Vísir - 22.03.1958, Blaðsíða 5

Vísir - 22.03.1958, Blaðsíða 5
ÍÆúgardaginn 22. marz 1958 Vísa ■ . ; .. r/--. Leíkféiag stúdenta, Dyffirmi: Irskir ieikþætfir. Frumsýning í Iðnó í gær. Rhona Betson og Miehal Lovvey í „Kossinn“. Frumsýning var í Iðnó í jyrra kvöldl á sýningu Leikjélags stúdenta í Dyjlinni á jjórum írskum einþáttungum, ejtir heimskunna írska höjunda, Fyrsti leikþátturinn var Koss Inn (The Kiss) eftir Austin Clarke, og fóru þau Rhona Bet- son og Michael Lowey með hlut verkin. Vakti leikur þeirra beggja hrifni, enda skiluðu þau hlutverkum sínum með ágæt- um. Komu þegar fram í þess- ari leiksýningu hin sterku á- hrif þeirrar hefðar, sem er bak- hjarl þeirrar listar, sem hinir ungu stúdentar kynna hér, samtvinnuð ást á listinni, gagn- hugsun á verkefninu og ná- kvæmri þjálfun, svo að árang- urinn vekur furðu, þar sem margt er gert á mörkum full- komnunar, af ungu fólki, sem þegar hefur sumt náð langt á erfiðum námsfei'li eða jafnvel náð þar settu mai’ki (a. m. k. tvær stúlknanna hafa t.d. tek- ið B.A.-próf í sínum greinum). Næsti leikþátturinn var Bylt- ingin með tunglkomunni (The Rising of the Moon) eftir Lady Gregoi’y. Þar leika þeir Patrick McEntee, Patrick Laffan, Brian Quinn og Michael Higgins. Mest reynir þar á Patrick Mc- Entee, sem leikur lýðveldis- sinnann, sem hefur dulbúið sig sem götusöngvara og Patrick Laffan, sem leikur lögreglufor- ingjann,enfyrir áhrif lýðveldis- sinnans, sem hann á að hand- sama, leysist frelsisþrá hans úr dvala og hann hjálpar honum í stað þess að handsama hann. Þessi þáttur er áhrifamikill í einfaldleik sínum og ætti að vera auðskilinn skyldri þjóð, sem einnig hefur verið kúguð og þráð frelsið. Milli þátta söng Rosallyan Mc Menamin hið gullfallega þjöu- lag Danny Bov, og vakti með- ferð hennar á því og framkom- an öll óskipta hrifni. Þriðji þátturinn var Köttur- inn og máninn (The Cat and the Moon) eftir Yeats, en þar er ,,lýst dáleiðsluáhrifum mán- ans á einn í’áfandi kött“, en förumenn (líkami og sál) leita heilsubrunnsins, sem um getur í írskum þjóðsögum. Með hlut- vei'k lamaða mannsins fór Patric McEntee og Patrick Laffan með hlutverk blinda mannsins. Leystu þeir — og einnig hljóðfæraleikarai'nir þi’ír t— hlutvei'k sín ágætlega af hendi. Fjói’ði þátturinn var Helreið- in (Ridei's to the Sea), eftir John M. Synge, en í þessum þætti, sem gei’ist á vesturströnd Irlands, er lýst fólki, sem er svo nátengt hafinu, að niður þess er sem undirspil, er aldrei þagnar i hugai’heimi þess. Magn þrunginn örlagaþáttur, sem ís- lenzkur áhoi'fandi mun skilja og lifa sig inn í, þótt hann skilji ekki orð af því, sem fram fer á leiksviðinu. Leiklistin náði, að ég hygg, einna hæst í þessum þætti, og bar þar hæst Ann O. Dwyer, sem lék Mau- roya, móðurina. Mun áhorfendum seint úr minni líða þessi þáttur, einkum lokaatriðið, er ástvinii’nir hafa safnazt saman syrgjandi kring- um lík eina sonarins, sjódrukkn aða, er eftir var. Húsfyllir var og voru leik- endur kallaðir fi’am margsinnis, að leiksýningu lokinni. Þessi frumsýning var, að mínu viti, viðburður í leiklist- arlifi okkar, og hafi frændur okkar þökk fyrir. Axel Thorsteinson. HRINGUNUM FRÁ Hún læddist hljóðlega út úr svefnherbei’ginu til þess að vekja ekki son sinn. Hún var rétt að komast niður í stigann, þegar hún vai’ð þess vör, að hún var ekki ein. Það var dimmt í stiga- ganginum. Samt heyrðist ekki nokkurt hljóð. Hún fór afar varlega