Vísir - 21.11.1957, Page 7
Fimmtudaginn. 21. nóvember 1957
VtSIB
Það er ljómandi fallegur staður og gistihúsið er afbragð. Kannske
langar yður til að flytja þangað, þegar þér sjáið það.
— Mér liggur ekkert á að skoða nágrennið, sagði John letilega.
Það var svo friðsælt og hljótt þarna úti á vatninu. Loítið var
svalt, en það var þægilegt að halla sér aftur þarna, með svæflana
við bakið og værðarvoð á hnjánum. Bjart höfuð Colette var eins
og skýr skuggamynd, meö ljósin frá Lugano bak við, og líkast
og geislabaugur væri um höfuð hennar. Svipmótið hreint og
íallegt og hún talaði lágt, eins og hún vildi ekki trufla friðinn,
sem ríkti þarna á vatninú. Eina hljóðið .sem heyrðist var gjálp
vatnsins við kinnunginn á bátnum.
— Þetta er fallegt! sagði John lágt. — Þakka yður fyrir að
þér fóruð með mig hingaö, Colette. En nú er bezt að við snúum
við. Þér hljótið að vera þreytt!
Hún hló. — Eg er aldrei þreytt! Þetta er ekki nema gaman —
og það er svo auðvelt. Það er eitthvað annað en að róa með
ferðafólk fram og til baka til Morcoté í steikjandi hita, og þeir
eru alltaf að skipa manni að stanza, þegar þeir vilja taka myndir.
Þau sátu lengi og nutu fegurðarinnar þarna úti, og Colette
komst að raun um, að það var létt að tala við þennan Eng-
lending. Þrátt fyrir hispursleysi sitt var hún varfærin um allt
það, sem vissi að henni sjálfri. Ýmsir ferðamenn höfðu lagt fyrir
hana spumingar um einkamál hennar þegar þeir komust að
raun um að hún var ensk en bjó hjá ítölsku fólki, en hún fékkst
aldrei til að segja frá tildrögunum til þess, að svo stóð á. Hvernig
sem nú á því stöð kippti hún sér ekkert upp við hæglátar spurn-
ingar þessa manns — það kom kannske af því að hann var
íullorðinn. Nærri þvi nógu gamall til að vera faðir hennar. Hún
fann að hún gat treyst honum.
Hún sagði: — Bráðum verðum við að fara að halda heim.
Fjallagolan verður kaldari þegar liður á kvöldið. Eg skal róa út
með yöur á morgun, til að mála eða veiða — eða hvað sem þér
viljið.
— Það er ekki vert að tefja yður um of, ef þér hafið ákveöinn
vinnudag eins og Emilio, sagði hann á báðum áttum. Hann fór
að velta fyrir sér hvort hún mundi mcðgast ef hann bæði hana
run að Ijá sér bátinn.
Colette brosti. — Eg vinn þegar mér sýnist, og við látum yður
foorga fyrir þetta líka. Er of mikið að setja upp tíu krónur á dag?
Fyrir það fáið þér íæði og húsnæði, og .eg get róið með yður út
á vatn eða farið meö yður upp í fjall — alveg eins og þér viljið.
— Það er afbragð, sagði John og brosti. — Eruð þér viss um
að það sé nóg?
Hún kinkaöi kolli í ákafa. — Það er nóg. Og þér getið notað
vélbátinn þegar þér viljið. Emilio þykir bara vænt um það.
John hló. — Það efast eg um. Eg held að Emilio sé ekki sér-
iega lnáfinn af Englendingum. En kannske þér kjósið helzt að
E. R. Bnrroughs
eg fari til Lugano aftur Colette? Eg baka ykkur Luciu mikið
umstang ef eg verð hérna hjá ykkur áfram.
Colette stakk hendinni ofan í vatnið og svaraði hreinskilnis-
lega: — Við ömustum ekkert við því að gera okkur auka-ómak,
og það er ekki nema gott ef þér viljið verða hjá okkur áfram.
Tiu krónur á dag í sex vikur er mikið fé, og góð stoð handa
Emilio til að borga af vélbátnum. Við vorum heppin að þér
skylduð koma, og þér skulúð ekki hafa neiriár áhyggjur af
Emilio — hann er bara hræddur um að þér vekið hjá mér löng-
un til að fara til Englands — alveg eins og hún mamma gerði....
Colette brosti aftur. — Fionetti er eina fólkið sem eg á að.
