Vísir - 12.10.1957, Blaðsíða 4

Vísir - 12.10.1957, Blaðsíða 4
Vf SIB Laugardaginn 12. október 1957 WXSKR D A G B L A Ð Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjómarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kostar kr. 20,00 í áskrift á mánuði, • kr. 1,50 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Mkirkja or/ trúniál: Árás svarað* Sambandslaust hvarvetna ? Jæja, þá er svo komið, að ríkis- stjórnin og stuðningsmenn hennar innan þingsins talast ekki lengur við. Að minnsta kosti er sagt svo frá í grein- argerð með frumvarpi því til fjárlaga, sem lagt var fram fyrir tveim dögum, að ríkis- stjórnin hafi ekki haft neitt tækifæri til þess að tala við þessa aðila. Og afleiðingarn- ar eru býsna alvarlegar, því að fyrir bragðið er gert ráð fyrir meira en 70 milljóna króna greiösluhalla í frum- varpinu, og stjórnin sér ekki með neinu móti, hvernig hún i' eigi að fylla það skarð, sem þar hefir myndazt. , tHafi menn nokkru sinni heyrt aðra eins afsökun fyrir úr- ræðaleysi ríkisstjórnar, hvort sem er hér á landi eða í öðr- um löndum, þá eru þeir vin- samlegast beðnir að gefa sig fram. Það mundi sannarlega vera mikil fregn, ef þess væru einhver dæmi, að ríkis- stjórn legði í rauninni svo ár ar í bát sem þessi. Og ekki J verður furða almennings r r 'r r F V j verið að smáaukast, þar til þau eru nú orðin svo mikil og alvarleg, að tveir af ráð- herrum stjórnarinnar efnatil funda í félögum hér í bæn- um til að skýra þeim frá því ; að nú sé allt í voða. Starfaði stjórnin eftir því forna orðtaki, að frestur sé á illu ' beztur? Vai’ það þess vegna, að hún gerði enga tilraun til að finna leið út úr vandan- um, en fleygir honum fyrir þingheim og segir honum, að hann eigi að bæta úr ástand- inu? Það virðist sennilegasta skýringin, því að eins og samgöngum, er háttað nú í dag er hægt að- boða menn, hvar sem er á landinu, til fundar í Reykjavík með dags fyrirvara eða svo, éf þörf er á að efna til skyndi- legrar ráðstefnu. Varla hafa allir stuðningsmenn ríkis- í blaðinu „Dagrenningu", 3. tbl. þ. á, er grein eftir ritstjór- ann, Jónas Guðmundsson, skrif- stofustjóra. Nefnist hún: „Þeir dagar koma“ og yfirlýst tilefni hennar er tvær greinar eftir und- irritaðan, sem birzt hafa á þess- | um stað í Vísi, 2. marz og 24. á- gúst s. i. Þeim trúmálaþáttum, sem Vís- ir hefur góðfúslega léð rúm um þriggja ársfjórðunga skeið, var ekki ætlað að vera vettvangur fyrir deilumál um trúarefni. En opinberum árásum á sjónarmið, sem hér hafa verið túlkuð, er ó- hjákvæmilegt að svara, og bein- um rangfærslum verður ekki lát- ið ómótmælt. Þess skal fúslega getið, að hr. Jónas Guðmunds- son tók liklega og kurteislega, fyrirspurn um það, hvort hann myndi ljá svargrein rúm í blaði sínu. En að ósk ritstjóra Visis varð hitt að ráði, að ég svaraði hér. Mun það því gert í þessum og næstu laugardagsþáttum á þessum stað. Vona ég, að það megi verða einhverjum lesend- um þéssara þátta til upplýsingar um mikilvæg atriði varðandi Biblíuna. Fyrri grein mín, sem hr. Jónas Guðmundsson gerir að umtals- efni, heitir „Lind æðstu \izku“. Um hana er það fyrst að segja, að hun er önnur i