og hélt niðri í sér andardrættinum til þess að láta ekki heyra í sér. Hún gægðist yfir handi'iðið. Á meðan hún stóð þarna hreyfingarlaus og hlustaði heyrðist afar lágt hljóð, eins og skrjáf í blöðum í vindi. Taugar hennar voru spenntar til hins ítrasta. Var þjófur í húsinu? Og Keith mundi ekki koma heim fyrr en eftir max’ga klukkutima. Það var langt í næsta hús og sím- inn var í ski'ifstofunni, þar sem þjófurinn var. Mestur hluti mánaðarkaups Keiths og allt, sem hann hafði spai-að saman í tvö ár, til þess að geta gert við húsið, var þarna í skrifstofunni. Hvað oft hafði hún ekki beðið hann að leggja heldur peningana inn á banka? Hún vai'ð að hafast eitthvað að. Göngustafurinn hans Keith lá þarna á borðinu. Hann hafði skil- ið hann þarna eftir, þegar hann kom inn frá því að viðra hund- inn um kvöldið. Hvar var Major núna? Hann var náttúrlega stein- sofandi fyrir aftan húsið og lét sig dreyma um stór, matarmikil bein. Ef þetta hefði verið velkom- inn gestur í staðinn fyrir inn- brotsþjófui', hefði Major gelt á hann eins og óður væri. Hún læddist lengra niður og nálgaðist nú stafinn og loks hélt hún á hónum og kreisti hann og vó í hendi sér. Svo dró hún djúpt andann og leitaði með vinstri höndinni eftir kveikjaranum. — Eg skal láta yður kenna á þessum hérna, hrópaði hún og reiddi stafinn til höggs, ef þér farið ekki frá simanum. Maðurinn snerist á hæl. Það var dauðaþögn i nokkrar mínútur. Hún stóð sem agndofa, hún ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum, en loks gat hún stunið upp: — MARK. Þetta getur ekki verið þú. Þú ert dauður. Svitinn rann niður kinnarnar. En þetta voru samt augun hans Marks, á því var engin efi. Og munnurinn. Þetta var þá maðurinn, sem hún hafði einu sinni elskað og gifst — þessi aumingjalegi maður. * — Guð hjálpi mér! Þurfti ég þá einmitt að lenda á þessu eina húsi — átti ég þá einmitt að brjótast inn i þetta hús. Hringdu ekki i lögregluna! Gefðu mér eitt tækifæri! — En Mark — þú varst dáinn. Við jörðuðum þig.... en svo gat hún ekki sagt meira. Hún sá það fyrir augunum á sér: gamla bílinn og lögreglu- þjónana allt i kringum brenndan líkama mannsins. Þetta hafði verið Mai’k. Þetta var hringur- inn hans — þetta voru leifarnar. — Það var nú einmitt það bezta við allar mínar áætlanir, tautaði hann. Þegar ég sá, að leikurinn var tapaður, var ég ekki lengi að skipta um gervi við Mike, láta hann fá sitt af hverju af minum eigin eigum og fötum, sem ég vissi að þú mund- ir þekkja. Líkið var allt of mikið brennt til þess að nokkur gæti þekkt hann. Eins og málin stóðu, vorum við búnir að krækja í 98 þús., og ég hafði ekkert á móti því að kasta eign minni á þau einn. — Og þú hugsaðir aldrei eitt augnablik um mig? Ekki um það, hvað af mér yrði — ekki neitt? — Við skulum nú ekki vera að rifja þetta upp, elskan. Hún leit með fyrirlitningu á hann, þegar hann ypti öxlum. ★ Hann hafði alltaf verið ræfill, en ástin hafði gert hana blinda, svo blinda, að hún giftist honum. Þannig hófst það. Smátt og smátt voru öll fallegu húsgögnin sótt til þeirra aftur, af því að hann greiddi ekki af- borganirnar. Og áður en langt leið, sá hún, að allir kunningjar hans voru ræflar, vasaþjófar og slarkarar. Svo datt honum allt i einu siíjallráeði í hug. Áætlunin um gróðrarfyrirtækið! Auðvitað sagði hann henni aldrei frá þvi. Það eina, sem hún sá og vissi, var allt umstangið á baklóðinni, þar sem Mark og vinir hans máluðu