Vísir - 03.04.1957, Síða 1
12
bls.
12
bls.
•7. Jtig.
Miðvikudaginn 3. apríl 195"
79. tbl.
Sjávarafurðasalan:
Erflit ®S verjast undðrboð-
um, er margir selja.
Fr&smvarp stíériíarSriffiar
endlantega affgreiít.
Frumvarp stjórnarinnar um
sölu og útflutning sjávarafuröa
o. fl. var loks endanlega sam-
þykkt án nokkurra breytinga' á
fundi efri deildar í gær, og af-
greitt sem lög frá Alþingi.
Síðustu ræðuna í þeim löngu
umræðum, sem staðið hafa um
frumvarp þetta, síðan það var
lagt fram skömmu eftir ára-
mótin, flutti Jóhann Þ. Jósefs-
son, þingmaður Vestmannaey-
inga.
Minntist hann þess réttilega í
upphafi, að mál þetta væri mjög
umdeilt og með samþykkt slíks
frumvarps, er hér væri um að
ræða, með þeim skýringum, sem
því hefðu fylgt, þegar það var
lagt fram, væri beinlínis veizt
að heildarsamtökum framleið-
enda sjávarafurða, þar sem op-
inberlega hefði komið fram, að
þau væru mjög mótfallin
breyttri skipan. — Færi illa á
því að ríkisstjórnin tæki svo
fyrir eina stétt landsins og legði
kapp á að hnekkja uppbyggingu
hennar, að því er snerti mögu-
leikana til að koma framleiðslu-
vörunum á góðan markað.
Jóhann Þ. Jósefsson kvaðst
með þátttöku í störfum Sam-
bands ísl. fiskframleiðenda hafa
fengið gott tækifæri til að sann
reyna traustleik núverandi fyr-
irkomulags, sem á sínum tíma
hefði verið stofnað til fyrir til-
stuðlan bankanna og komið
hefði í stað þeirrar sundrungar,
er áður ríktu til hins mesta
skaða fyrir framleiðendur og
þjóðina. Sérstaklega hefði hann
þó fundið það við störf Skreið-
arsamlagið, hliðstæð samtök,
sem ekki nytu þess opinbera
stuðnings, sem SÍF hefði notið.
Það kæmi eigi ósjaldan fyrir,
að fölskum fréttum um undir-
boö einstakra seljenda væri
j dreiít meðal erlendra kaupenda
í þeirn tilgangi að koma verði
fiskjarins niður. Að því er salt-
fiskinn áhrærði hefði verið auð
velt að eyða siíku með því að
vísa til þess, að SÍF hefði sölu
allrar fiskframleiðslunnar á
FramhaM “ 6. síðu.
Annar kafbátur Bandavíkjanna, sem knúinn er kjarnorku,
heitir Sæúlfurinn, og sézt hann hcr á siglingu. Honum var
hleypt af stokkunum í júií 1955 og er 3260 lestir. Fyrri kaf-
báturinn, sem knúinn e>- kjarno’ku er Nautilus, sem oft hefur
verið getið í blöðum. í
Böðull ekki
handfekiuH.
Fyrrverandi SS-maður, Mar-
tin Sommer, sem kallaður var
„Böðullinn í BucSien\vaId“
verður ekki látinn svara fyrir
morð á 78 föngum.
Hefir dómstóll Bayeruth í
S.-Þýzkalandi tilkynnt, að
Sommer hafi örkumlazt svo, er
sprengja hæfði skriðdreka, sem
hann var í, að ekki sé hægt að
leiða hann fyrir rétt eða yfir-
leit að handtaka hann.
I
Bátsstrand við Langanes.
Skipverjsr björguðust tH lands, en báturinn
er talinn í mfkifll hættu.
Eldur i strætis-
vagni.
I nótt kom eldur upp í
strætisvagni í bækistöð stræt-
isvagnanna á Kirkjusandi.