flokki fimm greina, sem allar fjölluðu um Biblíuna og hagnýtan lestur hennar, og birtust hér í blaðinu 23. febr. til 23. marz s. 1. Sú stað- stjórnarinnar lagt íyrir sig reynd, að greinin er hluti af laxadráp í sumar, enda þótt einhver prósenta ríkisstjórn- arinnar hafi slíkt sér til dægrastyttingar og hugar- hægðar. minni, þegar höfð er í huga Af þeim vésaldómi, sem fram kokhreysti þessarra miklu garpa, sem tóku við stjórn- artaumunum fyrir hálfum fimmtánda mánuði. Þeir menn höfðu ekki aðeins ráð undir rifi hverju, heldur var hvert ráð varanlegt og veí " það. Hverjum skyldi vera ætlað að trúa því, að ríkisstjórnin hafi ekki haft tök á að hafa sam- ráð við stuðningsflokka sína? Það er ekki fyrirbæri, sem gert hefir vart við sig fyrir viku cða tíu dögum, að ríkissjóður er í mestu vand- ræðum, af því að hann skort- ir íé. Nei, það gerði fyrst vart við sig fyrir nokkrum mánuðum, en einkennin hafa kemur í fjárlagafrumvarp- inu — og bætist ofan á allt, .sem fyrir er — verður ekki dregin önnur ályktun en sú, sem menn hafa dregið af kveinstöfum ráðherranna undanfarið. Stjórnin hefir siglt öllu í strand, og hún er meira að segja svo aum, að hún gerir ekki einu sinni til- raun til að bjarga neinu — nema hún fái til þess aðstoð þeirra, sem hafa þó fyrst og fremst tal;ð, að hægt væri að njóta handleiðslu hennar og ekki væri þörf á að taka hana við hönd sér. Þeii', sem buðu upp á varanlegu ráðin, * eru nú orðnir gei'samlega ráðþrota. Ekki nema eðfilegt. Eysteinn Jónsson fjármálaráð- heri-a hefir fyrir löngu verið tekinn í guða tölu af Tíma- mönnum, er vel kunna að meta hið sérstæða fjármála- vit hans. Þeir telja honum alla vegi færa um völundar- hús efnahags- og peninga- lf mála, og þegar svo að því F kemur, að hann birtir það í I greinargerðinni með fjár- f lagafrumvarpinu, að nú þurfi T hann að íá ráð til að komast út úr ógöngunum, þá sér ‘ Tíminn ekkert athugavert við það. Hann birtir ummæli íjármálá- stærri heild, nægir ein til þess að hnekkja þeirri ályktun hr. J. G„ áð hún. sé rituð til þess eins að koma að stuttri athugasemd, sem var í niðurlagi hennar, um „rangeygðan biblíulestur", m. a. þess háttar lestur, sem styðst við egypzka pýramida. Raunar ber greinin sjálf það með sér ein út af fyrir sig, að hún miðar að allt öðru. Tilgangur hennar er mjög svo auðsjáanlega annar en sá að koma að neinni ádeilu, þótt bæði í henni og hinum þátturi- um, sem hún er hluti af, gæti andmæla, lieinna og óbeinna, gegn skoðunum af ýmsu tagi, sem ég tel rangar. Menn ræða ekki hugðármál án þess að í því felist mótmæli gegn sjónarmið- um, sem þeir telja vai'hugaverð og villandi. Orð mín um pýra- mída-spár voru ber og ótvíræð og sögð í fullri meiningu og alveg j opinskátt. Hr. Jónas Guðmunds- son hef UL’ ekki farið svo dult með' skoðanir sínar á slíkri spá- mennsku, að óeðlilegt Sé, þótt hánn tæki þau orð til sín. Vái'Ia getur hann talið sig hafa einka- . .... i rétt á að kynna skoðanir í trú- LáðheLia og rikisstjórnar álum Er 0„ ýþarft að minna um Haft HAccir nAilQr* trorrí[* . . um það, að þessii aðilar verði hann a það, að hann hefur oft að fá ráð þingflokkanna, án verið næsta