Vísir - 22.02.1957, Síða 10
10
VÍSIR
Föstudaginn 22. febrúar 1957
■ ■■■
■ ■■■
EDISOIM MARSHALL:
■ ■■■
■ ■■■
■ ■■■
■ ■■■
VíkiHyurim
58
IBI
l999BíIlDS9EE!BnESBI3BBBIBa
!• — Þú komst ekki hingað til að tala um þetta, sagði ég.
— Nei, satt er það. Ég minntist þess, að þú sagðir mér aðj
Alan hefði ekki verið með þér, þegar þú flýðir undan Ragnari
við mynni Elbu. Ensku pílagrímarnir sögðu mér, að hann hefði
um þetta leyti verið við hirð Aella.
Hann þagnaði. Ég sagði ekki neitt, en varð forvitinn á
svipinn.
j — Þeir sögðu mér líka, að þar hefði Ragnar lát.ið lífið.
' — Trúirðu þeim? spurði ég.
sem ég hef nokkru sinni óttast. Hvað finnst þér ég ætti að
gera næst?
— Flýta þér til Englands. Morgana er þar einhversstaðar, og
ég hef svarið þess dýran eið að gera Egbert að konungi í Norð-
imbralandi og vera má, að ég eigi þar smávsegileg erindi
önnur.
Við leggjum af stað jafnskjótt og við höfum dregið að okkur
þann stærsta flota, sem hefur sést á Norðurlöndum.
2.
Við hófumst þegar í stað handa um undirbúning, og þegar
fréttin barst út, urðu víkingarnir harla glaðir við. Þeir hefðu
glaðir fylgt Grímhildi frá Landsenda til Bretlands, þvert yfir,
en ég sigldi í sveig austur eftir, til þess að vera nær landi, ef
ofviðri skyldi skella á.
Þegar við sigldum upp að Long Strand, stönzuðum við til að
telja skipin. Sjötíu voru eftir af áttatíu, sem höfðu lagt af stað
í herferðina. Og það hafði fækkað mönnum um borð í hverju
skip. En þetta var ekki mikið tjón eftir sumarhernað. En Ormur-
inn langi var ekki þar.
f 1
k*v»ö»í«d»v»ö*k*u«n*n*i
— Ég verð að viðurkenna, að þeir sögðu mér undarlega
sögu. Álitið er, að hann hafi komið til Norðimbralands á Orm-
inum langa, til að gera kaup við Aella. En af mikilli slægð
hafi Aella tekið höndum alla skipshöfnina og drepið hana.
Ragnar hafi verið varpað í ormagryfju og ormarnir hafi rifið
hann á hol.
Hasting leit ekki framan í mig, en ég var allur á verði.
— Það er hræðileg hefnd fyrir að nauðga Enid móður hans,
sagði ég.
—r Svo segir fólk. En þú veizt, Ogier, að ég geri mig ekki
ánægðan með þessa sögu. Ég efast ekki um, að Ragnar faðir
minn er dauður. Mig dreymdi það fyrir mánuði síðan — og
Björn líka. Og ég efast ekki um, að hann hafi látið lífið í ríki
Aella. En það er ekki líkt honum að fara einskipa á fund
kristins konungs. Ragnar var fyrst og fremst vikingur. Hann
vildi aldrei semja um frið, aðeins berjast Honum leið alltaf
iila, þegar einhver borgin kyepti sér frið og öryggi. Hann vildi
ofbeldi, rán og brennur. Og hans mikla takmark var alltaf að
leggja England undir sig.
— Hann hefur sennilega farið til hirðar Aella vegna Morg-
ana, greip ég fram í.
— Þegar hún sást síðast, var hún í þinni fylgd. Síðast þegar
hann sást, var hann að elt.a þig. Þú hefur komið aftur, en
hann ekki. Skáld Aella, Alan, kveður nú fyrir þig og þú
hefur misst höndina, og Kitti er orðin mikil völva.
— Hvað færðu út úr þessu, Hasting? spurði ég'.
— Ragnar faðir minn sigldi með stórt hundrað hraustustu
Meera kom ofan að skipalæginu, og hár hennar var enn þá
rautt. Þegar hún sá okkur Hasting saman varð hún svo undrandi,
að augun ætluðu út úr höfðinu á henni. Hasting ávarpaði hana
glaðlega.
— Hvað á þetta að þýða Hasting? spurði liún.
— Hvað á hvað að þýða?
— Þegar Ogier fór héðan, fór prinsessan með honum og
hann var að flýja hefnd þína.
— Það hefur margt skeð síðan og við erum félagar nú.
— Hvað hefur komið fyrir, Hasting? Hvar er Morgana? Er
hún dauð?
— Reyndu að svala forvitni hennar, Ogier, að svo miklu
leyti sem þú getur. ■ . ...
— Hvar er Ragnar? spurði Meera.
víkinganna, sem til voru á Norðurlöndum. Hann var að leita
að lítilli bátsskel, sem á voru einn daufdumbur maður, tveir
Lappar og fyrrverandi þræll hans. Svo að ég get ekkert fundið
út úr þessu nema slæman draum.
— Þú sagðir mér einu sinni, að þér þætti vænt um, að
ég væri enn á lífi. Hafi ég drepið Ragnar, ættirðu að vera enn
þá glaðari.
— Já, því að þá yrðu örlög mín enn þá stórkostlegri en mig
hefur nokkurntíma dreymt um. En hvers vegna sagðirðu þetta,
Ogier? spurði hann. — Hvað ertu að gefa í skyn?
