Vísir - 06.01.1956, Blaðsíða 12
Þeir, sera gerast kaupendur VtSIS eftir
10. hvers tnánaðar fá blaðlð ókeypis til
mánaðamóta. — Siml 1660
Föstudaginn 6. janúar 1958
VlsiR **r ódýrasta biaðið og þó það fjöl-
brnvnasta. — Hringið í sima 1660 og
gerist áskrifendur.
Tiliögyr um
þjóða vekja mesta
Hinn árlegi boðskapur Eisen-
liowers til þjóðþingsins um
þjóðarhag og horfur vár lesinn
á þingfundi í gær í fjarveru
hans, en hann dvelur sér til
lieilsubctar suður á Florida-
skaga. Boðskapurinn ber vott
TLim traustan efnahag landsins,
biómlegt atvinnulíf, . góðar
liorfur á því sviði, og mikla
fojartsýni . ríkisforsetans um
samstarf frjálsra bjóða.
í þjóðarboðskapnum gerir
forsetinn jafnan grein .fyrir
þeim laganýmælum, sem hann
hyggst leggja fyrir þingið, og
eru þeirra meðal að þessu
sinni tillögur til stuðnings land
foúnaðinum, og tillögur um
foreytingar á lögum um inn-
flutning fólks.
Vekja þessar tillögur mikla
athygli og ekki síður tillögur
hans um, að Bandaríkin skipu-
leggi efnahagsaðstoð sína við
vinveitt ríki lengra fram í tím-
ann en gert hefur verið, og kem
ur fram sú skoðun í blöðum
vestan hafs og austan, að þær
tillögur, framkomnar á sama
árinu og kosið skal á þing og
kjörinn nýr ríkisforseti, beri
mikilli bjartsýni vitni. Er því
spáð, að tillögur forsetans verði
mjög umdeildar, og enn frek-
ara vegna þess, að árið í ár er
kosningaár. Allsendis óvíst sé
um undirtektir þjóðþings og
skáttgreiðenda, segir Financial
Times í London til dæmis.
Tillögur forsetans fá misjafn
ar undirtektir í blöðum vestra,
sem vænta mátti, en tillögum
hans um efnahagsaðstoð til
lengri tíma en áður, er mjög vel
íekið í brezkum blöðum í morg-
un, og segir t. d. Daily Tele-
graph að till. um þetta hefðu
átt að vera komnar fram fyrr,
því að það mundi treysta sam-
starf og öryggi^ að aðstoðin væri
skipulögð þannig.
Blöðin líta á þessar tillögur
í tengslum við einlægan ásetn-
ing forsetans um að efla og
treysta samstarf frjálsu þjóð-
anna, einkanlega að tengja
Vestur-Þýzkaland órjúfandi
samstarfsböndum við lýðræðis-
þjóðirnar í vestri.
Um breytingarnar á innflutn-
ingslögunum er það að segja,
að forsetinn 'leggur til, m. a., að
dregið verði úr innflutningi frá
þeim löndum, þar sem atvinnu
líf er blómlegt, eins og t. d.
V.-Þýzkalandi, en aukið frá
þeim, þar sem framboð á
vinnuafli er meira en þörf er
fyrir, og einnig að rýmkað verði
um innflutning á flóttamönn-
um.
Tiliögur forsetans um aðstoð
við iandbúnaðinn vekja og at-
hygli og verða án eía mjög um-
deildar og eitt helzta kosninga-
málið, en bændur hafa verið
óánægðir með meðferð landbún
aðarráðherra á málum sínum. i
Um landbúnaðarmálin mun,
hann sénda þjóðþinginu sér-
stakan boðskap, svo og varð-
andi mörg' önnur umbóta- og
framfaramál, svo tryggingar
gegn tjóni af völdum náttúru-
hamfara, stuðning við að reisa
skóla, rannsóknir á sviði læk:-.--
isfræði og vísinda, félagsmál,
umbætur á lögum um kaup-
gjald og vinnutíma o. s. frv. Þá
ber að geta þess, að forsetinn
hvetur til einfaldari tollalaga-
setningar. Enn fremur, að han:
boðaði hallalaus fjárlög á fjár
lagaárinu, sem endar 30/1
1957.
