Vísir - 10.03.1955, Síða 7

Vísir - 10.03.1955, Síða 7
. Fimmtudaginn 10. marz 1955. VlSIB % ■5s>. 1® LEffiSDPPUH Eftír ROBIN MAUGHAM ©? yfirlætislegu framkomu vina þinna gagnvart henn, mundi hún aldrei geta fyrirgefið slíka framkomu. Og þú mundir heldur aldrei geta gleymt því, að hún hefði eyðilagt mikinn og glæsi- legan starfsferil, sem þú átt fyrir höndum.“ ,,Það getur verið, að þú hafir rétt fyrir þér,“ svaraði John og leit hugsi í kulnandi glæðurnar á arninum. „Kannske svo fari, að eg elski hana ekki framar, þegar aldurinn færist yfir hana. En það er mér ekki til neinnar hjálpar. ... Ef til vill förumst við í næstu styrjöld, og svo getur farið, að annað hvort okkar deyi á næsta ári. En eg er að hugsa' um nútímann, daginn í dag, þetta augnabilk, þegar eg elska hana öllu öðru fremur, og þegar er þjáist svo, að ekki verður með orðum lýst, ef eg get ekki verið með henni öllum stundum.“ Móðir hans spennti greipar og leit þegjandi og undrandi á hennar eigið hold og blóð, son sinn, sem þarfnaðist hennar nú allt í einu ekki, sem var orðinn sjálfstæður, lét ekkert hafa áhrif á sig, og var allt í einu orðinn svo fjarlægur henni. „Eg skil tilfinningar þínar, elskan mín,“ sagði hún blíðlega. „Þú ættir aðeins að vera dálítið skynsamari og eyðileggja ekki íramtíð þína í hugsunarleysi. Þú skalt bara hitta hana, úr því að svo verður að vera. En farðu gætilega! Láttu ekki al- menning sjá þig með henni — farðu ekki með henni á opin- bera staði, þar sem kunningjar þínir geta komið-^uga á ykkur. Og gerðu það fyrir mig, drengur minn, að koma ékki framar með hana hingað, því að ekki er að vita, hver yrði var ferða ykkar hér. Viltu heita mér því?“ „Já, mamma.“ Móðir hans reis tígulega á fætur úr sæti .sínu. „Þú mátt ekki líta svo á, að eg sé geðstirð gömul kona, sem blandar sér í mál annarra að ástæðulausu.“ John kyssti hana létt. „Þú ert óhlýðinn drengur. Góða nótt, elskan, og sofðu rótt!“ NÍUNDI KAFLI. Þrem vikum síðar stóð John á uppfyllingunni í Bournemouth. Hann hallaði sér fram á handriðið, starði ofan í blýgráar öld- urnar, sem byltust upp að stálþilinu og var gramur yfir að hafa farið frá London. Það var ekki hann heldur Pat, sem hafði fengið þá hug- mynd, að þau ættu að fara til Bournemouth og vera þar þann vikutíma, sem Barker ætlaði að vera í viðskiptaerindum í Briissel. John hafði aldrei séð Pat svona einbeitta. Vinsamlega en einarðlega hafði hún kollvarpað öllum viðbárum hans. Vitanlega gæti hann verið fjarverandi úr skrifstofu sinni í viku- tíma, og auk þess þyrfti hann að> hvílast og safna kröftum. Auðvitað mundi enginn verða þess áskynja, að þau væru þar saman, einkanlega ef þau leigðu herbergi í litlu gistihúsi. Vit- anlega gæti hann sagt foreldrum sínum, að hann væri ekki hress, svo að hann yrði að taka sér nokkra hvíld. Ákefð hennar hafði verið smitandi, og horfurnar á að vera með henni í heila viku höfðu verið mjög freistandi. Mánudag nokkurn, þeg'ar þau höfðu snætt hádegisverð sam- an og drukkið drjúgum með, flaug Barker til Belgíu, er hann hafði óskað þeim alls góðs á skemmtiför sinni. Þau höfðu orðið ásátt um að borða kvöldverð saman í London, og fara svo til Bournemouth morguninn eftir. John hafði í mörgu að snúast í