Vísir - 15.06.1956, Blaðsíða 3

Vísir - 15.06.1956, Blaðsíða 3
VlSIR Föstudaginn 15. júní 1956. Réðu ráðherrar framsóknar engu? Hverjir áttu meirihluta í ríkis- stjó'rn á biðraðaárunum? Kraiar og framsókn áttn 4 ráft- lierra af sex. Tíminn er í miklum vandræðum með að verja hallæris- stjórn Framsóknar og Alþýðuflokksins á árunum 1934—1939 og grípur til hinna fáránlegustu ósanninda, til þess að reyna að afsaka 'þá óstjórn og úrræðaleysi, sem einkenndi valdatímabO þessara flokka. Og eins og vant er, þegar Tímamenn eru komnir í rök- þrot, snúa þeir öllum staðreynd- um við. Nú halda þeir því t. d. fram, að innflutningshöft hafi aldrei verið strangari en síðan Sjálfstæðisflokkurinn kom í ríkisstjórnina 1939, og loks hafi keyrt um þverbak þau þrjú ár, sem Ingólfur Jónsson hefir verið viðskiptamálaráð- herra. H Hér skýtur nokkuð skökku við fyrri skrif Tímans, því fram undir það síðasta hefir í þar þótt betur henta, að saka Sjálfstæðismenn um of mik- ið frjálslyndi í innflutnings- málum. En í einu er Tíminn sjálfum sér samkvæmur — hann talar jafnan um allt, sem nú á að hafa íarið miður.í samstjórn Framsóknar og Sjálfstæðis- flokksins eins og Sjálfstæðis- menn hafi einir ráðið öllu í rík- isstj'órninni. Hvérskonar mál- ílutningur er þetta? Það er ó- fagur vitnisburður um mann- dóm og hæfileika framsóknár- ráðherranna. Yoru þeir aðeins viljalaus verkfærí í höndum hinna? Eða e£ svo er ekki, hvernig gat framsókn tþá verið svona lengi í stjórn með Sjálfstæð- isflokknum? Hvérjum er ætlað að trúa svona málflutningi? Sannleik- urinn er sá, að enda þótt skoð- anamunnr hafi vitanlega kom- ið fram milíi flokkanna um lausn ýmissa vandamála, sem stjórnin þurfti að fjalla um, þá var þeim langoftast ráðið til lykta með fullu samkomulagi, innflutningsmálunum engu síð- ur en öðru. Hitt er svo vitan- legt, að samkomulag hefir því aðeins náðst um ágreinings- atriðin, að báðir hafi komið nokkuð til móts hvor við annan, eins og jafnan hlýtur að þurfa, þegar flokkar, sem hafa að ýmsu leyti ólík sjónarmið, starfa saman. En það er dárleg- ur vitnisburður hjá aðalmál- gagni Framsóknarflokksins um ráðherra hans, að Sjálfstæðis- mernn hafi jafnan snúið á þá í þessum viðskiptum og leikið sér að þeim eins og tindátum. En svo aftur sé vikið að haftamálinu: Hverjum er ætiað að trúa þvi, að inn- flutningshöft og vöruskortur hafi nokkru sinni síðan 1939 komizt til jafn við það sem var á árunúm 1933—1939 hvað þá meira? Jú bíðum við. Þrjú ár á þessu tímabili minntu um margt á árin 1934—1939, en það voru árin 1947—1950. Það var hið fræga tímabil biðrað- anna og svartamarkaðsins. Þá var tilfinnanlegur skortur á ýmsuni nauðsynjavörum, en smygl og allskonar óheiðarleg'- ar gróðaaðferðir þrifust með miklum blóma. En. Iivemig var ríkis- stjórnin. skipuð þessi ár? Jú, flokkar Hræðslubandalags- ins — Alþýðuflokkurinn og Framsókn — áttu 4 af 6 ráð- lierrum í stjórninni og fóru með viðskiptamálin! Ekki þurfti þetta ástand að skapast vegna þess, að þá vær: heimskreppa. Verzlunarárferð hér var þá mkilu betra en t. d næstu árin á eftir. Nei, það var aðeins gamla sagan, að um leið og þessir flokkar fá of mikil völd í þessum efnum, sigla þeir öllu í strand. Stefna þeirra er þannig, að hún skapar alltaf öngþveiti í efnahagsmálum. Þeir sjá aldrei aðra leið en innflutningshöft og pólitísk- ar innflutningsnefndir, sem hafa það hlutverk eitt, að hlyniia að gæðingum stjóm- arinnar. Það græddi margur vel á þVí, að vera framsókn- maður á þeim árum, og það var líka oft slett vel í krat- ana, til að hafa þá góða. Þjóðin hefir þannig fengið að reyna það í tvö skipti, hvernig er að trúa þessum flokkum fyrir viðskiptamálunum. Sú reynsla hefir orðið henni svo dýr, að fullkomin ástæða er til að ætla, að hún kveinki sér við hið þriðja. Dómur þjóðarinnar yfir Hræðslubandalaginu þ. 24. júní nk. verður væntanlega í samræmi við þau lífskjör, sem