Vísir - 19.11.1957, Síða 7

Vísir - 19.11.1957, Síða 7
Þriðjudaginn 19. nóvember 1957 VÍSIB I skildi hann hvers vegna Colette hafði talað svo niðrandi um vatnsleiðsluna. Hann fór að velta fyrir sér hverskonar aðstöðu hún mundi hafa innan fjölskyldunnar. Og hann fann að hann mátti ekki veita Colette of mikla athygli. Það mundi vekja eftirtekt og kannske grun hjá þessu ókunna fólki, sem hafði skotið yfir hana skjólshúsi. Svalirnir voru í miðju húsinu og gengu inn í það, þannig að skjól var á þrjár hliðar. Colette hafði farið í upplitaðan bláan bómullarkjól og setti á sig ilskó, en samt var hún enn eins og barn, með sólbrennda handleggina og fæturna. — Hvernig viljið þér hafa teið? spurði hún svo alvarleg, að það lá við að John skellti upp úr. Þetta var ung ensk stúlka í útlegð.... og nónteið var aðaihátíð dagsins. — Með mjólk og ofurlitlu sykri, þökk fyrir. Hann ætlaði að fara að slá henni gullhamra fyrir teið þegar Fionettifjölskyldan kom með ærandi hávaða og skvaldri og festi vélbátinn við bryggjuna. Það birti yfir Colette. — Emilio var að sækja börnin í skólann. — Colette! Colette! Ungur, svarthærður maður með fjörleg augu kom hlaupandi upp á svalimar. Vegna þess að skyrtan hans var hvít virtist hörundið nærri því svart. Á eftir honum komu tvö stálpuð böm, sem lögðu böggul við fætur Colette áður en þau litu við að skoða gestinn. Þau störðu á hann eins og naut á nývirki. — Hvar geymirðu þennan Englending þinn, Colette? hrópaði Emilio áður en hann sá aðvörunaraugu Colette. Svo kom hann auga á John og rétti fram höndina: — Benvenuto, signore.... Velkominn John var skemmt er hann heyrði hve fljótlega Emilio ger- foreytti röddinni. Hann tók fast í hönd Emilio, en þegar hann leit í augu hans, hrökk hann við er hann sá andúðina, sem úr þeim skein. Emilio þótt að visu vænt um að fá gesti — á þeim lifði hann — en honum líkaði auðsjáanlega ekki að Colette drykki te með Englendingnum. John fann á sér að hann mundi vera afbrýðisamur. Líklega var hann ástfanginn af Colette. John varð áhyggjufullur. Ef hún væri ástfangin af Emilio þá; var það full skýring á því að hún skyldi hafna boðum ömmu sinnar. Og þá mundi John fara erindisleysu. John féll betur við yngri Fionettibörnin en við Emilio, lag- lega ungan leiðsögumanninn, sem eins vel hefði getað komið | beint úr rómantískri óperettu en ekki upp úr vélbát. Bianca sem! var þrettán ára, var grannvaxin, og göngulagið var dansandi. Hún var Ijómandi lagleg, og vissi vel af því sjálf. Colette var bjartleit og norræn þegar maður sá hana við hliðina á Biöncu,! með svörtu lokkana, brún augun og dökkt hörundið. John gerði sér það til gamans að hugsa sér Colette í víðum fellingakjól, sitjandi við teborðið hjá ömmu sinni í Osterley Kcuse — en ekki! í upplitaða bómullarkjólnum. En hann var úvanur því að gera ! sér hugmyndir um kvenfatnað, og þessi mynd fór i mola hjá lionum. Hér var Colette í gamla kjólnum, glöð og kát hjá 'börn- unum, og það var erfitt eöa öllu heldur ómögulegt að hugsa sár hana í dýrum kjól, og-eins og vel uppalda hefoardömu á svipinn. Bianca hneigði sig og tók í höndina á John. — Góðan daginn, sagði hún á ensku, eins og Colette hafði kennti henni, en það var glettni í augum hennar þegar hún virti John fyrir sér. Henni fannst þessi Johnson vera skrambi myndarlegur maður, miklu eítirtektarverðari en strákarnir sem hún þekkti í þorpinu, og ef til vill mundi Colette leyfa henni að humma lexíurnar fram af sér í kvöld.... Bianca taldi þann tíma fara til ónýtis, sem hún eyddi í lexíurnar. Hún hafði þá kunnáttu sem nauðsynleg var til að krækja sér í mann — hún gat dansað og sungið, og hún gat líka farið í sendiferðir og soðið mat cg búið um rúm þegar hún nennti því. Einhvern tíma ætlaði hún sér að verða margra barna móðir, en áður ætlaði hún að eignast föt eins og þau, sem stúlkurnar í Lugano gengu í — og skemmta sér vel. Þegar móðir hennar dó hafði hún haldið að nú mætti hún fara úr skólanum og fara að vinna í veitingahúsinu í