Vísir - 24.02.1955, Side 7

Vísir - 24.02.1955, Side 7
- Kmmtudasmn 24; febrAar 1955. VlSIR jze> lEIKSDPPUR Eftir ROBIN MAUGHAM Cr'r. lágri röddu. „Eg hefi verið að kynna mér feril yðar fram á þenna dag.... “ Hann hafði meira að segja lesið ýmsar greinar, sem John hafði skrifað, meðan hann stundaði nám í Oxford, og hann vissi um ailt, sem birt hafði verið á prenti eftir John upp á síðkastið. „Það er fyrir mestu að mínum dómi, að þér búið yfir sann- færingu! Og að þér séuð ekki hræddir við að láta hana í ljós, að þér séiið ekki hræddur við að kynna alþjóð vilja yðar.... Eg hefi engan áhúga fyrir vitrum öldungum, sem slá mn sig með gömlum og sútnum vígorðum. Við þörfnumst ungra manna með hugsjónir og eld í æðum. Eg vil, að þér skrifið á hverri viku grein fyrir „Kvöldpóstinn“... .‘ Hann hallaði sér aftur á bak í sæti sínu og krosslagði hand- leggina á brjóstinu. „Um h-svið á eg að skrifa?“ Drewell breiddi úr höndunum. „Um hugsjónir yðar! Um það sem þér trúið á. Segið þjóð yðar, á hvað þér trúið, og hvers vegna þér trúið á það. Þér eruð kristinnar trúar, er það ekki? Nú, en hvernig er hin kristna trú yðar? Það er alveg út í hött, áð nota aðeins orðið kristinn, því að það er að heita má orðið merkingarlaust á vorum dögum.... Þér trúið vænt- anlega einnig á frelsið? Hvers konar frelsi? Og hvers vegna trúið þér á það? Jæja, hverju svarið þér?“ John hikaði. „Mætti eg skrifa hvaðeina, sem mér flygi í hug.“ ' „Þá, það er einmitt það, ungi maður! Nú komum við einmitt að því! Eg óska eftir nýjum hugmyndum! Eg óska éftir nýjum anda! Lesendur verða að taka eftir því, að yður er frjálst að slrxifa hvað eina, sem yður kemur til hugar.“ Nú varð þögn í fáeinar sekúndur. En John þótti það verst, að síminn þagði líka. Og. nú var stmidin komin, þegar John þurfti að svara. „Eg þakka yður kærlega fyrir tilboð yðar,“ mælti hann feimnislega. „Má eg hugsa mig um?“ Blaðakóngurinn hleypti brúnum. „Vitanlega . . . En eg verð að biðja yður um að tilkynna eigi síðar en eftir viku, hvaða ákvörðun þér hafið tekið.“ Harrn varð næstum reiðilegur á svip. „Auk þess vexð eg að taka stranglega fram við yður, að ekkert má vitnast um tilboð það, sem eg hefi gert yður í þessu efni.“ „Mig fýsir þó að ræða það við tiltekinn mann.“ „Drewell varð aftur vinsamlegur á svip. „Vitanlega er eg því ekki andvígur að þér ræðið tilboð mitt við móður yðar, þvi að hún mun áreiðanlega geta gefið yður heilræði. Ef þér gangið að tilboði mínu, mun aðalritstjóri minn Blake, ganga frá samningi við yður. Þér munuð þá verða þess vísari, að það er venja okkar að greiffa mönnum vel fyrir ómak þeirra.“ Drewell reis á fætur og lagði höndina á öxl Johns. „Viljið þér gera svo vel að færa móður yðar kveðju mína og segja henni jafnframt, að mér þyki ákaflega leiðinlegt að getá ekki borffað hjá henni á fimmtudag. Verið þér sælir.“ „Verið þér sælir,“ svaraði John og gekk eins ög í leiðslu út úr herberginu, en þar beið vinsamlegur ritari, er fylgdi honum að Rolls Royce-bifreið blaðakóngsins. Þegar bifreiðin var komin í gremid við borgina, lét John bifreiðarstjórann nema staðar fyrir utan veitingastað, en þaðan hringdi hann síðan til Peters vinar síns. Það var enn meira én klukkustund, þar tiJ hann átti að hitta Pat, eins og um hafði verið talað, og honum lá svo mikið á hjarta vegna samtals síns við, að hann varð að tala um það við einhvern. Og hann lagði einnig til að tala um Pat við Peter. Peter var heima, og John lét þess vegna ekki aka sér aftur til skrifstofunnar heldur beina leið til heimilis Peters í Viktoria-hverfi. Vitanlega byrjaði hann á að segja frá samræðum sínum við blaðakónginn. Honum veittist það auðveldara. „Það liggur þannig í þessu, að Drewell er með stórmennsku- brjálæði," sagði John. „En það er þó nokkuð vit í því, sem hann segir. Mundir þú líta svo á, að eg væri bjáni, ef ég tæki tilboði hans?“ „Eg mundi telja þig asna, ef þú hafnaðir boði hans,“ svaraði Peter hiklaust. „Hverju getur þú tapað?“ „Eg hugsaði.... að þú mundir vera því mótfallinn, áð eg gengi í þjónustu hans.“ „Af því að eg hefi fyrirlitningu á þessum blaðakóngi? Það er engin frambærileg ástæða. Ef allir blaðamenn veigruðu sér við að skrifa fyrir blaðaeigendur, af því að þeir hefðu óbeit á þeim, þá mundi öll blaðaútgáfa. leggjast niður.