Vísir - 19.01.1957, Síða 7
Laugardaginn 19. janúar 1957
vísm
T
EOISOINi MARSHALL:
mmt
■ 30
iaHBHBEHaaEHMEtEHMSaHíHHHaSæfflHHESEHHSESSa
verðum við að skilja. Dýrlingar mínir krefjast þess, að ég
giftist kristnum prinsi og eignist kristinn son.
— En því ekki að leika á þá og giftast mér í kvöld? Öldurnar
munu þylja töfraorð, sem-lengja okkur saman. Við þurfum ekki
annað en að standa á ströndinni og hlusta. Svanirnir munu sjá
um sönginn, sem verður fegurri en söngur óþroskaðra drengja
í kristnu musteri. Því næst munum við kveikja bál, hita vatn
og baða hvort annað. Síðan munum við liggja nakin undir
stjörnunum.
— Vertu kyrr! Þetta eru hræðileg orð og þú ert of djarfur.
— Værum við ekki samvalin. Þú ert lítil og yndisleg og
liúð þín er fínlegri og mýkri en fínasta silki. Samt lifðirðu af
að sigla á frísnesku kaupskipi frá Wales til mynnis Humber-
fljóts, og síðan á dreka þaðan. Þú gætir siglt með mér hin
breiðustu höf.
—• Veiztu, hvaða haf er breiðast allra hafa?
— Nei.
— Það er hafið, sem skilur kristinn mann og heiðinn.
— Og samt sitjum við hér og höldumst í hendur.
— Það er aðeins sameining holdsins, en ekki andans.
Látum þá hold okkar sameinast. Það er engin synd, því að
sál þín mun halda áfram að vera kristin, en mín heiðin.
— Þú ert kænni en ég hélt — og miklu meiri þrjótur líka.
— Sé svo valda töfrar þínir því.
—; Þú ert hagsýnn í kænsku þinni. Þú kannt orð, sem
blekkja margar konur og koma þeim til að álíta að svart sé
hvítt, svo að þær mundu fórna þér meydómi sínum. Ástríða
þín er svo sterk.
— Ég hef aldrei svipt neina jómfrú meydómi og aldrei sótzt
eftir því.
— Þú kannt samt að kynda undir hégómaleikanum í hugum
xingra kvenna.
— Ég hef stigið í vænginn við þrjár eldabuskur, áður en ég
komst til fullorðins ára. Síðan hef ég aðeins stundað dýra og
mannaveiðar. Og ef frá eru teknir hugarórar er ég hreinn
sveinn.
— Ég vissi ekki fyrri en Morgana vafði handleggjunum um
háls mér og ég drakk dögg lífsins af munni hennar.
Ég hafði aðeins tekið það, sem Morgana hafði gefið af fúsum
vilja. Þegar hún spratt á fætur og hljóp til bátsins, var það
ekki sakir þess, að ég hefði tekið meira en hún hafði leyft,
heldur hafði hún orðið hrædd við sjálfa sig.
Morguninn eftir þegar sólin rann upp, blóðrauð; var sjórinn
lygnu að öðru leyti en því, að smágárar bærðust á yfirborði
hans, en þegar leið á daginn fór að hvessa og um nóttina gerði
fárviðri. Um morguninn sagði ég við Morgana:
— Heldurðu, að þinn guð hafi sent þetta fárviðri?
— Hvers vegna hefði hann átt að gera það? Ég hefði heldur
viljað kenna það þínum guði, Óðni.
— Ég hélt að þinn guð hefði ef til vill orðið reiður, af því
að þú kysstir heiðinn mann.
— Ef hann væri svo ómannúðlegur, mundi ég heldur vilja
deyja og fara til Heljar.
—• Ef til vill hefur hann sent fárviðrið af ást á þér, til þess
að sökkva flota Hastings og drekkja mönnum hans. Ég þekki
suma þessara manna og hef stundað veiðar með þeim, en ég
j vildi gjarnan að líkum þeirra skoláði á land, af því að þeir eru
, að elta þig.
