Vísir - 28.11.1957, Blaðsíða 5

Vísir - 28.11.1957, Blaðsíða 5
Fimmtudaginn 28. nóvember 1957 Ví SIR 5 Fjölmenn afmæliskvöldvaka Fer&afélags íslands. Minnzt látinna forvígismanna. Ferðafélag: íslands efndi í gær kvöldi til kvöldvöku í Sjálfstæð- Ishúsinu í tilefni af 30 ára af- mæli félagsins. I upphafi vökunnar ávarpaði varaforseti félagsins, Jón Ey- brsson. gesti og drap á upphaf og þróunarsögu Ferðafélags Is- lands. Lýsti hann hlutverki þess og hverju það hefði áorkað á að- eins þremur áratugum. Þá gat hann þess að nokkrir úr hópi stofnenda og aðalforystumanna félag^ins væru horfnir úr hópn- um þar á meðal tveir forsetar fé- lagsins, þeir Jón Þorláksson foorgarstjóri og Gunnlaugur Ein- arsson læknir, þá væru ennfrem- ur tveir varaforsetar látnir, Stein þór Sigurðsson magister og Pálmi Hannesson rektor. Loks væri svo Kristján Skagfjörð stórkaupmaður, sem um ára- skeið var framkvæmdastjóri og einn af nýtustu mönnum þess f rá upphafi, horfinn úr hópnum. Að ávarpi Jóns loknu var sýnd kvikmynd Vigfúsar Sigurgeirs- sonar Ijósmyndara, er hann hafði tekið austur í Öræfum og sýndi mætavel hið undurfagra en þó hrikalega landslag þessara af- skekktu sveitar. Einn meginþátt- ur myndarinnar var frá siðasta Skeiðarárhlaupi, en þá varð Skeiðará stærsta vatnsfall Norð- urálfu og með nær tvítugföldu vatnsmagni Þjórsár. Prófessor Einar Ól. Sveinsson las kafla úr nýútkominni bók Pálma heitins Hannessonar, „Landið okkar“, að þvi búnu var myndagetraun og að lokum stig- inn dans. Brezkar hjúkrunarkonur valda deilum. Brezk kona, frú Kathleen Lovi- bound, er sætti átti í Wolfanen nefndinni, sem kynnti sér laus- læti í Bretlandi, vakti mikla reiðiöldu þar, er hún í fyrri viku komst svo að orði, að „talsvert margar" hjúkrunarkonur legðu stund á vændi í frístundum, og kvað þetta framferði þeirra tengt því, að þær væru lágt laimaðar. Til marks um hve menn tóku þetta óstinnt upp er það, að kunn blöð í Lundúnum birtu ritstjórn- argreinar, þar sem frúin var vítt fyrir að hafa talað um þessi mál af ábyrgðarleysi og farið með staðlausa stafi. M.a., sem fram hefur komið Neytendasamtökin gefa út jólabækling. Þar er að finna upplýslngar um jólainnkaup. A'on er á nýjum leiðbeininga- lbækli frá Neytendasamtökunum, sein að öllu leyti verður helgað Ur jólunum, og þeim vandamál- um sem þeim fylgja. Verður bæklingurinn sendur út 10. desember. Upplag hans vérður 10.000 og hið stærsta þeirra bæklinga, sem Neytenda- Bertels á „Bergmanden", kvæði Ibsens, sem „er ódauðlegt á frummálinu og þýðing hans (Bertels) á sama ódauðleikann skilið." Þýðing Bertels á gamankvæði eftir Burns („Konuna mina á ég einn“) sýnir að mínu viti frá- bæra hæfileika til að „þýða ljóð af hagleik." 