Vísir - 26.02.1955, Side 1
45, arg.
Laugardaginn 26. febrúar 1955.
47. tbll,
Hallvarður kominn fram.
Báíurinn kom af sjálfsdáðum til
Súgsndafjurðar í morgun.
j M.b. IIali\'arður kom í
i morgun kl. 9.30 af sjálfdáð-
um til Suðureyrar í Súg-
i andafirðL Bíaðinu er að
i öðru leyti ókunnugt um
ferðir hans frá jþví í gser.
Fyrri fregnir voru á þessa
leið:
í 'gæmiorgun um 9 leytið
heyrðist í talstöð Hallvarðs, er
J>á var staddur út af Látrabjargi
og á leið til Súgandafjárðar.
Þangað hefði hann átt að vera
kominn um tvöleytið í gær ef
allt hefði verið með felldu, en
þangað var hann ekki kominn
í morgun.
Seinna í gær. eða um kl. 5
heyrðist aftur óglöggt í talstöð
bátsins, en þó svo mikið að
skipverjar sögðu geymi tal-
stöðvarinnar vera að þrjóta.
Töldu menn að báturinn hafi
verið að kalla á skip sér til
hjálpar, eða til þess að gefa til
kynna vélbilun, en staðará-
kvörðun heyrðist ekki. Frá Id.
5 hefur ekkert til bátsins sézt
eða heyrzt.
Slysavamafélaginu var þá
;strax tjáð að bátsins væri
saknað og að eitthvað' myndi
vera í ólagi hjá honum. Lýsti
Slysavamafélagið eftir bátnum
í útvarpinu og bað um að eftir
honum yrði tekið bæði af sjó
og landi. Auk þess hóf svo
björgunarskipið út af Vestf jörð-
um skipulega leit að bátnum,
en í morgun hafði hún engan
árangur borið, enda náttmyrk-
ur á og ekki von til að neitt
sæist nema því aðeins að bát-
• verjar á Hallvarði hefðu kynt
bál.
Fsura vfll liilglMIfig
PaffsiiBsmnÍiigaima.
Edgar Faare, forsætisráð-
herra Frakklands, lýsti yfir
þvi í gær, að ibraðað yrði eftir
mættj fullgilding Parísarsamn-
inganna.
Sagði Faure. að samningar
þessir hefðu verið vel á veg
komnir, en vegna stjórnar-
kreppunnar hefði afgreiðsla
þeirra tafizt, en nú yrði aftur-
hafizt handa, Franska fulltrúa-
deildin hefír þegar fullgilt
samningana, en nú tekur efri
deildin við. Hún getur ekki
fellt samningana, en vísað þeim
aftur til neðri deildar og verð-
ur þá að gréiða atkvæði þar á
nýjan leik.
1076 milljónarar
í Sviþjóð.
Samkræmt skattaframtali Svía
árið 1954 voru það ár taldir 1067
milljónarar þar ílandi.
Skattskyldar eignir í Svíþjóð
námu samtals 23.117 millj. króna,
og er það nokkru hærra en árið
áður, en þá námu eignirnar
22.331 millj. krónum. Alls var
talið, að í Sviþjóð væru 179.103
menn, sem ættu yfir 50 þús. kr.
eign. Þar af bjuggu 98.175 í sveit-
um eða þorpum, en rúmlega 80
þúsund i borgum.
Nýlega varð ein elzta
kona Bretlands 102 ja ára.
Alger innigjöf á Sléttu í
meíra en tvo mánuði.
Bændur óttast heyþrot, ef tíðarfar
breytist ekki til batnaðar.
I?.-
Frá fréttanitara Vísis —
Raufarhöfn í gær.
Bændur á Melraltkasléttu
eru farnir að óttast að þeir
lendi í heyþroti, ef sama tíðar-
far helzt til lengdarj.
Það er nú liðið á þriðja
mánuð sem alger innigjöf hef-
ur verið á öllum skepnum,
jafnt hrossum sem sauðfé. —
Má heita að samfelld íshella
liggi yfir landinu og skepnur
ná ekki að jarðar gegnum
.gaddinn. Frosthörkurnar hafa
verið stöðugar um lengri tíma
án þess að nokkur sinni hafi
dregið til hláku og hafa ekki
komið jafn mikil harðindi hér
;um slóðir í marga vetur.
