Vísir - 14.11.1957, Side 1
q
k
I
V
i
47. árg.
Fúœntudaginn 14. nóvember 1957
208. tbl.
Eisenhawer fioíar sókn á
sviði tækni og vísinda.
Af þvi Isiðir nauðsyn spam-
aðar o§ ýmis breyfti áfornw
Eisenhower Bandaríkjafor-
seti hefur ávarpað bandarísku
þjóðina og tjáð henni, að mörg
áform verði að leggja á hilluna
og taka upp sparnað á ýmsum
sviðum, til bess að geta staðist
kostnaðinn af að ná því marki,
að Bandaríkin hafi forystu á
sviði vísinda og tækni, og verði
ekki eftirbátar Ráðstjórnar-
rikjanna í neinu.
í ræðu forsetans kom glöggt
fram, að það væri vegna af-
reka Rússa, vísindalegs og
tæknilegs eðlis, sem nú væri
kunnugt um, sem hefja yrði
sókn slíka, sem að ofan grein-
ir, og þjóðin yrði að búa sig
undir að neita sér um margt til
þess að markihu yrði náð.
Hann kvað Bandaríkjunum
lífsnauðsyn, að verða ekki
undir í þessari! samkeppni. —
Minnti hann á, að valdhafar
Ráðstjórnarríkjanna hefðu hvað
eftir annað látið í ljós eða sýnt,
að þeir væru þess albúnir að
beita heinu ofbeldi eða fara
aðrar leiðir til þess að komast
það, sem þeir ætluðu sér.
Brýndi hann mjög fyrir þjóð-
inni, að menntun og þjálfun til
vísindalegra og tæknilegra
starfa yrði að hraða, og til þess
að geta það yrði að breyta ýms-
um áætlunum um útgjöld í
fyrirhugaðri lagasetningu á
næsta þingi. — Hann kvað
Bandaríkjastjórn mjög ógeð-
fellt, að verða að hætta við
ýms áform eða draga úr þeim,
en um það væri ekki að fást,
því að þjóðar nauðsyn krefði.
Eisenhower flutti ræðu sína
um þjóðar öryggi í Oklahoma
City. Fara hér á eftir nokkur at-
riði úr ræðunni:
Vér liíum á einu mikilvægasta
söguskeiði mannkynsins, þegar
vísindi og tækni hafa lyft byrð-
um erfiðis af herðum milljóna
manna.
En auk þess eru millj. manna,
sem nú geta gert sér ákveðriar
vonir um minna strit og bættan
hag.
Frh. á bls. 5.
Gefast skæru-
liðar upp?
Bretar gera sér vonir um, að
skæruhernaði kommúnista á
Malakkaskaga verði hætt fyrir
jól.
Hafa þeir fengið þær fregnir,
að Chin Peng, foringi kommún-
ista, er hefst við í frumskógum
skagans, sé reiðubúinn til að
gefast upp. Hefur hann ritað
forsætisráðherranum í Kuala
Lumpur og stungið upp á við-
ræðum um að bardögum verði
hætt. Þau níu ár, sem Bretar
hafa átt í höggi við kommún-
ista, hafa skærur þessar kostað
25,000 mannslíf, en áætlað er,
að enn sé um 1800 skæruliðar
í skógunum á skaganum.
SuðurlandinH
«
Þarna munaði litlu, að verr færi en gerði. Eftir árekstur á brú
við Izmir (Smyrna) í Tyrklandi, rakst langferðabíll á síeinrið
og braut það, en fór þó ekki út af brúnni. Skelkuð móðir stökk
hinsvegar úr bifreiðinni með barn sitt, og beið hún bana, cm
barnið siapp lifandi.
Veríð að útbúa marga
báta aftur á reknet
Vafasamt að ftakíst að fá
ábafsi á @Ela bátanaw
Aðalfundur fulltrúa-
ráðsins er í kvöld.
Óiafisr Thors taiar aB a)a!fundarstörfum
loknum.
í kvöld klukkan 8,30 hefst þess eru fulltrúar í ráðinu
aðalfundur fulltrúaráðs sjáf- hvattir til að fjölmenna og
stæðisfélaganna í Reykjavík í. koma stunddvíslega á aðal-
Sjálfstæfrishúsinu. i fundinn í kvöld.
• Þegar venjulegum aðaKund-
arstörfum verður lokið, mun
Ólafur Thors, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, halda ræðu,
og mun fyrst og fremst ræða
þaú mál, sem nú varða mestu
heill og hag þjóðarinnar, eins
og ástatt er.
