Vísir - 28.11.1957, Blaðsíða 8

Vísir - 28.11.1957, Blaðsíða 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað Iestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. Munið, að í>eir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Fimmtudaginn 28. nóvamber 1957 Pineau ber sakir á Egyptaiand 'og SýrSand í Sþ. í París fer Gaillard fram á traust. Stjórnmálanefnd allsherjar- þingsins ræðir Alsírmálið. Pine- au utanríkisráðherra Frakklands sat fundinn. Hann sakaði Egyptaland og Sýfland um að senda uppreistar mönnum vopn. Þeir hefðu fengið vopn frá þeim svo hundruðum smálesta skipti. Ekkert kvað hann fjær sanni en það, að það væri alsirska þjóð in, sem berðist gegn Frökkum. Uppreistarmenn hefðu myrt 7000 Mohammeðstrúarmenn og sýndi það, að alþýða manna fylgdi þeim ekki að málum. Nú hefði Frökkum tekizt að uppræta hermdarverkin að kalla, og færi Frakkland fram á, að Samein- uðu þjóðirnar hættu afskiptum af þessum málum, sem væru frönsk innanríkismál, og lofa Frökkum að leysa þau eins og þeim þætti réttast, en stefna Frakka væri: Vopnahlé, þar næst frjálsar kosningar og loks sam- komulagsumleitanir. Fineau kvað Marokko og Túnis ekki nógu háð til þess að taka að sér málamiðlun. Tilboð þeirra kvað hann mið- að við, að Alsír fengi sjálfstæði — en ekki kæmi annað til greina, en að Alsír yrði. áfram innan franska ríkisins. Fulltrúar Egyptalands og Sýr- lands neituðu, að uppreistar- mönnum i Alsír hefðu verið send vopn frá löndum þeirra. > w Fulltrúadeildin franska samþykkti með 40 atkvæða mun, að fresta um óákveðinn tíma heimastjórnarfrumvarpi stjórnarinnar, og snerust íhalds- þingmenn þar gegn stjórninni, en Gaillard lætur ekki bjóða sér þessa afgreiðslu, og krefst trausts og þar með, að frumvarp ið verði lagt fyrir aftur. Líkur eru sagðar fyrir, að Gailiard hafi sitt fram. Eldflaugasföðvar við Suezskurð? > I Lundúnadagblaði er birt fregn um það nýlega, að Rússar ætli að koma upp eld- flaugastöðvum við Súezskurð — sá sé tilgangurinn með efnahagssamningi við Egypta, en samkvæmt lionum leggja Rússar Egyptum til kjarnorku vopn. Frá þessum stöðvum á að vera liægt að skjóta eld- flaugum með kjarnorku- sprengjum í oddinum 320 til 640 km. vegarlengd. — Krú- sév á hafa sagt Amer, her- málaráðherra Egyptalands, ;að brezku liersböðvamar á eiðinu væru hinn ákjósanleg- asti staður fyrir eldflaugar, en þar sem Egyptar kynnu ekki með siík tæki og vopn að fara og hér um ræðir, yrðu Rússar að senda sérþjálfaða menn til að gæta þeirra, og yrðu þeir að vera klæddir borgaraiegum fötum. Þýðing Nýja testament- isins verði endurskoðuð. Frá aðalfundi Biblíufélagsms. Aðalfundur Hins íslenzka Bibl- íufélags var haldinn í áómkirkj unni í Reykjavík að afstaðinni guðsþjónustu sunnudaginn 24. nóv. s.I. Forseti félagsins, dr. Ásmund- ur Guðmundsson, biskup, setti fundinn með bæn. Síðan gerði hann grein fyrir störfum félags- stjórnar á liðnu ári. Á árinu gaf félagið út Biblíuna, og er það endurprentun á útgáfu Bibliufé- lagsins brezka og leturplöturnar keyptar af því. Gerði sú ráð- stöfun útgáfuna til muna ódýr- ari. Biblían er prentuð