Vísir - 13.07.1956, Page 7
.Föstudaginn 13. júlí 1956.
VÍSIR
wlwritriviniit:
íWfcíft»Téfel-a&-;•*ibx-éft-Tn#6.7fc <■*:.*&.
rl» il-f ?■:■? rl-? rlTriT>
HAMMOND INNES
Mnamnru ununt
30
.nýjar, ef einhver hætta var á ferðum. En næstum hvert sem
augum var rennt nú gat að iíta í fjarska jakahrannir, sem
hrúgast höfðu upp og var það mikilfengleg sjón, en ekki upp-
örvandi, eins og ástatt var fyrir okkur.
Ég þorði ekki að hverfa af stjórnpalli. Gerda og Howe yoru
tíðast í klefa loftskeytamannsins og létu mig vita jafnharðan
allt, sem þau fengu vitneskju um. Fregn hafði borist frá Hval
V. um, að skrúfuöxullinn væri brotinn og að stýrið hefði skekkst
og væri ónothæft og væri nú verið að reyna að ná því af og
setja þráðabirgðastýri. Þar sem stormurinn var genginn hjá
voru þau ekki í bráðri hættu eins og sakir stóðu Hvalur V. til-
kynnti auða yök í hálfrar mílu fjarlægð og svo virtist, sem við
einn útjaðar hennar væri renna, sem mætti komasí um í auðan
sjp.
„Ég vona til guðs, að það sé leiðin, sem við erum að leita að
til þess að komast til þeirra,“ sagði eg við Howard. Dg svo fór,
að okkur bar í áttina þangað, þar til við gáíum eygt auðan sjó
, sem var í um 200 metra fjarlægð. Framundan var jakabreiða.
„Siglið á hana,“ sagði Ho.we. „Hún er ekki þykk, en gætið
þess, að stþðva vélarnar fyrst, annars getur illa íarið.“
Ég kinkaði koili pg skipaði öllum að leggjast á þilfarið í ör-
vggisskyni. Það var ekki uin annað að ræða en reyna að hætta
á þetta, því að ,ekki kom til greina að sigla aftur á bak, þá
h.efðurn við getað skemmt bæði stýri og skrúfu.
Brátt kom Kowe á þilfar og skýrði frá þyí, a.ð allir sem væru
undir þiljum hefðu verið aðvaraðir.
Þegar skipið rakst á jakabreiðuna kastaðist ég til. Það brak-
aði og br.ast í hverju ,tré í skipinu fannst mér. Mér fannst eins
og stjórnpallurinn hentist fram, svo heyrðist eins pg vélbyssu-
drunur og skruðningur .við skipshliðar báðar, og engu líkara
en skipið myndi stöðvast og kremjast milli jakanna, en svo var
eins og losaði um ísinn fyrix framan skipið, e.g bað seig fram
og rennan sem blast við augun fór breikkandi til beggja hliða.
Ég kippti tvívegis 1 eimpípustrenginn til fcess að gefa áhöfn-
inni til kynna, ,að öllu væri óhætt. Svo kom Gerda hlaupandi
upp stigann sem lá upp á stjórnpallinn.
„yið komumst í gegn,“ sagði ég.
„Ég vedt það,“ sagði hún. „Þetta var yel af sér vikið.“
Howe kom og nam staðar við hlið mér og stqð þax lengi hugsi.
„Mér þætti gaman að vita hvað Eiríkur Bland er að brugga
núna?“ sagði hann allt í einu.
„Við hvað eigið þér?“ spurði ég.
„Tauer III. svaraði aldrei, er honum var skipað að vera
reiðubúinn að hjálpa til við björgun.“
„Kannske þeir hafi ekki náð skeytinu — .eitthvað ,kann að
hafa verið í ólagi.“
„Éf til vill.“ !
„Craig, þér gerið yður grein fyrir því, að .við'■tveir erum einu
mennirnir sern vitum nægilega mikið til þess, að íá Eirik Bland
dæmdan.“
„Hvað eruð þér að fara, How?“
„Því er nú fjandans ver, að ég veit það ekki. En það er eitt-
hvað, sem legst illa í mig. Hérna erum við á hættulegum ísa-
slóðum — og ekkert skip skemmra en í 100 mílna fjarlægð —
nema Tauer III.“
„Þér eruð ekki með öllum mjalla.“
„Það held ég nú samt,“ sagðihann hægt, „ef Bland gæti losað
sig við okkur báða í einu með hægu móti, mundi hann ekki
hika.“
„Hvað um Judie, Eide, Larvik og ef til vill fleiri?“
„Hann telur sig ekki þurfa að óttast neitt þeirra — hann telur
sig geta kúgað aðra, ef þörf krefur — ella mundi hann ekki hafa
reynt að semja við yður.“
Hann fór að stappa fótunum í gólfið til þess að halda á sér
hita. „Hann hefur ráð Eide í hendi sér. Enginn, sem er á fyrstu
vertíð hjá félaginu mundi hætta til framtíðarmöguleikum sín-
um, með því að vitna gegn syni aðaleigandans. Judie getur ekki
borið vitni — gegn manni sínum.“
„Og Larvik veit ekkert — ekkert ákveðið," svaraði hann.
„Ég talaði við hann eftir að þér yfirheyrðuð hann.“
„Hvernig gat hann þá lýst svona nákvæmlega seinasta sam-
fundi Nordahls og Eiríks Bland?“' spurði ég. „Eiríkur hefur
sjálfur staðfest það, sem Larvi.k hélt fram. Hann getur ekki
hafa búið þetta til.“
„Það var ekki tilbúningur.“
Hann hætti al-lt í einu að stappa með fótunum.
