Vísir - 11.01.1957, Side 7
Föstudaginn 11. janúar 1957.
vfsm
71
Morðöld á Sikiley vegna
borgarastríðs í Mafíuaini.
Hlorð eru þar nú tíðari en
nokkru sinni fyrr.
Mikil úöld geisar nú á Sik-
iley og meiri en nokkru sinni
fyrr. Hefur ekki verið jafnmik-
ið um morð og morðtilraunir
J>ar síðan bófaíoringinn Giu-
liano var myrtur fyrir fimm ár-
um.
Fjórtán manns hafa verið
drepnir eða særðir í Palermo
upp á síðkastið og stendur lög-
reglan uppi ráðalaus gagnvart
þessu. Ástæðan fyrir morðum
Jiessum er barátta um yfir-
höndina í Mafia-félagsskapn-
um, sem nær yfir Sikiley og
Bandaríkin og er almennt kall-
aður „Svarta höndin“. Allar til
raunir lögreglunnar stranda á
hinni svonefndu ,,Omerta“, hin-
um óskráðu lögum um að eng-
inn félaganna megi leita hjálp-
ar logreglunnar, eða veita henni
aðstoð.
Fyrir viku bæítist enn eitt
nafn á skrá lögreglunnar yfir
hinu myrtu. Var það efnaður
kaupmaður í Palermo, Nicola
d’Alessandro, 60 ára, sem var
skctinn til bana fyrir framan
hús sitt þar á staðnum.
3>rír menn myrtir
í ágúst.
Um sama leyti varð annar
ríkur kaupmaður, 75 ára gam-
all, Guiseppe di Peri að nafni,
fyrir byssukúlum bófa, þar sem
hann var staddur skammt fyrir
utan borgina. Komst hann líís
af úr árásinni, en mikið :ærð-
ur.
Seinni hluta ágústmánaðar
voru þrir aðrir ríkir Sikiley-
ingar myrtir^ en allir voru be'r
þekktir áhrifamenn innan
Mafia-bófaflokksins. Lögreglu-
mönnum hefur verið fjölgað, en
það hefur engan árangur borið.
Maíia er gamalt ítalskt bófa-
félag', og „góðgerða- og blóð-
peningafélag“. Það er talið
stærsta og voldugasta glæpa-
mannafélagið í veröldinni. Fyr-
ir sex mánuðum lézt aðalfor-
ingi þess, sem stjórnaði sam-
jtökunum bæði á Sikiley og í
I Bandaríkjunum. Hann er tal-
jinn ríkasti maður á Sikiley og
þekktur sem foringi „Svörtu
handarinnar“. Þó gat lögreg'lan
aldrei aflað sannana gegn hon-
! um. Eftir dauða þessa manns
hófst reipdrátturinn um völdin
og geisar hann nú báðum megin
Atlantshafsins.
Einn þeirra, sem drepinn var
nýlega, er Antonio Cottone.
Hann var bræðrungur Josefs
Profacts í New York, sem
Kefauver varaforsetaefni taldi
foringja Mafiunnar í Banda-
ríkjunum. Talið er að Mafian
eigi mikil ítök meðal stjórn-
málamanna í Ameríku og á
Ítalíu.
Þá er nú einnig barist um
j Útflytjendur
drepnir.
yfirráðin yfir svarta markað-
inum á . Sikiley^ sem talin er
vera mikil auðuppspretta fyrir
bófahringinn. Allir, sem drepn-
ir hafa verið undanfarið í Pal-
ermo, eru kaupmenn, sem flytja
út appelsínur og aðra ávexti í
stórum stíl. Því er nú haldið
fram, að morðið á Giuliano hafi
á sínum tíma verið „af heim-
ilisástæðum“, sem sé í átökum
innan félagsskaparins, og að
hann hafi ekki verið drepinn í
átökum við Iögregluna, eins og
haldið var fram. Þetta upplýst-
ist nýlega í réttarhöldum. Þyk-
ir nú víst^ að Pisciotta nokkur
hafi drepið Giuliano, en
Pisciotta var honum næstur að
tign í Mafiunni. Hafi þetta ver-
ið fyrirskipun innsta hringsins.
Nú nýlega dó Pisciotta af eitri,
þar sem hann var í haldi í fanga
klefa lögreglunnar í Palermó.
