Vísir - 18.03.1958, Blaðsíða 1

Vísir - 18.03.1958, Blaðsíða 1
1 G k* [4.8. árg. Þriðjudaginn 18. marz 1958 62. tbl. Átta menn drepnir í Kuwait. I síðustu viku voru átta íranskir menn drepnir í Kuwait við Persaflóa. Komu næstum 100 atvinnu- lausir menn frá Iran og ætluðu að reyna að fá atvinnu við olíu- jindirnar í Kuwait. Lögreglan j bannaði þeim að stíga á land, en er þeír gerðu það samt, var hafin skothríð á þá með ofan- greindum afleiðingum. Hinir mennirnir voru handteknir og fluttir yfir til Irans undir eftir- liti. ■ ÍÉ. Þingkosningar á Ítalíu. Þingkosning-ar fara fram á ft- a.líu í maí. Þingrof, sem nær til beggja þingdeilda hefur farið fram. — Brezk blöð eru ekki trúuð á stórbreytingar, en Kristilegi lýð- ræðisflokkurinn vonast til að verða styrkari eftir kosningarn- ar. Ferðalangar 47 þjóða gistu Island á sl. ári. 36—37 þús. farþegar ferðuðusí milli íslands og útíanda í fyrra. Hópur ungra íslendinga er nú staddur vestan hafs, þar sem þeir læra meðferð allskonar vinnuvéla. Myndin hér að ofan er tekin í verksmiðju, sem framleiðir dráttarvélar og fleiri slík vinnutæki, og verið að segja Jóni Þorvaldssyni og Þorsteini Þorsteinssyni til um viðhald slíkra véla. Drengur deyr af voiaskoti. Fjögurra ára drengur, Berg- iar Kristjánsson, beið bana af voðaskoti á heimili sínu á Seyðisfirði Iaugardaginn 15. marz s.I. Var hann einn í herbergi með foróður sínum nokkru eldri, sem var að handleika haglabyssu. Hljóp skot úr byssunni í höfuð drengsins. Óvíst er hvort byss- an var skilin eftir hlaðin eða drengirnir hafi hlaðið hana sjálfir. Foreldrar drengsins eru Sigurbjörg Ásgeirsdóttir og Kristján Þórðarson. Bergur var yngstur 15 systkina. Tveir togarar í land- heigi í Ægir náði öðrum en hinn slapp. Frá fréttaritara Vísis. — Seyðisfirði í morgun. Varðskipið Ægir tók brezka togarann Bombardier að veið- um eina sjómílu fyrir innan fiskveiðitakmörkin « Lónsbugt. Kom Ægir með togarann til Seyðisfjarðar í gær, þar sem kveðinn verður upp dómur í máli skipstjórans Albert Victor Meech í dag. Meech skipstjóri hefur við- urkennt að hafa verið fyrir innan fiskveiðitakmörkin og hefur borið það fram sér til varnar, að hann hafi lent of Miðfunartillaga Kanada í Genf vekur heimsathygíi. Landhelgín 3 míSur, en strandrgkin fái 12 mélna fiskveiðirétt viðurkenndan. Tillaga Kanadamanna, sem fram var borin í gær á Genfar- ráðstefnunni, um 3ja mílna3 landhelgi strandríkja til tak- mörkunar á fiskveiðum 12 mílur út frá ströndum sínum, liefur vakið heimsatliygli. Fulltrúar Noregs og írska lýðveldisins á ráðstefnunni studdu hana þegar. Fyrir tillögur Kanada talaði George A. Drew, sendiherra Kanada í London. Stabell, full- trúi Noregs, kvað tillöguna fara í þá átt,- sem Norðmenn vildu, og Mirrossey, fulltrúi írska lýðveldisins kvað með henni fullnægt sanngjörnum kröfum smáríkja, sem yrðu að þola ofveiði af völdum annarra þjóða. Menn virðast gera sér all- miklar vonir um miðlun á grundvelli þessarar tillögu. ★ Mikil flóð voru í Sidney í Ástralíu fyrir skemmstu og flæddi vatn í göng neðanjarð- branta, svo að þúsimdir far- þega komust ekki leiðar sinn- ar. innarlega, en byrjað að draga inn vörpuna þegar hann áttaði sig' á því. En í því kom Ægir. Enginn fiskur var í vörpunni, þegar hún var innbyrt, en skip- ið var með 600 kitt af fiski í lest. Bombardier er stór og hraðskreiður togari og er það talin sérstök heppni að Ægi, sem er gangvana skip, skyldi heppnast að ná honum. Skammt þar frá og þó nokkur nær landi var annar togari að veiðum, þegar Ægi bar að. Ekki var hægt að greina 'þjóðerni hans, en hann beið ekki eftir varð- skipinu og var á hak og burt eftir litla stund. Er það álitið, að ef varð- skipið Þór hefði verið þarna í stað Ægis, hefði auðnast að ná báðum landhelgisbrjótunum. Bombardier er fyrsti enski togarinn, sem tekinn er í land- helgi á þessu ári. Réttar