Vísir - 21.12.1957, Qupperneq 1

Vísir - 21.12.1957, Qupperneq 1
12 síður 12 síður »7. árg. Laugardaginn 21. desember 1957 299. tbl. Rælt um bætt skipulag á dreifingu á fsski í Reykfavík- Veitt leyfi til verzlunarreksturs á ýmsum stöðum í bænum Á fuiuli heilbrigðisnefndar Iteykjavíkur 10. des. s.l. var m. a. rætt um endurbætt skipulag á dreifingu fisks í bænum, en heilbrigðisnefnd hefur af hálfu bæjarstjórnar verið falið að gera tillögur i því máli. Þá var og lagður fram upp- dráttur af biðskýlum fyrir strætisvagnafarþega, sem Gunn- ar Hansson hefur gert og vaT samþykkt að óska eftir nýjum uppdrætti. Fyrir fundinum lágu nokkrar umsóknir um verzlunarleyfi, þ. á m. umsókn frá Ólafi Ásgeirs- syni Holtsgötu 22 um leyfi til að starfrækja sælgætisverzlun að Barónsstíg 3, umsókn frá Einari G. Bjarnasyni Helgafelli við Breiðholtsveg um verzlunarrekst ur í Breiðholtsgerði, umsókn frá Mjólkursamsölunni um starf- rækslu mjólkurbúðar að Suður- landsbraut 108. Hálfdán Eiríks- son Þórsgötu 17 sækir um leyfi til að verzla með nýlenduvörur í verzlun hans, Kjöt og fiskur, eft- ir breytingar er fram hafa far- ið í verzlun hans. Guðlaug DulBes á fundi Francos. John Foster Dulles er farinn frá Madrid. Þar sat hann langan fund með Franco einræðisherra og gerði honum grein fyrir Nato- fundinum, en ekki ræddi hann við hann nein tilmæli um að Bandaríkin fengju eldflauga- stöðvar á Spáni, enda er Spánn ekki 1 Nato. ] I Björnsdóttir Álfabrekku við Suðuriandsbraut sækir um leyfi ! til þess að selja pakkaðar mat- vörur, drykki, sælgæti og tóbaks vörur að Suðurlandsbraut 100. Loks var lögð fram umsókn Leós Árnasonar og Pálma Jóns- sonar um leyíi til að selja „Hamborger" og „franskar kart- öflur í veitingastofu þeirra í Austurstræti 12. Öllum þessum aðilum var veitt umbeðið leyfi a. m. k. til bráðabirgða og í sum um tilfellum með ákveðnum skilyrðum. Eiganda hárgreiðslustofunnar í Bankastræti 12 er gert að fram kvæma endurbætur á húsnæð- inu fyrir 10. janúar n. k. að við- lagðri lokun og eiganda rakara- stofunnar að Grettisgötu 62 að fara þegar í stað eftir áður gefn um fyrirmælum borgarlæknis, að viðlagðri lokun ella. Auglýsendur, athugiö! Aug'ýsendum, sem þurfa að auglýsa í Vísi á Þorláksdag — mánu- dag — skal á það bent, að auglýsingaskrifstofa blaðsins verður opin á morgun kl. 1—4 e.h. it*að er fljótséð á þcssum unga manni, að hann cr til í að glettást við jafnaldra sína og aðra. SíldarEegt í Grmdavíkursjó- Háhyraingar, fugl og lóðningar- Búið að salía í 48,725. tunnur af suðurlandssíld. Öngþveiti í efnahagslífi Ungverjalands ByltingaröBlum um kennt og hert á eftirliti í Ungverjalandi liafa verið stofnaðar með lögum svo kall- aðar eftirlitsnefndir alþýðu, sem hafa vald til þess að fara inn í verksmiðjur og skrifstof- ur o. s. frv., til þess að skoða skjöl og hafa eftirlit með rekstri, Nefndir þessar eru settar til þess að hafa eftirlit til hindr- unar skemmdarverkum í efna- hagslífi landsins, en þær hafa ekki vald til eftirlits með dóm- stólunum og hernum. Einn ráðherranna sagði við umræðu um þessi mál, að enn eimdi eftir af áhrifum bylt- ingarinnar frá því fyrir rúmu ári, en nú létu byltingaröflin til sín taka í laumi á efna- hagssviðinu. Fregnir þessar þykja sýna, að áframhald sé á öngþveiti í efnahagslífi Ungverja. og nú eigi að leita uppi menn, sem skellt verði skuldinni á. Óttast menn, að nýjar ofsóknir séu í uppsiglingu. Ungverjalandsnefnd SÞ. Hún hefur lýst áhyggjum sínum út af fregnum, sem bor- izt hafa um réttarhöld í Ung- venjalandi, og skorar á stjórn- ina að sjá um, að þar verði gætt. fyllstu mannúðar. Nefnd- in kveðst munu fylgjast áfram með atburðum í Ungverjalandi. Búið var að salta í 48,725 tunnur af Suðurlandssíld um síðustu helgi, sagði Gunnar