Vísir - 29.03.1957, Síða 1
47. árg.
Föstudag-inn 29. marz 1957
75. tbl.
Enski veðhlaupahesturinn Valdivia er þjálfaður eftir öllum
kúnstarinnar reglum, og til dæmis er þess gætt vandlega, að
hann fái að velta sér á sandi einu sinni á dag. Hér er klárinn
að velta sér.
Grunnavíkur hreppur er
að leggjast í eyði.
I vor veróur hætt að búa á 3 jörðum
þar aðeins 40 manns eftlr í hreppnum.
Frá fréttaritara Vísis. —
Isafirði í gær.
Síðusfcu dagana hafa afla-
forögð verið skárri en undan-
farið. í gær var afli frá 6—11
smálestir. Én sjóveður hafa
verið slæm, svo róðrar hafa
verið stopulir. Rækjuveiði í
Djúpinu hefur verið góð. Um
þessar mundir stund.i bátarnir
þær veiðar aðallega innan við
Æðey.
Um þessar mundir er unnið
að því að koma upp blóðgjafa-
sveit fyrir sjúkrahúsið. Er ;stl-
unin að reyna að koma tpp
fjölmennri sveit, helzt 200—
300 manna, af öllum blóðflokk-
um, svo að alltaf verði hægt að
hlaupa fljótlega undir bagga, ef
á þarf að halda. Rotaryklúbbur
ísafjarðar hefur haft forgöngu
í þessu máli undir umsjón Úlfs
Gunnarssonar sjúkrahúss-
Sæknis. I ! I , j j ;J | j ! ,
Sjóþyngsli.
Hér gerði allmikla snjókomu
fyrir nokkrum dögum. svo að
vegir tepptust og hafa verið
tepptir um skeið bæði til Bol-
ungarvíkur og Súðavíkur. Nú
er búið að ryða Bolungarvíkur-
veginn fyrir tveimur dögum, en
í dag vinna tvær ýtur að því að
Þióðverjar fá
22 Eisirskip.
Sambandsþingið í Bonn hefir
heimiiað stjóminni að kaupa
22 æfingaskip fyrir Jhinn vænt-
anlega flota V.-Þýzkalands.
Fjárhagsnefnd þingsins hefir
lagt til, að varið verði 97,5
milljónum marka í þessum til—
gangi (ca. 380 millj. kr.), og
verður stærsta „pöntunin“ send
Englendingum. Þaðan fá Þjóð-
verjar sjö lítil beitiskip og 3
jeftirlitsskip.
ryða snjó af Súðavíkurvegi.
Síðdegis voru þær komnar
nokkuð utarlega á Kirkjubóls-
hlíðina.
40 manns í
Grunnavíkurhreppi.
Víða eru hér orðin mikil
snjóþygnsli. í Grunnavik er t.
d. mesti snjór, sem lengi hefur
komið. Það mun nú ákveðið, að
bændur á Kollsá, Höfðaströnd
og Höfða hverfi í vor frá jörð-
um sínum. Verða þá ekki eftir
í Grunnavíkurhreppi nema 40
manns. Á undanförnum ára-
tugum hefur mikil fækkun orð-
ið í Norður-ísafarðarsýslu.
Árið 1928 voru 3420 íbúar í
sýslunni, en nú eru þar aðeins
1824 menn. Fækkunin nemur
því 1596 manns á þremur ára-
tugum, og verður ekki annað
sagt en það séu ískyggilegar
horfur, sem þær benda til. í
Grunnavíkurhreppi verður þá
aðeins byggð í Grunnavík,
Reykjarfirði á Ströndum og
Látravíkurvita, ef svo fer, að
þeir bæir verða yfirgefnir, sem
áður voru taldi.
Daglega er gengið hér í
Skíðalandsgöngunni og hafa nú
gengið rúml. 700 manns hér á
ísafirði. Er það vonum minna.