gamla bíla, rannsökuðu skjöl og ráðslöguðú óendanlega. Þetta gekk allt vel, Þeir höfðu rekízt á bílinn, sem ók vikulaun- unum til starfsfólksins í súkku- laðiverksmiðjunni, hrifsað til sin töskuna með fénu, og stokk- ið upp i bílinn sinn, sem bsið á horninu. Svo óku þeir burt og skiptu um bil og héldu áfram i honum út úr bænum og komu peningunum undan. En þegar þeir voru komnir nokkra kilómetra út á þjóðveg- inn, höfðu þeir rekizt á beljuna, sem var á beit við vegarbrún- ina. Þeir hlutu að hafa verið á 120 km. hraða, eftir farinu að dæma, sem bíllinn skildi eftir sig. Bíinum hvoldi og svo kvikn- aði í honum, þar sem hann lá á hvolfi í skurðinum. Þar fannst Mark — eða var það þá Mike — hann lá þar á bakinu — stein- dauður. Lögreglumennirnir höfðu ver- ið mjög nærgætnir við hana, eins og þeir fyndu það á sér, að hún ætti skilið að eiga betri manii en Mark. Þeir spurðu hana ekki margs, ekki nema þess allra nauðsynlegasta. Þeir hjálp- uðu henni, þegar hún kom til þess að staðfesta, að þetta væri Mark, og þegar öllu var lokið, fannst henni eins og mikilli byrði væri af sér létt. Loksins’ hafði hún fengið hvíld og ró. Nú þurfti hún aldrei framar að kviða, þegar barið var að dyrum. Aldrei þurfti hún oftar að horfa í þessi hatursfullu augu karl- mannsins. Það var mikil mildi, að þau skyldu ekki hafa eignast börn. Nú gat hún byrjað nýtt lif. En hún hafði gleymt nábúun- um. Þeir unnu henni þess ekki að geta byrjað nýtt líf. Það var ekki það, að þeir segðu mikið, það var bara þetta augnaráð. Það var jafnvel verra en hitt, verra en nokkuð annað. Hún varð að flytja. Fá aðra stöðu, vinna, vinna og gleyma. Hún var búin að vera ekkja 1 fjögur ár, þegar hún hitti Keith. Þá fannst henni hið liðna vera eins og martröð, vonudur draum- ur, sem enga þýðingu hefði lerig- ur. Þeir voru ólíkir menn, Mark og Keith. Keith fór að heiman kl. 8.25 og kom heim aftur kl. 5.30, nema á föstudögum — eiris og i kvöld — þá stanzaði liaim hjá vinum sínum í bænum. Núgreip óttinn hana. Þau voru þá ekki gift, Kéitli og hún. Hérna var maðurinn hennar — þessi, sem neri saman hönd- unum og starði á hana. Húm fylltist viðbjóði. Hann hafði eng- an rétt til þess að lifa. Engan rétt til þess að standa þarna fyr- ir framan hana, svona ljóslif— andi. En svo kenndi hún í brjósti uni hann. Hann hafði alltaf dreymt um að verða eitthvað, afreka eitt- hvað. Alltaf óskað þess að eign- ast peninga og geta lifað lífinu. Að sjá hann núna: ræfilslegur, óhreinn, flóttalegur, illa til fara. Hvað hafði á daga hans drifið, siðan hann lék dauða manninn. Hann hlýtur að hafa verið i fel- um — sihræddur — alltaf hrsé'dcl ur um, að hann mundi þekkjast. Ekki þorað að nota sitt eigið nafn. ★ Hún tók skjóta ákvörðun. — Hvað gerðir þú við alla peningana? Af hverju ertu far- inn að stela aftur? — Hvað kemur það þér vi6? Og þannig hélt það áfram: — Nú, mér er svo sem samá þó að þú vitir það. Það voru menn, sem vissu of mikið. — Og þeir hafa hrætt út úr þér peningana! Jæja, heyi’ðu. Eg á hálsmen uppi — verðmætt háls men. Ef þú ferð burt og lætur mig aldrei sjá þig eða heyra oít- ar, og lætur aldrei neinn vita, að þú sért á lífi, skaltu fá það. Það er ekkert í skúffunum hérna. Þú eyðir bara tímanurri. Þetta er síðasti staðurinn, sem ég mundi geyma peninga, það ættir þú að vita. Heldur þú, að ég hafi ekki lært neitt á því að vera gift þér?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.