Yfirleitt þykir boðskapu
Eisenhowers bera trausti o,
bjartsýni vitni, Er margt í hoi
um talið í fyllsta samræmi vi
hefðbundnar hugsjónir Banda
ríkjamanna um frelsi og mann
réttindi hverri þjóð og hverjun
manni til handa hvar sem er .
heiminum.
M.-F. og Mollet
boða samstarf.
Mollet . og Mendes-France,
leiðtogar jafnaðarmanna og rót
| tækra, hafa hafnað tillögum
[Faures um þjóðlega samsteypu beyglaður.
stjórn allra flokka, að undan-
teknum öfgaflokkunum, komm-
únistum og Poujade-sinnum. .
í sameiginlegri yfirlýsingu
þeirra, er birt var að loknum
viðræðum þeirra í
að þeir telji rétt
þeirra (sem höfðu með sér sam-
starf í kosningunum) hafi for-
,ystu um myndun ríkisstjórnar.
Ekki sögðu þeir neitt um það,
hvernig reynt yrði að koma á
laggirnar fyrirhugaðri stjórn
„lýðveldissamfylkingarinnar",
en svo nefndi bandalagið sig í
kosningunum.
Lögregluna vant-
ar upplýsíngar.
I gær varð mannlaus bíll
fyrir skemmdum á bílastæði
við Lækjargötu.
í morgun kom eigandi bif-
reiðarinnar R-1743 *til rann-
sóknarlögreglunnar og bar upp
við haira vandræði sín. Á tíma-
bilinu kl. 1—7 síðdegis í gær
skildi hann bifreið sína eftir á
bílastæði austan Lækjargötu
sunnan Bókhlöðustígs. Þegar
hann kom að bílnum aftur
hafði framrúðan verið brotin og
„karmurinn“ fyrir ofan rúðuna
Japanír nærri
90 iniSij.
Japanir munu á næstu nlán-
uðum verða yfir níutíu millj.
Ræður hagstofa þeirra þetta
af því, að þeir voru orðnir tæp-
lega 89,3 millj. 1. okt. sl., og
hafði þeim þá fjölgað um rösk-
ar sex milljónir síðan á sama
tíma 1950.
Bentu mælingar til þess að
ca. 4 tommu planki eða borð
hafi rekist í ofanverðan bílinn
og brotið rúðina. Virðist helzt
sem vörubíl með tímbur á palli
gær, segjr, hafi verið ekið aftur á bak á
að flokkar R-1743 og valdið framan-
greindum skemmdum á hon-
um.
Rannsóknarlögreglan biður
því bílstjóra er ekið kunna að
hafa með timburfarm um göt-
una á umræddu tímabili að
gefa sig fram við hana og enn-
fremur sjónarvotta, ef ein-
hverjir eru.
Amold Benington ber Is-
lendingum vel söguna.
ðfefiBi* IInM nsai’ga fjrirlestra
ú X.-íilaiBall.
Mr. Arnold Benington skóla-
stjóri, sem var á ferðalagi hér
í sumar, liefir flutt marga fyr-
irlestra í haust eg vetur, víðs-
vegar um Norður-írland.
Hefir hann látið í ljós mikla
hrifni af landi og þjóð. Segir
hann sjálfur um þetta í bréfi til
Vísis:
„Síðan eg kom heim úr ferða-
lagi mínu um ísland í júní sl.
hefi eg haldið marga fyrir-
lestra um ísland á ýmsum stöð-
um og sagt írum frá góðvild
þeirri, sem eg hvarvetna mætti
af hálfu íslendinga og einnig
hefi eg lýst aðdáun minni á
landinu og þjóðinni. Eg ráð-
lagði fólki að fara til íslands í
sumarleyfinu, því að landið
væri fagurt og fólkið gott í sér
og1 heiðarlegt og starfsamt. Á
fyrsta opinbera fyrirlestrinum,
sem eg flutti, hafði eg uppi ís-
lenzka fánann, til þess að votta
íslenzku þjóðinni virðingu
mína.“
Vísir birti viðtal við Mr.
Benington, áður en hann fór
heim. Þessi ágæti íri er aðstoð-
ar-skólastjóri við kunnan kvek-
araskóla í Norður-írlandi.