J — Þetta er ekki fallega hugsað, og ef eitthvert okkar hinna
kristnu segði þetta, mundi guð okkar verða reiður. En ef til
j vill fyrirgefur hann þér, af því þú veizt ekki beiur.
— Það er erfitt að þóknast guði þínum, Morgana.
— Við hvað áttu?
— Ég vildi, að þeim væri drekkt, af því að þeir hafa hegðað
: sér illa gagnvart kristinni prinsessu.
— Það er ekki satt, Ogier? Það var ekki vegna þess, að ég
var kristin, sem þú óskaðir, að hefnd kæmi fyrir rangsleitnina,
sem ég var beitt. — Það var vegna þess, að þú elskaðir mig.
Ég dró hana að mér og reyndi að kyssa hana.
— Bíddu, Ogier! hvíslaði hún. — Heldurðu, að við sleppum
lifandi úr þessu fárviðri? Heyrirðu, hvernig það æðir?
— Líkurnar fyrir lífi og dauða eru hér um bil jafnar.
— Og þú talar svo rólega um þetta.
— Það er vegna þess, að ég fæ þar engu um þckað.
— Hvernig fer, ef báturinn brotnar í spón?
— Ég tek þig á bakið og reyni að komast til lands. Og þegar
öll von er úti, drukknum við saman.
— Þú ætlar ekki að yfirgefa mig.
—< Mér þótti vænt um, að það var dimmt, þvi að aug'u mín
fylltust tárum.
— Nei, sagði ég, eins stuttaralega og ég gat.
— Mér þætti gaman að vita, hver yrði síðasta hugsun mín.
— Ég geri ráð fyrir, að þú inundir hugsa um það, hve ham-
ingjusöm þú værir að vera kristin og fara til himna.
Nei, mér mundi ekkert liggja á að fara þangað. Ég var að
brjóta heilann um þetta í alla nótt. Ef satt skal segja bað ég
þess, að fara ekki þangað beina leið. Ef til vill er guði sú bæn
ekki þóknanleg.
— Hvert viltu þá fara. Ég mundi ekki vilja, að þú færir
með mér til Heljar, því að þar yrðirðu rifin sundur af skrímsl-
um. Og nú gat ég ekki lengur talað rólega.
— Hefurðu nokkurn tíma heyrt talað um Avalon?
— Nei.
— Gamla fólkið sagði, að það væri eyja langt í vesturátt.
Áður en við Walesbúar urðum kristnir, fóru hetjur okkar
þangað og settust þar að, því að þar dóu menn aldrei. Það er
ekki önnur eins dýrð þar og í himnaríki. Þar eru hvorki gullin
torg né englasöngur. En þar er iðjagrænt og fagurt, aldrei
hvassir vindar og þar fellur aldrei snjór. Mér datt í hug, að
í stað þess að drukkna mundi okkur ef til vill skola upp á
strönd þessa lands. Ég bað guð þess, að lofa mér að fara til þess-
arar eyjar í stað að fara til himins, ef hann vildi lofa þér að
40
k*v*ö*I*il*v*ö*k*u*n*n*i
■ fara þangð líka.
Guð þinn hefur ekkert með það að gera.
— Ó, hafðu ekki svona hátt. Ég átti ekki við það á þann
hátt. Ef þú villt vita það, bað ég þess sama, áður en ofviðrið
skall á — eftir að við kysstumst við bálið. Óðinn og Satan er
eitt og hið sama og okkur er kennt, að Satan gnísti tönnum í
hvert skipti, sem kristin sál fer til himins — og ég hélt, að
Óðinn yrði svo glaður, þegar ég færi til Avalon, að hann leyfði
mér að fara þangað með þér í stað þess að senda þig til Heljar.
— Það virðist skynsamlegt.