Pollurinn (höfnin) er nú
lagður ísli, en ekki er hann svo
þykkur að valdi umferðarrufl-
unum, enda hafa frost verið lítil
í vetur, og frostleysa síðustu
dagana, og amrandavindur.
Mollet fær traust
í 33 sinn.
Mollet, forsætisráðh. Frakk-
Iands fekk traust samþykkt í
fulltrúadeildinni í gær.
Greiddu 221 þingmaður til-
lögunni atkvæði, en 188 á móti.
Var þetta í 33. sinn, sem stórn
Fjrstn hagar koma upp á
Suðurlandsundirkndí.
Fiskihlaup í
Þorlákshöfn.
Frá fréttaritara Vísis
AHa þessa \lku liafa Þorláks-
hafnarbátar aflað ágætlega,
Bezti afladagurinn á vertíðinni
var á mánudaginn, þá vora allir
bátarnir með yfir 20 lestir úr
róðri og niinni bátarnir, sem eru
uni 20 lestir að stærð, tvíhlóðu.
Það er ekki langt að fara
eftir fiskinum, aðeins 20 mínúta
sigling frá bryggjunni í Þorláks-
höfn, sem er eina verstöðin á
landinu er tekið hefir á móti
meiri afla það sem af er þessari
vertíð, en verið hefur undán-
farin ár, um þetta leyti. -
Meðalafli á bát í róðri hefir
þessa viku verið 15 til 16 lestir
og er það afbragðs gott. Afla-
hæstu bátarnir eru Klængur
! og Jón Vídalín. Má segja að
hinir minni bátar hafi komið
hlaðnir að landi dag hvern.
Veðurfar hefur einnig verið
mjög hagstætt til sjósóknar.
Innbrot og
þjófnaður.
I I fyrrakvöld var framið inn-
brot og talsverðu stolið.
| Klukkan 23.14 í fyrrakvöld
var hringt til lögreglunnar og
tilkynnt að innbrot hefði verið
framið í Eyjabúðina í Her-
skálacamp.
Þegar lögreglan kom á vett-
vang hafði verið brotin rúða
við aðalinnganginn. Hafði ver-
ið stolið talsverðu af tóbaki,
sælgæti og peningum.
Vikingakvikmynd
tekin í Sogni.
Kvikmyndaleikarinn Ernest
Borgnine, sem fekk Oscars-
verðlaunin fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Marty“, hefir
nú undirritað samning um að
leika eitt af aðalhlutverkunum
í hinni miklu víkingakvik-
mynd, sem United Artists er að
láta gera.
Myndatakan fer að mestu
fram í Sogni í Noregi og er ver-
ið að undirbúa ýmislegt, sem
við kemur myndatökuni þar. —
Búið er að smíða þrjú víkinga-
skip, sem notuð verða í mynd-
inni. Myndin er eftir síðustu
framhaldssögu Vísis.
Látlaus innigjöf cills búpen-
ings um 8-9 vikna skeið.
Bændui' voi'ii farnii* að óátast
heyleysi.
Langþráðir hagar eru nú að
koma upp á Suðurlandsundir-
lendinu eftir 8—9 vikna sam-
fellda innstöðu alls sauðíjár.
Að því er Vísi var símað frá
Selfossi í morgun vora bændur
i teknir að óttast heyþrot ef
snjóalögin héldust enn um
skeið, en með hlákunni hafa
vonir manna glæðzt að nýju
um það að ekki komi neinstað-
ar til heyþrota. Hagar eru
komnir upp i Hreppunum,
Tungunum og Laugardalnum, í
iGrímsnesinu örlar varla nokk-
urs staðar á dökkan díl enn-
þá, enda var snjóþiljan þar
hvað mest. En austur um Flóa
'og Skeið eru þúfnakollarnir
(teknir að teygja sig upp úr
snjóbreiðunni.
