Vísir - 04.01.1956, Page 6

Vísir - 04.01.1956, Page 6
8 (TfR í ► Miðvikudaginn 4. janúar 1956 D A G B L A Ð Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. í - . f Auglýsingastjóri: Kristjan Jónsson. ij Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. ** í Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm línur). !■ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. í Lausasala 1 króna. ^ | Félagsprentsmiðjan h.f. § Hermann og kommúnistar. Þjóðviljinn hefur bersýnilega ekki tekið neina ákvörðun um þessi áramót að verða heiðarlegra blað, en hann hefur verið til þess. Þó er það venja margra aS taka ákvörðun um að byrja nýtt líf á slíkum tímamótum, gerast betri menn en áður, en Þjóðviljinn telur enga ástæðu til slíks — það mátti sjá á honum í g'ær. j í gær var það aðalfyrirsögn Þjóðviljans á fvrstu síðu, að Ólafur Thors hafi hótað því í áramótaávarpi sínu til þjóðar-! innar, að öllum kjarabótum, sem unnust í verkföllunum á síðasta ári, skuli verða rænt, og síðan er vitnað í Hermann Jónasson, sem sagði í sínum áramótaboðskap að Sjalfstæðis-^ flokkurinn skipulegði verðbólgu í þágu braskai-a og spákaup-; manna,.Þar komst hnífur Þjóðviljans að sjálfsögðu í feitt, enda ver hann mörgum dálkum til að birta spakmæli Hermanns. Hvergi í frásögn Þjóðviljans er birt einasta orð eða orðrétt setning úr ræðu forsætisráðherrans, hvergi gerð tilraun til að færa sönnur á, að hann hafi raunverulega viðhaft einhverjar hótanir við einn eða annan. Það, sem hann gerði, var að endur- taka varnaðarorð sín frá áramótunum 1954—55 og benda á, að hækkanir á vörum og þjónustu, svo og auknar álögur hins opinbera, vegna aukinna lcrafna af hendi einstaklinga þjóð-j félagsinsj hefðu nú senn etið upp allar kjarabæturnar, sem fram yoru knúðar í verkföllunum á síðasta ári. Ef Þjóðviljinn hefðij verið eitthvað í ætt við heiðarleg blöð, - hefði hann reynt að finna þeim orðum stað, sem í fyrirsögninni stóðu, en það var eitt af því, sem ekki mátti gera, því að þá hefði sézt, hversu heiðarlegur hann var. I ) En Þjóðviljanum er ekki eins meinilla við alla og Ólaf Thors, því að formaður Framsóknarflokksins, annars stjórnarflokksins, finnur fullkomna náð fyrir augum kommúnista — þessa stund- ina. Hermann Jónasson fær eins mikið rúm í Þjóðviljanum og hann þarf á að halda, því að hann fær um það bil hálfa fyrstu siðuna til umráða, auk þess sem nokkrir dálkar eru látnir í té 5nni í blaðinu. Og það verður ekki sagt, að Hermann kunni ekki lagið á að skrifa í Þjóðviljastíl. Ef höfundarnafninu væri breytt, í stað Hermanns Jónassonar kæmi nafn Brynjólfs Bjarnasonai’ eða Einars Olgeirssonar, mundu menn ekki telja neitt óvenju- lega til orða tekið —- greinin er skrifuð svo fyrir smekk og þarfir Jcommúnista. ' Það er rauiiar ástæðulaust að býsnast yfir því, að Hermann skuli skrifa eins og hann gerir. Þeir, sem hafa fylgzt með stjórn- málaferli hans (og öðrum ferli) um undanfarin ár, vita að maðurinn er haldinn sýki, sem lýsir sér í því, að hann vill fá að stjórna. Hann telur, að ísland verði ekki stjórnað nema Hermann Jónasson sé eitthvað við stjórn