Hann er fuglafræðingur og
kom hingað til þess að kynna
sér lifnaðarháttu jaðrakans- -
Með honum var Michael, sonur
hans, sem er kunnur fugla-
teiknari, og hafa birzt margar
myndir af teikningum hans frá
í sumar í brezkum blöðum,
Þann 14. des. s.l. fór fram kjör heiðursdoktora við lagadeild
háskóla í Helsingfors. Meðal þeirra, sem kjörnir vorn heiðurs-
doktorar, var Ólafur prófessor Lárusson. Gat hann ekki verið
viðstaddur athöfnina. Fyrir hans hönd mætti Erik Juuranto
aðalræðismaður íslands í Helsingfors. Sést hann hér ?. niynd-
inni taka á móti doktorshattinum og stafnum af Rekola pró-
fessor, forseta deiidarinnar.
WWftflíWyVVWJVVUVWJVVVWUVWVWUVVVVVWWWVVtA
Kommúnisti stjörnar Sili gegn
Frökkum í Riff.
JÞur hergast 2—3000 ntenn tjetjn
F'rökkutn.
Frönsk yfirvöld telja senni-
legt, að fyrrverandi hermaður
þeirra sé eiim helzti foringi
uppreistarmanna í Riff-f jöllum.
Er hér mn mann af Berba-
kyni að ræða, Mohammed el-
Khabousi að nafni, sem barð-
ist gegn kommúnistum í Dien-
bienfú, en var tekinn höndum
eins og fleiri. Hann var látinn
laus, þegai- honum höfðu verið
kennd fræði kommúnista og
hjálpað til að komast til Mar-
okkó, þar sem hann hefur yfir
allmiklu, harðsnúnu liði að
ráða.
Baj/I\i þessi kom heim til
Marokkó seint í sumar og hófst
þegar handa um að safna liði.
Hafði hann fengið svo marga
menn í lið með sér í lok sept-
ember, að hann gat hafizt
handa í október, og gerðu menn
hans þá árás á vinina Tizi
Ouzli, en þar voru ógurleg
hryðjuverk framin, engum
hlíft, sem fyrii' varð, jafnvel
konur og börn voru höggvin
niður.
Frökkum hefur ekki tekizt
Bifreið stolið,
fundin aftur.
í fyrradag var bifreiðinni
R-2254 stolið foér í bænum.
Bifreiðin fannst aftur í gær-
dag á horni Lokastígs og Bald-
ursgötu. — Fremur lítið hef-
ur orðið um árekstra síðustu
daga þrátt fyrir ófærðina, og
engin alvarleg slys urðu í gær.
Töluverðar kvartanir komu til
lögreglunnar út af drengjum
víðsvegar um bæinn,1 er gerðu
hríð að gangandi vegfarendum
og bifreiðum með snjókasti.
að bæla niður uppreistina í
RifÖ-béraðmu, en þa'r muúu
2—3000 uppreistarmenn vera á
víð og dreif á um 150 km. löngu
svæði meðfram landamærum
Spænska Marokkós. Það bakar
Frökkum mikla erfiðleika, að
uppreistarmenn bregða sér
norður yfir landamærin, inn á
yfirráðasvæði Spánverja, er að
þeim kreppk, og virðast spænsk
yfirvöld láta það afskiptalaust,
þótt þeir leiti hælis þar.
Ralmler 2. og Grace
Kelly opinberuðu í gær.
Tilkynnt var í gær í Monaco
trúlofun Rainiers IL fursta af
onaco, og bandarísku kvik-
myndaleikkonuimar Grace
Kelly.
Frég'nir frá Monaco herma,
að fregnin hafi vakið mikinn
fögnuð landsmanna. Mun þar
margt bera til, m.a. að ef furst-
inn deyr barnlaus tekur Fi'akk-
land við stjórn Monaco, en ekki
mun hitt vega minna, að menn
ætla að dvergi-íkinu verði fjár-
hagslegur stuðnmgur að ráða-
hagnum, en hann hefur verið
næsta bágborinn. — Allmikið
hefur verið rætt að undanförnu
í erlendum blöðum um sam-
drátt pfinsins og leikkonunnar,
sem er fríðleikskona mikil og
hefur getið sér hið bezta orð
sem leikkona og í einkalífi. Hún
er af kunnum ættum. — Prins-
inn er sem stendur vestan hafs.
• Viðtækjaverzlunin sænska
krefst nú 40% útborgunar
af útvarpstækjum, tók áður
20%.