á vandað- an pappír og er í smekklegu bandi og kápu. Verð hennar er kr. 145.00. Aðalútsölu annast Ól- afur B. Erlingsson í bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar, og er hann jafnframt framkvæmda- inu hvort um sig kr. 10.000.00. Allar þessar gjafir og stuðning þakkar félagið heils hugar. Gjaldkeri félagsins, séra Ósk- ar J. Þorláksson, lagði fram end- urskoðaða reikninga félagsins, og voru þeir samþykktir í einu hljóði. Á meðal þeirra mála, sem rædd voru, var nauðsyn á, end- urskoðun þýðingar Nýja testa- mentisins og var talið æskilegt, að þeirri endurskoðun yrði lok- ið og vönduð útgáfa af Nýja testamentinu kæmi út á 150 ára afmæli Bibliufélagsins árið 1965,4. riðili. Eins og kunnugt er hefur Ferðaskrifstofa ríkisins um árabil rekið minjagripaverzlanir í Reykjavík og á Keflavíkurflug- velli, og unnið markvisst að því að fá gerða þjóðlega minja- gripi. Með ári hverju liefur fjölbreytni aukist og má nú segja að margt þjóðlegra muna sé á boðstólum, sem eru landi og 'þjóð til sóma. Auk bess sem erlendir gestir kaupa minjagripi, berast Ferðaskrifstofunni þráfaldlega pöntunarbréf erlendis frá og þúsundir sendinga liefur hún sent undanfarin ár til ættingja og vina íslendinga víðsvegar um heim. Þeir sein senda vilja jólagjafir með skipspósti, þurfa að velja og fá þær sendar núna næstu daga. Vantar stað undlr drykkjumannahæli. Alls hafa nú safnazt um sjö- tíu þúsundir krónur til bygg- ingar skýlis fyrir drykkjumenn. Er það allt héðan úr Reykja- vík og af því hafa Áfengisvarn- arráð íslands, Áfengisvarna- nefnd Reykjavíkur og fram- kvæmdanefnd Stórstúkunnar lagt fram tuttugu og fimm þús- und krónur samtals. Ekki en enn þá ákveðið, hvar þetta skýli muni standa, en þrír menn hafa verið kosn- ir í nefnd til að fjalla um þetta mál og hrinda því í framkvæmd. Eru í nefndinni: Ásmundur Guðmundsson biskup, Mggnús V. Jóhannesson framfærslu- fulltrúi og Jónas Guðmundsson skhifstofustjóri. Vafalaust munu margir verða til þess að styrkja þetta þjóðþrifafyrirtæki, jvo að skýli fyrir drykkjumenn komizt seni fyrst upp og geti tekið til starfa. Hraðskákmót T. R. hófst í gærkvöídi með 73 þátttakemkm Aff feeim keppa 21 íil íírsliia n. k. suiiiindag. Hraðskákmót Taflfélags Reykja víhur hófst í gær og voru þátt- takendur í byrjunarkeppninni 73 að tölu. 1 gærkveldi fóru fram undan- rásir og var keppt i 7 riðlum. Að- eins 3 efstu menn úr hvorum riðli komust í úrslit eða 21 alls og keppa þeir til úrslita á sunnudag inn kl. 2 e. h. í Þórskaffi. Orslitin i einstökum riðlum í gærkveldi voru sem hár segir: 1. riðiii. Ingi R. Jóhannsson 9 vinninga, Gísli Pétursson 7Mj v. og Reimar Sigurðsson 7 v. 2. riðill. Guðmundur Ágústsson 10 v„ Júlíus Loftsson 8 v. og Sigurgeir Ingvarsson 6 v. 3. riðill. Haukur Sveinsson og Sveinn Kristinsson 9% v. og Björn V. Þórðarson 6 v. 6. riðill. Kári Sólmundarson 8 v., Guð- mundur Lárusson og Ríkarður Kristjánsson 6 v. 7. riðill. Ásgeir Þór Ásgeirsson 8 v., Eggert Gilfer og Jónas Þorvalds- son 7% vinning. Framangreindir menn keppa síðan til úrslita á sunnudaginn kemur. Þrír keppendanna í