Vísir - 11.01.1957, Side 1
47. árg.
Föstudaginn 11. janúar 1957.
8. tbl.
rra
í nótt ey'.ilag'ðist farþegabíll
aS mestu leyti af eldi á Suður-
Indsbraut en þrír farþegar hlutu
brunasár og einn þeirra mjög
mikil.
Að því er Vísir hefur fregnað
var hér um leigufólksbifreið að
ræ'ða, R-7257 og í henni fimm
farþegar. Ætlunin mun hafa
verið að fara eitthvað innfyrir
bæ og sprengja þar rakettur,
sem farþegarnir höfðu meðferð
is og geymdu í kassa við aftur-
sætið.
En svo óheppilega vildi til, er
bíllinn var kominn á Suður-
landsbraut, að einn farþeginn
missti logandi vindling niður í
rakettukassann og stóð kassinn
í björtu báli á sömu stundu.
Fólkið komst nauðulega út
og þrír farþeganna meira eða
minna slasaðir. Sérstaklega
brenndist stúlka mikið, hlaut
brunasár á höndum, fótleggjum
og andliti og eftir að brunasár
hennar höfðu verið thuguð í
slysavarðstofunni var hún flutt
á sjúkrahús til dvalar og frek-
ari aðgerða. Tveir aðrir far-
þegar brenndust einnig nokkuð
og var búið um sár þeirra í
slysavarðstofunni, en fluttir
heim til sín við svo búið. Mun-
aði minnstu að bifreiðarstjór-
inn brenndist einnig en hann
slapp með það að hár hans
sviðnaði.
Þegar í stað var kallað á
slökkvilið og sjúkrabíl og vant-'
aði klukkuna þá stundarfjórð-1
ung í þrjú. Þegar slökkviliðið j
kom að bílnum var mikill eld-'
og einn
ur í honum og brann allt innan
úr honurn sem brunnið gat, en
auk þess urðu mjög miklar aðr-
ar skemmdir á honum, m. a.
bráðnaði þakið að nokkru og
virtist bíllinn að mestu ónýt-
ur. Þá má loi;s geta þess að far-
þegarnir misstu eitthvað af
fatnaði sínum í eldinum.
Kviknar í Irtaveitu!
í gær, laust eftir hádegið
varð elds vart í hitaveitustokk
í námunda við Valsheimilið. —
Hafði kviknað þar í einangrun
út frá logsuðu og varð af nokk-
ur eldur. Slökkviliðið slökkti
og skeinmdir urðu ekki miklar.
Sumarveöur
á Norðurlandi
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í morgun.
I fyrradag gerði nokkra snjó-
komu norðanlands og varð jörð
hvit en ekki snjóaði samt svo
að vegir tepptust í nágrenni
Akureyrar, né heldur að Öxna-
dalsheiði eða Vaðlaheiði yrðu
ófærar.
Nú er kominn sunnanvindur
og hláka að nýju og víðasthvar
um 5 stiga hiti í byggð. Meðal
annars var 5 stiga hiti í Gríms-
ey. en kaldast var á Gfímsstöð-
um á Fjöllum, 1 stig.
Snjóinn hefur að mestu tekið
upp aftur.
,200 déu í
Manntjón af umferðarslysum
varð meira í Bandaiíkjunum
á ríðasta ári en nokkru sinni
fyrr.
Allg biðu 40.209 manns bana
í bifreiðaslysum á árinu, en
árið áður urðu dauðsföilin.
samtals 39.969. Um jólin og
áramótin urðu daucsföll af
völdum sljrsa rú.mlega 1100, en
höfðu aldrei verið vfir 1000 á
þessum tíma árs áður.
Margar fagrar byggingar í Vínarborg urðu mjög illa úti á
stríðsárunum, en þær hafa verið endurbyggðar smám saman.
Það á t. d. við Stefánskirkjuna. Myndin er tekin úr turni henn-
ar yfir kirkjuþakið, sem hefur verið endurbyggt í sínum upp-
liaflega, gotneska stíl.
Færeyingar esga nií stærsta
togarann norðan Frakklands.
Skipið heitir Skálaberg og var
afhent í des. s.l.
Reykvíkingur fékk 500.000
kr. hjá S.Í.B.S. í gær.
Dregið var í gær í 1. fl.
Dregir var í gær í Vöruhapp-j 1 þúsund krónur
drætti SÍBS í 1. flokki. Var 1991 4089 7989 8058 11636
dregið um 200 vinninga að 12949 17369 21062 24934 39Ó69
Iieildarupphæð kr. 740 þúsund. 43283 49282 51336 51655 55841.
Hæsti vinningurinn, hálf millj.j
krónur kom í umboðinu í Aust-
urstræti 9.
Fer hér á eftir skrá yfir
vinningana:
500 þúsund krónur
« 57901.
50 þúsúnd krónur
9858. '
10 þúsund krónur
3334 10919 15570 35615 57308.
‘5 þúsund krónur
632 1680 5660 29970 46981 52215
54130 63584.