ómjúkmáll í rití þess að telja það neitt at-JSjnu skal ósagt látið með öllu, hugavert, að sjálft „séníið", hversu sanngjarn hann er að hefii' ekki úrræði á hrað-1 jafnaði, en aðeins minnt á það, bergi. Það hefði víst þotið í sem honum er íullkunnugt um, skjánum, ef einhver annar< ag hann hefur verið óáreittur ráðherra og úr emhverjum íengstum, alltent af mér. Orð öðrum flokki -* —*—1 tali nú ekki um einhvern úr1 að maður ^ min j umræddri grein voru ekki L', heldur örvarskot á móti ítrekuð- hópi „íhaldsmanna" — hefði.um aðförum og persónulegri á- gert sig beran að slíku úr- j reitni, fjari'i því, heldur aðeins ræðaleysi. En Tímamenn eru ( ábending — ein meðal annarra eins og dáleiddir. Goðið er^ — um skaðsamlega og fráleita falíið af stalli, og þeir taka meðferð á Biblíunni, nauðsynleg ekki eftir því. ___ i ábending og í fullu samræmí við jákvæðan tilgang greinarinrLar. Hr. Jónas Guðmundsson er býsna stórorður í grein sinni. Stórmæli hans um heiðindóm minn og niðurrif á Biblíunni eru á hans ábyrgð fyrir Guði og er þar með útrætt um þau af minni hálfu. Hjá hinu verður ekki komizt að beiLda á, hvernig hann fer að þvi að finna höggstaði á viðhorfi minu til Biblíunnar. Hann tekur grein mína frá 2. marz, en hún er, eins og áður segir, önnur af fimm um sama efni. Auk þess er hún i tveimur skýrt aðgreindum köflum. í fyrri kafla er rætt nokkuð um almennt menntagildi Biblíunnar, bent á það, að hvað sem öðru líði, geti sá varla tal- izt menntaður maðui', sem sé alls ófróður um i'it henriar. • Hr. J. G. tekur upp fáein um- mæli mín úr þessum kafla, sem lúta að þessu, og segir síðan, að af greininni megi helzt ráða, að ég telji Bibliuna „ekki Guðs orð, heldur samsafn mannlegra skáld- rita og mismunandi áreiðanlegra sagnfræðirita auk spámannarit- anna", sem ég ;,forðist að ræða nánar, eins og flestir aðrir nú- timaguðfræðingar" (!) Ekki getur hjá því farið, að hr. J. G. hafi líka lesið siðari kafla greinar minnar (hvort sem hann hefur lesið hina þættina í þessum flokki eða ekki), því að síðast i honum eru þau orð, sem urðu honum ásteytingarefni. En síðari kafli greinar minnar hefst á þessum orðum: „En nú er það ekki almennt menntagildi Bibli- unnar, sem mestu varðar. Þá fyrst lestu Biblíuna eins og hún ætlast sjálf til þess að vera les- in, þegar þú leitar í henni að ovði frá Guði handa samvizku þinni, sálu þinni til hjálpar og lífs.“ 0g greininni lýkur með þessum orðum — þau eru fram- iLald þeirra ummæla um „ólestur í meðferð Biblíunriar", sem stungu hr. J. G. og undirbyggð af þeim: „Biblian og prottinn hennar vilja þér eitt: Að þú.ýerð- ir hólpÍLin, þ. e. að þú finnir frelsára þinn og fylgir honum líís og liðinn. Heilagar ritning- ar geta veitt þér speki til sálu- iLjálpar fyrir trúiia á KrLsfc Jes- úm (2. Tím. 3,15). Þaðer þeirra hlutverk, hvorki annað né minna." Það fer ekki á milli mála, að tilvitnanir hr. J. G. og ályktanir út frá þeim eru furðu óvandaðaL'. Þarf mÍLmi greindarmann en hann til þess að sjá það. Væri og gott að mega trúa þvi um dreiLg- skap hans, að hann kannaðist við það. Að öðrum kosti mun mörg- um þykja sem blað hans sé ekki öðrum blöðum til