Vísir - 07.03.1956, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 7. marz 1956.
VÍSIE
7
Hyggindi, sem í hag koma?
Meðan ég var bóksali, var
talsvert um það, ao erlendir for!
leggjarar, aðallega enskir og
danskir, sendu mér bókapant-
anir, sem þeim höfðu borizt frá
mönnum hér og bæðu mig að
annast þessi viðskipti, sem ég
þá ávallt gerði.
Þetta er bæði gamall siður
og nýr, að menn hlaupi eftir
erlendum auglýsingum og
panti frá auglýsurunum, í stað
þess að snúa sér hér til bók-
salanna. Líklega gera þeir
þetta í því skyni, eða þeirri trú,
að með þessu komist þeir að
betri kaupum. En undantekn-
íngarlítið mun raunin verða
hin gagnstæða. Bækurnar
verða með þessu móti dýrari,
fyrir utan það, að þjóðin tap-
ar með þessu móti þeim af-
slætti, scm forleggjarinn veit-
ir viðurkendum bóksala. En sá
afsláttur er frá 20% upp í 35%
útsöluverðsins. Langtíðast ætla
ég að hann sé 25%. Það var
vegna þessa taps áS Öogi~Mel-|
steð kom einn dag heim til
mín síðasta sumarið sem hann
dvaldist hér á íslandi, því hann
hafði þá uppgötvað það, að
Landsbókasafnið keypti erlend-
ar bækur beint frá útlöndum,'
svo að fyrir það tapaðist af-j
slátturinn. En Bogi var alltaf
að hugsa um heill og hag þjóð-
arinoar. Ég var sjálfur bók-
sali þegar þetta gerðist, og þvíj
fannst mér réttast að leggja
sem minnst til málsins, en lofa'
Boga að tala við sjálfan sig. En'
honum var nú heldur betur al-1
s . |
vara og sagðist mundu skrifa
um þetta í Ársrit Fræðafélags-
ins. Af því gat ekki orðið, því
að hann lézt þá um haustið.J
Skal ég líka geta þess, að ekki
fóru öll bókakaup Landsbóka-1
safnsins fram með þessum j
hætti, því það hafði allmikil j
viðskipti við mig, og mörg bók
er nú i safninu fyrir það, að eg
benti Guðmundi Finnbogasyni
á hana. Stöku sinnum hefi eg
gefið núverandi Landsbóka-
verði samskonar bendingar og
hann ávallt tekið þeim þökkum.
En það eru nú einkum ein-
s'taklingarnir, sem eg hefi í
huga. Mætti nefna mörg dæmi
um öfugan sparnað þeirra,
bæði fyrir sjálfa sig og þjóðina.
Þarflaust er þó að eyða rúmij
Vísis í langa upptalningu. Eitt
alveg nýtt dæmi gerir ná-1
kvæmlega sama gagn, því að
í flestum tilfeilum verðor út-
koman svipuð.
Shorter Oxford Dictionary
er, eins og nafnið segir til um,
frá Oxford. Þar var hún samin
og þar er hún prentuð. En eins
og aðrar meiriháttar bækur
Oxford University Press (Clar-
endon Press) er hún líka prent-
uð í New York, væntanlega eft-
ir plötum tilbúnum í Oxford,
þvj tilgangslaus fjáreyðsla væri
það, að setja hana líka vestan
hafs,- Bókin er hin mesta ger- j
semi og löngu alkunn hér á'
landi. Eg ætla að allar meiri- •
háttar bókaverzlanir í Reykja- j
vik hafi hana á boðstólum og
eg sé hana þráfaldlega í sýn-
ingargluggum þeirra. Þær selja
hana á 315 kr. En maður nokk-
ur sér hana auglýsta í amerísku
blaði eða tímariti á 25 dollara.
Kann langar til að eignast hana,
og skynsamlegt er það. Hitt er
ekki alveg eins skynsamlegt, að
hann fer í bankann og kaupir
ávísun til þess að panta þessa
ensku bók sjálfur frá Ameríku.
Nú eru $25 með bankagengi
408 kr. Þar. við bætist próvis-
ion bankans, burðargjald undir
bréfið vestur og bókina (sem
ekki er neitt smásmiði) hingað,
17,6% tollur af andvirði bókar-
ínnar þegar hingað kemur, að
ótöidu öllu ómaki, þar á meðal
við að fara með reikning í
bankann til stimplunar. Með
engu móti getur bókin kostað
kaupandann minna en 500 kr.
Að vísu eru það góð kaup. En
þó þætti mér betra kaup í
henni á 315 kr. — Dæmi þetta
er ekki tilbúið.
Ekki hefði eg minnst á þetta
ef eg væri bóksali. En það er
eg ekki, þó að illt sé að koma
þeim sannleik inn í höfuðið á
fólki. Hitt er annað mál, að eg
veit ofurlítið um bókaverzlun,
þar á meðal það, að verðlag
bóksalaima á innf luttum bókum
er svo hóflegt að mig undrar
að þeim endist það til að standa
straum af reksturskostnaði,
slíkur sem hann er orðinn. Það
er ekki gróðabragð að ganga
fram hjá þeim við kaup á er-
lendum bókum. Og allir halda
þeír sama verðlagi.
Mér virtist ekki óþarflegt að
benda á þetta.
Sn. J.
íMargí et sktítið
Kötturinn Keats reyndist
óhæfur í hlutverkinu.
Brtíftt hrallvfjtt á wíittrjttm.
Heyverkunarmálin rædd
á búnaðarþingi.
Votheysverkun, súgþurkuit, hra5þurkún.