landsins riðinn. Og harm telur ekki, að íslandi verði stjórnað vel, nema Her- mann Jónasson sé stjórn landsins. Á þessu byggist það, að Hermann Jónasson hefur nú um árabil verið hinn blíðasti við kommúnista, og talið, að helmingur þeirra væri ágætis fólk. Það er sennilega sá helmingur kommúnista, sem Þjóðviljanum stjórnar, er telst til flokks hinna góðu kommúnista, og er því samdrátturinn kominn lengra en margan grunaði. Sú var tíðin, a'ö ekki var til neiim heiðarlegur maður hér á landi annar en Hannibal Valdimarsso-n. Hann var jafnvel heið- arlegri en kommúnistar — kaþólskari en páfinn. Ef ýtt var við honum í einhverju blaði, rak Þjóðviljinn upp skræk mikinn. Það var hverju orði sannai-a, að Þjóðviljinn vildi honum allt hið bezta, en ástir kommúnista á Hannibal urðu þeim ógæfu- sama manni að íalli. Hann valt úr valdasessi vegna dálætis síns á kommúnistum og er nú förumaður stjómmálanna. i Það verður fróðlegt að heyra hversu hátt Þjóðviljinn skrækir á næstunni, ef einhver blakar við Hermanni Jónassyni. Kom- únistar finna það, að með þeim er nokkur skyldleiki — báðir sækjast eftir völdunum valdanna vegna, og sinna því ekki, hverjar afleiðingarnar verða. Kommúnistar hirða ekki um það, þótt þeir hafi fyrir fáum árum kallað Hermann afturhaldssegg og margt verra- Ef hann getur komið þeim í valdaaðstöðu, þá er hann góður. En Hermann heldiu-, að hann níiihi sleppa betur en Hannibal, og ástir kommúnista verði sér ekki hættulegar. Hann hefur löngum verið talinn. undii’hyggjumaður, og kann að vera rétt, en valdafíkn hans mun liafa slegið hann blindu. En fari hann í slóð Hannibals, verður þó einum loddaranum færra í stjórnmálum íslands. Vélbátafiotinn stöðvaður. * UfvegsmeiMt failast ekki á tillögu rikisstjérstarinnar. Tilkynning þessi frá ríkis- stjóminni barst Vísi í gser. Undanfarna mánuði hefur ríkisstjórnin ásamt ráðunaut- um sínum unnið að því að greiða fram úr vandamálum sjávarútvegsins. Þar sem ekki hafði náðzt samkomulag' við Landssamband íslenzkra úí- vegmanna þann 30. f. m. um lausn þessa máls, ritaði for- sætisráðherra I.andssamban- inu bréf svohljóðandi: „Ráðuneytið skírskotar til viðræðna milli fulltrúa ríkis- stjórnarinnar og fulltrúa Lands sambands íslenzkra útvegs- manna um starfsgrundvöli bátaflotans á næsta ári. Mái þetta er það umfangsmikið að fyrirsjáanlegt er, að ekki mun takast að ráða því til lykta fyr- ir áramót, en innflutningsrétt- indi bátaútvegsmanna ná að- eins til fiskafurða, sem aflað hefur verið á þessu ári. Til þess að útgerð geti hafizt með eð'lilegum hætti í vertið- arbyr.jun í næsta mánuði, hef- ur ríkisstjórnin ákveðið að framlengja innflutningsrétt- indin fyrst um sinn til janúar- loka óbreytt frá því sem nú er og þá jafnframt samþykkja að núverándi álag á B-skírtéini haldist. Ríkisstjórnin mun leggja á það höfuðáherzlu að samning- ar takist við Landssambánd ís- lenzkra útvegsmanna um við- unandi starfsgrundvöll báta- flotans svo snemma í janúar sem auðið er. í þessu sambandi vill ríkis- stjórnin taka það fram að framangreint fyrirheit um framlenging innflutningsrétt- indanna er bundið því skilyrði að Landssamband íslenzkra út- vegsmanna leggi til við félags- menn sína að róðrar hefjist á venjulegum tíma.