Vísir - 13.04.1955, Blaðsíða 5

Vísir - 13.04.1955, Blaðsíða 5
Þriðjudaginn 12. apríl 1955 VÍSIH Magsaysay hærftist á fyrsta ári forsetadáms síns. Telifir það meginskyldu sisiaað hjálpa smæSingjuní. Þegar Ramon Magsaysay varð forseti Filipseyja 1954, en 'iann er nú 47 ára, var hár hans tinnusvart. Nú er hann farinn að grána, en það er mjög fátítt, að hár Filippseyinga taki að grána, fyrr en menn taka allmjög að eldast. Vitanlega em það áhyggjurnar, sem for- setaembættinu eru samfara, sem fjölga gráu hárunum. Magsaysay er maður fram- takssamur og starfsamur og ber ireiðanlega hag og velferð þjóðar sinnar fyrir brjósti, og nann tekur sjálfur svo virkan þátt í öllu umbótastarfi og er svo milcU leiðtogi, að margra ætlan er, að framtíð eyjanna sé að verulegu leyti undir því komin, að þjóðin njóti starfs- krafta hans og hæfleika sem lengst. Robert Alden, einn af frétta- riturum New York Times, hefur nýlega skrifað um Magsaysay. Segist honum svo frá: Malacan. Herbergin í forsetahöllinni eru feiknastór og nefnist for- setahöllin Malacan. Þar eru gólf lögð marmarahellum. Krystallsljósakrónur gríðar- stórar hanga þar í lofti, og tré- skurðarmyndir fagrar eru á stoðum og stólpum. Forsetahöll- in var eitt sinn heimili spænsks aðalsmanns, sem var forríkur. Seinna varð hún bústaður spænska landstjórans, og stjómarfulltrúa Bandaríkjanna enn siðar. Olíumálverk af öllum stjórnarfulltrúum Bandaríkjanna, sem verið hafa á Filippseyjum, hanga í her- berginu, sem er aðalstarfsstofa Magsaysay, sem er maður stór og þrekinn af Filippseyingi að vera. Hann virðist vera allæst- ur á taugum, er hann ræðir hin flóknu vandamál, sem hann á við að stríða, gengur um gólf og ýmist kreppir eða opnar hnefana. Tekur sjálfur í taumana, ef-------- ,,Ég verð að vei-ja þremur klukkustimdum á hverju kvöldi til að lesa bréf og skeyti frá fólki, m. a. frá fátækum bændum, sem setja allt sitt traust á mig. Enginn getur svarað nerna ég sjálfur, eða rekið erindi þess. Fólkið snýr sér til forsetans og ætlast til þess, að hann sjálfur greiði götu þess“. Iðulega kemur það fyrir, að einhver umkvörtun kemur svo við forsetann, að hann leggur af stað til einhvers fjarlægs þoi'ps, til þess að rétta hlut ein- hvers smælingja. Þessu til sönn- unar er eftirfarandi hjá öðrum. Loks sneri hann sér að skrifstofustjóra nokkrum og mælti: „Ég sendi mann, er var hjálparþurfi, á yðar fund í vik- unni sem leið. Þér voruð svo önnum kafinn, að hann gat ekki fengið að tala við yður. Mér virðist, að fyrst ég gat séð af stund til þess að ræða við mann- inn, hefðuð þér getað það líka.“ . I saga úr daglega lífinu. Leiguliði kvartaði yfir því við landsdrottin sinn, að hann hefði tekið meira af hrísgTjóna uppskeru sinni en heimilt er. Landsdrottinn lætur nokkrar bullur lumbra á manninum fyrir umkvörtun hans til yfir- valdaruia, Forsetinn heimsækii' manninn, sem liggur veikur og illa haldinn eftir barsmíðina á fleti í kofanum, sem hann kall- ar heimili sitt. Forsetinn fyrir- skipar að taka jarðeigandann fastan og að málið skuli tekið fyrir í rétti, svo að hann og þorparar þeir, sem réðust á leiguliðann, fái makleg mála- gjöld. Slíkar sögur eru sagðar um allar Filipseyjar, og þess vegna treystir þjóðin forsetanum. F ory stuhæf ileikar. Magsaysay hefur mikla for- ystuhæfileika —• og óvanalega. — Fyrii' nokkru voru helztu embættismenn landsins kvaddir á fund forseta í fundarsal hall- arinnar. Embættismennirnir bjuggust við, að forsetinn mundi ávarpa þá með stuttri ræðu