Eldsins varð vart laust fyrir
klukkan 1 eftir miðnætti og
var slökkviliðið þegar kvatt á
vettvang þangað inneftir. Var
þá talsverður eldur í vél stræ-
isvagnsins, en hann var fljótlega
slökktur. Óvíst var hve
' skemmdir voru miklar.
Frá fréttaritara Vísis. -
Akureyri í morgun.
j í gær strandaði 18 lesta vél-j
(bátur, Týr frá Þórshöfn, við(
Langanes. Mannbjörg varð en
báturinn talinn í mikilli hætiu
og ólíklegt að takizt að bjarg.a
honum.
V.b. Týr hafði farið í róður
frá Þórshöfn í gærmorgun. Á
honum var 4 manna áhöfn^ en
skipstjóri var Páll Gunnólfsson,
ungur maður.
Um klukkan 3 síðdegis í gær
strandaði báturinn í niðaþoku
við svokallaðann Svínalækjar-
' tanga rétt utan við Læknis-
staði á Langanesi, en sá bær
er nú í eyði.
Báturinn strandaði skammt
frá landi. Sem betur fór var
ekki vont í sjóinn, en þó nokk-
urt brim við landið og land-
takan mjög slæm. Skipverjar
Vetmssprengjan rædd áfram í
brezka þinginu.
Tillaga um frestim tilraunar-
innar á Jólaer.
Þingmenn brezki-a jafnaðar-
manna kom saman til fundar í
dag til þess að ræða vetnis-
sprengjuprófanimar.
A. m. k. 50 þeirra standa að
tillögu, þar sem segir, að a. m. k.
beri að fresta vetnissprengju-
prófunum.
Macmillan sagði á þingi í gær,
að það væri einkennilegt hvert
kapp væri lagt á, að fá Breta
til þess að hætta vetnissprengju-
prófun sirini, þar sem vitað væri
að tvö stórveldi hefðu fram-
kvæmt slíkar prófanir. Hann
spurði og Gaitskell að þvl, hvort
hann myndi fresta vetnis-
sprengjuprófun, væri hann for-
sætisráðherra, og vissi að öll
varnaráform landsins myndu
kollvarpast, ef þær íæru ekki
fram?
Japanar hafa endurtekið til-
mæli um, að prófuninni verði
frestað — og Rússar segjast
vera fúsir til að fallast á, að
öllum vetnissprengjuprófunum
verði hætt, en þeirra mark er
að Bretar fái ekki þá aðstöðu,
sem þeir sjálfir hafa aflað sér.
Prófunin á Jólaeynni á sem
kunnugt er að fara fram í þess-
um mánuði.
Brezka kirkjuráðið hefur lýst
sig andvígt prófunínni.
Litla f@§pan
rænulaus enn.
Litla telpan, sem slasa&ist í
umferðaslysinu á Suðurlands-
braut, liggur enn rænulaus á
Landspítalanum.
Svo sem kunnugt er varð
þetta slys s.l. laugardag fyrir
hádegi á Suðurlandsbraut. Hef-
ur litla stúlkan verið rænulaus
síðan.
köstuðu sér alljr í sjóinn og
komust heilir á húfi til lands.
Urðu þeir að ganga 12—15 km.
vegarlengd að næsta bæ, Heið-
arhöfn á Langanesi og voru þá
allþjakaðir orðnir. Þangað voru
þeir 3 klst. frá strandstað.
Á Heiðarhöfn var skipverj-
um veitt hin bezta aðhlynning
og síðan gert aðvart um þá til
Þórshafnar, en þaðan var bíll
sendur eftir þeim í gærkveldi.
Þegar báturinn strandaði var
hann búinn að afla 5—6 skip-
pund af þorski.
í dag átti að senda menn frá
Þórshöfn á strandstaðinn til
þess að athuga björgunarað-
stæður, en kunnugir menn telja
þær litlar sem engar því að-
staða er afar örðug.