Suðurlandsundirlendið lagð-
ist undir fönn 20. janúar s.l. og
síðan hefur landið legið undir
samfelldri snjóhellu þar til nú,
svo ekki hefur verið reynt að
beita þar sauðfé.
Víða var tekið áð bera á
þurrð neyzluvatns á bæjum, en
með rigningunni og hlákunni er
þetta tekizt að lagast.
Engir teljandi vatnavextir
hafa komið í Hvítá eða aðrar
ár eystra og ekki er búist við
neinni flóðhættu þótt haldi
áfram að hlána. Vegna þess að
jörðin má heita auð undir
snjónum og þurr orðin eftir
langvarandi þurrka er búist við
að mikill hluti leysingarvatns-'
ins sigi niður en falli ekki í
árnar. Hættan á flóðum er mest
þegar snjó leysir skyndilega af
frosinni jörð.
Vegir eru allir auðir orðnir
og umferð hafin að nýju um
Hellisheiði. Má og heita að
það hafi verið á síðustu stundu
jþví Krýsuvíkurleiðin var hætt
■ að þola hina miklu umferð. —
Vegurinn var auður og þegar
blotnaði í honum óðst hann út
svo hann var um það bil að
iverða ófær þegar Hellisheiðar-
vegurinn opnaðist.
í nótt var stórrigning austan
' fjalls, en í morgun hafði að
mestu stytt upp. Var þá hlýtt i
veðri sem á vori og hæg hláka.
Herlið leitar ræn-
ingja í íran.
HerliS og lögregla leitar ræn-
ingjaflokks, sem gerði árás á
tvo bandaríska ráðunauta Iran-
stjórnar, sem vora á ferfalagi í
athugunar skyni í héruðunum
nálægt Pakistan, i tveimur
jeppa-bifreiðum.
Ræningjarnir drápu báða
ráðunautana og fylgdarmenn
þeirra. Konu annars Banda-
ríkjamannsins hlífðu þeir, nema
þeir hirtu skartgripi hennar og
lausamuni.
íranstjórnin hefir sent
Bandaríkjastjórn orðsendingu
og harmað mjög þennan hrylli-
lega atburð.
Aldrei minni afli en í gær
hjá Akranesbátum.
23 bátar með samtals 60 lestlr í róðrr.
hans hefir fengið traust sam-
þykkt. — Við umræðuna, sem
var um stefnu stórnarinnar,
var mest rætt um fjármálin,
Alsír og nálæg Austurlönd,
Frá fréttaritara Vísis. —
Akranesi í morgun.
Þótt oftast hafi verið lítill
afli hjá bátunum í vetur var
það þó aldrei verra en í gær.
Tuttugu og þrír stórir bátar með
' langa línu og beztu fáanlega
beitu komu með samtals 60 1.
af fiski eítir nærri sólarhrings
^róður og það á þeim tíma árs,
!sem hclzt er fiskivon.
Það er ekki ljós glæta í þessu
öllu saman, símaði fréttaritar-
inn. Fram til þessa hafa einn
og tveir bátar fengið reitings
afla í róðri, en nú var sama ör-
deiðan hjá öllum bátunum,
hvar sem þeir lö“ðu línuna.
Trillubátur héðan hefur farið
einn eða tvo róðra með hand-
færi og ekki fengið nema um
300 kíló.
í ráði er að þeir bátar, sem
eiga net, reyni þau nú þar eð
línan hefur algerlega brugðizt
til þes'sa og útlitið er ekki gott,
Vatnsskortur.
Um nokkurt skeið hefur verið
tilfinnanlegur vatnsskortur og
rafmagnsskortur á Akranesi. —
Frystihúsin hafa verið látin
sitja fyrir því litla rafmagni,
sem bærinn hefur fengið. Einn-
ig hefur neyzluvatn verið af
mjög skornum skammti. Nú
hlánaði í nótt svo búast má við
auknu vatnsrennsli hvað úr
hverju.