“ „Hvers vegna hefur þú fyrirlitningu á honum?“ „Af því að hann er feitur, sjálfsánægður og ósannur í alla staði! Þessi sókn hans er ekkert annað en bragð til að auka upplag blaða hans. Hún mun standa í nákvæmlega þrjá mán-! uði, og þá mun honum detta eitthvað nýtt í hug. Þú skalt þess vegna skrifa allt, sem þéf flýgur í hug, meðan þú hefur tækifæri til þess.“ „Og hvers vegna gerir hann sér svona mikið umstang vegna mín?“ „Hann heldur, að það verði góð auglýsing fyrir fyrirtæki hans að nota þig, af því að þú hefur nýjar, hressilegar hug- myndir.... Ef þú skrifar raunverulega eins og þér býr í brjósti munu greinar þínar vekja athygli.“ „En allt það, sem eg hefi fram að færa, mun gera hann vitlausan af bræði.“ „Þegar svo verður komið, að haim verður vitlaus af bræði, mun hann hætta að birta greinar þínar. En þangað til getur þú gert eins og þig lystir. Hann borgar raunverulega vel.“ John hristi höfuðið. „Það nægir mér ekki,“ svaraði hann, „ef eg hefi það á tilfinnirigunni að eg sé svín, af því að eg vinni fyrir hann. Óheiðarlegt svín. ...“ „Þú ert þvi aðeins óheiðarlegt svín, ef þú skrifar eitthvað', sem þú ert ekki sannfærður um. En það vill svo til, að þú ert sannfærður um alla þá heimsku, sem hann ætlast til að þú skrifir fyrir blað hans. Þú trúir á frelsið eða þá hið heilaga ætiunarverk brezka heimsveldisins.... “ „Bara ef hann minnti mig ekki á ljóta og leiðinlega pöddu!“ „Hvers vegna ertu alltaf að líta á úrið?“ „Af því að eg þarf að fara á mikilvægan fund klukkan átta.“ Nú hefði verið réíti tíminn til að segja Peter alla söguna, en John fannst; að hann væri alveg þufr í munninum. * , Hann sagði ekki vini sírium frá neinu. FIMMTI KAFLI. John kom tíu mínútum of snemma i Hjörtinn. Pat sat þar við afgreiðsluborðið og skrafaði við Bob. Hún virtist hin ró- legasta og brosti til hans. Það var eins og eitthvað skæri John í hjartað, þegar hann sá bros heimar. \ v. .. Hann gekk mjög hægt til hennar. „Sæl vertu! Gott kvöld!“ heilsaði hún honum. Og þegar hann rétti henni höndina, hélt hún áfram: „Hugsaðu þér bara. . . . Eg vann við veðreiðarnar í dag! Leyfist mér ekki að bjóða þér í kvöld?“ Á kvölrfvökuftiti. Ung og falleg stúlka var far- þegi á skipi. Hún kom upp i brú til skipstjórans og spurði: — Hvað er eiginlega langt út í sjóndeildarhringinn? — Fimm til sex sjómílur, sagði skipstjórinn. — Og hvað skeður, þegar við komum þangað? spurði stúlk- an. Svar skipstjórans er óprent- hæft. Prófessor eirm í læknisfræði var að halda fyrirlestur uni mannsheilann og lagði mikla á- herzlu á, að heili karlmanna væri miklu stærri en heili kvenna. Því næst sneri haim sér að kvenstúdent í deildinni og sagði: — Hvaða ályktun er hægt að draga af þessu? — Að ekki er allt undirr stærðinni komið, sagði kven- stúdentinn. Maður, nýkominn heim frá Afríku, var að segja frá ævin- týrum sínum þar. — Allt i einu vorum vicí staddir í rjóðri í miðjum frum- skóginum, umkringdir af villi- mönnum, sem sveifluðu kylfum sínum umhverfis höfuðin á okkur og ráku upp öskur. — Skyldu mennimir hafa verið að leika golf, sagði einn af áheyrendum við sessunaut siim. Það var komirm nýr kennari í skólann, þar sem Kristófer litli var og þessi nýi kennari höfðaði oft tií drengskapar nemendanna. Dag nokkum, þegar hann kom í bekkinn, horfði hann haukfránum aug- um yfir hópinn og sagði: •— Drengir míriir. Allir þið, sem hafið ákveðið að vera dug- legir og iðnir í vetur, gerið svo vel og standið á fætur til að staðfesta það, Allir nemendurnir stóðu á fætur — auðvitað að undan- teknum Kristófer. — Hvað er þettá, Kristófer, sagði kennarinn. — Stendur þu ekki á fætur? — Nei, sagði Kristófer og horfði með fyrirlitningu á skólabræður sína. — En hins vegar kæri eg mig ekki um að Ijúga, þegar eg þarf þess ekki. r. Buncuífkbi - TARZAIM - 1761 Tarzan klifraði upp í trjátopp og sá ^flugyél - StQrþ? .þv^fa, bak við, _;fjöllin.v„,iV; ,ííe-u Því næst snaraði hann sér inn í . slpginixog kom, niður, á fljótsbakka. Hann lagaði mjög niikið í fiskinn Eftir nokkrar mínútur brá hanþ Pisah ogj. hjáð ,tunL,s^nd á fljóts- .... hendiryú .ofan í vatnið og kom up|> bakkanúm. ••••• .\í f A '' '; n-fcðrfíllff . ‘ f

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.