Vísir - 20.04.1955, Blaðsíða 11
Miðvikudaginn 20. apríl 1955.
vísm
II
stjóri Le Havre. Að vísu var hann álitinn heiðarlegur, stund-
vís og áreiðanlegur, en hitt duldist honum ekki, að hann átti
upphefð sína konu sinni að þakka.
Þegar Roubaud var búinn að opna sardínudósina, byrjaði
hann að vera óþolinmóður. Konan hans hafði lofað því að koma
klukkan þrjú. Hvar gat hún verið? Hún gat ekki verið heilan
dag að kaupa eina skó og nokkra nærkjóla. Þegar hann gekk'
fram hjá speglinum, sá hann að hann var brúnaþungur. Heima
í Le Havre datt honum aldrei í hug að efast um dyggð henhar,
en hann leit á París sem spillingarfen og lastabæli. Blóðið
steig honum til höfuðs og hann kreppti hnefana. Hann varð
grimmur ,sem dýr, óvitandi um sitt eigið afl, og hefði getað
kramið hana í blindri heift.
Allt i einu stóð Séverine hlægjandi í dyrunum.
— Hér er ég! hrópaði hún. — Þú hlýtur að hafa haldið, að
ég væri týnd.
Hún var há vexti, full yndjsþokka, beinasmá, en sívöl. Við
fyrstu sýn virtist andlit hennar of langt og munnurirm of stór,
til þess að hægt væri að segja, að hún væri lagleg, en ef nánar
var aðgætt, leyndust miklir töfrar í leyndardómsfullum.bláum
augunum. Þegar bóndi hennar svaraðd henni ekki, en hélt
áfram að stara á hana gremjufullu augnaráði, sem hún kann-
aðist vel við, hélt hún áfram:
— Ég hef hlaupið. Það gekk enginn strætisvagn og ég
vildi ekki eyða peningum í bíl, svo að ég hljóp alla leiðina.
Finndu, hvað mér er heitt.
— Þú heldur þó ekki að þú fáir mig til að trúa því, að
þú hafir hlaupið alla leiðina frá Bon Marché! sagði hann reiði-
lega.
Með barnslegrí bliðu tók hún utan um hálsinn á honum og
lagði hendina á munn hans.
— Vertu rólegur, slæmi strákur! Þú veizt mæta vel, að ég
elska þig.
Hún talaði af hreinni einlægni, og honum var ljóst, að hún
var saklaus. Hann þrýsti henni fast að brjósti sér. Þannig endaði
það alltaf. Hreyfingar hennar lokkuðu hann til að gæla við
hana, og hann hlóð á hana kossum, sem hún endurgalt ekki.
Honum var það sífellt áhyggjuefni, hvað þetta stóra barn var
hlutlaust og kalt í ástum.
— Svo að þú hefur keypt upp allar vörurnar á Bon
Marché, var það ekki?
— Jú. Ég skal segja þér frá því. En við skulum borða fyrst.
Þú hefur ekki grun um, hvað ég er soltin. Ég er með ofurlitla
gjöf handa þér. Segðu: „Komdu með gjöfina mína!“
Hún hló og greip um einhver hlut í vasa sínum, en tók hann
ekki upp.
— Svona nú! Segðu: „Komdu með gjöfina mína!“
Hann hló góðlátlega og lét undan henni.
— Komdu með gjöfina mína!
Hún hafði keypt handa honum vasahníf vegna þess,, að
hann hafði týnt vasahníf hálfum mánuði áður og séð mikið
eftir honum. Hann dáðist mjög mikið að hnífnum. Henni þótti
vænt um, hversu hrifinn hann var af hnífnum og hún sagði, að
hann yrði að gefa sér smápening, svo að ekki slitnaði upp úr
milli þeirra.
— Við skulum borða, endurtók hún. — Nei, ekki að loka
glugganum. Mér er hræðilega heitt.
Hún hafði gengið til hans út að glugganum, hallaði sér á
öxl hans og horfðd út yfir stöðina. Nú var reykurinn horfinn
FjárhagsáætBun
Húsavtkw.
Frá fréttaritara Vísis.
Húsavík í gær.
Fjárhagsáætlun Húsavíkur-
kaupstaðar var nýlega lögð fram.
Aætluð útsvör nema 1,4 millj.
króna. Aðalútgjöld eru 760 þús.
kr. til skólabyggingar, þar af er
500 þúsund króna lán, sem liær-
inn tekiu'.
Tíí sundlaugar eru 150 þúsund,
til slökkvistöðvar og verkfæra-
húss 75 þúsund, til sima og vega-
gerðar 230 þúsund og menntaT
mála 142 þúsund.
Mtírarar kannast ekki
við Jón D. Jónsson.
Reykjavík. 20.
Iíérrá ritstjóriý
apríl 1955.
. í tilefni af frásögn blaðsins
Vísir í gær um verkfallsmenn,
er stöðvuðu vinnu við útskipun
á brotajámi, skal þess getið, að
Jó D. Jónsson, Laugavegi 24 B,
er ekki meðlimur Múrarafélags
Reykjavíkur, enda mun hann
ekk; ha-fa nein réttindi í múr-
smíði og því ekki rétt að nefna
hann múrara.
F. h. Múrarafélags Reykjavíkur
Ásmundur J, Jóhannsson
ritari.
eóilecjt áunicir.
Verzlunin Brekka,
Ásvallagötu 1.
eóileat óumar !
r
Verzlunin Skeifan,
Snorrabt'aut 48.
'eSilecjt óumar !
Verzlun
Benónýs Benónýsssonar.
eóileqt óumar l
Toledo.
eóilecjt óumar !
Bókabúð
Lárusar Blöndal.
eóiíecjt óumar!
Sigurður Kjartansson,
Laugavegi 41.
eoiíejt óumar
f
Reiðhjólaverksmiðjan
öniinn.
eóitecjt óutnar !
Guðm. Þorsteinsson,
guHsmiður
Bankastræti 12.
eóií'icj t óumar !
Þökk fyrir veturinn.
Stórlioltsbúð,
Stórholti ltí.
/
eóitetjt óumar
/
Skóbúð Reykjavíkur,
Garðastræti 6,
Aðalstræti 8,
Laugavegi 20.
hajj'í . j ntíöhLji
eSiíecjt áumar i
Hótel Borg'.
eóilegt áumar!
í
Geysir h.f.
eoiiecjt óumar!
f
Síld og fiskur, Bergstaðasíræti 37.
Bræðraborgarstíg 5.
eSilejt óumar
f
Ullarverksmiðjan Framtíðfn.
eóueqt óumar
Veizlunin Grund.
eSilecjt óumar!
í
H.f. Shell á íslandi.
r
eSiletjt óumar!
Gamla KompanÉið h.f.
eSiteqt óumar!
f
Marteinn Einarsson & Co.
Verzlunin Edinborg.
Heildverzlun Ásgeir Sigurðssonar.
Veiðarfæragerð íslands.
eSitecjt óumar!
f
Efnalaugin Glæsir,
Háfnarstræti 5, Laufásvegi 19.
itecjt óumar
/
' 'PC>2-'VX':‘ :
Lúllabúð.