undanrás- unum, þeir Ingi R. Jóhannsson, Guðm. Ágústsson og Gunnar Ól- afsson hlutu 100% vinninga — þ. e. unnu alla keppinauta sína. Kraf izt betrl land- helgisgæzlu. Á fiskiþinginu í gær voru m.a. rædd landheigismál. Framsögu- maðui’ Arngi’ímur Fr. Bjarna- son gerði gi-ein fyrir liverning málið stæði nú og samþykktum f jórðungs sambandanna. Einnig var rætt um landhelgis- gæzluna og taldi framsögumað- urinn, Einar Guðfinnsson, að landhelgisgæzlan væri ófull- nægjandi eins og hún er nú. Komu fram kröfur frá fjórðungs þingi Vestfirðinga og -sambanöi fiskideilda á Snæfellsnesi um aukna landhelgisgæzlu. Þá var eirinig rætt um vitamál, hafnarmál, stofnlán sjávarut- vegsins hlutatryggingu og fiski- rannsóknir. Ensk lijúkrunarkona í Banda ríkjunum liefur verið hand- tekin fyrir að kveikja £ sjúkra, liúsi, vegna þess, að piltur sveik hana. Kjörnir voru 4 menn í stjórn félagsins samkvæmt félagslög- um. Skipa stjórn þess nú: Dr. Ásmundur Guðmundsson, biskup, Bjarni Eyjólfsson, ritsj., Magnús Már Lárusson, prófes- stjóri félagsins. Biblíuútgáfa sor, Ólafur B. Erlingsson, fram- þessi kostaði að sjáifsögðu mikið fé. En það hefur orðið félaginu mikill styrkur, að félagatala þess fer ört vaxandi og mörg fyrir- tæki og einstaklingar hafa stutt það með myndarlegum gjöfum. Má þar einkum nefna Kaupfélag Eyfirðinga og Samband ísl. sam- vinnufélaga, er gefið hafa félag- kvæmdastjóri, Ólafur Ólafsson, kristniboði, Óskar J. Þorláksson dómkirkjuprestur, Sigurbjörn Einarsson, prófessor, Sigurbjörn Á. Gíslason, prestur, Þorkell Sig- urbjörnsson. Fundinum lauk með bæn, er dr. Bjarni Jónsson, vígslubiskup, flutti. Gunnar Ólafsson 9 v. Jón Guð- mundsson 6% v. og Kristján Sylveríusson 6. v. 5. riðili. Gunnar Gunnarsson 9% v., Guðjón Sigurkarisson 8V2 v. og Grétar Haraldsson 7 v. Samþykkt hefur verið við 2. umræðu í neðri máistofu brezka þingsins frumvarp til laga um hafnarbætur í Mil- ford Haven, svo að aJIt að 100.000 smálesta skip geti fengið þar afgreiðshi. Frjáls innflutningur á menningarverðmætaiim. 26 þjóðir aðilar að slíkri samþykkt. Á ráðstefnu, sem haldin. var fyrir skömrnu í Gefn, urðu full- trúar frá 52 þjóðum ásáttir um, að fara framá, að innflutningur ýmsra menningarverðmæta yrði gerður frjálsari en hann er nú víða um lönd. Það er aðallega um að ræða vísindatæki safnaáhöld og lista verk, sem farið er fram á að verði undanþegin tollum og inn- flutningshöftum. Fundurinn í Gefn var haldinn að tilhlutan UNESCO, — Menntunar-, vísinda og menningarstofnunar Samein- úðu þjóðanna. Til fundarins var boðað til þess að endurskoða al- þjóðasamþykkt, er samin var á vegum UNESCO fyrir nokkrum árum og þar sem mælt er svo fyrir, að tollar skulu afnumdir og innflutningur gefinn frjáls á dagblöðum, tímaritum, frétta- kvikmyndum, segulbandi með hljómlist, upplestri 0. s. frv. Alls hafa 26 þjóðir gerst aðilar að þessari alþjóðasamþykkt. Á Genfarfundinum var samþykkt, að stuðla að því, að flestar þjóð- ir gerðust aðilar að samþykkt- inni og stuðla þannig að aukn- um menningarviðskiptum milii þjóða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.