Vísir - 23.12.1957, Qupperneq 7

Vísir - 23.12.1957, Qupperneq 7
Mánudaginn 23. desember 1957 VjglR •4 hjálparstarfsemi félagsins, án þess að vekja athygli á framlagi og starfi einstaklingins. Sjálf- boðaliðarnir eru af ýmsum trú- arflokkum. Af öllum er krafizt fulls trúnaðar gagnvart hverj- •um þurfandi manni, er til stofn- unarinnar leitar, og hlýtt sé skilyrðislaust fyrirmælum, sem gefin kunna að vera í hverju einstöku tilfelli. Lagði stuml á sálfracði. Síra Varah lagði stund á sál- fræði í Oxford og hefur ávallt haft áhuga fyrir sálfræðilegum efnum síðan. Hann er nú 45 ára. Sé hann í vafa um hvað gera skuli í einhverju máli er það rætt á fundi, en hann lítur ávallt svo á, að hann verði að bera höfuðábyrgð á meðferð hvers máls. Þegar um lögfræði- leg vafaatriði er að ræða leitar hann til „44“ og „46“, sem eru lögfræðingar, og læknisfræðileg efni til „99“ og „128“, sem eru læknar. Af ýmsum stéttum. Meðál sjálfboðaliðanna er fólk af ýmsum stéttum, fram- kvæmdastjórar, kaupsýslu- menn, skrifstofufólk, húsfreyj- ur. Unga konan, sem ræddi við piltinn, er gift kona, en vinnur á skrifstofu. f „Mansion House 9000“ geta menn hringt á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Hringingar eru að meðaltali 100 á dag, flestar frá fólki, sem áður hefur leitað til Samverjanna, og þarf á ráðum að halda, og finnur styi’k í að halda tengsl- um við þá. En svo er kannske beðið um, að einhver komi á einhvern skuggalegan stað, götukrók, niður á einhverja hafnarbryggjuna eða í herbergi, sem er að verða fullt af gaslofti. Veikur vafi. Það getur allt af verið veikur vafi hjá mönnum, að það sé rétta leiðin að leita dauðans, er þeim finnst að þeir hafi engu að tapa, segir Varah. Getum við ekld sannfært þá verður að að skeika að sköpuðu. Margir eru svo einmana, að engin mannssál getur verið einmana- legri, og þeir vilja kannske að eins ná sambandi við einhveria nafnlausa menn eins og okkur, til þess að við vitum um áform þeirra, vitum örlög þeirra. Við leitum aldrei til lögreglunnar og við ætlumst aldrei til þess að okkur sé þakkað, segir hann ennfremur. Samt barst okkur í þessum mánuði 3000 stpd. gjöf, frá stofnun, sem maður að nafni Calouste Gulbenkian stofnaði, en hann var einn af aðalmönnum Iranska olíufé- lagsins, almennt kallaður „Mr, 5%“ í lifanda lífi. Féð verður notað til þess að fastráða tvo menn til íélagslegra starfa og til símavörzlu. Þrjú á clag. Síra Varha ákvað að hefjast handa, er hann hafði komizt að raun um, að þrjú sjálfsmorð, eru frarnin á degi hverjum í London. Lútherskir söfnuðir í Vest- ur-Berlin, Stokkhólmi og Hels- ingjaborg hafa leitað ráöa Sam- verjanna við að koma upp samskonar hjálparstarfsemi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.