í sum-
um verstöðvunum.
Hafnarfjörður.
í gær réru ekki nema 7 bátar
frá Hafnarfirði, og var afli þeirra
fremur tregur, en þó betri en dag
inn áður. Voru þeir með 4—6
smálestir. f dag eru þar allir bát-
ar á sjó, sem byrjaðir eru, nema
einn eða tveir, sem eru bilaðir.
Togarinn Júní kom til Hafnar-
fjarðar i gær með um 100 lestir.
Var liann búinn að landa áður 1Ó
lestnm á Þingeyri, en slitnaði þar
frá bryggju í óveðrinu og liélt þá
suður.
Keflavík.
Fra Keflavík réru elvki nema
um 20 bátar i gær, og voru flest-
ir á grunnmiðum, en þeir öfluðu
frá 5—7 lestir. Einn bátur sótti
á djúpmið og fékk 4% lest. í dag
eru allir bátar á sjó frá Kefla-
vík, en þaðan róa nú 34 stærri
bátar og 5 minni. — „Dranga-
jökull“ er nú í Keflavík að lesta
frosinn fisk.
Sandgerði.
Allir bátar frá Sandgerði voru
á sjó i gær, en þaðan róa 18 bát-
ar. Var afti þeirra frá 3—6 smá-
lestir, nema einn bátur fékk 8
lestir. Yfirleitt telja sjómenn afl-
ann mjög tregan ennþá, og mun
rýrari en i fyrra.
AliraRes.
Afli Akranesbáta var tregur í
gær, eða frá 3—7 lestir. Alls var
afli 20 báta 83 lestir. í dag eru
allir bátar á sjó frá Akranesi.
Reykjavík.
Engir bátar réru frá Reykja-
vík í gær, — en í dag eru þeir
allir á sjó.
segja
upp sasnningtim.
Sprengief ni gerf
Einkaskeyti frá AP. —
Áþenu í morgun.
Gríska stjórnin kveðst enga
viðlit að lenda og urðu flug- 1 opinbera tilkynningu hafa
vélarnar báðar að snúa hingað fengið um það, að grískt skip
aftur. i hafi flutt sprengiefni til Kýp-
í dag er víðasthvar komið' us en hún hafi fyrirskipað
Verkamannafélagið Dagsbrún
hélt félagsfund í gærkveldi, og
samþykkti fundurinn að segja
upp kaup- og kjarasamningum
við atvinnurekendur, en samn-
ingarnir renna út 1. marz.
Vildi Eðvarð Sigurðsson, ritari
félagsins, að þéssi fundur veitti
kommúnistastjórninni í Dags-
brún þegar fullt umboð til þess
að hefja verkfall, en í ljós kom að
fundarmenn voru ekki tilbúnir
að fá félagsstjórninni í hendur
slikt alræðisvald.
Þá samþykkti Félag járniðnað-
armanna á fundi sínuni í gær-
kveldi að segja upp sinum kaup-
og kjarasamningum, og loks laun
þegadeild Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, sem einnig hélt
fund i gærkveldi. Eru samning
ar verzlunarnianna útrunnir 1.
gott veður og verða 2 eða 3 nJannsókn í málinu.
flugvélar sendar til Vest-; Brezkur tundurspillir ,Comet,
mannaeyja, tvær tiT Akureyr-1 stöðvaði nú í vikunni grískt
ar og ein á Hornafjörð og Fag- 1 mótorskip, og var leitað í því.
urhólsmýri. Fljúga átti tiliFundust 23 lestir af sprengi-
Hellissands, en flugvöllurinn1 efni, sem talið er að hafi átt
þar er lokaður sökum bleytu. ' að smygla á land á Kýpur.
insr ti B-Sgffgg g* Mfjf
éinwt JFe&B'&yÍBiffBEB* fársest.
Vísir gat þess í nokkrum hluta
upplags síns í gær, að búið væri
að biarga 26 manns af togaranura
Agli rauða, en mennirnir urðu
alls 29, sem bjargað var.
Björgunarstarfið var gifurleg-
um erfiðjeikum liáð, en svo fór
að lokum, að 16 manns var bjarg-
að á land, en 13 manns af sjó, og
er það mál manna, að björgunar-
menn hafi sýnt vasklega fram-
göngu, en aðstæður voru allai*
hinar erfiðustu, eins og fyrr
greinir.
Segja má, að almenningur liér
í bæ Jiafi fylgzt með björguninni
af mikilli Iiluttekniijgu. og bíðu
menn milli vonar og ótta, þess er
verða vildi. Síminn liringdi svo
að segja látlaust lijá Slysavarna-
félaginu, og eins í skrifstofum
Yísis en blaðið leitaðist við að
svara fyrirspurnum fólks eftir
föngum, og tvisvar voru settar
nýjustu fregnir af björguninni í
blaðið, eftir að það var komið út.