staðinn, en Colette hafði fengið Emilio til að láta hana verða í skólanum í tvö ár enn. Það var mesta flónska, fannst Biöncu, því að allt sem maður lærði af bókum var gersamlega gagnslaust í daglega lífinu. Pietro var ekki nema tíu ára. Hann tók líka í höndina á gest- inum og spurði á bjagaðri ensku: — Langar þig til að koma og veiða? Þú mátt koma með mér! Haim barði sér á brjóst: —Pietro, bezti leiðsögumaður í allri Lugano! Emilio, sem hafði staðið og hallað sér upp að stoð, þreif til hans og sagði á ítölsku: — Þú verður aldrei góður leiðsögu- maður ef þú lærir ekki lexiurnar þínar. Fyrst og fremst mann kynssöguna. Ferðafólkið hefur svo mikinn áhuga á því, sem gerst hefur í gamla daga. Farið þið nú að læra, bæði tvö. Strax! Pietro fór hlæjandi út og Bianca á eftir. Og þegar þau gengu fram hjá stól Colette kyssti hún þau bæði á kinnina og sagði brosandi: — Þakka ykkur innilega fyrir gjöfina. Hún opnaði böggulinn, sem börnin höfðu komið með, og i honum var falleg hvít begónía, sem börnin höfðu verið að draga saman aura fyrir í margar vikur. HEIMILISÁNÆGJA. Emilio s’tóö reykjandi og horfði á Englendinginn og Colette ; meðan þau voru að drekka teið. Honum fannst hjákátlegt að j drekka te á þessum tíma dags. Hann horfði umvöndunaraugum á Colette. Hún var ekki eins og hún átti að sér í dag. Þó að hún væri vön að fara í kjól um þetta leyti. Líklega var hún hrifin af þessum Englendingi. Henni þótti sennilega gaman að tala sína eigin tungu — og tala um hluti, sem hún og Bianca og Pietro og Lucia gamla botnuðu ekkert í.... samskonar hluti og signora kvöldvökunni i i Á herbergjaganginum í sum- argistihúsi einu stóð eftirfar- andi auglýsing: Þér þuríið ekki að bíða eftir að vera kynntur fyrir meðgestum yðar. Hér er- um við ein stór fjölskylda. Og undir stóð: Við berum ekki ábyrgð á verðmætum, sem þér skiljið eftir í herbergjun- um. ★ Konan fór með manninn sinn til geðlæknis. Gerið eitthvað fyrir hann, læknir. Hann held- ur að liann sé járnbrautar- teinar sem eru skotnir í eim- vagni. Þetta er furðulegt uppátæki. Skiljið manninn eftir hjá mér. Eg skal hjálpa honum. Hálfum manuði seinna kom maðurinn heim aftur og var nú iðrandi vegna fyrri gerða. Nú er eg kominn aftur fyrir fnl.lt. og allt og hættur þessari járn- brautarvitleysu. Hvað gerði hann við þig? Sýndi mér fram á, að þetta gæti ekki gengið. Eimlestin mundi fyrr eða síðar stinga mig af. ★ Eg kom til að biðja yður að skoða mig og sjá hvort nokkuð væri að mér læknir, sagði frúin. Hann horfði á hana ym stund: Þrennt er að yður. Þéf eruð of feit, notið of mikið púður og sjáið illa. Á skiltinu stendur nefnilega að eg sé dýralæknir. Þegar konan fær karlmanns- laun: Föstudagskvöld. -k Pétur var að fara á kappreið- ar með hundinn sinn og þegar hann gekk inn um hliðið á vell- inum kom til hans hryssa og- sagði: — Veðjaðu öllu á mig, eg skal vinna. — Nei, hvert í þreifandi. Þetta er í fyrsta sinn sem eg heyri hross tala. —; Eg líka, sagði hundurinn. * Jeppi: Kokteilhristari með þrem hröðum. V Hún kom heim fremur seint. Ó, elskan, bíUinn þinn er uppi á Laugavegi. — Hvers vegna komstu ekki íheim með hann? — Eg gat það ekki. Það var! orðið of dimmt til að finna allaí partana. * E. E. Br.rroughs Áður lifðu rnenn þar til þeir dóu, riuna þaf til keyrt er yfir þá. í '— Segið mér-citt, sagði lækn-í irinn. —.Stamið þér alltaf? — Ne-.ei, ba-barrra, þe-. eegar eg tal-IIla. j — Það er svo þurrt í þorpinu . heima,- sagði lygarinn, að þar eru til þriggja óra gamlir fisk- ar sem ekki kunna að syncla. Hann: Eg sé kraft., hugrekki- og góðvild í andliti þínu. Hún: Hvernig sérðu betta allt í andliíinu á mér? Hann: Eg kann að lesa millf lína. var hellir hulinn kjarri og var myrkt inn að líta. Hinn fámenni hópur svertingja hélt nú af stað til fjallsins vopnum búinn og Tarzan sem var grunlaus fylgdi ■ leiðsögu . Remus, sem virtist kunnugur öllum staðháttum. Að lokum komu þeir að rótum fjallsins. Þar

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.