A búnað'arþingi var nýlega
irætt um heyverkun, en hey-
verkuuarmálin eru nú ofarlega
á baugi hjá bændum og búalið-
uim, vegna dýrkeyptrar reynslu
sl. sumar, er feikn af heyi spillt-
Sst, er hefði orðið ágætt fóður
firátt fyrir vætutíðina, ef skil-
yrði. hefðú vcrið betri til vot-
lbeysverkunar og súgþurrkunar.
Auk 'þess telja mcnn, að reyna
iberi fleiri leiðir, svo sem hrað-
fturrkun o. fl.
í ályktun, sem BLmaðarþing
samþykkti, er talið nauð-
synlegt: að hver bóndi eigi,
vandaðar votheysgeymslur fyr-
ir 50% heyfengs síns^ miðað við
meðalár, og verði jarðræktar-
lögum breytt svo, að framlag
ríkisins til votheysgeymshia
verði greitt með 100% álagi, að
bændum verði gert fært að
taka súgþurrkun í þjónustu
sina (greitt fyrir lánum til súg-
þurrkunarkería og véla), að
gera tilraun til að koma á fé-
lagsvinnu með stórvirkum
tækjum, að gera samanburðar-
tilraunir á söxuðu og ósöxuðu
grasi til votheysgerðar, og að
ríki og Alþingi leggi fram nægt
fé í ofapgreindum tilgangi.
Stundum eru kettir og önn-
ur húsdýr notuð við leik- og
ócrusýniugar og þykja þá ó-
missandi.
Enskur köttur, Keats að
nafni, naut mikillar virðingar í
Sadler Wells leikhúsinu, en þar
starfar m. a. einn frægasti ball-
ett heims. Nú hefur kettinum
Keats verið sagt upp starfi
sínu, og eru bornar á hann
þungar sakir.
Kötturinn Keats átti að sitja
kyrr á 3 metra háum vegg, en
við æfingar brást hann tvíveg-
is. Keats átti að ..halda virðu-
leik sínum og jafnvægi, þrátt
fyrir hávaða heillar hljóm-
sveitar, hlátur ’ og lófatak“, en
þessum skilyrðum fullængði
hann ekki, og var kötturinn
Chirgwan því látinn taka við
„hlutverki" hans. Leikritið,
sem hér um ræðir, hét „School
for Fathers.“
Keats var valinn úr hópi 32
katta, sem hafði verið stefnt til
samkeppni víðs vegar að. Hann
er fjögurra ára gamall, svart-
ur og hvítur að lit. Virtist Keats
vera vel til lilutverksins fall-
inn, en síðar brást hann, eins
og fyrr segir, og meira að segja .
dugði ekki að bjóða honum (
„eina sardínu og tvo auka-
miða“, að því er formælandi i
Sadler Wells tjáði blaðamönn- j
um.
Eigandi Keats er frú Gay
Donne, híbýlafræðingur, sem (
telur, að Keats hafi kömizt í
allt of mikla geðshræringu við
samkeppnina, sjónvarpssýning-
ar, og loks var hún flutt í nýja
íbúð, sem mjög raskaði and-
legu jafnvægi kattarins.
Kötturinn Chirgwan, sem
tók við hlutverki Keats, er líka
hvítur og svartur högni, en
hann varð annar í samkeppn-
inni. Nú vona Sadler Wells
menn, að hann standi sig og
sýni virðuleik uppi á veggn-
um.
■ L ■
Ókeypis skólavist
í Svíþlóð.
Fyrir atbcina Norræna fé-
lagsins verður átta íslenzkum
unglingnm boðin ókeypis
skólavist 1 sænskum verknáms-
skólurn í sumar.
Hér er um þrennt að ræða:
1) Sex mánaða garðyrkju-
námskeið, sem hefst 3. apríl n.
k. Dvölin er ókeypis, en auk
þess greiðir skólinn 50 kr.
sænskar í vasapeninga á mán-
uði. 2) Fimm mánaða verklegt
og bóklegt námskeið, sem hefst
24. apríl með sömu hlunnind-
um og áður voru nefnd. Nám-
skeið þetta er ætlað unglingum
á aldrinum 15—18 ára, og
vimia nemendur hálfan daginn.
að landbúnaðarstörfum. 3)
Fimm mánaða sumarskóli, sem.
hefst 24. apríl n. k. Þar verða
kenndar bóklegar greinar, en.
vinnu ekki krafizt af nemend-
um. Dvöl er ókeypis, en ekkert
skotsilfur veitt.
ITmsóknir ásamt meðmælum
skulu sendar Magnúsi Gísla-
syni námstjóra, framkvæmda-
st jóra Norrænafélagsins hér,
Hafnarstræti 20, sími 7032.
rwvwvw^Nvvvwvvv,
f w-wvvvwv/tfVWtf’wvv
Bezt ali auglýsa í Vísí.
CENTR0TEX
ALLIR KJÓSA SÉR
TÉKKNESKAR GÆÐAVÖRUR
fíarliðianiia nærikvriiír
*
margar gerdir
Karlmanna nærhuxur
margar geröir
Kven nærlaínaður
Barna náttfök tvær gerðir
Sekkar, Ifosur,
SportsoMiar
Falles* snið ^uingiarnt vcrð hafa
afiað þcirn hvarvetna vin.«ælda.
Ailar nánari upplýsingar geínar af umboosmönnunum:
Ms'Lsíjátt t*. Gtslasttn d fo. h.f. Ifvttrfistj. 4 ftrih
CENTROTEX
Centrotex — Prag — lékkóslóvakía. >
í