„Að Bland undanteknum var Larvik sá einasti, sem sá Nor-
dahl á lífi. Hann var með honum á þilfari. Han.n skildi við
hann rétt eftir klukkan tólf. Þeim kom saman, að þokunni
mundi létta og Larvik fór að sjá um, að hann fengi bát til að
flytja sig yfir í Hval V. Þokunni létti stundarfjórð-ungi siðar.“
„En hvers vegna sagði Larvik ekki------■“
„Vegna þess, að hann vissi, að framburður hans yrði vægast
sagt talirrn vafasamur. Hann sá ekki það, sem gerðist. Hann
giskaði á, hvað mundi gerst hafa. En hann vissi nákvæmlega
hve nær Nordahl hvarf. Ef þér hefðuð sagt Bland, að upplýsing-
arnar væru frá Larvik skipstjóra, mundu þér aldrei hafa feng-
ið hann til að játa, að þeir hefðu lent í sennu Nordahl og hann
þarna við bátinn. Larvik fór aldrei dult með, að hann fyrirleit
BIand.“
„Ég skil.“
„En hvað sem um allt þetta er“, sagði Howe, „eru þau Judíe og
Larvik nú á Hval V. Ef við komumst ekki á vettvang fær
Tauer III fyrirskipun um það — og segir hann, að engin skil-
yrði séu til þess, gæti svo farið, að þeim bærist engin hjálp?“
„Eruö' þér að gefa í skyn, maður, að —“.
„Ég er ekki að gefa neitt í skyn, en ég er að velta þessu
fyrir mér. Eiríkux Bland mundi aldrei fá annað eins tækifæri.
Það er allt og sumt sem ég veit.“
Mér varð hugsað til Tauer III einhversstaðar ekki langt frá
okkur en mér fannst það hreinasta fjarstæða, sem Howe hafði
látið sér detta i hug. Ég reyndi að hrinda þessum hugsunum
frá mér, en þær voru ásælnar að skjóta upp kollinum. Eiríkur
hafði ekki vílað fyrir sér að fremja rnorð — og maður, sem
slikt gerir — og sér snöruna dingla fyrir framan sig, gæti hætt
á hvað sem er. Gg v-íst var um það, að hann var dauðskelkaður
orðinn. Ég man, að hann skalf og nötraði og það sló út á honum
köldum svita. En nú kom önnur slydduhryðja og mér tókst
loks að bægja þessum hugsunum frá.
Það hvessti í hryðjunni og það var sem þúsund djöflar stigi
dans í kringum okkur með ferlegum látum. í þetta skipti komi
hryðjan úr norðaustri og bleytuslyddan lamdist beint í andlit
okkar. Skygni var ekkert í nokkrar mínútur, en ég hætti á,
að halda sömu ferð.
Við höfðum nú stöðugt samband við Hval V. Gerda lét mig
jafnharðan vita um allt. Tveimur mílum suðvestur af hinu
laskaða skipi var stór borgarísjaki, flatur að ofan eins og
Table Mountain (Borðfjallið), nema að á suðausturhorninu var
hár tindur.
4
ktiUfyékumi
G. K. Chesterton, sem var
mjög feitur maður og Bernard
Shaw, sem var mjög magur,.
hittust einu sinni. Chesterton
sagði: — í hvert skipti, sem eg
sé þig, dettur mér í hug, að
hungursneyð ríki i heiminum.
Shaw svaraði: — Rétt er það!
Og í hvert skipti, sem eg sé þig,
hugsa eg mér, að hún sé þér
að kenna.
Skriffinnskart er söm við sig.
— Maður sem þreytti þolsund
hafði synt marga kílómetra og
ætlaði sér að ganga á land á
Long Island — hann var kvik-
nakinn. Strandvörðurinn hróp-
aði til hans í hátalara: ,,Sá sem,
engin skilríki hefir getur ekki
stigið hér á land. Farið þér strax
á burt af ströndinni!“ Sund-
maðurinn neyddist til að leggj-
ast til sunds af nýju og því nær
að fram kominn gat hann gert.
vart við sig hjá mönnum, sem.
voru á siglingu í seglbát.
Strandvörðurinn horfði hinn ró~
legasti á eftir honum í sjónauka
sínum og sá að þar var haim
tekinn um borð.
Spákonan: — Þetta er hræði-
legt! Maðurinn yðar mun deyja.
mjög bráðlega.
Konan: — Já, eg veit það. Eu
verð eg sýknuð?
I Glasgow bjuggu fjórir
bræður og einn þeirra fór úr
landi til að afla sér fjár. Að 20
árum liðnum ákvað hann 98
snúa heim aftur, skrifaði bx-æðr-
um sínum og bað þá koma og;
taka á móti sér á járnbrautar-
stöðinni. Á járnbrautarstöðinni
biðu hans þrír menn með sítt
og mikið skegg. Við nánari at-
hugun sá hann, að þetta voru.
bræður hans og heilsaði þeim
hjartanlega.
— En hvernig í dauðanum
stendur á því, að þið hafið lagt
ykkur til svona sítt skegg? sagði
hann.
Þeir svöi-uðu einum rómi:
— Þér ferst að spyrja, Sem
stakkst af með rakhnífinn.
2127
£ & Sunmflu
Nokkrir innbornir menn höíðu
tpkið Tarzan höndum og fóru með
„bann upp á klettaborgina.
Þar kyonti Tom Casey sig fyrjr
honum.
— Ef þú ert Tom Casey, þá komdu
■i. veg, fyrir að ráðist v.erði á hann
íræntía þinn, sagði apamaðurbm
. blsejsndi.
— Er Jim hér? spurði maðurinn.
— Það er ómögulegt. — Komdu ég
skai fylgja þér til hans, sagði Tarzan.