“ Næsta dag, þann 31. f. m. barst forsætisráðherra svar- bréf frá Landssambandi ís- lenzkra út\*egsmanna svohljóð- andi: „Véi’ höfum móttekið heiðr- að bréf hæstvirtrar ríkisstjórn- ar dagsett 30. des. 1955 og sam- þykkt að leggja það fyrir full- trúaráðsfund L.Í.Ú.' til úrskurð- ar og verður sá fundur haldinn 3. janúar n. k. Á fundi stjórnar og Verð- iagsráðs L.I.Ú. í dag kom fram eim-óma álit um það, að æski- legast væri að halda bátagjald- eyriskerfinu áfram, hins veg- ar var framkomin tillaga ríkis- stjórnar ekki talin fela í sér þær hagsbætur, sem nauðsyn- legar væru til þess að útvegs- menn gætu hafið róðra á kom- andi ári.“ Atvinnumálaráðuneytið, 3. janúar 1956. 31. f.m. barst forsætisráð- herra svar frá LÍÚ, þar sem sagt var, að samþykkt hefði verið að leggja bréf ríkis- stjórnarinnar fyrir fulltrúa- ráðsfund LÍÚ 3. janúar. Á fundi stjórnar og verðlags- ráðs LIÚ kom fram einróma álit um að æskilegt væri að halda bátagjaldeyrisfyrirkomu- lag'inu áfram, en framkomin tillaga ríkisstjórnarinnar ekki talin fela í sér þær hagsbætur, sem nauðsynlegar væru til þess að útvegsmenn gætu hafið róðra á komandi ári. — Þetta álit stjórnar og verðlagsráðs staðfesti fulltrúaráðsfundurinn. Þjóðaratkvæði í Súdan fer að iíkindum fram í marz næstkomandi, Bretar og Egyptar hafa nú imdirritað samkomuiag um það, en það fer fram við eftirlit al- þjóðanefndar. Mirt&jUgvstmir skriiar: Hvenær á söfnuðurinn að standa upp? Kvöldsöngur í kirkjum bæj- arins mun oftast fjölsóttur og svo var á aðfangadagskvöld síðastliðið í Dómkirkjunni. Sú kirkjuathöfn er unaðsleg í margra augum og ber margt til, hátíðaskap^ kirkja skrýdd ijós- unr og greni og síðast en ekki sízt góður söngur. Hátíðasöngv- ar síra Bjarna Þorsteinssonar eru svo hrífandi fagrir, að ís- lendingar mega hugsa til hans með þakklæti í hvert sinn, sem þeir syngja þá eða heyra. Á síðari áxum hefir þess orð-' ið vart, að fólk er tekið að standa upp fyrir stólversinu, sem stundum er sungið hér í Dómkirkjunni. Þetta er mjög' óviðeigandi og' er ekki að vita hvernig' á þvi stendur, í ís- lenzkum kirkjum hefir það verið siðui’, að sýna orðum ritn- ingarinnar þá lotningu, að hlusta á þau standandi, svo og að sjálfsögðu blessunina. Venjulega hefir því verið svo hagað, að presturinn ber fram Jbænina strax og hann er stíg- j inn í stólinn og þar næst hefir j stólversið verig sungið og síðan |er guðsjallið lesið og á meðan , á söfnuðurinn að standa, en ekki þó að stólvers sé sungið. — I Síðastliðið aðfangadagskvöld sté dómprófasturinn í stóiinn. Flutti hann fyrst fagra bæn og síðan las hann guðspjall dags- ins, Datt þá sumum í hug, að hann ætlaði að koma í veg fyrir að staðið væri upp fyrir stól- versihu í þéttá sinn, enda stóðu allir á fætur éf guSspjallið var lesið, svo sém véra ber, Siðan séttust allir. En viti menn! Þegar farið vaf að syngja stól- versið', stendur einhver eða ein- hverjir upp, og þá þurfti söfnuð urinn a'ð fai-a að dæmi þeirra. Þetta er í hæsta máta