skrifstofunni, áður en hann gæti farið þaðan, til nokkurra daga dvalar, og- þegar hann komst þaðan, var orðið of framorðið, til þess að hann kæmist heim til að hafa fataskipti, áður en hann ætti að hitta Pat í Hirtinum klukkan hálf átta. Þegar hann kom inn í veitingastofuna, sá hann, að hún v-ar ekki ein. Stórvaxinn, ungur maður, sem John hafði aldrei séð, sat hjá henni. Hann var með þykkt, hrokkið, svart hár, herðabreiður og miðmjór. Andlit hans var grófgert og rauð- birkið, og hendurnar svo risavaxnar og rauðar, að hann hefði vel getað verið hafnarverkamaður eða hnefaleikamaður. Það var eiginlega alveg eins og hann mundi sprengja fötin utan af sér. John tók eftir undrún Pat, þegar hann gekk að borðinu til þeirra. „Fékkstu ekki símaskilaboðin frá mér?“ spurði hún. „Nei.“ „Eg hringdi heim til þín og bað þjónustustúlkuna fyrir þau.“ „Eg komst ekki heim,“ sagði John stuttur í spuna. Ungi maðurinn starði á hann. Rétt sem snöggvast ríkti ó- WVVVWVVWWWVVWtfVWWVW/VWVWVVWWVVVVVVWVV Hoover-handryksugan Ódýrust-Handhægust Á kvöldvokimni. Dr. Albert , Schweitzer, sem. margir álíta heilagan, getur oft; verið gamansamur. í samkvæmi nokkru, þar sem, hann var staddur, var rætt um grafskriftir. Þá sagði hann: — Ef það ætti fyrir mér að liggja að verða étinn af mann- ætum í Afríku, vona ég að vjlli- mennirnir reisi mér stein með áletruninni: „Hér hvílir Albert Schweií- zer. Hann var góður til síðustu stundar.“ Dóra litla kom heim úr skól— anum og sagði við móður sína sigri hrósandi: — Ég stóð mig bezt í nátt- úrufræði í bekknum í dag. Kennarinn spurði, hvað strút- urinn hefði marga fætur og ég sagði þrjá. , -— En hann hefur aðeins tvo fætur, sagði móðir hennar. — Véit ég það, sagði Dóra, en allir hinir nemendurnirr sögðu, að hann hefði fjóra. Hinn mikli kvennatöfrari Maurice Chevalier er nú orðinu talsvert. við aldur, en hefur ennþá sömu tök á kvenfólki og áður. Nýlega sagði ma'ðúr við hann: —- Þú ferð nú vonandi að hætta þessu kvennafari, maður kominn á þennan aldur. •— Því þá það, sagði Maurice .... eða er nokkur í þinni fjöl- skyldu, sem hefur kvartað undan mér?. Kfoovei’s-h a n.di*yk sn tgani VERfí kr. 435,00 HOOVER-handryksiigur eru sérlega heppilegar viS ræstingu stiga, husgagna, fataskápa og smáteppa. Þótt þér eigið stærri gerðir af HOOVER-ryksugum eru mikil þægindi aS eiga líka HOOVER-HANDRYKSUGUNA. 3ÆsBfjaeis föjjaran Umboðs- og. heiídverelún. yw-wwtwwvvv Enn er til eitthvað af I® ^ ódýru vörunum svo sem: Kvenbuxur og bolir á 18,00 kr. stk. Undirkjólar úr prjónsilki á 60,00 kr. Kvenbuxur úr prjónsilki á 17,50 og 20,00 kr. Rayon kjólaefni 115 cm. breitt á 29,50, — 27,00, — 24,00, og 20,00 mtr. Kvenkápur úr góðum efnum mjög ódýrar. H. Taft Skólavörðustíg 8 Sími 1035 BEZT AÐAOGLYSAIVISI c a. BurmtykA! — TARZAM 1773 Ccpr itSJ.JCítiirnieitniirrouíla*.Jnc,—T(B.Re*.u.G.P»t.Osr. > tnstr. by United Feature Synaicate, Inc. — Þetta kemur þér ekki við, strákur, hreytti hahn út úr sér. Tarzan reyndi að slíta af sér böndin, en það lánaðist ekki. Milo fylgdi eftir með því að sparka í brjóst honum. Allt í einu sagði ungur varðmaður: —Iíægan húsbóndi! Það getur verið að hann kunni ekki að tala. -

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.