flokkar þess bjuggu henni þeg- ar þeir fóru með völdin. Hafi Tíminn engin betri rök til þess að verja stefnu Framsóknarf lokksíns en þau, að snúa haftapólitík hans upp á Sjálfstæðismenn, þá hlýtur að vera fokið í flest skjól í herbúðum Hræðslu- bandalagsins. Kommúnistar stefna enn a5 heimsdrottnun. Ummæli Gaitskell, foringja brezkra jafnaðarmanna. Hugh Gaitskell, formaður brezka verkamannaflokksins, sagði nýlega í New York, að leiðtogar Sovétríkjanna trúi því ennþá af trúarlegu ofstæki, að kommúnismi hljóti að ná yfir- ráðiun í heiminum, enda þótt' svo virðist sem einhverjar stefnubreytingar hafi átt sér stað handan járntjaldsins. Stórblaðið New York Herald Tribune birti viðtal við Gait- skell, sem lét m.a. í ljós skoðun sína á hinni fyrirhuguðu fækk- un í her Sovétríkjanna: „Fljótt á litið er þessi fyrir- hugaða fækkun mjög kærkom- in. En ég vildi óska þess, að okkur væri betur kunnugt um hana í smáatriðum. Er orsökin fyrir henni sú, að vegna til- komu kjarnorkuvopna, sé ekki lengur þörf á miklum her? Við vitum ekki hver heildarherafli Ráðstjórnarríkjanna er, og þar af leiðandi getum við ekki gert okkur nema óljósa grein fyrir fyrirhugaðri fækkun. En okkur er fullvel kunnugt um, að eins og stendur, er her Rússa í Evrópu langtum fjölmennari en her vesturveldanna. Eftirlit er nauðsyn. Það mun alltaf verða erfið- leikum bundið að gera sér Ijósa grein fyrir mikilvægi slíkrar breytingar, þangað til við höí- um komið á raunhæfu alþjóð- legu eftirliti með vopnafram- leiðslu og herstyrk.“ Gaitskell komst svo að orði, er hann ræddi um „hið nýja viðhorf“ í stjórnmálum Sovét- ríkjanna: „Brejiingin liggur aðeins í því að einræðisvaldið hefur færzt úr höndum eins manna í hendur fleiri manna. Ekkert virðist benda til þess, að þeir séu nokkuð fráhverfari flokkseinræði; og að því er ég komst næst af viðræðum mín- um við Sovétleiðtoganna, þá hafa þeir alls ekki í hyggju að leyfa nokkra andstöðu gegnl kommúnistaflokknum, hvorki í Rússlandi né í leppríkjum i.A Meimsyfirráðastefnan. 1 Er Gaitskell var að því spurður, hver væru skilyrðim fj7rir samkomulagi við Rússa að undanskildri sameiningu Þýzká lands, afvopnun og fleiri vel- þekktum ágreiningsmálum, svaraði hann: „Að mínu áliti mun aldrel komast á langvarandi sam- komulag milli Sovétríkjanna og hinna frjálsu landa heims, á meðan leiðtogar Sovétríkj- anna halda áfram að trúa á og vinna að heimsyfirráðum kommúnismans. Meðan þeir ríghalda af trú- arlegu ofstæki í þá skoðun sína að kommúnistastefnan hljóti að ná heimsyfirráðum, þá hljót- um við að gera ráð fyrir að þeir haldi áfram að miða stjómar- stefnu sína við öflugan áróður og efnahagslega íhlutun og not- færi sér til hins ýtrasía innan- landsdeilur í öðrum löndum og grípi jafnvel stundum itl hern- aðaraðgerða.“ Rússar eru frelsarar! í sambandi við áróður Sovét- ríkjanna í efnahagsmálum lét Gaitskell svo ummælt: „Eins og stendur er víðsvegai* í heiminum litið á okkur sem heimsveldissinna, en á Rússa sem frelsara. Þrátt fyrir það hefur Bretland nú veitt 500 milljónum manna sjálfstæði, a sama tíma og Rússar hafa und- irokað 100 milljónir manna í Austur-Evrópu.“ f sambandi við samvinnu milli kommúnista og jafnaðar- rnanna sagði Gaitskell, að slíkt samstarf gæti því aðeins orðið er kommúnistar hefðu breytt skoðunum sínum svo mjög, að þeir væru ekki léngur kom- múnistar, í þeim skilningi sem lagður er í það nafn nú á tím- um. Að lokum sagði Gaitskell: Ég tel afar ólíklegt að slíkt muni eiga sér stað, á meðan frelsi einstaklingsins, umburð- Frh. á 9. síðu. Leonard Cottrell: Zerobia drottning i er var iiEeépötru En hun varð að lúta í lægra haldi fyrir ar hennar höfðu til að bera og Odenathus, maki hennar. Zenobia vár mjög Jineigð til veiðiferða og‘ tók þátt í slíkum ferðum með rnahni sínuni. Eigi var; henni. að skapi að ferðast í lokuðum vagnij og .fór vanalega ríðandi, og gat því