Þrátt fyrir langvarandi frost
hafa veður yfirleitt verið góð,
etiliur og stórviðalaust.
Nú er allt unga fólkið, sem
vettling getur valdið og hugs-
anlegt er að megi missa sig,
farið héðan úr þorpinu til þess
að leita sér atvinnu annars-
staðar. JVtargt fór með strand-
ferðaskipunum, Esju og Heklu,
í síðustu ferð þeirra á dögun-
um og var ætlunin hjá flestu
af þessu fólki að fara í at-
vinnuleit til Vestmannaeyja.
Frá því í haust hafa á 2.
hundrað manns farið frá
Raufarhöfn ýmist til skóladval-
af eða í atvinnuleit. Með tilliti
til þess að heimilis fastir íbúar
Raufarhafnarþorps eru ekki
nema eitthvað á 4. hundrað
talsins, eru þessir fólksflutn-
ingar mjög tilfinnaníegir, ekki
sízt. fyrir félagslíf í kauptún-
ínu.
Hlaiít 3 jws kr.
sekt fyrir ieym^
víusefa,
Nýlega var hátíð mikil haldin hjá Zulu-svertingjum í S.Afríku,
er þeir reistu miklum höfðingja sínum, sem reyndi að reisa rönd
við yfirgangi hvítra manna á sl. öld, glæsilegt minnismerki.
Myndjn sýnir svertingja efna til stríðsdans í tilefni af þessu.
MiSdll útflutningur sjávar-
afurða um þessar mundir.
Tvö skip t.d. á BeiÖ vestur
uftY haf með freðfisk.
í fyrrinótt tók lögreglan f
Reykjavík fastan leigubílstjóra
er staðinn var að sölu smyglaðs
áfengis.
Mál þetta upplýstist með
þeim hætti að lögreglan tók í
fyrrinótt mann, sem var með
smyglað vín í fórum sínum.
Við yfirheyrslu játaði hann að
hafa keypt áfengið af tiltekn-
um leigubílstjóra.'Var bílstjór-
inn þá kallaður fyrir og ját-
aði hann að hafa selt tveimur
mönnum smyglað áfengi þá
um nóttina.
Mál bílstjórans var dæmt í
Sakadómi Reykjavíkur í gær
og með hliðsjón af því að hér
er um fyrsta brot að ræða vár.
hann dæmdur í þrjú þúsund
rkóna sekt.
Þessa dagana er mikill útflutn-
ingur sjávarafurða, og hafa skip
Eimskipafétagsins verið að lesta
frystan fisk, fiskimjöl, hrogn og
lýsi á höfnum úti á landi undan-
farið.
Vegna verkfallsins raskaðist
að sjálfsögðu hin reglubundna
áætlun skipanna, og hafa þau
ekki getað tekið hana upp cnn-
þá, enda rikust áherzla lögð á
það að taka þann útflutning sem
fyrir liggur, og eru nú sum af
skipunum á útleið, en önnur eru
enn að lesta á höfnum úti á
landi.
Gullfoss er í Kaupmannnhöfn,
og hefur verið þar i klössun, en
er væntanlegur heim aftur 18.
marz. Tröllafoss er í Ameríku
og lestar þar vörur til Reykjavik-
ur og leggur af stað heim 8. marz.