óvið- kunnanlegt. Goít væri þó að.fá að vita, hvort prestarnir hafa nokkui’n tíina óskað þess, að þessi háttur væri á hafður; það er þó ótrúlegt, þar sem pistill- ian, guðspjaliið óg bléssunin Árið 1955 endaði með litlum óspektum hérna í borginni, og var að því leytinu til ólíkt fyrri árum. Mun það mega þakka skynsamlegum undirbúningi lögreglunnar, sem sá um brenn- ur víðsvegar um bæinn og dreifði með því mannfjöldanum. Það er sýnt, að slíkan hátt þarf að hafa á í framtíðinni, þar sem allir viðurkenna að háttalag það, sem unglingarnir hafa sýnt í miðbænum á gamlárskvöld ber lítinn siðmenningar vott. Nú eru fréttirnar frá lögreglunni á ann- an veg, og er haft eftir yfirlög- regluþjóninum að ekki hafi einu sinni verið brotin rúða. Senni- legt er líka að veðrið hafi átt sinn þátt í því að fátt fóík var á ferðinni úti þetta kvöld, jafnvel ekki heldur hin venjulegu „úti- gangshross". bæjarins. Mikil ófærð. Og satt er það, úr því ég minn- ist á veðrið á gamlárskvöld, þá varð mér um kvöldið hugsað til þeirra, sem ætluðu sér á dans- leiki. Það hlýtur að hafa verið erfitt að komast í samkomuhús- in fyrir ýmsa, einkum þá, sem í úthverfum búa. Svo var ófærð- in mikil að bílastöðvar lokuðu um skeið um eftirmiðdaginn og fram yfir kvöldmatartímann, en einmitt um það leyti hefjast margir dansleikir. Þá var betra að vera heima hjá sér og hreyfa sig hvergi. En mikið skal tii mikils vinna og vel er þess vert, segir unga fólkið, að vaða snjó á móti stórhríð til þess að kom- ast á dansleik á gamlárskvöld. Og víðast hvar mun hafa verið mikil aðsókn, þótt eitthvað muni þó hafa dregið úr henni einmitt vegna þess að veðrið var sér- staklega slæmt. Hvergi uppselt. Ungur maður, sem öllum dans húsum er kunnur, sagði mér að hvergi myndi hafa verið útselt á dansleiki, og hægt hafi verið að fá miða fram eftir kvöldi víð- ast. Það er líka öðru vísi en vant er. Það er algengt að fólk, sem sjaldan eða aldrei fer út úr ( húsi að skemmta sér, fer ein- , mitt þetta kvöld á dandsleik og er auðvitað ekkert við því að segja og mjjög skiljanlegt. En fylgja gamlárskvöldsins, fylli- riið, var lieldur ekki áberandi neins staðar, svo orð sé á ger- andi. En siður er það margra að fá sér glas þetta kvöld, þótt þeir séu annars reglumenn. Þegar öllu er því á botninn hvolft, hef- j ur á'rið endað vel. Nýja árið. En hvernig byrjar svo nýja árið? Það virðist ekki blása mjög byrlega fyrir helztu atyinnuveg- ínn okkar, ef ekki tekst að semja um grundvöll fyrir sjávarútveg- Lnn. Það væri slæmur boðskap- ur hins nýja árs, ef við ættum eftir að sjá togarana og bátana bundna í höfn í stað - þess, að vera að draga björg í bú. En um það er nú samið og fylg,ia: þeim samningum vonir alka hugsandi manna að vel takist og úr rætist. Öll afkoma að heita má er undir því komin að fiskiskipin okkar stundi veiðar, en til þess þarf eðlilega að skapa þeim þann grundvöll, að hægt sé að láta mætast útgjöld og tekjur. — kr. eru þau atriði í guðsþjónust- unni, sem söfnuðurinn á . að heiðra með því að standa á fæt- ur. —i- : a . .

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.