fyljilega not- iö þeirrar hrifningar,, sem þvi fylgir, að leggja sig í liœttur. pegar Odenatiius var lurkkað- ur til keisaralegrar tignar naut hún sömu virðingar og lxann og tvívegis stjónruðu þau sameigin- lega herferðum gegn 'hersveit- urn Persakonungs, og liröktu þær að borgarhliðum Ctesiplion. Iler- irnir, sem þau stjómuðu, og al- menningur í héruðunr þeim, sem þau frelsuðu, viðurkenndu enga valdliafa nema þau, og töldu þau ósigi'ancli. þau voru að nafninu Róiitaveldi. til þjónar keisarans, en vald hans var litlu meira en naínið tónit, og í reyndinni voru það þau, sem valdið Iiöfðu i lönd'um austur þar á þessum tíma. Palmyra var umferðar- íniðstöð. Þetta var gullöld Palmyru Hin fjölmenna ferðamannaleið yfir Sýrlandsauðnir til Persíu og Iridlands var á þeirra valdi, sem ríktu í Palmyru. Eftir hinum fögru, breiðu aðalgötum borgar- innar fóru sturidum úlfaldalést- ir, sem í voru 2000 áburðardýr, klyfjuð sekkjum með baðinullar- dúkum, kryddvörum, ibenviði, perlum og ýmsurn verðniæt.um steinum frá Indlandi og silki frá Kína, en milli bagganna sátu sólbrenndir reiðmenn, með sam- Sýrlandi, meiri. ankipruð augu og skorpnir cft- ir mánaða ferðalög u'm auðnirn- ar. í Iiúðum sínum við markaðs- torgin sátu hinir velíauðugu lcaupmenn Palmyru, boginnefj- aðir, með sáriiaribitnar varir. Grafreítamyndii' í rústúnum gefa enn til kymm hvernig þeir litu út. Eií.í íbiiöarbúsumim, í íreskó- myndski-eyttum berbei'gjum sein vissu að svölum búsagörðum, hvíldu á silkidýnu konurogdæt- ur binna auðugu kaupmanna. þetta voru konui' virðulegar og stoltar á svip, fráncygar með bá, hvelfd enni, með skrautlegan höfuðbúnað og féllu slæðurn- ar á herðar niður. Hefur )>á lýst verið nokkuð þegnum Zeriobiu, 'stríðSmönnum þeim, er liún og maki liennar leiddu til sigurs í éyðimerkur- herferðum, og þeirn, cr heima sátu, kaupmönnum og konum þeirra og dæt.rum. En nú gcrist barmleikur mik- í 11. Einn af frændum Odcnathus- ar, Maeonius að nafni, fyllist öf- und yfir velgengni hans, og myi'ðir hann. Hafði Odenathus og begnt. honmn fyrir smávægi- loga yfirsjón í veiðiferð. Zenobia bel'ndi manns sins og lét bana morðingja hans. Hún skipaði nú sess þann, er maki iicnbar hafði áður skipað, þótt hún hefði tii þess engari érfðarétt, því að Gallienus hafði að'eins sæmt. Odenallms þciin heiði'j, a.ð fara mcð stjórn. Eins pg sakir stóðu lct .Gállienus þáð þó golt heita. að, Zenobia skipaði sess ihátís. Zenobia varö að berjast. En til vaída á efiir Gáljinusi korii rómverskur hershöfðingi, síðar Markús Aurelius keis- ari, og var Iiann af al-lt öðrum málmi steyptur. Hann var lítilla ætta, cn licririn valdi hann fil keisara. Ilann var dugandi hers- höfðingi og gerðu Zenotoia og ráðamenn herinar sér Ijóst, að liún yi'ði að berjast, ætti hún að lialda völdum sínum. pegar Aurclius var í eitt hundrað milna fjarlaigð frá. Palmyru og stefndi þangað her sínum, réðst Zenobia gegn lion- um með bogmannasveitum sín- um og brynjuðu riddaraliði. Yfir- maður hers hennar var Zabdas, sem liafði getið sér frægð með því að sigra Egypta. Fyrsta orrustan var háð ná- lægt Antiokíu, hin næsta við Em- esa. í bæði skiptin fór Zenoriia fyrir liði sínu, „vopnuð sem Di- ana, en útlits sem Venus". Á sandauðninni miðri stóðu her- menn liennar i þéttuni fylking- iim. Ti! beggja liliða var ótölu legiir grúi liermunna, vopnaðir spjótúm og riðu þeir úlföídum, og vár hlutverk þcirra að finna veikan lilekk í varnarkeðju Rórn- verja. Zosimus, rómverskur sagnarita.ri, lýsir orrustunni á þessa leið: „þegar Aurelius keistari sá, að riddaraliðið frá Palmyra vai' bú- ið traustum, sterkum stálbrynj- um, skipaði hann fótgönguliði sínu og öðru liði að taka sér stöðu liandan Orontes, og skip- aði jafnírapit riddaraliði sínu að ráðast ekki til atlögu, heldur biða árásar, og haga þá vöminni seni það myndi leita undpa.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.