fyrirmyndar uiri siðgæði og heiðarleik i mál- flutningi, þótt hann vandlæti mjög u:n ávirðingar dagblað- anna í þeim efnum. Siguibjörn Einarsson. Afengisvarnarnefnd Reykjavíkur veitii’ upplýs- ingar og leiðb.einingar í Veltusundi 3 daglega milli kl. 5 og 7. Síra Lárus Arnórsson á ritgerð í bókinni Faxa um „bezta gæðing sinn“, Grána, og segir frá einu afreki hans á þessa leið: ( Yflr Haffjarðará. „Þórður Þórðarson, sem átti Grána næstur á undan mér, reyndi nokkuð á afreksmátt hans og Lneira en ég, þótt ég byggi lengur að honum. Reið Þórður Grána stundum á girðingar með góðum árangri, enda hikaði klár- inn hvergi. En einkum reyndi Þórður þó á afreksmátt hans á sundi. Svo var málum háttað, að sumarið 1916 reisti Árni Þórðar son prestur í Miklaholtspresta kalli, sér mikið íbúðarhús úl steini, á eignarjörð sinni, StóL'a hrauni. Var Þórður það sumai við hússmíðina hjá séra Árna En svo hagar til þar, að Stóra hraun stendur á syðri bakka Haffjarðarár, þar sem hún renn ur í sjóinn. Eru fjörur þama miklar og á ánni á fjörunum, en um flóð er allbreið vík á þeím slóðum þar sem vaðið er um fjöru. Sum- arið, sem áður getur vildi það nokkrum sinnum til, að Þói’ð bar um háflóð að vestan árimLar, er hann var á heimleið. Brú er á Haff jarðará einnar klukkustund- ar reið ofan óss og vestri vegar frá ósi að brú báðum megin ár- innar. Þótti Þórði íllt að krækja upp á brú og lagði hestinum til sunds. Synti Gráni þessa leið tvisvar undir Þórði, annað sinn á 7 mín., en hitt á 7% mín. Svó sagði Þórður mér sjálfur frá síðar. Annað skiptið kraup Þórð- ur á knjám sér, tií þess að verj- ast því að vökna. Óralangt simd. Er þetta óra langt sund, eftir því sem menn leggja hest undir sér, þótt vitanlega séu smámunir einir móti því, sem hestar geta synt. Geta menn nokkuð gizkað sér til, hve langt sundið var, þeg- ar þess er gætt, hve miklu hrað- ar hestur syndir heldur en hami fer á hægagangi á þurru landi. En þess má geta til marks um traust Þórðar á Grána, að Þórð- ur er með öllu ósyndur maður.“ Heygður í fl M iklabæ j a r nesi. Frá mörgum afrekum Grána segir síra Lárus. Hann heygði Grána í jaiL. 1937 í Miklabæjar- nesi. „LíkfylgdÍLi var fámenn, að- eins 2 grafaL'menn, ég og sonur minn, átta ára. Sá hafði riðið Grána, fyrstum hesta, fyrir' framan mig. En yfir þessum fá- menna hópi rikti þögul kyrrð. Allir fundu, að í hópnum var ó- sýnilegur förunautur: íóstra vor Sorg. En á leiðinni heim frá þess- ari vinai'gröf lýsti af einni hi\gg- un, og huggunin var sú, að hér var lokið sögu, sem í raun og veru var eitt samfellt, undurfag- urt ævintýri." Kvenfélag Óhá£;a sáfnaðarins: Kirkjudagurinn er á sunnu- daginn kemur, 13. þ. m. og þá verður nýja félagsheimilið vígt. Þar verða kaffiveiting- ar og er heitið á allar félags- konur og aðra velunnara safri aðarins að gefa kökur me'ð’ kaffinu og koma þeim upp í nýja félagsheimilið kl. 9—12 f. h. á sunnudaginn. Félags- konur eru góðíúslega béðnar að aðstoða við kaffiveiting- arnar. , Brezkir skóla eu farnir að’ liafa sjónvarpsstundir fyrir 11—15 ára börn og kenria einkum landafræði. d-._____j 3

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.