Dettifoss er á leiðinni til Amer-
íku með um 1500 lestir af frystum
fiski er hann tók á Vestfjörðum
og höfnum við Faxaflóa, Goða-
foss fer 1.—2. marz áleiðis til
Ameriku með um 700—1200 lest-
ir af frystum fiski. Lagarfoss er
á leið til Hull, Antverpen og
Rotterdam. Fjallfoss var á Húsa-
vík í gær og léstar þar fiskimjöl,
saltfisk og lýsi, en liafði áður
lestað á Faxaflóahöfnum. Fer
hann með fullfermi fiskiaf-
urða til Liverpool, Cork, Sout-
hampton, Rotterdam og Ham-
borgar. Reykjafoss var á Norð-
firði í gær, en liann var sendur
með vörur vestur og norður um
land eftir verkfallið, og fer nú
til Wismark og Rotterdam. í
Wismark lestar har.n um 1000
toim af sementi en 1500—1800
tpíin af áburði í Rotterdam. Sel-
foss fór frá Hull í fyrradag til
Rotterdam og Bremen og losar
•íuílfermi, en lestar aftur í Rott-
crdam 850 tonn af áburði, Brúar-
foss lestar á Faxaflóaliöfnum og
í Vestmannaeyjum samtals um
1100 tonn, þar af 150 tonn af
hvalkjöti, 150 tonn af hrognum,
4.00 tonn af frystum fiski og 400
tonn af fiskimjöli og skreið, er
hann flytur til meginlandsins.
Kemur liann aftur frá Hamborg
beint til Siglufjarðar og Akur-
eyrar og flytur m. a. 150 tonn af
gjarðajárni til tunnuverksmiðj
unnar. Tungufoss fór frá Siglu-
firði í gær, lestaði 225 tonn af
lýsi og 500 tonn af fiskimjöli til
Finnlands. Flytur m. a. timbur
og fleiri vörur frá Ábo og 250
tonn af járnrörum eða pípum frá.
Ventspels. Katla átti að fara frá
Akureyri í gærkveldi til Leitli,
Hirtshals, Lysekil, Gautaborgar
og Kaupmannahafnar með urn
1200 tonn af hrognum, mjöli og
lýsi.
Yfir 200 manns
komu tii Eyja
í fyrradag.
Eldur í timbur-
búsi í Eyjum.
í gærkveldi kom upp eldur
í gpmlu timburliúsi í Vest-
mannaeyjum, sem notað hefir
verið sem matstofa Hraðfrysti-
stöðvarinnar.
Skemmdist húsið töluvert,
bæði af eldi, reyk og vatni, og
er sennilega ónothæft eftir
brunann. Eldurinn var á súð-
arhæð hússins, en þar var
geymt talsvert af þorskanetjum.
Tókst að bjarga miklu af netj-
unum. Hafizt verður handa um
að gera við . matstofuna hið
allra fyrsta, enda brýn þörf
fyrir húsnæðið.
Skammt frá eru timburhús,
þar sem er rafstöð og olíu-
geymir en fyrir ötula fram-
göngu slökkviliðsins, tókst að
verjá þau.
Á þriða liundrað aðkomu-
manna komu til Vestmannaeyja
í fyrradag með flugvélum og
skipum.
Áður en verkfallinu Iauk
voru nokkur hundruð manna
kominn til Eyja og með þess-
ari viðbót er nokkurnveginn
bætt úr verkafólkseklunni, sem
var fyrst eftir að bátamir
byrjuðu róðra, en þá varð fólk
úr ýmsum stéttum og stöðum
að hjálpa til við frystihúsin.
Afli Vestmannaeyjabáta var
tregur á fimmtudaginn en und
anfarið. Þó var hæsti báturinn
með 17 lestir en aðrir með 5
—7 lestir. Aflahæsti báturinn
þennan dag var „Gullborg", en
skipstjóri á honum er Benóný
Friðriksson, sem var aflakóng-
ur í Vestmannaeyjum í fyrra.
Alls eru nú um 80 bátar
byrjaðir róðra, og hafa flestir
aflað ágætlega, og eru komnir
allt upp í 50—60 lestir þennan
stutta tíma sem liðinn er frá
verkfallinu.
Útlent fisktökuskip, „Diella“,
var í gær að lesta fisk í Vest-
mannaeyjum til Brasilíu.
Hár alrfur í Russíá.
London (AP). — Hagstofa
Sovétríkjanna hefir skýrt svo
frá, samkvæmt úívarpsfregnum
frá Moskvu, að í Rússaveldi sé
35,000 manns, sem eru 100 ára
ára eða eldri.
Því er ennfremur haldið
fram, að 1500 af þessum hópi.
sé 150 ára eða eldri. Var og
sagt, að rússneskir vísindamenn
kömiuðu, hver vera mundi
helzta ástæðan fyrir langlífi
manna.