Báturinn var lágt vátryggður.
Sprenging á
Akureyri.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í morgun.
I morgun varð niikil spreng-
ing í kjallara íbúðarhússins
Eyrarlandsvcgi 8 á Akurcyri.
Um leið kviknaði eldur í
kjallaranum, sem varð fljót-
lega slökktur en um orsakir
sprengingarinnar er enn ekki
kunnugt.
Sprengingin vavð um 9-leytið
í morgun og vaið svo mikil að
húsið, sem er tveggja hæða
timburhús á steinsteyptum
kjallara, lék á reiðiskjálfi og
gólfdúkar á neðri hæðinni lyft-
ist frá gólfi. EkKi -hlauzt af
þessu neitt slys.
Strax eftir sprenginguna
varð elds vai't í kjallara og var
slökkviliðið kvatt á vettvang.
Þegar það kom á staðinn hafði
myndazt mikill reykur í kjall-
aranum og eldur var þar í rúm-
dýnu og bílsæti úr froðu-
gúmmí. Eldurinn varð fljótt
slökktur og skemmdir óveru-
legar.
Bylting í Chile.
Barizt í Santiago.
Til bardaga kom í gærkvöldi
í Santiago, höfuðborg Chile, og
virðist svo sem tilraunliafi verið
gerð til byltingar, en fregnir
eru annars óljósar um tildrög.
Samkvæmt útvarpsfregnum
var herliði beittgegn múg manns
og biðu 41 maður bana í átökun-
um.
Herlög eru gengin í gildi um
allt landið.
Síðari fregnir herma að hækk-
að verðlag hafi leitt til uppþot-
anna,
Ágæt veiði í Þorlákshöfn
og á Stokkseyri.
Sumir Þorlákshafnarbátar tvíhlaða.
Nýjar handtökur
í Ungverjalandi.
Ellefu Ungverjar hafa verið
handteknir í Miscole, sakaðir
um njósnlr fyrh' „Útvarp frjálsr-
ar Evrópu“.
Utvarp þetta er sem kunnugt
er rekið fjTir bandarískt fé í
Vestur-Þýzkalandi. -
! Undanfarna daga hefur verið
. ágætis afli bæði í Þorlákshöfn
' og á Stokkseyri.
j I aflaleysinu að undanförnu
hafa stundum borizt aflafréttir
úr Þorlákshöfn.
Þar réru nú 7 bátar á línu,
en eru 8 siðan netjavertíð byrj-
aði.
Afli var lélegur hjá flestum
bátunum á línu, en síðan netja-
vertíð byrjaði hefur veiðzt
mjög vel og er heildarafli nú
orðinn meiri en á sama tíma í
fyrra.
Heildarafli í ár er 2200 lestir.
Meðalafli á bát er um 300 lestir
Aflahæstur er Klængur, sem er
stærstur, 35 lestir, með um 360
lestir í 49 róðrum. Minnsti bátur-
inn, Jón Vídalín, sem er 16 lestir
að stærð, hefur fengið 120 lestir
s. I. hálfan mánuð og suma
daga tvíhlaðið.
Hafa sjómenn fyrir nokkru
fengið upp í trygginguna og
um mánaðarmótin v'oru þeir
lægstu með um 12000 króna.
hlut.
Siðustu tvo dagana hefur ver-
ið, ágætisveiði bæði hjá Þorláks-
hafnarbátum og Stokkseyrar-
bátum og er stutt á miðin.
Leikritið Tópas, eftir Marcel
Pagnol hefur verið sýnt í leik-
húsinu á Þórshöfn i Færeyjum.
Hin kunna islenzka leikkena,
Erna Sigurleifsdóttir hefur
verið leikstjóri og fær hún mikið
lof fyrir í færeyskum blöðum,
svo og leikendur. Telja þau leik-
inn frábæran og sé það mest
að þakka Ernu Sigurleifsdóttur.