Eftir hálfan þriðja mánuð
verður gengið til kosninga enn
einu sinni, þvi að þá fara fram
bæjar og sveitarstjórnarkosn-
Ingar, og undirbúningur fyrir
þær er víða hafinn. Verðá sjálf-
stæðismenn riú að hefja undir-
búninginri einníg og treystá
sámtokin, 1 svó áð flokkurinn
vinni hvarvetna a. Méð'tilliti til . ■
Hin þrotlausa síldarleit bar
loks verulegan árangur í nótt,
en þá fengu fjórir bátar frá 70
til 150 tunnur af síld og er nú
verið að búa út fleiri báta é
reknet í öllum verstöðvum.
ef tekst að fft
í Keflavík er búizt við að 6
eða 7 bátar byrji strax veiðar
ef tekst að fá áhöfn, en á því
eru nokkur vandkvæði, þar
sem fjöldinn af sjómönnum
hefur leitað sér atvinnu í landi,
þar eð sýnt þótti að lítið myndi
verða af síldveiði í haust.
Frá Akranesi, Sandgerði og
Hafnarfirði fara eins margir
bátar á reknet og hægt er að fá
menn á, en allsstaðar eru sömu
erfiðleikarnir að fá menn á
bátana.
Góðar horfur eru á að takist
að koma mörgum bátum af stað
ef það sýnir sig að um mikið
síldarmágn er að ræða, en svo
virðist einmitt vera þar eð
þessir fjórir bátar, sem úti
voru í nótt voru dreifðir yfir
stórt svæði og voru svo langt
frá hverjir öðrum að engin sá
til annars og lóðuðu allir sUd
á þessu viðáttu mikla svæði. |
Aðal síldarmagnið sem lóðað
var á virtist halda sig á aJli
miklu dýpi eðá 25 til 30 föðm-1
um, eða dýpra en netin ná, en
þrátt fyrir það hefur eitthvað
af henni lyft sér svo að mikil
veiði fékkst í netin. Bátarnir
voru um 30 sjómílur út af
Skaga, en frekar sunnarlega.
Bátar öfluðu ágætísga
á Skerfacfýpt í tiótt.
3Mwn£nti kVtkk þmtv
150 íuasmett*.
Frá fréttaritara Visis.
Sandgerði í morgun.
Öll merki eru til bess, affi
síldin sé að koma. í fyrrinótfe
varð hennar fyrst vart, c»
miklu betur þó í nóít.
Undanfarið hefur verið ótíð
og þótt bátar hafi farið út í leit
að síld hafa þeir jafnan komið
allslausir aftur — ekkert
fengið.
í fyrrinótt urðu bátar varir
fyrstu síldar á miðunum út a£
Reykjanesi. Tveir Sándgerðis-
bátar, Muninn og Muninn
II. fengu þá lítilsháttar síld á
svokölluðu Skerjadýpi út a£
Eldey. Þar er slæmt að stunda
veiðar nema í góðviðri, því þar
úti eru grynriingar og brýtur
á þeim, ef nokkuð er að veðri.
Fékk Muninn þarna 45 tunn-
ur og Muninn II. fékk 27 tunn-
ur í fyrrinótt.
í nótt voru þeir á sömu slóð-
um með net sín ásamt tveim1
Akranesbátum, Höfrungi og
Keili. Fengu þeir allir góðan
afla, Muninn þó mest, 150
tunnur, Muninn II. fékk 60—70
tunnur, Keilir 100 tunnur og
Höfrungur 50 tunnur.
Síldin er feit og falleg og fer
öll til frystingar. ,
Ura 100,000 japanskir stáí-
verkamenn hafa gert 48 st.
verkfall til að krefjast hærri
launa.
Þjófurinn skiidi íialn
jaUð sitt eftir.
spjöll
brot
í vikunm sem leið, var fram-
inm þjófmaður í húsi einu hér £
bænrnn og stolið þar talsverðu
magni af lauk.
Lauknum hafði þjófurinn kom
ið fyrir í kassa og síðan falið
kassann bak við Prentsmiðju
Þjöðviljans á Skólavörðustíg. —
Þar fannst kassinn og var lög-
reglunni gert aðvart um hann.
Við athugun á þýfinu kom í ljós
að þjófnum hafði orðið sú hrap-
arlega skyssa á að skilja eftir
lyfjaseðil með nafninu sinu á í
kassanum og gat lögreglan því
gengið beint að honum, enda ját-
unniii við inn-
i nétft.
aði hann á sig þjófnaðinn.
1 nótt var framið innbrot í fyr-
irtæki eitt hér í miðbænum og
mikil spjöll unnin á dyraumbún-
aði og húsgögnum en litlu stolið.
Saknað var 20—30 kr. í pening-
um en annars ekkl.
Rúðubrot.
Laust fyrir miðnættið s.l. nótt
var lögreglunni tilkynnt um
rúðubrot í húsnæði Tryggingar-
stofnunar ríkisins að Laugavegi
115. Hafði henni verið tjáð að
mannlaus bíll hefði runnið á hús-
ið og torotið þar stóra rúðu.