— Ég hélt það. En hafi það verið glæpsamlegt að ætla sér
að semja við hann, hef ég gert það, sem var enn glæpsamlegra.
Ég bað sólargyðjuna þess, að við fengjum að íylgjast að til
Avalon og dveljast þar saman um alla eilífð. Nú geturðu ákall-
að Óðin, ef þú vilt.
— Nei, ég mun ekki ákalla hann.
— Ef til vill hefur guð sent ofviðrið til þess að refsa mér.
Sennilega vill hann ekki lofa okkur að fara til Avalon, en'
ætlar að drekkja okkur. Ég sagði, að mér þætti gaman að
vita, hver yrði mín síðasta hugsun, en ég veit það vel.
— Segðu mér, hvað það er, Morgana. Ég elska þig. Enginn
dýrðingur gæti elskað þig heitar en ég. Og þú segir dýrðling-
um þínum öll leyndarmál þín. I
Mín síðasta hugsun yrði sú, að mig mundi’ iðra þess, að við
höfum ekki kysst hvort annað meira en við höfum gert. I
I þýzku blaði, sem gefið er út
í Munchen birtist svolátandi
auglýsing:
„Stúlka óskast til morgun-
verðar“.
Amerískur hernámsmaður
sem staðsettur hafði verið í
Mannheim í Þýzkalandi átti
vinkonu búsetta í Worms. Nú
hafði hann ákveðið að heim-
sækja hana en skorti farar-
tækið. Gerði hann sér þá lítið
fyrir og tók 49 lesta skriðdreka
traustataki frá hernum og hélt
af stað á honum. í Ludwigshaf-
en festist skriðdrekinn. en lög-
freglan var þá nýbúin að fá
|tilkynningu um að skriðdreka
jhefði verið stolið Handtók hún
hinn ástfangna hermann og af-
henti hann, ásamt farartækinu,
ameríska hernum.
*
Borgarráðið í Karlsruhe hafði
ákveðið að reisa uppfinninga-
manni prentlistarinnar, Jó-
hannesi Gutenberg, mih'nis-
merki þar í borg og yrði það
standmynd af honum sjálfum.
Ákveðnum listamanni var
falið að gera myndina og sýndi
hún prentmeistarann skegg-
lausan með öllu. Þetta síðasta
atriði hefur vakið deilur þár í
borg. Prentarar heimta að skegg
verði sett á Gutenberg, en borg-
arráðið neitar að leggja í þann
kostnað og færir sér til máls-
bóta að á 15. öld hafi ekki aðrir
vérið með skegg en pílagrímar
og júðar.
¥
Með sólgleraugu á nösum og
tilbúið yfirvararskégg gat tugt-
rhússfangi í Mílanó læðst svo
Iítið bar á inn í 'hóþ' lögfræðinga,
sem voru að skoða fangelsið.
Þegar þeir voru búnir að sköða
fangelsið til hlítar og yfirgáfu
það, var fanginn enn í þeirra
hópi og komst þannig undan.
Listamannaklúbburinn
í Leikhúskjallaranum er lokað-
ur á mánudaginn vegna jóla-
trésskemmtunar leikara. Ann-
an mánudag er klúbburinn aft-
ur opinn eins og aðra mánudaga,
og um kvöldið verða frjálsar
umræður um framtíð klúbbsins
og Bandalag íslenzkra lista-
manna, sem heldur framhalds-
aðalfund sinn sama da".
£ & Sumiqk*
— TAHZAN
2270
Nú var uúið að velja fljótustu
hlauparana og Tarzan sneri sér nú
að hinum, sem eftir voru.
Farið og bíðið í Vakubi þorpi og Tarzan, Hemu og hinir fótfráu uppi Tantor hinn tryllta og nú
þið munuð brátt heyra tíðindin, ef menn þustu út í skóginn til að leita byrjaði leikurinn.
okkur heppnast.