Eins og Yísir greindi frá í
gær, tókst mönjumi á v.b. And-
vara að komast það nálægt hinu
strandaða skipi, að unnt var að
koma taug á milli þess og Jör-
undar. Tókst síðan að bjarga 12
manns um borð í Jörund og 1 um
borð í Goðanes.
Björgunarsveitin, sem kom frá
Hesteyri, brauzt á strandstað-
inn við illan Ieik, enda vont
veður og erfitt yfirferðar. En er
hún var komin, leið ekki ú löngu
þar til tekizt hafði að bjarga 16
manns, eins og fyrr segir. Strand
mennirnir og björgunárliðar
munu hafa liafzt við í eyðibýl-
inu Sléttu í nótt, en skipverj-
ar af togurum, sem tóku þátt
í björgimarstarfinu, fóru þangáð
með matvæli og fatnað.
Yisir átti tal við fréttaritara
sinn á isafirði í morgun. Hann
sagði, að enginn skipbrotsmanna.
væri þangað kominn þá, en sagði
að þeir, sem björguðust af sjó,
myndu hafa verið í togaranum
Austfirðingi í nótt.
Yitað er, að þessir fórust:
Stéfán Einarsson, 3. vélstjóri
frá Xorðfirði. Kvæntur maður og
átti fimm börn.
Atli Stefánsson, kyndari, son-
ur Stefáns Einarssonar, 17 ára,
ókvæntur.
Hjörleifur Helgason. kyrtdarí
frá Xorðfirði, 21 árs, ókvæntur,
en einkasonur foreldra sinna.
Magnús Guðmundsson, háseti.
frá Fáskrúðsfirði, kvæntur mað-
ur um fimmtugt.
Sofus Skoradal, háseti, frá
Færeyjum.
Egill rauði var nýsköpunar-
togari, eins og kunnugt er 65G
Iestir að stærð, siníðaður árið
1947 i Aberdecn.
Yftr 60 taka þátt
í skákftingiiHi.
Skákþing Reykjavíkur hefst
á sunnudaginn kemur.
Hafa 62 skákmenn tilkynnt
þátttöku sína í mótinu og er
þetta eitt fjökneimasta skák-
mót sem hér hefur verið háð.
Képpt verður í 3 flokkum, þ.
e. meistaraflokki, fyrsta og
öðrum flokki. í meistaraflokki
eru þátttakendur 21 og meðal
þeirra Ingi R. Jóhamisson nú-
verandi skákmeistari Rvíkur,
Guðjón M. Sigurðsson, Eggert
Gilfer, Steingrímur Guðmunds-
son, Jón Pálsson og Gunnar
Gunnarsson. Þátttakenlur eru
14 í 1. fl. og 27 í 2. flokki.
Skákþingið hefst kl. 2 e. h.
á sunnulaginn kemur og verð-
ur teflt í Þórskaffi.
---★----
Nýjar kjarnorkuvopnapróf-
anir faHa fram á Nevada-
söndum eftir nokkrar vik-
ur. Kjarnorkuráð Banda-
ríkjanna birti tilkýnningxt
um þetta í gær.
JámSjrauíir Breta veröi
endurskipuíagðar.
ltti^»R«lKÍ)ait.ki
kækkar forvexli
Englandsbanki hækkaði for-
vexti í gær úr 3 í 3y2%.
Blöðin lýsa ánægju sinni yf-
ir hækkuninni og telja hana
munu verða gjaldmiðlinum til
aukins trausts og öryggis.
LögS hefir verið fram áætl-
un um að koma nútíma skipu-
lagi á járnbráutakerfi Bret-
lands.
M. a. er gert ráð fyrir, að
lestir knúnar raforku verði í
förum milli helztu borga. —-
Áætlaður kostnaður ér 1200
milljónir sterlingspunda.
Gera betur en
s
0
Ein af sögiun Miinc-
hausens baróns fjallaði um
för hans til Rússiands, þar
sem fannkoma var svo mikil,
að hann tjóðraði hest sinn
við vindhana á kiikjuturni.
Frá Suðurskautsleiðangri
Bandaríkjamanna barst ný-
íega svipuð saga. I Litlu-
Amtriku reisíu menn Byrds
árið 1929 þrjár íoftskeyta-
stengur, 70 fet á hæð. Þegar
leiðangursmenn kornu þang-
að á dögunum, gátu þeir
tyllt sér á topp einnar
þeirra. Hún stóð að’eins 5 —
fimm — sentimetra upp úr
snjónunt! Gera þeir því bet-
ur en Miinchausen.
1