— Ég bið afsökunar. Ég hefði átt að vita, að betta var ónauð-
synlegt. En ég var hræddur um að þú mundir hlaupa á þig og'
sjá eftir því alla ævi.
—-Nei, ég ætla ekki að drepa þig, Ogier, fyrri en ég er viss.
Þess í stað verð ég að vernda þig, eins og þú værir tvíbura- \
bróðir minn. Ég hef aldrei fundið þinn líka og býst ekki við
að finna hann nokkurntíma.
— Þótti þér vænt um Ragnar, Hasting?
— Nei, en ég var hræddur við hann. Hann er eini maðurinn
— Segðu henni það líka, Ogier, eftir því sem þú veizt bezt.
— Það er sagt, Meera, að Morgana sé einhversstaðar í Eng-
landi. Þá er líka sagt, að Ragnar hafi failið í hendur Aella og
að hann hafi varpað honum í ormagryfju.
— Þú veizt, betuí’ en svo, Hasting. •
— Nei, það veit ég ekki. Og ég get ekki sannara talað. Það
getur verið, að Ogier viti betur, en það er ekki hægt að toga
það út úr honum.
— Hvernig væri að pína hann til sagna — klípa hann með
glóandi töngum. •• •
— Mönnunum mundi ekki geðjast að því. Ogier hefur hiotið
mikinn frama síðan þú sást hann seinast. Og auk þess, Meera
er ég ekki viss um, að hann segi sannleikann, þótt hann sé
klipinn með töngum. Ég vildi heldur, að hann segi mér ekkert,
en hann ljúgi að mér.
Meera sneri við og gekk burtu, eins og drukkin kona,
— Og auk þess, kallaði Hasting stríðnislega á eftir henni,
— er ekki auðvelt að leggja England undir sig án Ogiers.
En ég fékk það á vitundina, að Meera vissi þegar jafnmikið
og' við Hasting, en að hún hefði spurt til þess eins að reyna að
komast eftir meira. En siðasta athugasemdin gerði hana orð-
lausa.
Aleera sneri við aftur og spurði:
— Er hann svo mikill hermaður?
— Nei, en Kitti er með honum.
— Kitti?
— Þú ættir að muna eftir henni, Meera. Hún var einu sinni
ambátt þín. Nú er hún orðin mesta völva, sem um getur, og er
þyngdar sinnar virði í rauðu gulli.
— Já, hún var einu sinni ambátt mín, en hún virðist ekkert
hafa breytzt sem sýni, að hún sé orðin völva. Og Ogier var
einu sinni þræll Ragnars.
Hasting' virtist ekki heyra. Meera gekk burtu.
Ég hraðaði mér á fund Egberts og samkvæmt gamalli venju
kraup ég á kné fyrir honum.
— í guðs bænum stattu á fætur, maður, sagði hann í alþýð-
legum tón eins og fyrr.
Flokksmeðlimur í Albaniu
gerðist svo djarfur að gagnrýna
Stalin lítillega áður en það'
komst í tizku. Þeir, sem yfir
manninn voru settir, voru að
velta því fyrir sér hvernig þeir
ættu að refsa honum hæfilega,
þegar fréttir bárust frá Moskvu
að Stalin væri dauður. Maður-
inn var kallaður fyrir flokks-
leiðtogana og tilkynnt:
„Þér hafið gert alvarleg mis-
tök^ en við höfum ákveðið að
reka yður ekki úr flokknum.“
„Þá það,“ sagði maðurinn
mæðulega, „eg verð að þola
refsinguna.“
David Kaaialii undirforingi
í setuliði Bandaríkjanna í
Wiirzborg í Þýzkalandi hafði
eignast son og þurfti að láta
skíra hann.
„Hvað á barnið að heita?“
„Kaunakupukupupukawa-
ickalani,“ hljóðaði svai’ið.
Þegar David Kaaialii var
spurður að því á eftir, hvers
vegna hann hafi látið skíra son
sinn þessu ónefni, svaraði hann
því til, að þetta væri jafn al-
gengt nafn í heimalandi sínu —
en það er Hawaii — eins og t. d.
Hans í Þýzkalandi.
Einn úr kommúistaflokknuir
var að halda ræðu fyrir hóp al
járnbi’autarverkamönnum þeg-
ar einn þeirra greip franf
fyrir ræðumanni og spurði:
„Hvernig stendur á því að jafn
mikið landbúnaðarland verðui
að flytja inn egg_ feitmeti.
smjör og mjólk frá öðrum lönd-
um?“
„Þetta er athyglisverð spurn-
ing,“ sagði ræðumaðurinn. „Vií
skulum tala um það ná næsts
fundi.“
Á næsta fundi var ræðumað-
ur aftur truflaður af spyrjenda
sem hafði verið á fundinum þai
á undan.
„Eg óska ekki eftir því a8
forvitnast um matvælaástandií
í alndinu, en mig langar til a£
vita hvað varð af félaga Ivan-
ov.
C. R. SuncuyhA
— TARZAN —
2288
L,
„Eg þarf að ía menn til að læðast
út úr virkinu og koma aftan að þeim
og einn þeirra verður að vera lúður-
blásari,“ sagði Tarzan.
'Í&V
„Nu skulum við leika stórkostlega
á þá og ef okkur tekst, sigrum við og
höldum lífi, annars er úti um okkur
alla.“ Maxian féllst á það.
Sjálfboðaliðarnir hentu sér yfir
virkismúrana í skjóli myrkurs og
fylgdu fast hinum hraustu og ráð-
snjalla John Shea.