Var faðir hans með honum í
fangelsinu og er talið, að hon-
um hafi verið fyrirskipað að
drepa son sinn. Síðan drakk
bikarnum og' létust þeir báðir
bikarnum o glétust þeir báðir
í sama klefanum.
MENNTIR Ofi LlSTIR
íbúum borgarinnar Washing-
ton D.C. mun bráðlega gefast
kostur á að sjá óperur, er sýnd-
ar verða á vegum félags, sem
nýlega hefir verið stofnað í
þessu skyni þar í borg. Nefnist
það „The Opera Society. of
Washington1^ og munu meðlim-
ir þess vinna endurgjaldslaust.
Fyrsta sýning félagsins verður
31. janúar nk. Þá verður sýnd
ópcran „The Abduction from
the Seraglio“ eftir Mozart. Paul
Gallaway stjórnar hljómsveit
félagsins, en hana skipa með-
lirnir úr National Symphony
Orchesta R. E. Finkenstaedt,
sem hefir veið framkvæmda-
stjóri hljómsveitarinnar sl. 5
ár og átt sæti í stjórn hennar í
20 ár, mun verða formaður hins
nýja félags.
★
James M. Gain, hinn vel
þekkti rithöfundur sem m. a.
hefir skrifað bókina „Pósturinn
hringir alltaf tvisvar“, hefir nú
samið leikrit, sem nefnist „Gest
urinn í herbergi nr. 701“. Leik-
ritið er sorgarleikur, sálræns
eðhs. Allur leikurinn fer fram
í hótelherbergi í New York.
★
Bassasöngvarinn Boris Krist-
off, sem er fæddur í Búlgaríu,
kom nýlega í fyrsta sinn fam í
Bandaríkjunum — við óperuna
í San Francisco. Hann söpg þar
aðalhlutvcrk í óperunni „Boris
Godunov“ eftir Mussorgsky og
hlaut einróma lof allra gagn-
rýnenda.
Gagnrýnandi stórblaðsins.
New York Times í San Fran-
cisco sagði, „að söpgur Krist-1
offs í hlutverki Boris Godunovs!
hefði verið svo góður, að helzt
mætti líkja honum við söng
hins frábæra rússneka söngvara
Feodors Chaliapins."
★
Leikritið „Marco Millions".
eftir Eu?ene O’NepI. s(-m <?vnt
var í fyrsta skpti í New York
árið 1928, mun nú verða sýnt
þar aftur í vetur.
Alfred A. Knopf í New York
hefir nýlega gefið út bók í
Bandaríkjunum eftir Margaret
Just Butcher. Bók þessi nefnist
„The Negro In American Cul-
ture“. Fjallar hún um þróun
negrahljómlistar, dansa- og
þjóðsagna og áhrif negra á list-
ir og hljómlist, bókmenntir og
leiklist í Bandaríkjunum.
Bandaríska tónskáldið Virgil
Thomson hefur veitt viðtöku
Edward B. Benjamín verðlaun-
unum, er nema 1,000 dollurum.
Verðlaun þessi fékk hann fyrir
tónverk, sem mun verða flutt í
fyrsta sinn af Fílharmóníu-
syfóniuhljómsveitinni í New
Orleans. Sl. ár voru verðlaunin
veitt tónskáldinu Paul Nordoff
fyrir hljómsveitarverk, ser.i
nefnist ,,Lento“ og var það flutt
af New Orleans hljómsveitinni.
Þekktust verk Virgils Thom-
sons eru „The Plow That Broke
the Plains“, ,,The River“, „The
Louisiana Story“ og óperan
„Four Saints in Three Acts“.
Hann hefur einnig samið sym-
fóníur, strengjakvartetta og
ballethljómlist.
*
Frank Callan Norris hlaut
nýlega skáldsagnaverðlaunin
Harpers. Verðlaunin, er nema
10,000 dollurum, hlaut hann
fyrir söguna „Turninn í vestri“
(The Tower in the west) er út
kemur í þessum mánuði. í
dómnefndinni áttu sæti eftir-
taldir menn: Jessamyn West og
Hamilton Basso, sem bæði eru
rithöfundar, og Orville Pres-
cott, bókagagnrýnandi stór-
blaðsins New York Times.