Ef.tirfarandi númer hlutu 500
króna vinning hvert:
698 1060 1132 1611 2751 2912
3101 3580 4220 4255 4435 4763
5126 5152 5243 6071 6075 6101
6389 7285 7322 7473 7897 8213
8327 8396 8442 9624 10051 10117
10390 10516 10855 11106 12008
12175 12331 13241 13960 13964
15797 16348 16506 16561 17497
17559 17575 17931 18400 Í8584
18896 19015 19017 19425 20230
20278 20296 20714 21135 21139
21320 21383 22163 23259 24272
24316 24600 24931 25959 26091
Framh. á 11. síðu.
Alltaf cru að koma fram ný og
fullkomnari fiskiskip og Fær-
eyingar, sem almennt er lialdið
að ekki eigi önnur skip en skút-
urnar gömlu, hafa nú gengið
feti framar öðrlun í nýsköpun
og látið b.vggja fyrir sig stærsta
; og fullkomnasta togarann norð-
an Frakklands, að undanskild-
um brczka tilrauna- og verk-
I smiðjutogaranum Fairtry.
Togarinn, sem heitir Skála-
berg og er eign Kjölbro h.f., var
byggður í þýzkri skipasmíða-
stöð. Skálaberg kom til Aber-
deen á heimleið frá Þýzkalar.di
í desemberlok sl. og tók þar
veiðarfæri og ýmsan útbúnað.
Var brezkum útgerðamönnum
og öðrum boðið að skoða skipið
og lýstu þeir hrifningu sinni á
skipinu, sem þeir nefndu „undra
skipið“ því að útbúnaður þess
og frágangur allur þykir vand-
aðri en á öðrum togurum.
Skálaberg er byggt með það
fyrir augum, að því sé hægt að
halda lengi úti, án þess að koma
í höfn og þá aðallega við Græn-
land, ísland og Bjarnareyjar.
íbúðir áhafnarinnar eru rúm-
góðar og ætlaðar fyrir 52 menn.
en þegar skipið veiðir í salt er
svo fjölmenn áhöfn nauðsyn-
leg. Þegar skipið veiðir í ís er
gert ráð fyrir að 24ra manna
áhöfn þess dveljist aftur í skip -
inu, en viðbótaríbúðirnar eru
fram í.
Byrðingur skipa er nú al-
mennt rafsoðinn, en Skálaberg
er hnoðað, nema brúin, sem er
rafsoðin. Þá er skipið búið
frystitækjum. Lestin getuv tek-
ið 500 tonn af saltfiski og er
sérstakur gangur ofan í hana
fyrir aftan frammastrið og var
hann settur að undirlagi skip-
stjórans K. Jóhannessens.
Lunningin er mjög há til að
veita þeim skjól, sem vinna á
þilfari og verða hásetar að
standa á pöllum, þegar taka
þarf inn vörpuna.
Skipið hefir 1500 hestafla vél
og gengur fullhlaðið 14.3 sjó-
mílur. Þrjár ljósavélar skipsins
framleiða 185 kilóvött. Þá er
og mjög fullkomið viðgerðár-
verkstæði áfast vélarrúmi.
í olíutanka skipsins koinast
302 tonn af brennsluolíu og 42
tonnn af díselolíu fýrir hjálp-
arvélarnar. Lýsistankarnir
rúma 42 tonn af lýsi.
áir mergsug^
bppþjcðiraar,
he»ÍBBB!Ím Bseí
&flBt $B ie BSSg&BB f%'» Í«i f).
Eftir að kr.nnugt varð um efna
hagsaðsoð fþá, sem Báðstjórnar-
ríkin .hafa lofað Austur-Þýzka-
Iandi, hafa hin kommúnistarík-
in borið fram kröfur um lán og
aðra aðstcð.
Brezkur stjórnmölafréttarit-
ari kemst svo að orði um þetta,
að Rússar verði nú að hætta arð-
ránsstefnu sinni í þessum lönd-
um; eigi þeir ?ð kornast hjá
slíkum viðburðum, sem gerð-
ust í Ungverjalandi, en til þessa
hafa þeir arðrænt þessi iönd
miskunnarlaust, með því að
knýja þau til að láta mikilvæg-
asta útflutning sinn í þeirra'
hendur. Þeir geta ekki lengur:
mergsogið þessar þjóðir. —
Chou en-Lai er nú kominn til
Moskvu. Alþýðulýðveldið kín-
verska telst vitanlega ekki í
flokki ]eppríkja_ en þarfnast
efnahagsaðstoðar eigi síður en
þau.
HerSið gegn stúdent
í Staííngrad.
Fyrir nokkru var herliði atf
gegn stúdentum í Stalingrad og
skutu hermennirnir yfir höfu®
stúdenta til að stöðva mótmæla-
kröfugöngu þeirra.
Þeir fóru í kröfugönguna að
því er Vinarborgarfregnir
herma, til þess að mótmæla
handtöku tveggja háskólakcrn-
ara, Kirilenko og Zajaeusssao,
og 40 stúdenta.
Verkamenn í fjórum verk-
smiðjum í Stalíngrad hótuðu að
gera verkfall til þess að mót-
mæla framkomu herliðsins. Sex
stúdnetar, sem þátt tóku í mót-
mælunum voru handteknir og
sakaðir um að vera „erlendir
agentar", en var síðar sleppt.
VISIR
kcmur út kl. 11 árdegis á
morgun, Iaugardag. Efni ber að
skila fyrir kl. 9 í fyrramálið, j