Þau eru eiginlega ekki ættingjar mínir, eg veit það — bara góðir
vinir. Eg skal segja yður hvernig í því liggur. Eftir að Frakk-
land var hernumið fóru foreldrar mínir bæði í andstöðuhreyf-
inguna. Mamma gerði mikið gagn því að hún talaði bæði málin
reiprennandi og gat starfað hjá leyniþjóhustunrii. Þegar faðir
minn var handtekinn og skotinn reyndu Þjóðverjar að ná í
hana lika, en góðir vinir hennar gátu komið henni undan til
Sviss.
COLEETE SEGIR FRÁ.
John kinkaði kolli þegjandi og reykti áfram meðan hann hlust-
aði á söguna frá stríðinu, sem hann kannaðist svo vel við og
reyndi að hugsa sér Evelyn Stannisford sem eriskan njósnara —
sömu Evelyn sem hann hafði þekkt, og þá hafði verið draum-
lynd ung stúlka, sem var kúguð af föður sínum — rómantísk
stúlka, sem hafði strokið með frönskum listamanni. Veslings
Evelyn! Hún hafði verið hugrökk þegar hún flýði, en hana
grunaði ekki hvað taka mundi við síðar á æfinni.
María Fionetti tók okkur að sér hérria í Gandria. Við áttum
enga peninga og vorum klæðalitlar, en hún fór með móður mína
eins og liún væri systir hennar og börnin hennar fengu aldrei
meira en eg fékk. Það kom hiti i rödd Colette og tárin voru ekki
Dagblaðið VÍSIR óskast sent undirrituðum.
Áskrifstargjaldið er 20 kr. á mánuði.
Nafn ...............................
Heimili ............................
Dagsetning................
Seridið afgreiðslunni þetta eyðublað í pósti eða á annan
hátt, t. d. með útburðarbarninu.
íbáar á Sólvöilum
Munið söluturninn á Blómvallagötu 10.
Qpið til kl. 23,30.
verður haldinn sunnudaginn 24. þ.m. í Tjarnarkaffi og
hefst kl. 14.00 stundvíslega.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Önnur mál. :;v
Reikningar félagsins Tiggja frammi hjá gjaldkera.
Stjórnin.
T A H Z A W ■ ” 2®ss
Skógræktin —
Framh. af 5. síðu.
I iandi vaxa nú margar tegund-
ir trjáf, sem geta orðið til ó-
metanlegra nytja i framtíðinni.
Trjáfræ er ekki leng'ur sótt
íil annarra staða en þeirra, er
svipar til íslands að því er
sumarhita og'lengd vaxtartíma
snertir. Reynsla og kenning er
látið fara saman í trausti þess,
að þá fari vel.
Timburkaup þjóðarinnar
nema 50 millj. kr. á ári eða
meira. Mestan hluta þess barr-
viðar sem irinfluttur er, má
rækta innanlands.
Hér þarf að gróðursetja 2
milljónir plantna árlega til þess
að afurðir þeirra skóga, sem
af þeim spryttu, er fram líða
stundir, jöfnuðust á við allan
innflutninginn riú.
Gerð hefur verið áætlun um
skóggræðslu næstu fimm ár. Er
þá gert ráð fyrir, að gróður-
setning aukist úr 1 milljón
plantna vorið 1952 í 2 millj.
1962. Til þess þarf að verja 1,5
millj. kr. meira árlega en nú.
Föst skipan er komin á inn-
flutning trjáfræs. Gróðrarstöðv
ar landsins eru nú 10 ha. að
flatarmáli.
Skógfæktarfétögiri hafa eflzt
mjög og leggja mikið af mörk-
um til skógræktar. Girðingar
félaganna eru nú um 200 km. á
lengd og taka yfir 3000 hekt-
ara lands og gróðursetja um
hálfa milijón plantna.
Forystumenn þjóðarinnar
skilja þessi mál betur en sam-
þingismenn Hannesar Hafstein
fyrir hálfri öld og þeir hafa
sýnt skilning sinn í verki.
Dýraverndunarfélags fs-
lands verður haldinn n.k.
sunnudag, þ. 24. nóv. kl. 15
í Sjálfstæðishúsinu í Rvíb.
Auk' aðalfundarstarfa
samkv. lögum:
Tarzan gekk hljóílega í
myrkiun göngunum en í
daufri ljósgætu framundan
þóttist hann sjá'-máririvörU í;
feium. Honum varð á að ;
velta steini með fæti sínum j
ög spratt þá upp mannvera ,
furðuíega búin með grímu j
fyrir andlitinu. Gríman j
huldi allt höfuð rriannsins og
var hún að lögun og lit sem
skorkvikindi, ljótt og rriikið.
Þetta var þá skordýramaður.
Upplestur: Guðmunaur
Gislason Hagalín
rithpfundur.
Kvikmyndasýning.
Stjórnln. )