Flóventz, skrifstofustjóri Síld- arútvegsnefndar við Vísi í gær. i Fimm hæstu söltunarstaðir eru: Keflavík 10,725 tunnur, Akranes 9855, Sandgerði 7144, og Hafnarfjörður 6341. Þrír hæstu síldarsaltendur eru Haraldur Böðvarsson & Co., 5774 tunnur, Miðnes h.f.'Sand- gerði 3968 og Þorbjörn h.f., Grindavík 2948. Þrír farmar af Suðurlands- síld eru þegar farnir til Sovét- ríkjanna og búizt er við að tveir aðrir fari til Sovétríkj- anna upp úr áramótum. Einnig hefur verið sendur einn farmur til Póllands og annar til Finn- lands. Frá 20. nóvember s.l. hefur verið nokkur veiði, þegar gef- ið hefur á sjó og s.l. laugardag var afbragðs góð og’ jöfn veiði. Bárust þá á land 12000 tunn- ur, en síðan hefur ótíð haml- að veiðum. Flest skipin halda áfram véiðum, þar eð síldin er enn til staðar. Síldarútvegsnefnd harst í gær skeyti frá eftirlitsskip- inu Albert, sem var statt sjómílu frá Grindavík kl. 11,30 f. h. Sagði í skejrt- inu, að dýptarmælir sýndi miklar lóðningar frá 10 nið- ur á 60 metra, mikið af fugli og háhymingi væri cinnig á þeim slóðum. Skeytið ber það með sér að líflegt hefur verið í Grinda- víkurEQÓnum og öll merki þt?ss að þar sé mikil síld. Háhyrn- ingur hefur ekki heyrzt nefnd- ur í allt haust en þar sem hann er, þar er síld. Akranesbátar og aðrir síldar- bátar fóru fremur seint út í gær, en fréttin frá Albert varð til þess að fleiri réru en ann- ars hefði verið. Einnig heyrðist í aðalstöð Neptúnusar, sem var að veiðum með síldarvörpu, sennilega nokkru austar. Feng- ust 20 til 40 körfur af síld í hali i vörpuna. Það voru því vonbrigði, að bátarnir fengu enga síld í nótt á þessum slóðum. Heyrðist í einum báti, sem var með 30 tunnur og mun það hafa verið mesti aflinn eftir nóttina. Það er ekkert efamál, að síld er á þessum slóðum, en hún næst ekki í netin, líkt og gerð- ist fyrr í vetur, en það er álit síldveiðimanria, að hún sé að færa sig austur með landinu, og létu sumir reka austur á Sel- vogsbanka. HelSlsheiði ruddí dag Samkvæmt upplýsingum frá Vegamálaskrifstofunni í morg- un er byrjað að ryðja Hellis- heiðarveginn og búizt vij að því verði lokið í dag. í gær mun hafa skafið víða af veginum og snjór því mirini á honum heldur en búizt var við. Vinnuvélar voru komnar upp á heiði í morgun, en ekki var vitað hvenær þær myndu ljúka mokstrinum. Fært er fyrir Hvalfjörð og var unnið að snjóruðningi af veginum í gær. Ekki er litl- um bílum samt ráðlagt að leggja leið sína upp í Borgar- fjörð að svo stöddu. Góiur ýsuafli á fínu Síðan kólnaði í veðri liefur verið góð ýsuveiði í Faxaflóa, Þó er aflanum misskipt. Þeir, sem róa með línu afia vel, en þeir sem eru með net, hafa ekkert fengið. Tveir bátar voru með hátt á sjötta tonn af ýsu hvor, á 120 lóðir. Hjá netabátunum var lít- ill afli. Kári var með eina lest, en Aðalbjörg með um 3 lestir og er það langbezti afladagur hjá Aðalbjörgu um langt skeið. Ýsan heldur sig uppi í sjó og gengur því ekki í netin. Hverníg er veðrið. Veðurhorfur voru þær í morgun, að liægviðri yrði í dag og léttskýjað og frost 5—12 stig. KI. 8 í morgun var suðaustan átt hcr í Rvk., eitt vindstig og frostið 11 stig, en koirfct upp í 12 stig í nótt. í nótt var mest frost á landinu 17 stig í Möðiudal, en 13 stig á Grímsstöðum. — Hiti erlendis kl. 5 í morgun: London 8, París 7, New York 14, Berlín 3, K.höfn 3, Stokkhólmur 8 og Þórshöfn í Færeyjum 2. Beðið greinar- gerðar í Moskvu Eisenhower forseti kom til Washington í gær. Boðað hefur verið, að hann flytji ræðu í útvarpú og sjón- varp eftir helgina og mun hann þar ræða gerðir NA-ráðstefn- unnar og víkja að ástandi og horfum í heiminum. Kol hafa fundizt í Egypta- landi, en ekki mikið — um milljón lesta — eða fjórð- ungur vikuframleiðslu Breta.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.