veBurspár 90 daga af 100. Veðurfræðingar víða um heim gera sér vonir mn, að er íímar líða, verði unnt að birta áreiðanlegar veðurspár lengra fram í tímann en nú. Samkvæmt skeyti frá Vínar- borg segjast veðurfræðingar þar nú geta spáð um veðrið næstu 3—5 daga svo örugglega, að ekki skeiki hverja 90 daga af 100. Á árinu sem leið ferðuðust 8626 farþegar milli íslands og tlanda og er það örlitlu færra n árið næsta á undan, en þá ar farþegafjöldinn alls 36916. Til útlanda fór rúmlega halm- ígur þessa hóps, eða 18489 far- egar. Af þeim voru 9161 Islend- ngar og 9328 útlendingar. Til Is- i lands komu á árinu 18137 manns, þ.e. 8858 íslendingar og 9279 út- lendingar. 1 þessu sambandi má geta þess að íslenzkar skipshafn- I ir sem fara utan þeirra erinda að sækja skip, eru aðeins skráðar á leiðinni til útlanda, enda ferðast þær þá sem farþegar, en þegar þær koma heim aftur eru þær skráðar sem skipshafnir, en ekki farþegar. Hér eru því ekki að öllu leyti rétt hlutföll i tölu þeirra Islendinga, sem fara utan og koma heim. Samkvæmt framanskráðu hafa 18019 íslendingar tekið sér far milli Islands og útlanda á árinu sem leið en 18607 útlendingar. Mjög er það áberandi hve far- þegaflutningar fara sívaxandi með flugvélum, en dregur hins- vegar að sama skapi úr þeim með skipum. Af þeim 36626 manna hópi sem ferðaðist milli landa á árinu sem leið, fóru 27638 alls með flugvélum, eða meira en þrír af hverjum fjórum farþegum. Tæp 9 þúsund manns ferðuðust með skipum, þar af Hellisheiðí fær öllnm bílum. I g-ær var Hellisheiðarvegúr ruddur og er nú fær ölluin bif- reiðum. Vegir eru nú sem óðast að opn ast til umferðar við hlákuna síð- ustu dagana, en vegir eru sums staðar mjög blautir og jafnvel þungfærir orðnir af þeim sök- um. 4Q75 farþegar sem fóru til út- landa og 4913 manns sem komu hingað til lands. Samkvæmt upplýsingum út- lendingaeftirlitsins eru júlí- og ágústmánuðir mestu ferðamán- uðir ársins og þar næst júni og september, en minnst er ferðast fyrstu þrjá mánuði ársins. Helztu ferðalangarnir þá eru Færeying- ar, sem koma á vertíð. Á árinu sem leið voru það menn af 47 þjóðerni, sem gistu Island — og reyndar þó fleiri því útlendingaeftirlitið fer eftir rík- isfangi. Þannig eru t.d. Færey- ingar og Danir taldir til sömu þjóðar. Af útlendingum eru Banda- ríkjamenn sú, þjóðin sem mest sækir Island heim, og á árinu sem leið komu hingað 2432 Bandaríkjamenn. Hermenn eru þó ekki taldir í þessum hópi. Raunar eru Danir taldir enn þá fjölmennari, eða 3300 talsins, en þar eru Færeyingar í meiri hluta, fólk sem starfar hér á vertíðinni. Aðrar fjölmennustu þjóðir, sem ísland gista eru Bretar 854 talsins, 785 Þjóðverjar, 539 Norð- menn, 401 Svíi og 122 Frakkar. Síldin horfin úr Eyjafirði. Frá fréttailtara Vísis. Aknreyri í gærmorgun. Síldin, seni gekk inn Eyjaf jörð fyi-ir röskri viku í þykkum og niiklum torfum, er horfin aftur. Um fyrri helgi og framan af síðustu viku var allgóð síldveiði í firðinum en dró úr veiði þegar á leið vikuna og á laugardaginn fannst engin síld þrátt fyrir leit. Atvinnuhorfur vænlegri í Bandaríkjunum, vegna róttækra ráðstafana til að stemma stigu við atvinnuleysinu. Demokrataleiðtoginn Johnson í Bandarikjumuu sagði í gær, að liann teldi betur liorfa um lausn atvinnuleysisvandamálsins en fyrir nokknim dögum. Bæri tvennt til, þingið hefði til meðferðar frumvörp varðandi framkvæmdir, sem 2 millj. manna myndu fá atvinnu við, en fleiri myndu á eftir koma. Þing- ið myndi ekki tefja framgang nauðsynlegra ráðstafana. Hitt væri, að ríkisstjórnin hefði tekið viðbragð við vaxandi gagnrýni, og léti nú hendur athafna standa fram úr ermum. Eisenhöwer ávarpar konur úr flokki republikana í dag. Talið er, að hann kunni þá að víkja að skattalækkun, sem ráðstöfun til þess að stemma stigu við at- srínnúleysl, ;,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.