1 kverinu er merkisritgerð eft- ir Bertel um Henrik Ibsen, ljóð Bertels úr Verðandi, og Kolbrún- arljóð (ort á dönsku) í snilldar þýðingu Hannesar Hafsteins. Ytri búningur margra bóka, sem nú eru út gefnar, er hinn glæsilegasti. Svo er ekki um þessa litlu bók, en ég vil segja, fyrir mitt leyti, að ég lít á hana sem kjörgrip. — 1. samtökin hafa gefið út, en þetta er hinn 11. í röðinni. Bækling- arnir eru sendir meðlimum sam- takanna og eru innifaldir í ár- gjaldinu, sem er þó aðeins 25 krónur. Jólabæklingurinn verður þó sendur fleiri, meðan upp- lag endist.eftir að meðlimunum hefur verið sendur hann. Leiðbeiningar bæklingsins varða: meðferð á jólatrjám, jóla- gjafir, jólamat, jóladrykki, jóla- kort, jólaskraut, o. s. frv., en auk þess verða þar upplýsingar um ferðir strætisvagna um jólin og afgreiðslutíma verzlana o. fl. Til- gangurinn með bæklingnum er að safna I einn stað sem mest- um upplýsingum, sem að haldi mega koma um jólin. Auglýsing- ar verða teknar í bæklinginn, og skulu þær verða upptalning á þeim vörum, sem viðkomandi hefur á boðstólnum og vill sér- staklega minna á, ásamt upplýs- ingum um-verð. Auglýsingarnar eiga fyrst og fremst að veita lesandanum raunhæfar upplýs- ingar, eftir því sem kostur er. NAUÐUNGARUPPBOÐ verður haldið í tollskýlinu á hafnarbakkanum, hér í bæn- um, fimmtudaginn 5. des, n.k. kl. 1.30 eftir kröfu toll- stjórans í Reykjavík o. fl. Seldar verða ýmsar vörur til lúkningar aðflutningsgjöldum, húsgögn og heimilistæki til lúkningar ýmsum kröfum. Enn fremur verða seldar ýmsar vörur, er gerðar hafa verið upptækar af tollgæzlunni í Reykjavík, þ. á. m. eru stál- þráðstæki, radíógrammófónar, fatnaður, skófatnaður, - ^ snyjtlvoxuý. lindarpennar, hljómplötur, skrautvörur o. m. fl. >7 ..JSrélðsla; fái;i fram við hamarshögg. Borgarfógetinn í Reykjavík. í málinu, að næstum undantekn- ingarlaust hafa stúlkur, sem handteknar hafa verið fyrir laus- læti, og sagzt vera hjúkrunar- konur, sagt ósatt um starf sitt, en hinar hætt hjúkrunarstörfum áður en þær leiddust út i laus- lætislifnað. Nú hefur frú Lovibound tekið aftur ummæli sín. Frú Lovibound er forseti dóm- stóls i Uxbridge, sem fjallar um brot ungmenna. Hún var sæmd heiðursmerkinu C.B.E. um ára- mótin seinustu. Málið mun verða rætt í brezka þinginu. Jarðbornum vísað frá - 9 : 8. Efri deild hefur fellt frv. um að lækka eða fella alveg niður tolla af gTifubornum. Frv. var drepið í fyrradag. Fyrir fundi Ed. lá nefndar- álit frá minni hluta fjárhags- nefndar um að afgreiða frum- varpið um tollskrárbreytinguna með rökstuddri dagskrá. Var það samþykkt með 9 atkv. gegn 8. Þar með er mál þe’tta úr sög- unni a. m. k. í efri deild. Hin rök- studda dagskrá var svohljóð- andi: Þar sem samþykkt þessa frv. mundi raska samræmi í tolla- kerfi landsins og ekki getur held ur talizt sanngjarnt að fella nið- j ur eða lækka aðflutningsgjöld I af þessum tækjum sérstaklega og með því enn fremur, að slíks er ekki nauðsyn vegna „bágbor- ins fjárhags Reykjavíkurbæjar", þar sem hann getur haft full not þessa tækis án þess að vera eig- andi þess, þykir deildinni ekkij ástæða til að fjalla frekar um j frv. og tekur þvi fyrir næsta mál I á dagskrá. Silfurmunir Ullarvörur Vefnaður Útskurður Leirmunir Leðurvörur Ýmsar málmvörur Myndabækur, jóla- og póstkort Rauða telpubókin 1957 Stiarna visar vegmn eftir Elisabethu Chester. Freysteinn Gunnarsson skólastjóri valdi bókina og íslenzkaði. Þetta er úrvals telpu- og unglingabók á borð við allra skemmtilegustu Rauðu Bók- fells Bækurnar, svo sem Pollýönnu, Siggu-Viggu o.fl. Bókfellsútgáfan BEZT AÐ AUGLÝSA í VISI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.