og því næst yrðu ýmis mál tekin fyrir til umræðu á öðrum vettvangi. Þegar forsetinn kom, gekk hann frá einum embættis- manni til annars og nefndi hvern og einn með skírnarnafni, hældi þeim, sem sýnt höfðu framúrskarandi dugnað, en gagnrýndi sleifarlag og mistök Það, sem muiia verður. Svo sneri hann sér að öllum skaranum: „Eitt verðið þið allir að muna framar öðru. Þið verðið að sinna öllum. þeim, sem til ykkar leita i og lítils eru megandi. Þeir, sem mikið eiga undir sér, hafa ein- hver ráð með að bjarga sér. | Það er hlutverk okkar, að! hjálpa þeim, sem raunverulega eru hjálpar þurfi.“ Svo stikaði hann salinn á enda og .mælti þaðan: „Eg veit, að starfsmenn ríkis- ins eru of lágt launaðir, og ég mun leitast við að sjá um, að þið faið launahækkun. Og eg get lofað ykkur öðru: Enginn ykkar mun auðgast í þjónustu ríkisins. Eg veit hverjar eignir hvers einstaks voru, er hann gerðist starfsmaður hins opin- bera, og eg mun vita, hverjar þær verða, er þið hættið störf- um. Þið verðið ekki miklum efn- um búnir, er þið hættið; þið verðið gráhærðir og hrukkóttir, og þið verðið þá mjög teknir að lýjast; en þið munuð verða ykkur þess meðvitandi, að hafa þjónað landi ykkar vel.“ Svo gekk forsetinn snöggt, einn síns liðs, út úr fundarsaln- um. „Próf. Gandolphi gerir uppskurðinn, en þér aðstoðið hann . . . . En hvers vegna titrar hönd yðar svona, dr. Gerbrand?“ — Mynd úr kvikmyndinni „Freisting Iæknisins“, er hér verður bráðlega sýnd;1 Skáldsagan er komin ut á veguin Regnboga- utyáfunnar.íRr bákin spennaudl og heillandi. Kaþolskir menn ofsóttir í Kína., í valdatíð kínverskra komm- únista hafa 9 rómverskkaþólsk- ir biskupar látið lífið vegna of- sókna kommúnista, sumir voru drepnir, en hinir létust í fang- elsi, en 5 eru í fangelsi. 78 var vísað úr landi. Af um 3000 rómverskkaþólskum trú- boðum, sem voru í Kína, eru að- eins 67 eftir. Rómverskka- þólski kardínálinn af West- minster, dr.. Griffin, skýrði frá þessu í stólræðu í tilefni af fréttum frá Peking' um, að 3000 manns hefðu hlýtt messu í ka- þólskum kirkjum á páskadag. Þetta gæti verið rétt, því að enn væru til kapólskar kirkjur í Kína, sem ekki hefði verið lokað, að því er virðist til þess að láta líta svo út, sem trúar- bragðafrelsi ríkti, en tölur þær, sem hann hefði nefnt um of- sóknir í garð kaþólskra manna töluðu sínu máli. N. York (AP). — Innan skamms verður úr því skorið, hvort kjarnorka verður látin knýja járnbrautalestir Banda- ríkjanna. Eru þegar til uppdrættir af „eimreið", sem knúin yrði kjarnorku, og hefur tveim dráttarvélasmiðjum verið falið ,að athuga, hversu. heptugt muni 'vérá‘' ":‘áo v smíoa sííkar dráttarvagna. Þetta er ÍR-liðið, sem vann fslandsmeistaratig-nina í körfuknattleik. er hús Iðnaðarmannafélagsins við Lækjargötu (gamli Iðnskólinn). Leigutilboð í allt húsið að undanskilinni rishseð,. sendist til gjaldkera félagsins, RagnarS Þórarins- sonar, Túngötu 36, eða Laufásveg 8 fyrir 20. þ.m. FÉLAGSSTJÓRNIN. f}¥* | HRINGUNUM fjf FRA I Þar sem VISIR kemur framvegis út árdegis á laugardögum, þurfa auglýsingar að hafa borizt blaSinu fyrir KL, 7 A FÖSTUDÖGUM. 'ezt á au Vísi. Eg undirr óska að gerast áskrifandi Vísis. Nafn .......................................... Eg undirr. . . . óska að gerast áskrifandi Vísis. Heimili ..................................... Mánaðargjald kr. 15,00. Sendið afgr. blaðsins þenna miða útfylltan eða hringið í síma 1600 og tilkynnið nafn og heimilisfang.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.