Rúmlega 800 skáldsögur bárust.
Norris hefur skrifað aðra bók,
sem nefnist „Nutro 29“, og kom
hún út árið 1950.
»
Pearl S. Buck er hlaut
Nóbelsverðlaunin árið 1938
fyrir bækur sínar um lífið í
Kina, hefur nýlega samið leik-
rit fyrir sjónvarp.
Um það segir gagnrýnandi
blaðsins New York Times:
„Leikritið er frábærlega fagurt
og í því felst ódauðlegur sann-
leikur“.
Leikritið heitir „The Big
Wave“ og fjallar um ríkan, vitr-
an öldung, er bjó í Japan, ör-
uggip' í kastala sínum hátt uppi
í klettum. Hann hafði enga
samúð með hinum heimsku
bændum og fiskimönnum, ev
bjuggu mitt á milli tveggja!
hræðilegra náttúruafla eld-
fjallsins og hafsins. En í hvert
skiptp er ógæfan hafði dunið
yfir, kom alltaf ný kynslóð fram
á sjónarsviðið og bauð hættum
náttúrunnar byrgin og þar óx
upp kynslóð eftir kynslóð, er
lifði í ást og von. Boðskapur
þessa leikrits er, að ekkert nema
einmanaleikinn sé hlutskipti
þeirra, sem óttast dauðann, líf-
ið sé til þess að lifa því.
*
Leopold • Stokowskp sem er
fastráðinn stjórnandi Houston
symf óníuhlj óms veitar innar,
hefur boðið Sir Malcolm Sar-
gent, Andre Kostelanetz, Pierra
Monteux, Victor Alessandro,
Walter Herbert og Maurice
Bonney að stjórn hljómsveit-
inni sem gestir. Sjálfur mun
hann stjórna 14 hljómleikum,
og verða 7 þeirra helgaðir
hljómlist eftir Beethoven.
Lundúnafundur
um Suezskurð.
Eftirtalin lönd eiga fulltrúa í
Súez-saintöknnum (notcnda-
samtökunum), en sendiherrar
þeirra komu saman á fund í gær
í Lundúnum. Sjö manna nefnd
samtakanna hafði áður haldið
tvo fundi:
Bretland, Bandaríkin, Frakk-
land, Danmörk, Noregur, Sví-
þjóð, Vestur-Þýzkaland, Spánn,
Portúgal, Tyrkland, Ástralía,
Nýja Sjáland, Holland, Ítalía
og írar..
Eins og áður hefir verið g-?t-
ið, hefir Hammarskjöld skriíað
öllum 80 þjóðunum í samtökum
Sþ. um þátttöku í kostnaði vi'j
ruðning Súezskurðar, en flest
hafa málið enn til athugunar.
Bandaríkin hafa þegar lofað til—
lagi og V.-Þýzkaland, gegn þv',
að framlagið verði síðar dregið
frá skurðgjöldum þýzkra skipa,
sem um skurðinn fara.
sem auglýst var í 31., 32. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins
1956 á eigininni Suðurlandsbraut H. 91. F, talin eign Ás-
geirs Einarssonar, fer fram eftir kröfu tollstjórans í Reykja-
vík, á eigininni sjálfri miðvikudaginn 16. janúar 1957 kl.
2 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Íbiiðaskípíá
Vil láta einbýlishús (fokhelt raðhús) í skiptum fyrir
3ja cða 2ja herbergja íbúð. Tilboð leggist inn á afgr. blaðs-
ins merkt: „Einbýlishús — 341.“
SiiJóIieiigHir
flestar stærðir fýrir fólksbifreiðir. Þverbönd, lásar, krókar,
langbönd, keðjutengur. — Fyrir vörubifreiðir: Langbönd,
krókar, lásar og keðjur.
SMYRILL,
hÚHÍ Sameínaða. geont Hafnarhúsinu.
Sími 6439.
Karlmann&bðjiisur
úr gúrnní, spenníar cg mco rennilr.s.
iiarlnianii£jskóh|sfaB‘
meS stífíim hælkappa.
Skóverzlan Péturs AiidréssDnar
Laugavegi 17.
Skéverziiinin Framnesvegi 2